Vísir - 22.03.1973, Qupperneq 1
„SAMTÖKIN" í BLAÐA-
STRÍDI - SJÁ BLS. 3
63. árg. — Fimmtudagur 22. marz 1973 — 69. tbl.
Riddari
ömurleikans
óvorpar
vindmylluna
— Þorgeir Þorgeirsson
sendir Jóni
Þórarinssyni línu
- Sjó bls. 7
Deila þar til
annar er
orðinn
„staurblankur"
Danir báa sig undir, aö
vinnudeilan þar i landi leys-
ist ekki tyrr en annar hvor
abilinn er orðinn „staur-
blankur”.
Þykja vinnuveitendur lik-
iegri til þess að hafa lengra
úthaid, en ýmsar stéttir
launþegasamtakanna, eins
og samband járniðnaðar-
manna, leita fyrir sér um
stuðning hjá bræðrafélögun-
um i nágrannalöndunum. —
Sjá bls. 5
•
„Enginn
drepizt af
þessu ennþó"
„Það hefur enginn drepizt af
þessu ennþá”, og „A mis-
jöfnu þrffast börnin bezt”.
Þetta hefur mörgum þótt
vera einhvers konar
„mottó” fyrir frystihúsin
okkar. Já, hreinlætinu hefur
ekki verið fyrir að fara i
þeim mörgum hverjum. En
nýir tlmar boða nýja
hollustuhætti og við erum
neyddir til að láta af slfkum
hugsunarhætti. — SJÁ BLS. 2
•
Dónalegir
leigubíl-
stjórar
Leigubilstjórar hafa talsvert
verið i fréttunum siðustu
mánuði. í blaðinu i dag er
kvartað yfir litilli þjónustu-
lipurð leigubilstjóra I þættin-
um LESENDUR HAFA
ORÐIÐ
Sjó bls. 2
•
Keflavíkursjónvarp kl. 19:
FISHER MEÐ
BOB HOP OG
MARK SPITZ
Frá talningunni I morgun, talið frá vinstri: Séra Eriendur Sigmundsson, Bergur Pálsson, ráðuneytis-
fulltrúi, Sr. Úskar Þorláksson, Sigurbjörn Einarsson, biskup, Baldur MöIIer, ráðuneytisstjóri, Leifur
Sveinsson, forstjóri og Þór Magnússon, þjóðminjavörður.
Yfirgnœfandi
sigur sr. Þóris
Ilinn nýkjörni dómkirkjuprestur,
séra Þórir Stephensen.
„Þetta er mikið
þakkarefni fyrir mig og
hvatning. Þakklæti mitt
beinist til Guðs og ég
vona, að Guð gefi mér
kraft til að gera alltaf
það, sem rétt er — að
hann hjálpi mér að gera
sinn vilja,” sagði séra
Þórir Stephensen, þegar
úrslitin voru kunn i
prestskosningunum i
Dómkirkjuprestakalli
laust fyrir hádegið.
„Þetta var drengileg kosninga-
barátta,” sagði hann, „enda
tókumst við séra Halldór i
hendur i upphafi hennar og hétum
að keppa drengilega.”
Séra Þórir hlaut samtals 2081
atkvæði.en séra Halldór S.
Gröndal 860.
Þegar séra Þórir varð prestur I
Dölum aðeins 22ja ára að aldri
var hann yngsti prestur, sem
tekið hafði við embætti.
Hann fluttist til Sauðárkróks eftir
sex ár. Þar beitti hann sér fyrir
eflingu æskulýðsstarfs kirkjunnr,
og hafði söfnuðurinn keypt gamla
sjúkrahúsið til þess starfs.
Formaður Æskulýðsnefndar
kirkjunnar var séra Þórir i tvö ár,
en lét af störfum i fyrra. Fyrir
rúmu ári gekkst hann fyrir
stofnun Æskulýðsfélags Dóm-
kirkjunnar.
Talning atkvæða hófst klukkan
að verða hálftiu i morgun, en séra
Þórir var viðstaddur hana ásamt
lögfræðingi sinum, Benedikt
Blöndal.
Lögfræðingur séra Halldórs var
sömuleiðis viðstaddur
talninguna, en sjálfur var
presturinn staddur að Borg á
Mýrum.
Var talningu atkvæða lokið á
rétt rúmum klukkutima.
A kjörskrá voru samtals 5410 og
var kjörsókn 55 prósent. Voru það
um 70 prósent greiddra atkvæða
sem séra Þórir hlaut, og er þvi
kosningin að fullu lögmæt. -ÞJM.
Flugvélaeign íslendingo:
r
FLUGVELUM
FJÖLGAR - EN SÆTUM FÆKKAR
islendingar áttu um síð-
ustu áramót 97 flugvélar,
sem taka 1063 farþega f
sæti. Flugvélum haföi
fjölgað á síöasta ári, en
sætum fækkað.
Við bættust þrjár tveggja
hreyfla Fokkerflugvélar Flug-
félags íslands og ein landhelgis-
gæzluvél. Hins vegar seldi Flug-
félag islands eina 4ra hreyfla
Douglas vél úr landi. Vélum fjölg-
aði um 11, en sætum fækkaði um
188. Landsmenn áttu um áramót 9
4ra hreyfla vélar, 2 3ja hreyfla, 29
2ja hreyfla og 57 eins hreyfils.
Eln fyrir 12 árum áttu Is-
lendingar 51 flugvél, sem tók
samtals ekki nema 713 farþega.
Hámarkssætafjöldi flugvéla i
islenzkri eign varð árið 1968, 2071.
Siðan varð þróunin sú, að 4ra
hreyfla vélarnar voru margar
seldar (Loftleiðir), en þotur
teknar á leigu i staðinn.
— HII
NEGRARNIR MEÐ EIK
TALDIR „ÓÆSKILEGIR"
— flugu af landi brott snemma í morgun
Blökkumennirnir Michael
Stevens og Ari, sem sungið hafa
með hljómsveitinni EIK, flugu
héðan i morgun eftir að hafa
fengið aðvörun frá útlendinga-
eftirlitinu. Var þeim ráðlagt að
hafa sig af landi brott innan 24
klukkustunda, ef verra ætti ekki
að hljótast af. Blökkumennirnir
höfðu brotið vinnulöggjöfina
með þvi að syngja á hljómieik-
um i Reykjavik i fyrrakvöld án
atvinnuleyfa.
Að sögn Ólafs Sigurðssonar i
EIK flugu blökkumennicnir til
Luxemburg i morgun klukkan
sex, en þaðan halda þeir með
lest til Parisar. I Parisarborg
ættu þeir að vera i kvöld, en þá
tekur við ferð til Spánar, þar
sem þeir þurfa ekki atvinnuleyfi
til að sygnja.
„Ef þeim tekst að fá eitthvað
fyrir hljómsveitina að gera þar
erum við i hljómsveitinni
tilbúnir til að halda utan án
mikils fyrirvara”, sagði ólafur.
Annars sagði hann, að hljóm-
sveitin tæki upp þráðinn þar,
sem frá var horfið, þegar Mike
og Ari komu i spilið. „Við ætlum
að æfa upp frumsamin lög, en
halda siðan til Danmerkur i
sumar, þar sem okkur hefur
verið heitið starfi við góðan
klúbb”, sagði Ólafur. — ÞJM.