Vísir - 13.09.1973, Page 6

Vísir - 13.09.1973, Page 6
6 Vlsir. Fimmtudagur 13. september 1973 VÍSIR Otgefandi:-Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Ayglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611 Afgreiðsla: Hverfisgötu 32. Simi 86611 Ritstjórn: Slðumúla 14. Simi 86611 (7,llhur) Askriftargjald kr. 360 á mánuði innanlands i lausasölu kr. 22.00 eintakið. Blaöaprent hf. Vaknið nú, hrœsnorar Rússneski rithöfundurinn Solzhenitsyn hefur veitt vestrænum þjóðum verðuga ráðningu fyrir hræsnina i samskiptum þeirra við Sovétrikin. Vonin um viðskiptahagnað og friðsamlega sam- búð austurs og vesturs hefur gert Vesturlanda- búa ónæma fyrir vitneskjunni um grimmdarkerfi Sovétrikjanna. Vestræn stjórnvöld hafa sifellt vinsamlegri samskipti við sovézk stjórnvöld og þykjast þvi eiga erfiðara með en áður að ota frjálshyggju að þeim. Vinsamleg samskipti út á við gera sovét- stjórninni kleift að beita meiri hörku inn á við. Þess vegna eru sovézkir frjálshyggjumenn fórnardýr hinnar pólitisku hláku i samskiptum austurs og vesturs. Sænskir og danskir stjórnmálamenn hafa þor- að að opna munninn út af nýstalinismanum i Sovétrikjunum. Þeim hefur verið svarað harð- lega og þeir sakaðir um að leggja stein i götu friðarhreyfingarinnar i Evrópu. Og svo langt eru Vesturlandabúar leiddir af friðardúfukvakinu, að þeir taka mark á þessari óhugnanlegu röksemda- færslu sovétstjórnarinnar. Frjálshyggjumenn i Sovétrikjunum eru nú miskunnarlaust sendir á svokölluð geðveikra- hæli, þar sem þeir eru eyðilagðir með lyfjum. Siðan eru þeir sendir i skriparéttarhöld, sem vestrænir fréttamenn fá ekki að vera viðstaddir, þar sem fórnardýrin játa glæpi gegn Sovétrikjun- um og ljóstra upp um aðra hliðstæða glæpamenn. Aðrir eru kerfisbundið sendir á þriggja ára fresti i þriggja ára þrælkun. Syndir feðranna eru einnig látnar koma niður á börnunum, sem eru rekin úr skóla og vinnu. Hinn frjálslyndi timi Krústjoffs er liðinn. Hinir nýju valdhafar geta veitt villimannlegri stefnu sinni fullkomna útrás, af þvi að þeir vita, að vest- rænar þjóðir hafa meiri áhuga á að lækka útgjöld til varnarmála og auka tekjur af viðskiptum við Sovétrikin en að gæta hagsmuna lýðræðis og frjálshyggju i heiminum. Rússneski visindamaðurinn Sakkarof hefur réttilega varað vestrænar þjóðir við of mikilli bjartsýni i öryggismálum Evrópu. Hann segir vigvætt og einangrað alræðisriki eins og Sovét- rikin enn vera hættulegt nágrönnum sinum. Hann þorir að segja það, sem margir vestrænir stjórn- málamenn eru hættir að þora að segja af ótta við að vera kallaðir kaldastriðsmenn. Kjarkur Solzhenitsyns og Sakkarofs er eins og rýtingsstunga i lélega samvizku vestrænna þjóða. Kannski verða áminningar þeirra til þess, að við förum að setja sovétstjórninni skilyrði fyr- ir frekari hláku i samskiptunum. Við verðum að reyna að hjálpa frjálshyggjumönnum Sovétrikj- anna með þvi að beina öllum þunga almennings- álitsins á Vesturlöndum gegn villimennsku sovét- stjórnarinnar i garð þeirra. Við verðum að vakna af svefni okkar og taka á okkur ábyrgðarhluta af þvi, að hviliku helviti fyr- ir frjálshyggjumenn hlákan hefur gert Sovétrik- in. Ef við mætum sovétstjórninni af fullri einurð, kann að koma i ljós, hvort hún leggur nægilega mikið upp úr friðsamlegri sambúð til að þora að leggja niður eitthvað af villimennskunni i mann- frelsismálum. —JK BYLTINGIN HAFÐI LEGIÐ í LOFTINU llllllllllll M) Umsjón: Guðmundur Pétursson „Sagði ég ekki, að svona mundi fara”. —- Þessi margþvælda setning er nú á hvers manns vörum, siðan fréttir bárust af þvi, að herinn i Chile hefði bundið enda á tilraun landsmanna til lýð- ræðislegs kommún- isma. Enginn sá auðvitað fyrir hin dapurlegu örlög Salvadors All- ende forseta, en bæði i röðum vinstri og Vöruþurrðin I verzlunum var slik, að taka þurfti upp skömmtun á lífsnauðsynjum. Langar biðraðir á borð við þessa á myndinni urðu við matvörubúðir. Var svo komið að heimingur verziunarinnar fór fram á svörtum markaði að búðarbaki. Á þeim markaði hrukku 100% iauna- hækkanir skammt. Ekki frekar en i 300% verðbólgunni. viðurkenna á opinberum vett- vangi, að hugsanlega hefðu stjórn hans orðið á mistök i þeim efnum. Eitt árið af þessum þrem rikisstjórnarárum setti Chile heimsmet i verðbólgu, en hún nam 