Vísir - 13.09.1973, Page 9

Vísir - 13.09.1973, Page 9
Vlsir. Fimmtudagur 13. september 1973 Það þarf heljarkrafta til ! ! — Sigurði Steindórssyni lyft hátt á loft, þegar Steinar Jóhannsson jafnaði fyrir Keflvikinga. Skiijanlega var fögnuður mikili hjá varamönnum Keflavikur- liðsins — skammvinnur fögnuð- ur þó, þvi Fram sigraði i leikn- um. Ljósmynd Bjarnleifur. Hafsteinn Guðmundsson, formaöur tþróttabandalags Keflvikinga, hélt inn i búningsherbergi Fram eftir leikinn og óskaði leikmönnum liösins til hamingju meö sigurinn. Hér tekur Hafsteinn I höndina á fyrirliöa Fram —Jóni Péturssyni, en það var einmitt Jón, sem skoraði fyrsta mark Ieiksins. Ljósmynd Bjarnleifur. Lokaspyrna fœrði Hol- landi sigur — Panik í hollenzka landsliðinu í HM- leiknum við Noreg í gœrkvöldi — Holland vann 2-1 í Osló Hollendingar áttu i hinu mesta basli með Norðmenn i Osló i gær- kvöldi i undankeppni heimsmeistarakeppn- Markvörðurinn skoraði hjá landsliðsverðinum! — en það nœgði Alec Stepney, mark- vörður hjá Manch. Utd., sem leikið hefur i enska landsliðinu, skoraði eina mark liðs sins i gær- kvöldi á Old Trafford — skoraði úr vitaspyrnu hjá enska landsliðs- markverðinum Peter Shilton. En ekki nægði það United, sem tapaði enn einu sinni — nú sinum fyrsta leik á heimavelli á keppnis- timabilinu. Leicester Manch. Utd. ekki — liðið tapaði fyrir Leicester á heimavelli sigraði 2—1 með mörkum Keith Weller og Mike Stringfellow. Leikmenn Derby voru i miklum ham i gærkvöldi gegn meisturum Liverpool. Framkvæmdastjóri liösins, Brian Clough, hafði skammað leikmenn sina blóðugum skömmum eftir slakan leik þeirra gegn Everton á laugardag — sem Derby vann þó — og það virtist hafa áhrif. Derby-liöið var óþekkjanlegt gegn hinu Liverpool-liðinu og sigraði með 3—1. Þeir Roger Davies, Roy McFarland og Kevin Hector skoruðu mörk Derby i leiknum. Orslit urðu annars þessi i gær- kvöldi. 1. deild Derby—Liverpool 3—1 Manch.Utd,—Leicester 1—2 Newcastle—Ipswich 3—1 Norwich—Southampton 2—0 2. deild Cardiff—Oxford 5—0 Fulham—Blackpool 0—0 Sheff.Wed.—WBA 3—1 3. deild Bournemouth—Aldershot 3—0 Watford—Wrexham 2—0 4. deild Bradford—Rotherham 2—1 Chester—Workington 1—0 Crewe—Swansea 0—0 Exeter—Darlington 3—0 Gillingham—Scunthorpe 7—2 Lincoln—Peterbro 1—1 Sex umferðum er nú lokið i 1. deild og þar er Leeds efst meö 12 stig. Burnley er i öðru sæti með 10 stig og siðan koma miðlandaliðin Derby, Leicester og Coventry með niu stig. Newcastle fór létt með Ipswich — hefur unnið báða leikina gegn Anglia—liöinu. Markakóngurinn McDonald skoraði tvö af mörkum Newcastle i gær. Þá vann Norwich mjög athyglisverðan sigur gegn Dýrlingunum — og hlaut þvi þrjú stig i leikjunum við þá. Eftir slaka byrjun Arsenal virðist nú ýmislegt að ske þar. Þjálfari liðsins, Burtenshaw, sagöi stöðu sinni lausri i gær. Forráðamennirnir samþykktu það strax að hann færi frá félaginu — og ekki aðeins það, heldur réðu þeir samstundis Bobby Champell, þjálfara QPR til sin. innar og það var ekki fyrr en á lokaminútu leiksins, að hollenzka liðið tryggði sér sigur i leiknum 2-1 með marki miðvarðarins Barry Julshoff. Hollenzka liðið, sem sigrað hafði Norðmenn með i 9-0 i fyrri leik landanna, var beinlinis i panik loka- kafla leiksins — óttinn við að tapa stigi virtist hafa mjög slæm áhrif á leikmenn liðsins. Á 73.min. leiksins hafði Harry Hestad jafnað fyrir Noreg mark, sem Johan Cruyff hafði skorað fyrr i leiknum. 