Vísir - 22.03.1973, Síða 3
3
Vísir. Fimmtudagur 22. marz. 1973.
Blað Braga Jósefssonar orðið landsblað hannibalista
„Samfökin hofo nú fengið mólgagn"
BlaðiA Þjóðmál var kosninga-
blað Braga Jósefssonar i Vest-
mannaeyjum, þegar hann var i
framboði til þings. „Nýtt land
hefur nokkuð lengi ekki verið
máigagn Samtakanna,” scgir
Halidór S. Magnússon fram-
kvæmdastjóri flokksins „Sam-
tökin liafa nú fengiö máigagn,
þar sem Þjóðmál er.”
Stuðningsmenn Hannibals og
Björns hafa breytt Þjóðmálum i
landsblað. Það hefur komið út
tvisvar i þvi formi. „Þetta er
aðeins til bráðabirgða,” segir
Halldór. „Við ætlum með vorinu
að hefja reglulega útgáfu
blaðs.”
„Það eru eingöngu sjálfboða-
liðar, sem að þessu vinna. Hall-
dór er fastur starfsmaður þing-
flokks hannibalista með skrif-
stofu i Vonarstræti, þar sem i
sama húsi eru þingflokkar
Framsóknar og Alþýðubanda-
lags. Nýtt land ákærði keppi-
nautana við Þjóðmál fyrir að
nota sima Alþingis. „Það gerum
við ekki,” segir Halldór. „Hið
eina er, að i blaðinu er sagt, að
nýir áskrifendur geti hringt i
þennan tima, þar sem ég starfa.
Hér er sambýli þingflokka við Vonarstræti — „Og vinstri
manna” hefur veriö limt neðan við „Samtök frjálslyndra” á
miðanum, kannski við nafnbrevtinguna. Hér svarar Halldór, ef
menn vilja verða áskrifendur að Þjóðmálum.
„Kosningahúmor" ó skrifstofum Nýs lands
„Við erum ekki
að gefast upp"
Meðan sundrungin gerist
alger i berbúðum „Samtak-
anna” i Reykjavik, efla báðar
fylkingar starf sitt, og mikil-
vægur þáttur er blaöaútgáfa.
Nýtt land var blað Samtakanna,
en það er i höndum stuðnings-
manna Bjarna Guðnasonar.
Fylgjendur llannibals og Björns
i Keykjavik geta ekki unað við
slikt og gefa nú út eigið biað i
Reykjavik, „Þjóðmál”. Visir
sky ggndist i gær bak viö tjöldin i
þessari blaðaútgáfu beggja
vegna viglinunnar.
„Við erum alls ekki að gefast
upp,”, segir Garðar Viborg
ábyrgðarmaður Nýs lands, sem
við hittum við umbrot blaðsins i
prentsmiðju Þjóðviljans ásamt
Björgúlfi Sigurðssyni, fram-
kvæmdastjóra útgáfufélagsins
Hugins h.f. „Þvert á móti mun-
um við herða sóknina og skipu-
leggja starf um allt land. Mér
segir einnig hugur um, að ekki
sé langt i næstu kosningar,”
segi Garðar.
Nýtt land kemur út vikulega i
náiægt fjögur þúsund eintökum.
„Það er kannski fullmikið sagt,
að blaöið skili hagnaði,” segir
Björgúlfur. „en það er ekki
langt frá þvi. Blaðið hefur haft
rikisstyrk. sem var á siðasta ári
á fjórða hundrað þúsund
krónur.
Eigandi blaðsins er hluta-
íélagið Huginn, sem i eru 30-40
hluthafar,” segir Björgúlfur.
Samtökin i Reykjavik, félagið
sem stuðningsmenn Bjarna
ráða, á stærstan hlut, en engan
veginn helming. Hins vegar
munu liðsmenn Bjarna i mikl-
um meirihluta i stjórn hluta-
félagsins.
Hannibalsmenn
vildu hlutafé fyrir
rikisstyrkinn
„Þeir buðu okkur einkenni-
lega kosti,” segja þeir um
meirihluta hannibalista i stjórn
landssamtaka SFV-flokksins.
„Þeir buðu, að við gætum haldið
rikisstyrknum áfram, en fram-
kvæmdastjórn landssamtak-
anna fengi jafnan hlutafé sem
styrknum næmi. Með þessu,”
segir Garðar, „hefði verið
skammt að biða þess, að stuðn-
ingsmenn Hannibals hefðu
fengið meirihluta i hlutafélag-
inu,” þar sem þeir ráða stjórn
flokksins á landinu sem heild.
Og nú getursvo farið, að Nýtt
land missi rikisstyrkihn.
Kannski fær blað hannibalista,
„Þjóðmál”, styrkinn.
Björgúlfur segir, að fjármála-
ráðuneytið hafi dregið i land
hótun um að svipta Nýtt land
opinberum auglýsingum, og fái
blaðið slikar auglý.singar eins
og önnur blöð, segir hann.