163%. Það met var slðan slegið, þegar verðbólgan komst samkvæmt áætlun sér- fræðinga upp i 300%. Vaxandi óánægja með stjórnina og harðnandi and- staða gegn henni leiddi til þess, að Allende sá sig tilknúinn til að taka fulltrúa hersins I stjórnina. Þeir stóðu þó fæstir lengi við, þegar þeim fannst Allende virða að vettugi tillögur þeirra til úrbóta. Fór enda svo, að þeir sögðu flestir af sér embætti eftir skamma veru i ráðherrastólun- um. Og svo virðist sem þau nánari kynni, sem herforingjarnir hlutu af Allende þann tima, sem þeir störfuðu með honum i stjórn, hafi verið siðasti drop- inn, sem fyllti bikarinn svo að út af fíóði. — Höfðu ekki nema tæp- ar tvær vikur liðið frá afsögn t.d. æðsta yfirmanns flughers- ins, þar til byltingin var gerð. Þegar þetta er skrifað i gærdag, eru fréttir enn óljósar af byltingunni og allt á huldu um, hvernig til hefur tekizt. 1 Argentinu heyrðu menn út- varpssendingar frá útvarpsstöð einni á valdi hersins, og var þar skýrt frá þvi, að einhverrar andstöðu gætti i Santiago. Sættu hermenn þar árásum leyni- skytta. Var þó ekki frá þvi greint, hve umfangsmikil þessi andstaða væri. Má sennilegt telja, að þar hafi verið að verki einhverjir hinna róttæku ungu manna úr vinstri byltingarhreyfingunni, sem gripið hafi til vopna. Úr annarra röðum er varla að vænta nægi- legrar andstöðu við herinn til þess að geta staðið i skot- bardögum. Hvort þessi hreyfing er nægi- lega öflug til að snúast gegn hernum i allsherjar borgar- arastyrjöld, leiðir timinneinn ljós. Það hefur ekki boriö pað mikið á þessum félagsskap, að honum sé slikt ætlandi. A hinn bóginn fullyrða kunnugir i Chile, að meðlimir hans hafi hlotið skæruliðaþjálfun og séu nógu fjölmennir til að taka upp baráttuna. \llende iopinberri heimsókn i Moskvu, en þangað sótti hann efnahags- ituðning fvrst framan af, þar til Rússum ofbauð hitin, sem þeir þurftu ið moka i. Aður höfðu alþjóðafjármáiastofnanir tekið fyrir lán til Chile. fremja sjálfsmorö (eftir þvi sem fyrstu fréttir herma), en gefa sig á vald byltingarhern- um. Með þessa byltingarsinnuðu yngri menn I huga er eðlilegt, að menn telji, að alvarlegasta af- leiðing stjórnarbyltingarinnar i Chile I fyrradag verði sú, að hin- ir friðsamari úr þeirra röðum fái ekki haldið aftur af þeim. Hér eftir verði viðkvæðið: „Það ætlaði Allende lika, en þiö sáuð, hvernig fór fyrir honum!” Þessa þykir meira að segja þegar gæta hjá næsta nágranna Chile. — Nefnilega Argentinu, þarsem Juan D. Peron hefur átt fullt I fangi með að reyna að friða hina mannrænandi skæru- liða. Stjórn peronista naut stuðnings Allende, en hinir rót- tæku ungu menn héldu þvi fram, að loforð Perons um að bæjga frá Argentinu „öllum áhrifum heimsvaldasinna” mundu reyn- ast loftið tómt. Þeir úr röðum hægri manna, sem segjast hafa séð byltinguna i Chile fyrir, segja: „Að þessu hlaut að reka. Allende var á góðri leið með að teyma rikið i algert öngþveiti”. Efnahagsöngþveitið i landinu, vöruþurrðin og samdrátturinn I viðskiptalifinu var með slikum endemum, að varla verður við nokkuð jafnaö. óstjórnin i fjármálunum var þannig, að jafnvel Allende sjálfur varð að kyngja þeim beizka bita að hægri manna telja menn sig hafa séð, að hverju hlaut að stefna. Stjórnarbyltingu. Róttækustu stuðningsmenn Allende höfðu hvatt hann til að þagga niður i andstæðingum sinum með valdi og senda á þá vopnþjálfaða félaga úr vinstri byltingarhreyfingu Chile (skammstöfuð MIR), ef nauð- syn krefði. Ahangendur þessar- ar hreyfingar koma flestir úr röðum háskólastúdenta. All- ende hafði hins vegar hemil á hinum ungu stuðningsmönnum sinum, og hann hélt fast við áform sin um að „leiða Chile brautina til sóslalisma” — en þó innan ramma stjórnarskrárinn- ar. En MIR og Byltingarher alþýöunnari Argentinu (skæru- liðasamtökin, sem staðiö hafa að mannránunum þar), og Tupamaros I Uruguay — sér- hver þessi leynil. félagsskapur trúir þvi, að hugsjónir marx- ismans verði ekki til sigurs leiddar, nema með blóðugri byltingu. Og þeir segja: „Hvað sögðum við ekki?” Þeirra hetja er Che Guevara, kúbanski skæruliðasérfræðing- urinn, sem féll fyrir kúlum stjórnarhermanna i Boliviu 1967. Við hliðina af mynd hans stilla þeir nú myndinni af Allende, sem neldur kaus að

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.