Vísir - 22.03.1973, Qupperneq 13
Vísir. Fimmtudagur 22. marz. 1973. 13
1 □AG | D KVÖLD Q □AG | D □ J :□ > * Q □AG
„Furöuverkið” fer á ferðaiag um landið. Sýningar verða á Suðvesturiandi í fyrstu. Þetta leikrit er fræö-
andi, og krökkum, sem sáu það i Grindavík, virtist þykja það skemmtilegt. Krakkarnir fá að vera meö
og kalla fram í, þegar þeir vilja. í kvöld heyrum viö álit nokkurra barna á þessu leikverki. A myndinni
sjást fornir fuglar og risaeðla, Halla Guömundsdóttir, Herdís Þorvaldsdóttir og Sigmundur örn
Arngrimsson.
Útvarp klukkan 19.20 í kvöld
MENNTAMÁLARÁÐ,
FURÐUVERK O.FL.
Krakkar eru spurðir hvað þeim
finnist um harnasýningar I þætt-
inum Giugginn i kvöld. Mörgum
hefur fundizt kyndugt, að full-
orðnir menn eigi að vera dómarar
yfir barnasýningum, þar sem
þessar sýningar séu alls ekki
miðaðar við smekk fullorðinna
manna. Það má eflaust fullyrða,
að börnin séu beztu dómararnir á
sýningarnar að vissu marki, þó
að hrifnæmi og lftill samanburður
hái kannski afstæðu mati þeirra.
Það er þó ekki óliklegt, að
skemmtilegra verði að hlusta á
börn tala um barnasýningu
heldur en þá fullorðnu.
Það er Sigrún Björnsdóttir,
sem spyr börnin spurninga og
ræðir við þau um hina nýstárlegu
sýningu Þjóðleikhússins,
„Furðurverkð”, og einnig verður
fjallað um aðra skemmtilega
sýningu, eins og Sigrún orðaði
það. En það er leikbrúðusýningin
„Leikbrúðuland”. Þar eru nú
sýndir þrir stuttir þættir á einni
sýningu, allir um Meistara
Jakob.
Guðrún Helgadóttir verður að
þessu sinni með spjall, sem hún
átti við Ingu Birnu Jónsdóttur,
formann menntamálaráös. Sagði
Guðrún okkur, að í spjalli þeirra
kæmu fram nokkur nýstárleg at-
riði og forvitnileg, meðal annars
að þvi er varðar kvikmyndagerð,
hljómlist og útgáfustarfsemi á
vegum ráðsins.
Ekki fékkst vitneskja um hlut
Gylfa Gislasonar að þættinum.
— Lö
Útvarp kl. 21.40 í kvöld
ÞURRKAST INDÍÁNAR ÚT?
Haraldur ólafsson flytur tiðum
fróöleg erindi I rikisútvarpið.
Hann hefur talað mikið um nátt-
úruvernd, þriðja heiminn og nú er
hann byrjaður að tala um það,
sem hann kallar fjórða heiminn,
en þar mun hann eiga viö minni-
hlutahópa hvar sem þeir finnast á
jarðarkringlunni.
Það má segja að það
séu orð i tima töluð hjá
Haraldi ólafssyni
lektor, þegar hann ræðir
um Indiána i kvöld.
Undanfarið hefur komið hér á
landi skriða af frétum um ýmis-
legt tengt Indiánum á einn eða
annan máta. Fyrst var byrjað að
sýna myndina Little Big Man,
siöan tók Þjóðleikhúsið til sýn-
inga leikritið „Indiána”. Bæði
þessi listaverk fjölluðu um Indi-
ána i Norður-Ameriku fyrir
mörgum árum. Bæði tóku mið af
nútiðinni og minntu á hana, og i
báðum kom fram svipuð skoðun á
hlutskipti Indiána.