19.728 áhorfendur trúðu varla sínum eigin augum og spennan var gifurleg. 37 hol- lenzkir blaðamenn voru á leiknum og höfðu þeir flestir simaö heim til Hollands, að hol- lenzka liðið hefði tapað þýöingar- miklu stigi i keppninni við Belga um úrslitasætiö I riðlinum. En svo kom siöasta minútan. Hollend- ingar fengu aukaspyrnu — knött- urinn barst af norskum varnar- manni til Barry Julshoff, sem spyrnti viðstööulaust á markið. Og án þess Geir Karlsen gæti lyft höndum i norska markinu lá knötturinn bakvið hann i markinu eftir þetta mikla þrumuskot. Norðmenn eru i sjöunda himni með leik sinna manna og segja liöið hafa sýnt ótrúlega framför frá stórtapinu I Hollandi. Framan af siöari hálfleiknum áttu Hol- lendingar I vök að verjast. Liðin skiptust á að sækja I byrj- un leiksins, en smám saman fór hollenzka liðið að ná betri tökum á leiknum. Sótt var upp hægra megin i norsku vörninni og gefið fyrir. Geir Karlsen áleit sig hafa knöttinn — en misreiknaði sig þar illa. Allt i einu „dúkkaði” Johan Cruyff upp og skallaöi i mark — eiginlega af fingurgómum norska markvarðarins og frá „ómögu- legum” vinkli. Undir lok hálf- leiksins voru Norðmenn heppnir að fá ekki á sig fieiri mörk — Jan Birkelund bjargaði á marklinu, og þversláin tók ómakið af Geir Karlsen einu sinni. Þá skoruðu Hollendingar, en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Aðalmenn norska liðsins voru miðverðirnir Svein 'Gröndal frá Raufoss, sem lék nú sinn fyrsta heila landsleik, og Jan Birkelund. Geir Karlsen átti i nokkrum erfið- leikum i markinu framan af, en náði svo að sýna stórleik. Af öðrum leikmönnum hæla Norð- menn mest Jan Christiansen á miðjunni, og Tom Lund i framlin- unni. Bikarmeistarar Fram 1973 — ásamt forustumönnum félagsins. Efri röö frá vinstri. Alfreð Þorsteinsson, Hilmar Viggósson, Guðgeir Leifsson, Erlendur Magnússon, Tómas Kristinsson, Þorbergur Atlason, Sigurbergur Sigsteinsson, Ómar Arason, Asgeir Eliasson, Agúst Guömundsson Þorkell Þorkelsson og Sigurður Friðriksson. Fremri röð frá vinstri. Guðmundur Jónsson, Baldur Scheving. Gunnar Guðmundsson, Jón Pétursson, Marteinn Geirsson, Elmar Geirsson, Eggert Steingrimsson, Rúnar Gislason, Atli Jósafatsson og Simon Kristjánsson. Ljósmynd Bjarnleifur Sigurganga Keflvíkinga rofnaði á úrslitastund! — Fram varð Bikarmeistari KSÍ eftir framlengdan leik Guðjón dœmdi víti á Liege! Guðjón Finnbogason, dómari frá Akranesi, sem i gær dæmdi leik Ards frá Norður-irlandi og Standard Liege frá Belgiu i UEFA- keppninni, dæmdi víta- spyrnu á belgiska liðið, scm skorað var úr. Það var sigur- mark Ards, sem vann injög óvæntan sigur þarna i Bel- fast 