Vísir - 30.04.1973, Blaðsíða 9
Vlsir. Mánudagur 30. aprfl 1973.
9
75 ára í dag
Loftur Bjarnason,
útgerðarmaður
Loftur Bjarnason útgeröar-
maöur i Hafnarfiröi hefur verið
þjóökunnur athafnamaöur hátt á
fimmta áratug. Hann hefur færzt
i aukana meö aldrinum og aldrei
haft meira umleikis en nú.
Loftur er og hefur verið fram-
kvæmdastjóri hvalveiðifélagsins
Hvals h/f i Hvalfirði frá 1950 og
formaður félagsins frá stofnun
þess 1947. Svo sem kunnugt er á
félagið og rekur hvalveiðistöðina
i Hvalfirði, 4 hvalveiðiskip og
stórt hraðfrystihús i Hafnarfirði,
sem frystir bæði hvalkjöt og fisk.
Hraðfrystihúsið eignaðist Hvalur
h/f fyrir tveimur árum, stækkaði
það og endurbætti.
Allt frá árinu 1927 hefur Loftur
verið aðili að stofnun margra út-
gerðarfélaga einkum til togaraút-
gerðar. 1 stjórn Félags isl. botn-
vörpuskipaeigenda hefur hann
verið frá árinu 1943 og formaður
félagsins frá 1959. Hann var
bæjarfulltrúi i Hafnarfirði i 16 ár,
þar til hann baðst undan endur-
kosningu. Hann átti sæti i stjórn
Eimskipafélags íslands, en baðst
þar einnig undan endurkosningu.
Loftur er mikill áhugamaður
um menningar- og trúmál. Hann
var meðal helztu hvatamanna að
stofnun bókaútgáfufélagsins
Stuðlar og i stjórn þess frá upp-
hafi. Stuðlar h.f. eru eins og
kunnugt er bakhjarl Almenna
bókafélagsins. í byggingarnefnd
Hallgrimskirkju að Saurbæ á
Hvalfjarðarströnd átti hann sæti
frá 1955 og var þess þá ekki langt'
að biða, að kirkjan kæmist undir
þak. Hún var vigð 28. júli 1957.
Hvalur h/f gaf vandað eirþak á
kirkjuna að tillögu Lofts.
1 ágætri grein sóknarprests
Hallgrimskirkju á Hvalfjarðar-
strönd, Jóns Einarssonar, er birt-
ist i Morgunblaðinu i gær, farast
honum svo orð m.a.:
,,Á sinum tima átti Loftur sæti i
byggingarnefnd Hallgrimskirkju
i Saurbæ, og þeirri kirkju hefur
hann fórnað meira en nokkur
annar einstaklingur. Gjafir
þeirra hjónanna og þeirra fyrir-
tækja, sem Loftur veitir forstöðu,
til Hallgrimskirkju i Saurbæ eru
svo miklar að vöxtum og gæðum,
að til fádæma má telja I kristni-
sögu Islands. Meðal þeirra gjafa
er altáristafla kirkjunnar, sem
Hvalveiðifélagið gaf. En eins og
kunnugt er, er altaristaflan eitt
fegursta og sérstæðasta listaverk
hér á landi. (Gerð af hinum nafn-
kunna finnska listamanni Lenn-
art Segerstraale). Það er Lofti
Bjarnasyni meira að þakka en
nokkrum öðrum hvilikt listaverk
og menningarprýði Hallgrims-
kirkju i Saurbæ er. Einstæðrar
fórnar hans, höfðingsskapar og
örlætis mun kirkjan njóta um all-
an aldur”.
Loftur Bjarnason er i heiminn
borinn vestur á Bildudal við
Anarfjörð, sonur hjónanna
Bjarna Loftssonar kaupmanns og
Gislinu Þórðardóttur. Bjarni var
sonur Lofts Bjarnasonar bónda
að Brekku á Hvalfjarðarströnd og
konu hans Guðrúnar Snæbjarnar-
dóttur frá Bakkakoti i Skorradal.