Þegar þetta gerist hér norður á
Islandi og menn eru enn aö ræða
þetta sin á milli, kemur svo
skyndilega straumur frétta um
núlifandi Indiána, sem eru að
mótmæla kjörum sinum og hafa
uppi harðar aðgerðir til að fylgja
kröfum sinum eftir. Og nú er svo
komið, að þeir eru sveltir, þar
sem þeir hafast viö, i bænum
Wounded Knee.
En þetta átti að vera til að
vekja athygli á erindi Haralds
Ólafssonar. Þetta er i annað
skiptið, sem hann ræðir um Indi-
ána. I siðasta erindi fjallaði hann
um Indiána i Suður-Amerfku.
Hann segir, hvernig þeir eru við-
ast orðnir að kúguðum minni-
hlutahópum sem alls staðar eru
óvelkomnir. Yfirskrift erindisins
i kvöld er enda: „Er verið að út-
rýma Indiánum?”, svo að Har-
aldi finnst greinilega ekki ótima-
bært að varpa þessari spurningu
fram á þessu herrans ári 1973.
Þetta er sem sagt vakandi mál
núna, eins og árið 1851, þegar
eftirfarandi klausa var i skýrslu
frá innanrikisráðuneytinu banda-
riska:
„Þvi verðu ekki leynt, að grip-
deildir Indiána á landamæra-
svæðunum hafa haft i för með sér
mikinn vanda. Framrás þjóðar
vorrar þvingar innfædda til að
yfirgefa arðsöm landsvæði og
leita hælis á ófrjósömum
svæðum, þar sem hvorki fyrir-
finnst akur né villibráð: knúöir af
hungri stela þeir hestum land-
nemanna, múldýrum og naut-
gripum til að bæta upp vandræði
sin og fullnægja kröfu
náttúrunnar. I slikum tilvikum er
þeim þegar veitt eftirför, og verði
þeir fangaðir, er þeim refsaö
harðlega. Það skapar afturámóti
.W.V.'.V.W.V.W.V.V.VAW.V.'.V.V.V.V.V.V.V.1
*
Spáin gildir fyrir föstudaginn 23. marz
u
m
M
Nl
" r 'A
v*
m
Hrúturinn,21. marz - 20. april. Það litur út fyrir,
að það muni borga sig fyrir þig að beita tals-
verðri dirfsku i samskiptum þinum við aðra i
dag t.d. varðandi samninga.
Nautið, 21. april - 21. mai. Góður dagur, ekki
hvað sizt hvað snertir öll samskipti við gagn-
stæða kynið, eins að gera þá ráð fyrir þvi um
leið, að þar sé ekki allt sem sýnist.
Tviburarnir, 22. mai - 21. júni. Þú skalt athuga
alvarlega endurskipulagningu i allri starfstil-
högun, eins mundi ekki saka, þó að þú endur-
skoðaðir fjármálin við tækifæri.
Krabbinn, 22. júni - 23. júli. Þetta getur orðið
dálitið erfiður dagur, og þá sér i lagi fyrir ein-
hvern misskilning, þinn eða annarra, sem ekki
er gott að átta sig á i bili.
Ljónið,24. júli - 23. ágúst. Að mörgu leyti glæsi-
legur dagur, sér i lagi hjá þeim, sem fást aö ein-
hverju leyti við hönnun eða undirbúning meiri
háttar viðfangsefna.
Meyjan,24. ágúst - 23. sept. Ekki atkvæðamikill
dagur, en það sem gerist og til atburða getur
talizt mun verða fremur jákvætt, að minnsta
kosti þegar frá liður.
Vogin, 24. sept. - 23. okt. Segöu ekki hug þinn
allan i dag, en reyndu þvi meir aðgera þér grein
fyrir, hvað aðrir munu hugsa, og láta ekki upp-
skátt eins og er.
Drekinn,24. okt. - 22. nóv. Þó að eitthvað miður
æskilegt komi fyrir þig i dag, ættirðu ekki aö
láta á þvi bera, en telja öðrum of gott að hlakka
yfir mistökum þinum.