Tveir fastir starfsmenn eru
við blaðið, auk þess sem Bjarni
Guðnason og Garðar vinna
kannski um hálft starf við það,
svo að segja mætti, að fastir
starfsmenn séu þrir alls.
Blaðið er i góðum húsakynn-
um, fjögurra herbergja, við
Laugaveg 28.
Þar skal verða fundarstaður
fyrir stuðningsmenn Bjarna.
Nú eru 12 i ritnefnd blaðsins
og þangað komnir fulltrúar frá
landshlutunum, sem lita má á
sem visi að stofnun nýs flokks,
stuðningsmanna dr. Bjarna.
„Klofningurinn hlýtur að vera
báðum til bóta að mörgu leyti ',
segir Garðar. „Þessir hópar
áttu ekki saman.”
Á skrifstofur Nýs lands kom
nokkuö margt manna, meðan
blaðamenn Visis stóðu þar við.
Það var „kosningahúmor” i
mönnum. „Lausasalan hefur
aukizt, siðan slagurinn byriaði
sögðu ráðamenn. — HH
Forráðamenn Nýs lands: Garðar Viborg, ábyrgöarmaður, Lárus B. Haraldsson ritstjórnarfulltrúi og
Björgúlfur Sigurðsson framkvæmdastjóri I prentsmiðju Þjóðviljans.
enda er ekki um önnur húsa-
kynni að ræða.”
Blaðið Þjóðmál vill ekki
standa Nýju landi að baki. Út-
gefin eru um fjögur þúsund ein-
tök.
Útgáfan er i samræmi við
samþykkt flokksstjórnar Sam-
takanna frá i haust um útgáfu
blaðs þar sem menn töldu Nýtt
land starfa i ósamræmi við
stefnu meirihluta stjórnenda
flokksins.
Blaðið er prentað i prent-
smiðju Guðmundar Benedikts-
sonar. „Það er lifrænt og
skemmtilegt verkefni að gefa út
þetta blað,” segir Guðmundur,
sem lét þess getið, að i prent-
smiðjunni væru þrir tsfirðingar
og hann hafði ánægju af að
starfa fyrir Hannibal, enda gert
það i prentsmiðju á Isafirði,
þegar Hannibal hófst til mann-
virðinga forðum daga.
Halldór S. Magnússon segir,
að sá hópur, sem standi að Nýju
landi „hafi ekki hug á að starfa
innan Samtakanna”.
Bragi Jósefsson, sem sagt er,
að muni að nýju taka við stjórn
þessa gamla blaðs sins, tók i
sama streng.
Abyrgðarmaður að siðustu út-
gáfu Þjóðmála hefur verið Jón
Sigurðsson. —HH
Blað hannibalista i fæðingu I prentsmiöju Guðmundar Bene-
diktssonar.
URÐU AF FERÐ
TIL MIAMI
/•
Fl auglýsti ferð, en varð að aflýsa
Það liafa liklega verið sár von-
brigði fyrir þá, sem áttu fyrir
höndum ferð til Miami, þegar
það kom i Ijós nokkrum dögum
fyrir brottför, að ekkerl yrði úr
ferðinni.
Flugfélag íslands auglýsti eina
ferð þangað suður, en upphaflega
áttu tvær af vélum félagsins aö
fara þangað i skoðun, sem ekki er
enn hægt að framkvæma hér-
lendis, aö þvi er Sveinn
Sæmundsson, blaðafulltrúi Ft,
tjáði blaðinu.
„Reglur um leiguflug komu i
veg lyrir, að hægt yrði að fara”,
sagði Sveinn meðal annars. Það
eru ameriskar reglur, sem segja
til um. að i slikar ferðir verði að
taka sig saman landsmálafélög.
Landsmálafélagið Vörður bauö
félagsmönnum upp á þessa lerð.
þar sem góö kjör voru i boði, en
Sveihn sagði, að sennilega helði
þetta verið hægt með lengri fyrir-
vara. Enda vannst ekki timi til
þess að upplylla þær kriilur. sem
settar voru.
Við höfðum samband við
llilmar Guðlaugsson hjá Verði.
og sagði hann, að sökum lá-
tnennis hefði orðið að hætta við
fyrirhugaða ferð. Um 20-30
trtanns höfðu pantað. en ferðin
var ákveðin 7 marz.
Það má geta þess, að hart var
deilt á Vörð fyrir að bjóða upp á
slika ferð, á meðan allt gekk á
afturfótunum i Eyjum. og eftir
slika atburði, sem þar höfðu átt
sér stað. Hefur það kannski átt
sinn þátt i slæmri þátttöku.
En vélar flugfélagsins fóru
ferðina samt ekki til einskis, þó
að engir farþegar væru um borð.
I staðinn var flutt fragt, og seinni
flugvclin, sem kom til landsins i
fyrradag flaug til að mynda til
Flórida.Brussel og Afriku.
.Sveinn Sæmundsson kvað þetta
atvik ekki einsdæmi, og tók það
fram, að mikil bréfaskipti hefðu
átt sér stað á milli amerisku flug-
málastjórnarinnar og Flug-
lélagsins vegna þessa. —EA