Eru þetta kjarnaættir borgfirzk-
ar. Gislina móðir Lofts var ættuð
frá Sveinseyri við Tálknafjörð.
A æsku- og unglingsárum Lofts
var útgerð og önnur starfsemi
Péturs Thorsteinssonar á Bildu-
dal i fullum blóma. Rausnar-
heimili Péturs og frú Asthildar
Guðmundsdóttur systur frú
Theodóru Thoroddsen, var annál-
að um land allt. Ahrifa frá for-
eldrum i heimahúsum og um-
hverfi á æskuárum gætir i lifi
hvers manns.
ALofti Bjarnasyni sannast vel
hið forna máltæki ,,án er ills
gengis nema heiman hafi”.
Loftur stundaði sjómennsku 12
ára gamall á árabátum, siðan á
skútum og togurum. Hann tók
farmannapróf frá Stýrimanna-
skólanum i Reykjavik 1916 þá að-
eins 18ára að aldri. Var siðan aft-
ur háseti á togurum, en 1918 réð-
ist hann sem háseti á gufuskipið
„Willemoes”. Július Júliniusson
varð siðar skipstjóri á „Wille-
moes”. Skipið var i Amerikusigl-
ingum.
Þegar Danir höfðu viðurkennt
sjálfstæði íslands hinn 1. desem-
ber og landið fengið sinn eiginn
siglingafána, lét Július skipstjóri
draga fánann að hún að morgni
dags á skipi sinu i Oslóarhöfn.
Valdi hann til þessa heiðurstarfs
háseta sinn Loft Bjarnason. Segir
Loftur svo frá, að það hafi verið
sér hið ljúfasta verk, sem hann
hafi unnið um dagana. Július er
enn vel ern, þótt hann sé orðinn 95
ára. Er mikil vinátta með þeim
Lofti.
Loftur var siðan i siglingum á
skipum Eimskipafélags Islands
allt fram i feb. mánuð 1926, að
hann hætti farmennsku. Var hann
þá 1. stýrimaður á Lagarfossi.
Hann settist að i Hafnarfirði i
aprilmánuði 1926 og rak þar fisk-
verkunarstöð i félagi við Geir
Zoéga i 14 ár. Árið 1927 stofnaði
hann i félagi við aðra útgerðar-
félagið Júni og siðar hvert
togaraútgerðarfélagið á fætur
öðru svo sem að framan getur.
Loftur er hinn eini útgerðar-
maður og framkvæmdastjóri,
sem enn er i fullu starfi, er tekið
hefur þátt I allri þróunarsögu
sjávarútvegsins frá árabátum til
seglskútna, togara og farskipa.
Loftur hafði með eigin þátttöku
kynnzt islenzkum sjávarútvegi og
siglingum frá þvi að vera á sama
þróunarstigi og á landnámsöld
allt til vorra tima. Siðan gerðist
hann sjálfur einn af braut-
ryðjendum i framförum sjávar-
útvegsins og hefur um langt skeið
verið meðal hinna fremstu á þeim
vettvangi.
Ég tel mér það mikla gæfu, að
ég skyldi kynnast Lofti Bjarna-
syni norður á Siglufirði sumarið
1927 og hafa siðan notið vináttu
hans.
Loftur var um áratuga skeið
tiður gestur á heimili foreldra
minna. Þar var mjög gestkvæmt
og var Loftur ætið aufúsugestur á
þvi heimili. 011 vorum við syst-
kinin i vináttu við Loft. Bjarni
heitinn bróðir minn leitaði oft
álits Lofts, þegar úr vöndu var að
ráða i útgerðarmálum, þvi að
hann fann, að hann var manna
hollráðastur.
Svo mikil er gifta Lofts, að
óvæntir örðugleikar, sem oft ber
að höndum i atvinnurekstri, eigi
siður en i lifi einstaklinga, snúast
jafnan fyrir atbeina hans til betri
vegar en á horfðist um skeið.
