Vísir - 13.09.1973, Page 4

Vísir - 13.09.1973, Page 4
4 Vísir. Fimmtudagur 13. september 1973 EVRÓPUKEPPNIN í HANDKNATTLEIK Valur-Gummersbach FORSALA AÐGÖNGUAAIÐA HEFST í TJALDI VIÐ FERÐASKR. ÚTSÝN í AUSTURSTRÆTI í dag kl. 12,30 ATH. FJÖLDI SELDRA MIÐA ER INNAN VIÐ 3000 TRYGGIÐ YKKUR ÞVÍ MIÐA STRAX í DAG ÞAKKLÆÐNING Bjóðum upp á hiö heimskunna þéttiefni fyrir sprungur, steinþök, asfalt, málmþök, slétt sem báruð. Eitt bezta við- luðunar- og þéltiefni, scm völ er á fyrir nýtt sem gamalt. Þéttuin húsgrunna o.fl. 7 ára ábyrgð á efni og vinnu í verksamningaformi. Fljót og góð þjón- usta. Uppl. i sima 26938 kl. 9-22 alla daga. alcoatin^s þjónustan Stúlka óskast til starfa ó afgreiðslu Vísis Uppl. um starfið gefur afgreiðslustjóri kl. 10-12 fyrir hádegi næstu daga. VÍSIR Hverfisgötu 32. Nouðungaruppboð á prjónavél, talin eign Alis hf., verður haldið aö Lang- holtsvegi 111, fimmtudag 20. september 1973 kl. 10.30. Greiðsla við hamarshögg. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Nauðungaruppboð á 2 fatapressum, sem taldar eru eign Efnaiaugar Vestur- bæjar hf., verður haldið að Vesturgötu 53 fimmtudag 20. september 1973 kl. 15.30. Greiösla viö hamarshögg. Borgarfógctaembættið i Reykjavik. Umsjón Þórarinn Jón Magnússon Burt Lancaster — sem innan skamms nær sextugu — hefur verið falið að fara með hlutverk Mósesar i sjónvarpsmynd, sem á að gera um boðorðin tiu, og fer myndatakan framitsrael og á ttaliu. — Núna loksins get ég sætt mig-viö að vera eins konar tvifari Charlton Heston, segir Burt. En svo sem kunnugt er, fór Heston með hlutverk Mósesar i þeirri vfðfrægu kvikmynd, sem gerð var um boðorðin á sinum tima. Nina van Pallandt afþakkaði nýlega aðalhlut- verk i kvikmynd þar sem Michael Caine er i aðalkarl- hlutverkinu. Ástæðuna segir hún vera þá, að henni falli ekki i geð nektarsena, sem þau Caine áttu að eiga saman i myndinni. Kennarar i USA eru nemendum sinum sjálfsagt mjög að skapi um þessar mundir. Þeir hafa ákveðið að hefja verkall á næstudögum til að leggja áherzlu á launakröfur sinar. 1 borginni Detroit einni saman ertalið.aðum 10.500 kennarar hætti kennslu meðan á verk- fallinu stendur. Karl Gústaf, sá sænski, fékk fyrir allnokkru bréf frá 6 ára gamalli stúlku. Bað hún Karl um að aðstoða þann litla bæ, sem hún bjó i, við að fá byggða bráðnauö- synlega brú. Brúin var vigö fyrir fáeinum dögum, — að Karli Gústaf viðstöddum. Mary Pickford 81 árs gömul kvikmynda- stjarna hefur verið rúm- liggjandi i marga mánuði. Hún er ekki beinlinis veik, en fullyrðir, að hún geti aldrei framar farið á fætur. Herramaðurinn hér á myndinni fyrir ofan er enginn smákarl, hann er konungur og ber það mikilfenglega nafn Wally Umbugurri. llann yfirgaf nýverið þegna sína stutta stund til að skoða sig um i áströlsku milljónaborginni Perth. Málaður i öllum regnbogans litum og í mittisskýlu, gyrtur belti úr manns- hárum, spigsporaði hann um borgina dagiangt. Vakti hann skiljanlega hina mestu athygli vegfarenda. SKOP Kvenmaður hafði falliö i höfnina. Fullorðinn maður átti leið hjá. Það var ekki öörum en honum til að dreifa, og þar sem hann ekki kunni að synda, reyndi hann aö ná til kvenmannsins með regnhlíf sinni. Eftir árangurslausar til- raunir tókst kvenmanninum að stynja upp: — Ég er hrædd um, að þetta komi ekki að gagni. Ég er hvort sem er löngu orðin gegn- blaut.. — Ég á aldrei i neinum erfið- leikum með að skipuleggja sumarfriið mitt. Konan min ákveður hvert skal halda, for- stjórinn minn segir mér hvenær og bankinn hversu lengi.... Pétur hafði verið i dýra- garðinum með föður sinum og vildi skýra móður sinni frá þvi helzta, sem fyrir bar: — Ég sá voða stóran fíl. Hann safnaði aö sér grasi með halan- um. — Nú og hvaö gerði hann svo við það? — Það þori ég ekki að segja.. — Ég ætla alls ekki að vera uppáþrengjandi, ungfrú Jórunn. Ef þér eruð ekki til I það, þá fer ég bara i buxurnar aftur! • Og þá er það saga af tveim ónefndum stórkaupmönnum, sem bjuggu hliö við hlið. Þeir reyndu að ganga hvor fram af öðrum i flottheitum. Báðir höfðu þeirbúiðhús sln öllum hugsan- legum þægindum, og fyrir utan hús þeirra voru einkasund- laugar, tennisvellir, hesthús með dýrustu reiðhestum, og rándýra bila áttu þeir aö sjálf- sögðu. Svo var það einn daginn, aö annar stórkaupmaöurinn tók eftir þvi, að hinn var kominn meðsveraloftnetsstöng áeinka- bifreið sina. Aha! Simi! Þegar i stað fékk hann sima i sina bif- reið og ennþá sverari loftnets- stöng i Kádiljákinn sinn. Og svo var það einn daginn, að stórkaupmennirnir áttu leið saman eftir hraðbrautinni inn i borgina. Þá hringdi Jagúar-eigandinn i keppinaut sinn: — Halló, félagi, þetta er Berti! — Já, blessaður vertu...heyrðu, viltu aðeins biöa — ég þarf að svara i hinn slmann! Það er alltaf fróðlegt að llta i orðabækurnar. Hér eru þrjú sýnishorn úr einni slikri: Vitsmunavera: Maður, sem notar fleiri orð en nauðsynlegt er til aö segja meira en hann veit. Hugvitssamur: Maður, sem skrifar um nokkuð, sem hann skilur ekki, og tekst að láta lita svo út sem það sé kennaranum að kenna. • Heimili: Staður þar sem hluti fjölskyldunnar biður, þar til hinn hluti fjölskyldunnar kemur heim með bílinn.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.