Bogmaðurinn, 23. nóv. - 21. des. Þú skalt ekki
gera neina samninga i dag, nema þaðsé öruggt,
aö þeir séu þér i hag. Taktu loforð ekki sem góða
og gilda vöru.
Stcingcitin,22. des. - 20. jan. Verði þér trúað fyr-
ireinhverju leyndarmáli i dag, skaltu varðveita
það vel, en verði leitað ráða hjá þér, skaltu
hugsa þig vandlega um.
Vatnsberinn 21. jan - 19. febr. Þú kemst i kynni
við einhvern, sem þér gengur erfiðlega að átta
þig á, og ættirðu að athuga, hvort ekki er viss-
ara að vera á verði gegn honum.
Fiskarnir,20. febrúar - 20. marz. Þótt þér kunni
að finnast, að allt snúist sama hringinn aftur og
aftur, er um nokkra framsókn að ræða hjá þér i
dag og árangur talsverður.
I
S
I
I
í
í
.v.v.v.vv:
haturskennd hjá Indiánunum,
sem leiðir til ofbeldisverka, er
bitna á friðsömum borgurum og
eignum þeirra. Landið allt logar
þvi i uppþotum, og fylgja þeim
eyðileggjandi styrjaldir með
blóðugum fórnum og efnalegum
skaða. Það er álit okkar, að þetta
sé i flestum tilvikum hinn eigin-
legi bakgrunnur baráttu okkar
við Indiána.”
Nú eru Indiánar viðast hvar
horfnir i risasamfélögin, og
hnefarétturinn er ekki eins al-
gildur og á þessum dögum. Lög
og regla hafa sterka arma, sem
koma i veg fyrir atburði svipaða
þeim, sem gerðust i þann tið. Að
þvi leyti er hlutskipti minnihluta-
hópanna, hvort sem þeir heita
Indiánar eða eitthvað annað,
ömurlegra nú en áður. Það þýðir
ekkert fyrir þá að risa upp á
afturfæturna. Þá fer eins og i
Wounded Knee. — Ló
IÍTVARP •
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. Til-
kynningar.
16.25 Popphornið.
17.10 Barnatími: Soffia
Jakobsdóttir stjórnar. a.
Æsir og Asynjur. Goðfræði-
leg kynning i ljóðum og
lausu máli, með söngvum úr
nýju leikriti eftir Böðvar
Guðmundsson.
18.00 Eyjapistill. Bænarorð.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Daglegt mál. Indriði
Gislason lektor flytur þátt-
inn.
19.25 Glugginn.
20.05 Samleikur i útvarpssal.
Konstantin Krechler,
Vladimir Dedek, Allan
Williams og Pétur Þor-
valdsson leika Strengja-
kvartett nr. 6 i F-dúr op. 96
eftir Dvorák.
20.30 Leikrit: „Ast Don
Pcrlimplins á Belísu i garði
hans” eftir Frederico
Garcia Lorca. Þýðandi:
Guðbergur Bergsson. Leik-
stjóri: Gisli Halldórsson.
Persónur og leikendur::
Don Perlimplin, Rúrik Har-
aldsson. Belisa, Valgerður
Dan. Marcolfa, Sigriður
Hagalin. Móðir Belisu,
Magrét ólafsdóttir. Húm-
vofur, Margrét Helga Jó-
hannsdóttir, Soffia Jakobs-
dóttir.
21.15 Ctvarpskórinn i Riga
syngur, lettnezk lög.
Söngstjóri: Ed.gar
Rachevský.
21.40 Er verið að útrýma
Indiánum? Haraldur
Ólafss. lektor flytur erindi.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (27)
22.25 í sjónhending. Sveinn
Sæmundsson talar viö Jón
Asmundsson i Hafnarfirði,
sem rifjar upp ýmislegt frá
ferli sinum til sjós og lands.
22.55 Manstu eftir þessu?
Tónlistarþáttur i umsjá
Guömundar Jónsson pianó-
leikara.
23.40 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
'.V.V.VAV.VAV.V