Hann er mjög úrræðagóður,
hjálpsamur, góðgjarn og laus við
alla öfund. Loftur hefur látið svo
ummælt, að það hafi aldrei staðið
sér fyrir svefni, að öðrum mönn-
um vegnaði vel.
Hann var jafnan kátur og glett-
inn i viðræðum og laus við þröng-
sýni. Aðra menn, hverjir sem eru,
umgengst hann sem jafningja og
vill greiða götu þeirra eftir þvi
sem unnt er, en þó með fullri gát.
A þessum timamótum sendi ég
Lofti, frú Sólveigu Sveinbjarnar-
dóttur konu hans og börnum
þeirra Kristjáni og Birnu svo og
tengdasyni þeirra Gisla Torfa-
syni og dótturdóttur alúðarkveðj-
ur, með þakklæti fyrir langa
órofa vináttu. Þau hjón eru gest-
risin með afbrigðum, en nú vill
svo til að Loftur þarf um stundar-
sakir að dveljast á spitala og
missir þvi af þeirri ánægju að
taka á móti gestum á afmælis-
daginn.
Sveinn Benediktsson.
SIÐFERÐI SPILLT
Hvað gerðist, þegar sonur
kraftajötunsins og iþróttakemp-
unnar fyrrverandi lokaði sig inni
með barnungri og bæklaðri stúlku
i herbergi sinu. Stúlkan læknast
og gengur af fundi piltsins óhölt
og alheilbrigð. En pilturinn er
sakaður um að hafa misnotað
sakleysi stúlku undir lögaldri.
Agnar Þórðarson hefur samið
Lausnargjaldið, leikrit, sem
verður frumsýnt 4. mai n.k. i
Þjóðleikhúsinu. Hér eru mörg
vandamál, sem ofarlega eru á
baugi, tekin til meðferðar.
Við skulum rétt lita á kafla úr
leikriti Agnars, en þar hafa
nokkrir reiðir nágrannar farið á
fund glimukappans, föður hins
unga kraftaverkalæknis:
Annarþáttur
1. atriði
(Tveimur dögum siðar. Þrir
reiðir feður i heimsókn, Grimur
og Gró hafa sýnilega hlustað á
reiðilestur þeirra.)
Gró: . . . ég botna hreint ekki i,
hvað þið eruð að fara, þvi að mér
er ómögulegt að skilja, að það
geti verið saknæmt og varðað við
lög að hafa læknað stúlku af bækl-
un, sem hún hefur árum' saman
átt við að striða og hefur legið
eins og skuggi yfir allri lifsham-
ingju hennar.
Faðir 1: Við erum ekki að tala
um lækninguna út af fyrir sig,
heldur á hvern hátt hún hafi átt
sér stað. . .
Faðir 2: Þar sem grunur leikur
á að siðferði ungrar stúlku hafi
verið spillt.
Gró: En þið efizt þá ekki um, að
hann hafi læknað hana?
Faðir 3: Ne-ei, það er að segja. .
Grimur: Þið hafið séð hana
sjálfa?
Faðir 1: Já, ég hef séð hana.
Grimur: Og er hún hölt?
Faðir 1: Nei, að visu ekki, en. . .
Faðir 3: Það skýrir ekki á
hvern hátt lækningin hefur orðið,
þvi við höfum rökstuddan grun
um, að sú aðferð, sem notuð var
við lækninguna, geti ekki sam-
rýmzt kristilegum siðferðishug-
myndum.
Grimur: öll ykkar hugsun
stjórnast af merkingarlausum
orðum. — Þið eruð fangar orða.
Faðir 1: Sum orð eru þó ekki
merkingarlausari en það, að þau
eru studd samþykktum hinna
almennu hegningarlaga.
Faðir 3: Þér virðist ekki vera
ljóst, að það getur varðað margra
ára fangelsi að leiða telpur innan
við lögaldur á glapstigu.
Gró: Hann hefur alls ekki gert
það.
