Vísir - 22.03.1973, Blaðsíða 16

Vísir - 22.03.1973, Blaðsíða 16
vísm Fimmtudagur 22. marz. 1973. „Lögbannið gildir hvert sem nafnið er" „Svo lengi sem þetta er taliö vera sama féiagiö, skiptir ekki máli, hvort tekin er ákvöröun um aö breyta nafni þess”, segir Logi Guðbrandsson lögfræöingur Bjarna-manna. Logi segir einnig, aö ekki sé heimild i lögum félags „samtak- anna” i Reykjavik til að breyta nafni félagsins nema á aöalfundi. Þótt nafnbreyting, sem hanni- balistar gerðu, hafi verið bundin þvi skilyrði, að hún hlyti staöfest- ingu á næsta aðalfundi félagsins, geri lög félagsins ekki ráð fyrir slikri „skemmri skirn”, segir Logi. Hann telur þvi, að úrskurður um lögbann gildi, hvert svo sem nafn félagsins sé. — HIL Togaraverkfalli lýkur í dag Kikiö mun punga út 6-S milljón krónum til að leysa togaraverk- falliö, sem hefur staöiö i (>() daga. Hikisstjórnin ætlar aö lögfesta lokatilboö yfirmanna, sem samninga cn greiöa úr rlkissjóöi mismuninn á þvf tilboöi og loka- tilboöi útgeröarmanna. Frumvarpið verður væntanlega samþykkt sem lög i dag. Það var samþykkt i neðri deild seint i gærkvöldi, með atkvæðum stjórnarflokkanna, en stjórnar- andstaðan sat hjá. Sjálfstæðismenn lögðu til, að málinu yrði visað i gerðardóm. Það var fellt með 20:14 og þrjár breytingartillögur, sem voru frá Pétri Sigurðssyni, Alþýðuflokks- mönnum og Sverri Hermanns- syni, voru felldar. Þessar tillögur fjölluðu um, til hvaða skips- manna sérstök ákvæði frum- varpsins skyldu taka. -HH. Meðalœvi í heiminum: BARÁTTAN HARÐNAR Meöalævi kvenna er hæst i Svi- þjóð, þá llollandi og svo tslandi. Meðalævi karla er hæst i Sviþjóð, þá Noregi og llollandi og siöan ts- landi og Ilanmörku. Konur veröa aö jafnaði T6,5 ára gamlar i Sviþjóö, 7(>,4 ára í Hol- landi, 7(>,3 ára á tslandi og 76 ára i Noregi. Karlar verða aö jafnaöi 71,9 ára i Sviþjóð, 71,0 ára i Noregi og llol- landi og 70,7 ára á tslandi og i I)an mörku. Meöalævi kvenna var hæst á tslandi á árunum 1961-1965, en siöan náðu Svíþjóð, Holland og Noregur islandi i þeim efnum. — HH. SÍNE um Hannibal: „Undansláttarsemi við auðhringa" „Ailar tilraunir ýmissa inn- lendra aöila i þá átt að þvæla ts- lendingum fyrir dómstólinn i Haag eru undansláttarsemi við alþjóða-auðhringa og algjörlega . andstæður hagsmunum tslend- inga”. Þannig er sagt i yfirlýsingu Sambands islenzkra námsmanna erlendis (StNE) um stefnu Hannibals gagnvart Haag. StNE-menn álita, að íslendingar viðurkenndu lögsögu dómstóls- ins, ef þeir sendu fulltrúa fyrir dómstólinn i Haag. tslendingar yrðu þá „að viðurkenna bráða- birgðaúrskurð dómstólsins frá þvi i sumar og hætta að trufla landhelgisbrjóta, telur SINE, til að flækja ekki málið, meðan dóm- stóllinn fjallar um það. Verndun islenzks hersvæðis innan 50 miln- anna yrði þar með skotið á frest um ófyrirsjáanlegan tima”. Svo segir SINE. — HH. VARNARGARÐURINN VARÐ ÞÁ BARA TIL TRAFALA 8 hús undir hraun síðan í gœr — Mörgum vöknaði um augu að horfa upp á eyðileggingu híbýla sinna Mikiö gos var I Eyjum I morg- un, hraunrennsli talsvert, en gas var i lágmarki. Enda var heldur hvasst I morgun, en þó fór að lygna þegar liða fór á morguninn, meö hægum suö- vestan. Hraunrennslið heldur áfram við verkamannabústaðina svo- kölluðu, og virðist einna mest við Urðaveg. Siðan i gærdag, eru 8 hús komin undir hraun, og hraunið er nú alveg komið að þvi niunda. Þrir verkamanna- bústaðanna eru komnir undir. A þremur dögum hafa þvi 20 hús farið undir hraun. Þar sem áður hafði verið reistur varnargarður, sem átti að hefta framrás hraunsins, hafa heldur betur orðið enda- skipti á hlutunum. Varnargarð- urinn virðist heldur ógagn en hitt, þvi alls ómögulegt er að dæla i gegnum garðinn, til þess að kæla hraunið. Eina vonin er nú bundin við nýja varnargarðinn, sem er stór og mikill. Þar hefur hraun ekki komist að ennþá, en ef það færi yfir hann, er hraun komiö á jafnsléttu upp i bæinn. Menn hafa verið á stöðugu undanhaldi að undanförnu með dælur og slöngur, en nú er verið að reyna áð koma þeim fyrir á nýjan leik. Margt hefur þó gengið á móti, vélar hafa brætt úr sér og annað slikt. Reynt hef- ur verið að gera tilraunir meö að dæla á hraunið að ofan, en það hefur gengið brösuglega. Virðist nú helzt sem varnar- garðurinn sem búið var að leggja svo mikla vinnu i, verði til trafala. Hraunið