3-2. Standard l.iege er lið As- geirs Sigurvinssonar og má telja vist að það komist áfram i keppninni, þrátt fyrir tapið i Belfast i gær. Að- eins eins marks munur var irunum i vil og Ktandard á nú heimaleikinn eftir. Auk Guðjóns, sem dæmdi leikinn. kotnu þarna fleiri is- lendingar við sögu. Þeir Rafn Hjaltalin, Akureyri og llinrik Lárusson, Fram, Hnuverðir I leiknum. Staðan í riðlinum Eftir lcik Noregs og Iiollands i 3. riðli undankeppni heims- m eist a ra kcppninna r í knatt- spyrnu i Osló í gærkvöldi, er stað- an nú þannig i riölinum. Það var ekkert að gera annað en að halda áfram og framlengja — annar úrslita- leikur milli liðanna hefði varla getað farið fram fyrr en eftir nokkrar vikur, sagði Eysteinn Guðmundsson, dómari, sem dæmdi úrslita- leik Fram og Keflavikur i Bikarkeppni KSÍ í gær. Nú var slæmt að hafa ekki flóð- ljós á Laugardalsvellinum. En framlengingin fór fram og i lokin stóð Fram uppi sem sigurvegari i keppninni 2-1 — öll mörkin skoruð i framlengingunni — ágætur sigur Framara gegn hinum sterku Keflvikingum, en óslitin sigurganga liðsins siðan i april rofnaði nú á úrslitastund.i Þannig er knattspyrnan — þegar mest liggur við gengur stundum litið. Það má deila um það hvort rétt var aö framlengja leiknum — maður greindi varla leikmenn úr stúkunni siðari hluta framlengingarinnar. Auð- vitaö má segja, að ófært sé að leika við slikar aðstæður, en sjónarmið dómar- ans er skiljanlegt. 1 hans valdi var ákvörðunin að framlengja eða fram- lengja ekki. Hans eins. Enginn lagði fast að honum að framlengja ekki — þó nokkrir létu i ljós, að það væri vonlaust. „Auðvitað átti að byrja leikinn fyrr — það mátti alltaf reikna með þessu” sagði Eysteinn enn- fremur, og ég álit, að leikurinn hefði átt að hefjast hálftíma fyrr. Þá hefði þetta bjargazt nokkurn veginn. En það verður ekki snúið aftur. Sigur Fram i leiknum var að mörgu leyti verðskuldaður. Leikmenn liðsins léku af krafti —létu það aldrei á sig fá, þó flestir teldu þá hafa litla möguleika I leiknum. Nokkrir áttu stórleik — einkum Marteinn Geirsson, sem var bezti maðurinn i leiknum — geysilega sterkur i vörninni — og ekki nóg með það. Hann skoraði sigurmark leiksins. Þorbergur steig ekki rangt niður fæti i leiknum — varði mark Fram með miklum ágætum. Grip hans og úthlaup voru frábær. Vörnin i heild átti góðan leik — Sigurbergur traustur á miðj- unni með Marteini, og bakverðirnir Agúst og Ómar betri en oftast áður i sumar. Þegar Guðgeir Leifsson kom inná, þegar stundarfjórðungur var af siöari hálfleik, breyttist sóknarleikur Fram til hins betra. Raunverulega óskiljanlegt hvað Guðgeir var lengi á varamannabekkjum. Eftir horn- spyrnur hans komu bæði mörk Fram. Hins vegar léku ekki allir leikmenn Fram vel — siður en svo. Mikil von- brigði voru i sambandi við Elmar Geirsson. Hann náði sér aldrei á strik — og settu Keflvlkingar þó ekki sér- stakan mann á hann. Nei, hann var ekki hundeltur eins og oftast áður en náöi sér bara ekki á strik. En hvað með Keflvikinga? — Hvað brást hjá þeim? — Það