Vísir - 30.04.1973, Blaðsíða 11

Vísir - 30.04.1973, Blaðsíða 11
Vfsir. Mánudagur 30. aprfl 1973. Sigurvegarar Fram f 3. flokki karia. Sigurvegarar KR i fjórða flokki karla. Valur kominn í efsta sœti eftir 3-0 sigur gegn Ármanni ó Reykjavíkurmótinu Valur átti í litlum erfið- leikum að sigra Ármann í níunda leik Reykjavíkur- mótsins á Melavellinum á laugardag. úrslit urðu 3-0 og við sigurinn skauzt Val- ur upp i efsta sætið í mótinu — hefur fimm stig eftir þrjá leiki, en Fram, Vík- ingur og Vestmannaeying- ar hafa enn ekki tapað ieik í mótinu. Þaö var kalt og hvasst á Mela- vellinum, þegar Valur og Armann léku og einkenndist leikurinn mjög af þvi. Valur skoraöi tviveg- is i fyrri hálfleik og voru lands- liðsmennirnir kunnu, Þórir Jóns- son og Hermann Gunnarsson þar aö verki. I siðari hálfleiknum bætti Valur svo einu marki viö, þegar dæmd var vitaspyrna og skoraöi Hermann úr henni. A föstudag léku Fram og IBV — Islands- og bikarmeistararnir frá i fyrra. Þetta var allfjörugur leik- ur, þó svo norðangarðurinn réöi mestu um gang hans. Jafntefli varð 1-1 — fjóröi jafnteflisleikur- inn i mótinu. Eyjamenn léku undan vindin- um i fyrri hálfleiknum og skoruðu þá eitt mark. Það var á tiundu minútu, að örn Öskarsson spyrnti i átt aö marki Fram af um fjöru- tiu metra færi og með hjálp vindsins flaug knötturinn aö marki Fram — efst i markhornið. Fallegt á aö horfa — en ekki gott hjá markveröi Fram. Fleiri mörk voru ekki skoruð i hálfleiknum og var útlitið þvi allgott fyrir Fram — svona að þvi er virtist, þó vindurinn hafi kannski verið full- mikill til þess að gott væri að nýta hann. Fram jafnaði nokkuð fljótt i siðari hálfleiknum — Jón Péturs- son skoraði úr þvögu á áttundu minútu eftir hornspyrnu. En fleiri urðu mörkin ekki i leiknum. Þaö var reyndar undravert hve Vest- mannaeyingum tókst oft vel upp, þegar liða tók á leikinn og fengu þeir meira að segja ágæt færi. En ekki tókst þeim að skora — og sama var uppi á teningum hjá Fram. Liðið skapaði sér sæmileg færi, en inn vildi knötturinn ekki og þá varði til dæmis Arsæll Sveinsson mjög vel frá Marteini Geirssyni. Mótið heldur áfram i kvöld. Þá verður tiundi leikur mótsins háður og leika þá KR og Þróttur. Staðan i mótinu er nú þannig: Valur 3 2 1 0 5-1 5 Fram 31209-2 4 Vikingur 21103-1 3 KR 21014-1 2 IBV 2 0 2 0 1-1 2 Þróttur 3 0 2 1 0-2 2 Armann 3 0 0 3 1-15 0 Markahæstu leikmenn eru: Simon Kristjánsson, Fram, 3 Björn Pétursson, KR, 2 Hermann Gunnarsson, Val 2 Marteinn Geirsson, Fram, 2 Buxnatízkan er orðin eitt aðalatriði i fatatízkunni. Sniðin eru orðin fjölmörg svo og efn- isgerðir og litir. Áður fyrr var nægilegt að eiga t.d. einar sparibuxur og einar draslbuxur. Nú vilja allir klæðast buxum við alls konar tækifæri, jafnt konur sem karlar. Við höfum fylgzt vel með. Fyrir utan að við fram- leiðum margar gerðir af buxum sjálfir, allar hannaðar af Colin Porter, flytjum við inn frá þekkt- ustu sportbuxnaframleið- endum heims, t.d. Inega, Levi’s, Live-ins, Billy Russel, Scrooge, Jaytex Ltd. Urvalið er sem sagt ótrúlegt. Póstsendum um land allt. ® KARNABÆR LAUGAVEGI 20A 0G LAUGAVEGI 66

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.