fer ekki yfir garðinn, en það ýtir honum hægt, og hægt á undan sér á stöku stað. Þegar við höfðum samband við Eyjar i morgun, var komið svartsýnishljóð i mjög marga, jafnvel þá sem hafa staðið að kælingu á hrauninu. Vatn kom aftur um klukkan þrjú i gærdag á þá staði þar sem vatnslaust haföi verið þá um morguninn, en þá hafði fiski- mjölsverksmiðjan minnkað af- köstin um helming, en talsvert magn af vatni er notað þar. Mjög ströng gæzla er höfð á þvi að menn hætti sér ekki að óþörfu inn i miðbæinn. Súrefnis- grimur hafa nú bætzt við, og hefur lögreglan til dæmis 10 undir höndum. Einnig hafa þeir sem þurfa að stunda vinnu á hættusvæðinu súrefnisgrimur, sem koma að miklu gagni. t morgun var gasið mælt, og þá kom i ljós að þaö var i lág- marki, en búast má við að það aukist aftur, ef eitthvað fer að lygna að ráði. „Vonleysishljóð er i mörgum hérna núna, enda engin furða, þar sem hraun viröist renna sina leið þrátt fyrir allar aö- gerðir”, sagði einn lögreglu- maður sem við ræddum við i morgun. „I gærmorgun þegar hraun fór að renna yfir verkamanna- bústaðina brustu sumir eigend- anna i grát”. — EA. „Vildum ekki lóta eyðileggja aðra kosningu ## — segir Davíð Oddsson um „fcg frétti ekki af þessari utan- kjörslaðakosningu fyrr en klukkan hálftólf kvöldið áður en hún átti að fara fram. Og þá varð þaðbaravegna þess, aö kunningi minn, sem hafði heyrt af henni, sagði mér frá hcnni”. Þetta sagöi Davið Oddsson, aðalfram- bjóðandi Vöku við kosningar til Háskólaráðs aö þessu sinni. Davið stóð, sem kunnugt er, fyrir þvi, að lögbann var sett á áðurnefnda utankjörstaða- atkvæðagreiðslu. Visir spurði hann hverjar ástæður hefðu verið helztar til þess. lögbannsaðgerðina — Mér er sú ástæða efst i huga, að þarna er um að ræða freklega mismunun á milli nemenda skólans. Margir háskóla- stúdentar þurfa að vera fjarstaddir, þegar kosningin fer fram. Ef á annað borð er farið út i að láta fólk kjósa utan kjör- Eins og líkum lætur hefur lögfræðideildin skeggrætt lögbannið. Hér eru þrir tilvonandi lögfræöingar I slikum samræðuin. Davið Oddsson, form Vöku á litlu myndinni. staðar, þá á þetta fólk að fá að gera það alveg eins og þessir náttúrufræðinemar. önnur ástæða var sú, að engar reglur voru til um utankjörstaða- atkvæðagreiðslu i kosningum til Háskólaráðs, og við vildum ekki láta eyðileggja kosninguna I annað skipti á mánuði með klaufaskap i kjörstjórn. Ég er frekar hlynntur, að fólk fái að kjósa utan kjörstaðar, ef það kemur ekki atkvæðagreiðslu við á kjördegi, en þá verður jafnt yfir alla að ganga. Ég væri ekki að bjóða mig fram, ef ég hefði á móti þvi að fólk kysi. A fundi með kjörstjórn i gær- kvöldi lagði Davið Oddsson þvi til, að kosningunum yrði frestað um eina viku. Þar sem komið hefði fram hjá kjörstjórn, að hún hefði auglýst kosningununa vit- laust, þannig að löglegar kosning- ar gætu ekki farið fram á morgun — föstudag. Davið benti á, að hann hefði lagt til að fresturinn yrði i viku, vegna þess að þá yrðu náttúru- fræðinemarnir komnir heim úr Færeyjaferð sinni. — Markmiðið með lögbanninu var alls ekki það að hindra þetta fólk I að kjósa, heldur vildum við, að það eins og allir, fengi að kjósa á sama grundvelli sagði Davið að lokum. — LÓ/ÓG. m LAFÐIN AÐ KOMA? Töskur brezku sendimannanna Pooley (t.v.) og Keeble voru ekki siöur ábúöarmiklar en þeir sjálfir. Hér eru þeir að ræða við McKenzie sendiherra i morgun. A myndinni til hægri arkar Lúðvik til fundar nreð tviræðan svip á aiullitinu. Að baki hans eru þeir Magnús Torfi og Einar Ágústsson (Ljósm. VIsis BG). Mikilvœgur fundur um londhelgismól í morgun „Við vonumst eftir að ná sam- komulagi um ráðherrafund. Þaö er varlegast að segja ekki mikið annað, og liklega munum við ekkert geta sagt eftir fundinn heldur,” sagði McKenzie sendiherra Breta i anddyri utanriksráðuneytisins. Mikilvægur fundur um land- helgisdeiluna var að hefjast. Sendiherra hafði fengið liðs- styrk tveggja sérfræðinga frá London, Keeble aðstoðarráðu- neytisstjóra i utanrikisráðu- neytinu og Pooley frá sjávarút- vegsráðuneytinu. í liði islands voru þrir ráð- herrar, Einar, Ldðvik og Magnús Torfi, með meiru. „Ég segi bara allt gott,” sagði Einar. Niðurstöðurnar gætu orðið, að lafði Tweesmuir birtist aftur á sviðinu. -HH.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.