Vísir - 30.04.1973, Síða 1
VAR KVEIKT í
BERNHÖFTSTORFUNNI?
— sjá baksíðu
Vinstri menn
gengu af
miðstjórnarfundi
Framsókn að sprinqa?
Slík átök uröu á miö-
stjórnarfundi Framsókn-
ar í gær, að við borö ligg-
ur, að flokkurinn hafi al-
gerlega klofnað. Kunnug-
ir segja, að átökin milli
vinstri og hægri manna
hafi verið um málefni og
á nærri öllum sviðum.
Fulltrúar Sambands ungra
framsóknarmanna gengu aö
lokum af fundinum. Þeir lutu i
lægra haldi i átökum um helztu
deilumálin, og Ólafur Ragnar
Grimsson var felldur út úr
framkvæmdastjórn flokksins.
Jón Skaftason og 24 aörir úr
„hægri” arminum báru fram
tillögu um aö ekki skyldi lengur
ræöa viö Alþýöuflokk og „Sam-
tökin” um sameiningu flokk-
anna. Þessi tillaga var dregin tii
baka eftir mikil átök, en siöar
þó samþykkt tillaga, sem gekk i
sömu átt. Framsóknarflokkur-
inn hefur þvi dregiö sig út úr
viöræöum um sameiningu, en
samþykkt var aö ræöa viö hina
flokkana um vinstra samstarf.
Vinstri menn biöu einnig ósig-
ur i byggöamálum og utanrikis-
málum. Þeir töldu, aö hægri
forysta flokksins væri „i her-
ferö” gegn sér.
Eftir aö Ólafur Ragnar féll I
kosningu framkvæmdastjórnar,
lýstu tveir ungir Framsókn-
armenn, Baldur Óskarsson og
Friögeir Björnsson yfir, aö þeir
mundu ekki taka sæti i vara-
stjórn, þar sem þeir höföu áöur
setiö. Halldóra Sveinbjörnsdótt-
ir var kjörin I varastjórn en
hafnaði sætinu.
Fundurinn flosnaöi upp undir
lokin. Nánar er sagt frá kosn-
ingunni ábls. 3. — HH.
NORSKU HUSIN A
TIu fyrstu húsin, sem
ákveöiö var aö kaupa frá
Noregi fyrir Vestmannaey-
sjáum viö hvar
veriö er aö skipa Vest-
mannaeyjahúsunum um
borö i flutningaskipiö Nenny
Trader i höfninni I Þránd-
heimi. Samkvæmt áætiun
átti skipiö aö koma til Kefla-
vikur I kvöid en vegna
veðurs varö þaö aö 'leita
hafnar I Færeyjum.
inga eru nú á leið til landsins
meö norsku skipi. Alls veröa
keypt. 40 hús frá norsku
verksmiöjunni Block og
Vatne.
Þau á aö setja upp i Kefla-
vik og eru nú þegar tilbúnir
grunnar fyrir 15 hús en sam-
kvæmt sar.iningum Viðlaga-
sjóös viö verksmiöjuna eiga
allir grunnarnir að vera
tilbúnir fyrir júnilok. Komn-
ir eru menn frá verksmiðj-
unni til að vinna viö sam-
setningu húsanna.
Samkvæmt upplýsingum
Jóhanns Einvarðssonar,
bæjarstjóra i Keflavik, eru
allar horfur á aö svo verði og
ætti þá aö vera hægt aö flytja
LEIÐINNI
inn i húsin seinast i júnimán-
uði. Töluveröur fjöldi Vest-
mannaeyinga býr nú þar
suöur frá og lagöi bæjar-
stjórinn áherzlu á, aö hann
teldi eðlilegast aö það fólk
fengi inni i nýju húsunum.
Endanleg ákvörðun um út-
hlutun húsanna mun verða I
höndum bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja en hún mun
skipa nefnd til aö vinna að'
málinu. Töluverð undir-
búningsvinna hefur farið
fram og mun búið aö ákveöa
þær reglur og sjónarmiö,
sem fara á eftir við úthlutun
húsanna. Nefndinni er ætlað
‘að skila áliti mjög fljótlega.
- ÓG.
Hannibal var hinn hressasti, þegar hann kom á ráöherrafund kl. 10.30 f
morgun til þess aö ræöa frumvarp Lúövlks um efnahagsráöstafanir
vegna gengishækkunar.