Faðir 1: Samkvæmt lögum
númer 200 i 22. kafla um skirllfs-
brot i hinum almennu hegningar-
lögum. . .
Gró: Hefur stúlkan sjálf borið
hann þessum sökum?
Faðir 1: Nei, að visu ekki.
Gró: Eða móðir hennar?
Faðir 3: Þær mæðgur hafa ekki
fengizt til að segja orð.
Faðir 1: Þær eru vist hræddar.
Gró: Við hvað skyldu þær vera
hræddar?
Faðir 1: Við að hann geti lagt
eitthvað á þær i hefndarskyni.
Gró: Sliku er nú ekki hægt að
anza —
Faðir 2: Þær trúa á hann.
Faðir 3: Við höfum vitni að þvi
sem gerðist.
Grimur: Vitni? Hvaða vitni?
Faðir 2: Kom hún ekki buxna-
laus fram frá honum?
Gró: Hver hefur sagt ykkur
það?
Logi (kemur óvænt inn): Hvað
eruð þið að fjasa?
Gró: Þessir menn koma hér inn
með alls konar ásakanir á Grim.
Grimur: Hvað hefur þú sagt
þeim?
Logi: Náttúrlega ekki annað en
sannleikann. Já hún kom buxna-
laus fram.
Þeir: Þarna heyrið þið sjálf.
(Gró og Grimi verður mikið um
þetta.)
Logi: En góðir hálsar. Afklæð-
ist ekki fólk hjá læknum að ýmsu
leyti, þegar það leitar sér meina
bót. Sjaldan er það þó til mikils,
en þessi maður hefur i einni svip-
an læknað unga stúlku á svo full-
kominn hátt, að lærðustu læknar
standa gapandi af undrun.
Faðir 1: Við vildum aðeins
ganga úr skugga um, hvort lækn-
ingin hefði farið fram á þann hátt
að forsvaranlegt mætti teljast út
frá kristilegum siðferðishug-
myndum.
(Hinir taka undir það.)
Logi: Þið dyggðanna ljós, sem
lýsið ekki nema i skugga og
myrkri.
— eða var
það krafta-
verka-
lœkning?
V'
GENGISHÆKKUN - VERÐLÆKKUN
Ný sending af hljómplötum tekin upp i dag
BEATLES 1962-1966
BEATLES 1967-1970
Arlo Guthrie
Puzzle
Jr. VValker
New catus band
Jackson 5
King Grimson
O’Jays
J. Geils band
Klo og Kddie
I.ee Pickens
Paul Keliv
John C'ale
Alice Cooper
Lou Keed
Birtha
Kamilv Affair
Steeleye Span
Pink Kloyd
Byrds
Seatrain
L'riah Heep
Kmerson, l.ake og Palmer
John og Yoko
Ike og Tina Turner
Kay C harles
Channed Heat
Johnnv C'ash
Buck Owens
Shirlev Bassey
Dionne Warwick
James I.ast
A1 C'aiola
Lena llorne
llarri Belafonte
Tonv Mottola
Krank Valdor
lleintje
Manfred Mann
James Brown
Sammy Davis jr.
Kavi Shankar
Kasettur, 8 trakka (rása)
Kree
Seals og Crofts
Yes
Iloctor Hook
Moodv Blues
T. Rex
Creedence Clearwater
Steevie Wonder
Led Zeppelin
Crosbv, Stills, N'ash og Young
War
Ten vears after
Who
Ileep purple
Kmerson. I.ake og Palmer
Uriah Heep
America
Klton John
Kinks
Don Mcl.ean
Alice Cooper
Jethro Tull
Neil Young
Crosbv, Stills, Nash og Young
Black Sabbath
O’Jays
, Koberta Flack
Stephen Stills
John og Yoko
Hollies
Diana Ross
Marvin Gave
Úrval af plötum með sígildri tónlist
jpCuðjónsson hf.
^rva* a* ^^SkúíagÖtu 26
íslenzkum plötum 1740
A