var fyrst og fremst framlinumennirnir. Þeir náðu sér ekki á strik gegn sterkri vörn Fram, og þar með fór mesti brodd- urinn úr liðinu. Vörnin var sterk — þetta var fyrst og fremst leikur varnarmannanna. Þorsteinn Ólafsson á þó sök á fyrra marki Fram — einu mistök hans i leiknum. Eftir hornspyrnu Guðgeirs á 2. min. fram- lengingarinnar skallaöi Guðni Kjart- ansson knöttinn. Hann fór beint upp i loftið og Þorsteinn hljóp út úr marki sinu — ætlaði að slá knöttinn frá, þegar hann kom niður aftur. En Þorsteinn varð of seinn — komst ekki að — og Jón Pétursson stökk hæst og skallaði yfir varnarmennina. A marklinunni var Astráður — reyndi að skalla frá — en knötturinn kom rétt undir þverslá og Ástráði mistókst að bjarga, þrátt fyrir góða tilraun. Úthlaup Þorsteins var þarna misheppnað — á marklinu hefði hann varið léttilega. Sex minútum siðar tókst Keflavik að jafna. Hjörtur Zakariasson náði knett- inum úti á hægra kanti — eftir mistök Framara — lék aðeins áfram og gaf fyrir — fasta spyrnu, rétt innan vita- teigs. Þar kom Steinar aðvifandi — eldsnöggt hljóp hann á móti knett- inum, sneri þó ekki að markinu, og spyrnti viðstöðulaust neðst i mark- horniö. Hreint gull af marki — og sýndi vel hve Steinar er hættulegur — sleppi hann augnablik. A 13. min. framlengingarinnar fengu Framarar aftur horn, sem Guðgeir tók. Knötturinn barst til Asgeirs Elias- sonar, sem lék upp að vítateignum, og spyrnti siðan mjög fast á markið.Þorsteinn gerði mjög vel i að verja — en hann hélt skiljanlega ekki knettinum, sem fram fór af honum beintupp. Og þá sýndi Marteinn hörku sina. Aðþrengdur af varnarmönnum brauzt hann inn á marklinuna og skallaði i mark. Svo var krafturinn mikill,- að sjálfur þeyttist hann i markið — rakst á markstöngina og lá óvigur um stund. En hann lét þaö ekki á sig fá — stóð upp skömmu siöar og hélt áfram eins og ekkert hefði i skorizt. Siðari hluta framlengingar- innar var komið myrkur — maður rétt greindi leikmenn. Þaö hélt ég að mundi koma Keflvikingum til góða, þar sem þeir höfðu einnig vindinn sér til aöstoðar. Það reyndist þó ekki — og Framarar stóðu uppi sem sigur- vegarar. Þetta var ekki neinn stórleikur — til þess var taugaspennan hjá leik- mönnum of mikil. En spenningurinn i framlengingunni gerði þaö að verkum, aö leikurinn verður minnisstæður — þrátt fyrir allt. Eysteinn Guðmundsson dæmdi leikinn yfirleitt ágætlega. Holland 5 4 1 0 24-2 9 Belgia 4 3 10 10-0 7 Noregur 5 2 0 3 9-14 4 tsland 0 0 0 « 2-29 0 Tveir leikiir eru eftir. Beigia og Norcgur leika i Belgiu 31. október — cn úrslitaleikurinn verður svo milli Hollands og Belgiu i Amsterdam hinn 18. nóvember. Þorsteinn ólafsson, markvörður Kefl vikinga, grípur knöttinn öruggum höndum i leiknum I gær- kvöldi. Aðrir leikmcnn á myndinni eru frá vinstri Guðni Kjartansson, Marteinn Geirsson, sem skoraði sigurmark Fram i leiknum, lljört- ur Zakariasson, GIsli Torfason, Er- letulur Magnússon og Jón Péturs- son. Ljósmynd Bjarnleifur.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.