HVAÐ UGGUR UNDIR
STEINI. HANNIBAL
Hannibal Valdimarsson sagði upp
ráðherrastððunni Sveipar sig leyndarhjúpi
Forðast fréttamenn
Stóra spurningin I Islenzkum
stjórnmálum núna snýst eins og
svo oft áöur um Hannibal Valdi-
marsson. Eftir aö hann tilkynnti
flokksráösfundi I gær, aö hann
segöi af sér ráöhcrrastörfum öll-
um aö óvörum, spyrja bæöi
flokksmenn hans og aörir: Liggur
eitthvaö undir steini? — Hannibal
gaf ekki VIsi færi á sér I morgun.
Margir eru vantrúaöir á aö
Hannibal sé aöeins orðinn þreytt-
ur á starfinu og vilji friö og þægi-
legt lif. Yfirlýsing hans á flokks-
ráösfundinum i gær og i viötali
viö útvarp og sjónvarp er þvi
tekiö meö fyrirvara af flestum.
Þó gæti sú skýring veriö gild.
Það vekur efasemdir, að hann
hefur forðast fjölmiðla bæöi I gær
og i dag. Þannig varö starfsfólk
sjónvarpsins t.d. aö leggja mikla
vinnu til þess aö ná i hann i gær án
þess aö mikiö heföist upp úr
krafsinu.
Ekki er óeölilegt aö álykta, aö
vonbrigöi meö árangur af stefnu
Hannibals meö gengislækkun, en
hann þrýsti stjórninni til aö fella
gengið fyrir jóleinsog frægt var,
og vonleysi um aö geta sigrað
innan stjórnarinnar i Haagmál-
inu, spili inn i þessa ákvöröun
Hannibals. — Spurning er hins-
vegar hvort afsögnin gæti veriö
einhver leikur Hannibals á tafl-
boröi stjórnmálanna eða hvort
hann telji aöeins orðið timabært
aö hætta.
Búast má viö þvi, að ekki veröi
alveg átakalaust fyrir Frjáls-
lynda og vinstri menn að velja
eftirmann Hannibals. — Björn
Jónsson er langliklegastur
þeirra. Karvel Pálmason, sem
einn kæmi annars til greina úr
þingflokknum hefur tæpast
stjórnmálareynslu til starfsins.
Ekki er unnt aö koma auga á
marga liklega menn utan sjálfs
þingflokksins. Finnbogi Rútur
Valdimarsson, bróöir Hannibals
og bakhjarl verður sjálfsagt
nefndur I umræðum manna. Hann
hefur þaö m.a. þaö sér til ágætis
aö vera hálfum áratug yngri en
Hannibal. Kunnugir telja hann þó
ekki hafa áhuga á þvi aö vasast i
sviösljósi stjórnmálanna. — En
hann þyrfti ekki aö fara i rúmiö
kl. 8 á kvöldin til aö halda fullri
starfsorku, eins og sagt er að
Hannibal þurfi núna. Þótt hann sé
mjög hress á aö lita er sagt aö ell-
in sé aö ná tökum á kappanum.
-VJ
Kom á óvart, sagði Björn
Eftirsjá, sagði forsœtisráðherra
Sjá baksíðu
7
Lúðvík lagði
aðgerðirnar fyrir
ráðherrafund
í morgun:
Kauphœkkun
hverfandi
Lúövik var faliö aö semja
um helgina drög aö aögerö-
um rikisstjórnarinnar i efna-
hagsmálum og leggja fyrir
ráöherrafund, sem hófst
klukkan hálfeliefu I morgun.
Stjórnin mun meö bráöa-
birgöalögum lækka vöru-
verö umfram þá lækkun,
sem hækkun gengis krón-
unnar veldur.
Mun vera um aö ræöa al-
mennan niðurskurö verölags
um nokkur prósent meö
bráðabirgöalögum og senni-
lega aukningu niöur-
greiöslna til aö færa
kaupgreiösluvisitöluna niöur
enn meira. Aö öllu saman-
lögöu er búizt viö, aö meö
aögeröum takist aö gera
kauphækkunina, sem veröa
átti 1. júnl vegna veröhækk-
ana á timabilinu 1. febrúar
til 1. mai, litla sem enga.
Vegna veröhækkajia á
þessum tima var taliö aö
kaup mundi hækka eitthvaö
um 7-9% l. júni.
Hækkun gengisins veldur
verölækkun á innfluttum
vörum. Gengishækkunin er
6%, svo að almenn verð-
lækkun fyrst i staö af hennar
völdum er talsvert minni,
kannski rúm 2%. Lúðvik
Jósefsson sagöi fyrir helgi,
aö þessar verölækkanir
mundu ekki hafa veruleg
áhrif á visitöluna, sem á aö
reikna 1. mai samkvæmt
lögum og miöast viö þann
dag. Hins vegar mun stjórn-
in meö öörum ráöum keyra
vlsitöluna 1. mai niöur—HH.