Vísir - 30.04.1973, Blaðsíða 14

Vísir - 30.04.1973, Blaðsíða 14
Visir. Mánudagur 30. april 1973. McLintock til QPR! Frank McLintock hinn kunni fyrirliði Arsenal, var á föstudag seldur til Queens Park Rangers fyrir 25 þús- und sterlingspund og kemur þvi til með að leika I 1. deild- inni áfram næsta leiktima- bil, þvi QPR vann sig sem kunnugt er upp i 1. deild. McLintock var settur á sölulista á fimmtudag og kom talsvert á óvart, að hinn 33ja ára miðvörður fékk ekki „frjálsa sölu” — heldur vildi Arscnal frá um 25 þúsund fyrir hann. An peningaupphæðar hefði Frank áreiðanlega getað náð hagstæðum samningum fyrir sjálfan sig. Fleiri liö reyndu að fá Frank til sin. Til dæmis Nottingham Forest, þar sem Dave McKay stjórnar, og YValsall i 3. deild, en þar átti hann aö vera framkvæmda- stjóri og leikmaður. McLintock kaus hins vegar að vera áfram I Lundúnum, og veröur áreiðanlega mikill styrkur fyrir QPR — reynd- ar óskiljanlegt, að Arsenal skyldi sleppa honum. Aðalfundur Fram Aðalfundur Knattspyrnu- félagsins Fram verður hald- inn I kvöld að Ilótel Esju og hefst kl. 21.00. Lancashire-lið sigruðu í öllum deildunum fjórum! Lið frá Lancashire — mesta knattspyrnuskíri Englands— sigruðu i öllum deildum ensku knattspyrn- unnar. Liverpool varð Englandsmeistari í 1. deild, Burnley sigraði í 2. deild Bolton í 3. deild og Southport i 4. deild. t Lancashire eru tiu lið, sem leikið hafa f 1. deild, Liverpool, Everton, Manch. Utd. Manch. City, Blackpool, Burnley, Blackhurn, Bolton, Preston og Oldham. Eins og áöur segir varö Liver- pool enskur meistari — sigraði I 1. deild. Arsenal varð I 2. sæti og Leeds I þriöja. Niöur I 2. deild féllu C. Palace og WBA — og markiö, sem Palace fékk á sig I Norwich eftir að venjulegum leiktima var lokið, réð örlögum liðsins. Jafntefli þar og CP hefði haldiö sæti sinu I 1. deild á betri markatölu en Norwich. Udd I 1. deild flytjast Burnley og QPR — tvö liö, sem leikið hafa áður I 1. deild, QPIl, fyrsta enska atvinnuliðiö, sem lék hér á landi, þó aöeins eitt leiktimabil áður. Brighton er fallið niðuri 3. deild eftir aðeins citt leiktimabil I 2. deild og sennilega fellur Hudders- field einnig. Liðiö féll niöur úr 1. deild i fyrravor, og seldi þá alla beztu leikmenn sina, mark- vöröinn Lawton til Everton, miðhcrjann Worthington til Leicester og varnarmennina Ellam og Cherry til Leeds. Cardiff á eftir að leika tvo leiki á heimavelli og þarf aðeins eitt stig úr þeim til að Huddersfield falli. Upp I 2. deild flytjast Bolton og Notts County og leika þvi bæði Nottingham-liðin i 2. deild næsta keppnistimabil. Það er langt siðan Nottingham Forest og Notts County hafa leikið i sömu deild — County var hér á árum áður kunnara lið. Niður i 4. deild eru fallin Scunthorpe, Swansea og Brentford — en Halifax hefur enn möguleika á að bjarga sér á kostnaö Rotherham. Þaö eru ekki mörg ár siðan Rotherham lék I 2. deild og var þá stundum við að komast upp I þá fyrstu. Kanarnir sigruðu! Úrvalsliðið á Kefla vikurflug- velli sigraði Reykjavikurúrvalið I þriöja leiknum I keppninni um Sendiherrabikarinn, sem fór fram á Keflavikurflugvelli I gær- kvöldi. Lokatölurnar voru 105-101 en úrslitin fengust ekki fyrr en eftir framlcngdan leik. Leiknum var sjónvarpaö beint. Næsti leikur verður I Laugar- dalshöllinni næsta fimmtudags- kvöld klukkan 20.30. %*v"e > *öat ’ <$*>**' dregiö *** 3. mai aðeins peir sem eiga mióa eiga möguleika Upp I 3. deild flytjast Southport, Hereford, á sinu fyrsta keppnis- timabili i deildunum og Cambridge sem einnig er til þess að gera nýtt lið í deildunum — frá háskólaborginni frægu. Hereford er við landamæri Wales. Alders- hot hefur mesta möguleika að flytjast einnig upp. Borgin er rétt fyrir sunnan Lundúni — og þar eru aðalstöðvar hersins. New- port er sem stendur fyrir ofan Aldershot en ekki eru miklar likur á, að þetta lið frá Wales, sem alveg var að lognast út af fyrir 2- 3 árum, komist nú í 3. deild. FRESTAÐ Leikjunum tveimur, sem vera áttu i Litlu bikarkeppninni á laugardag, var frestað vegna veðurs. Þá áttu að leika Hafnar- fjörður-Keflavik, og Akranes- Kópavogur. Nálgast 22 metra A1 Feuerback, Bandarikjunum, nálgast 22 metrana i kúluvarpinu. A móti I Walnut I gær varpaði hann 21.58 metra og sigraöi á þvi, en i æfingakasti fyrir keppnina, sem var mælt, náði hann 21.92 metrum! Heimsmct Randy Mat- son er 21.78 metrar. Feuerback átti einnig annað æfingakast yfir heimsmetið. A móti I Oregon á föstudag hljóp Steve Prefontaine enska milu á 3:55.0 min. sem er bezti timi, sem náöst hefur á vegalengdinni i ár. Brian Oldfield, kúluvarparinn kunni, sem bezt á 21.58 metra, geröi sér litið fyrir og sigraði Olympiumeistarann i langstökki — stökk 8.07 metra, en meistarinn, Randy Williams, stökk 7.99 metra. Dennis Law — hvert fer hann nú? Kapphlaup um þá! Tveim af kunnustu leik- mönnum Manchester United, Dennis Law og Tony Dunne, var á föstu- dag gefinn kostur á aö fara til annarra liöa án þess Manch. Utd. krefjist nokk- urrar peningaupphæðar fyrir þá. Dennis Law er rúmlega þritugur og einn kunnasti knattspyrnumaöur á Bret- landseyjum — hefur leikiö fjölmarga landsleiki fyrir Skotland, og á þar lands- leikjametið. Hann lék fyrst með Huddersfield, en var seldur til Manch. City fyrir 55 þúsund sterlingspund, sem þá árið 1960 — var met- upphæð fyrir leikmann. City seldi Law svo til Torino á ltaliu, en i júli 1962 keypti Matt Busby hann til Manch. Utd. fyrir 116 þúsund pund, og var það aftur met- upphæð. Law er afar snjall leikmaður, en meiðsli hafa háð honum síðustu árin. Þó lék hann i skozka landsliðinu I fyrra, og marga leiki með aðalliði Manch. Utd. i vetur. Tony Dunne er bakvöröur — hefur leikið fjölmarga landsleiki fyrir trland (fri- rikið) Var um langt árabil talinn einn bezti bakvöröur i enskri knattspyrnu og fastur maöur i liði United I áratug. Það er vist, að mörg lið munu keppa að þvi að lokka þessa kunnu leikmenn til sins. Dunne er eins og Law, rétt rúmlega þrítugur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.