Vísir - 13.09.1973, Blaðsíða 3

Vísir - 13.09.1973, Blaðsíða 3
Vfsir. Fimrtitudagur 13. séptem'ber 19V3 3 H Hœnsnarœkt stunduð af kappi „Eyðibýli”, „kostalitil jörft meft lélegum húsum”, hefur Votmúli verift kallaður. En hvernig er þessi margumtalafti Votmúli i raun og veru? Visismenn brugðu sér þang- að, er þeir voru á ferð um Sel- foss i gær. Að Votmúla er nokkurra mlnútna akstur frá Selfossi. Hann stendur beint suður undan kauptúninu, og er drjúgur spöl- ur á milli. Ibúðarhúsin i Vot- múla lita frekar vel út, en úti- húsin eru með hrörlegra móti. Ef einhver hefur haldið, að þarna væri eyðibýli, þá kemst hann á aðra skoðun. Hænsna- rækt er stunduð þarna af fullum krafti af eiganda jarðarinnar, Þorkeli Björgvinssyni, og bróð- ur hans, Sigurði Björgvinssyni. Sigurður var staddur i Vot- múla, er okkur bar að garði. Hann sýndi okkur starfsemina. Þeir bræður eru ekki á þeim buxunum að hætta hænsnarækt- inni, þótt jörðin verði seld. „Við munum ekki hætta hér fyrr en húsin verða fyrir”. Sigurður vildi litið tjá sig um jarðarsöluna. Hann sagði, að alls óvist væri, hvað gert yrði, ef Selfoss hætti við kaupin. En ef- laust væru til kaupendur að henni eftir sem áður. Þess má geta hér til gamans, að hin stóra Bergsætt er að upp- runa frá Votmúla, sem var áður mun stærra býli og hafði marg- ar hjáleigur. —é)II Upp úr flötum Miftflóanum stendur Votniúlinn. Ilann er ekki ólikui fjölda annarra bæja um gjörvallt landift. Votmúlí séftur aftan frá.Otihúsin eru flestöll notuft til hænsna- ræktar og hcygeymsiu. Oraslendi er þar mikift og gott aft sögn Sigurftar Björgvinssonar. <1 Votmúlahænurnar láta sér litift finnast um lætin vegna sölu jarftarinnar. Þórftur Þorkelsson, umsjónarmaftur hænsnanna, hugar aft þeiin.. Verða þeir raunverulegir aðstoðarráðherrar? Magnús ríður á vaðið Eru ráögjafar ráöherranna, sem oft eru kallaðir „aöstoðar- ráftherrar”, aft vaxa að virftingu, svo aft þeir fái meðal annars um- boft til aft gegna störfum ráöherra I fjarveru þeirra? Sú spurning vaknafti, þegar fram kom, aö einn af þeim, Adda Bára Sigfúsdóttir, sat fund rfkisstjórnarinnar um landhelgismálift i fjarveru Magnúsar Kjartanssonar. Hannes Jónsson blaðafulltrúi rikisstjórnarinnar segir i viðtali við VIsi, að Adda Bára hafi nokkrum sinnum setið stjórnar- fundi i fjarveru Magnúsar Kjartanssonar. Hins vegar er honum ekki kunnugt um, að aðrir „aðstoðarráðherrar” hafi haft slikt umboð fyrir sina ráðherra. Þessir ráðunautar ráðherra komu til með breytingu, sem Alþingi samþykkti fyrir nokkrum árum. Þótti Alþingi eðlilegt og sjálfsagt, að t.d. nýir ráðherrar, sem tækju við embætti, ættu þess kost að koma með inn i ráðuneyti sitt sérstakan ráðgjafa, sem þeir sjálfir kveddu til og treystu kannski betur en þeim, sem fyrir- rennarar i ráðherraembættum hefðu þar haft, til að túlka sína stefnu. Þetta hefur til dæmis átt við, þegar ráðherra sezt i stól, sem maður úr öðrum flokki hefur áöur setið i lengi. Þetta hafa ráð- herrar nú iðkað flestir hverjir og gjarnan valið menn úr eigin flokki, sem orðið hafa nokkurs konar flokkspólitiskir aðstoðar- ráðherrar. Má vera, að Magnús Kjartansson sé að ryðja braut fyrir auknum áhrifum þessara manna. —HH EITTHVAÐ FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA — í nýjum sjónvarpsþœtti hjá Magnúsi Bjarnfreðssyni „Þaft er verift aft ræfta vift fólk til þess að vera til aðstoftar við dagskrána I vetur,” sagfti Emil Björnsson fréttastjóri Sjónvarps- ins, er vift ræddum vift hann f gær um vetrardagskrána, en hún mun byrja meft októbermánufti. „Ég býst við, að það verði eríendur fréttaskýrendaþáttur á þriðjudögum og verða þau Sonja Diego og Jón Hákon Magnússon umsjónarmenn með honum. Björn Bjarnason, Haraldur Ólafs- son og Arni Bergmann munu vinna með hinum föstu frétta- mönnum við gerð þessara þátta. Jafnvel kemur til greina, að það verði einhverjir fleiri” sagði Emil ennfremur. Þá sagði hann okkur, að fyrir hugaðir væru innlendir frétta- skýrendaþættir á föstudögum, og verða það fréttamennirnir með innlendu fréttirnar, sem sjá um þá, þau Eiður Guðnason, Ólafur Ragnarsson, Guðjón Einarsson og Svala Thorlacius. Einnig hefur orðið að ráði að biðja ýmsa menn, sem kunnugir eru fréttunum, að vera með. Það eru þau Baldur Óskarsson, Valdimar H. Jóhannesson, Vilmundur Gylfa- son, Vilborg Haröardóttir og Steinunn Sigurðardóttir. Þá verður nýr þáttur annan hvern miðvikudag um allt, sem varðar heimilið og fjölskylduna og verðu fléttað inn i hann fjöl- skyldugamni. Mun Magnús Bjarnfreðsson sjá um hann. 1 þessum þætti veröa t.d. tekin fyrir heilbrigðismál, matargerð, neytepdamál, áfengisvarnamál, slysavarnir á heimilum, börn og barnauppeldi. Jafnvel er verið að hugsa um myndagetraun, en þessi þáttur er nokkuð mikið I mótun að sögn Emils. Strax eftir fréttir á mánu- dögum verður erlendur fræðslu- þáttur, og verður hann um sál- fræðileg og félagsleg viðhorf. Þá verður á laugardagseftir- miðdögum „Þingvika” i umsjá Björns Teitssonar og Björns Þor- steinssonar. Verið er að vinna aö bættri aðstöðu til að kvikmynda i Alþingishúsinu með þvi t.d. að koma fyrir föstum ljósum og ljós- kösturum. —EVI MAGNCS — hann ætlar aft sam- eina alla fjölskylduna fyrir fram- an sjónvarpstækiö I vetur. Verjum allt að 150 milljónum til byggingar elli- og hjúkrunarheimila — tillaga Alberts Guðmundssonar í borgarróði „Þessa tillögu mina um stór- átak I málefnum aldraftra legg ég fram, vegna þess hve ég tel brýna þörf í þeim efnum”. Þetta sagfti Albert Guðmundsson um tillögu sina i borgarráöi, aö á næstu árum yrfti varift 7 1/2% — 10% af útsvarstekjum borgarinnar til byggingar elli- og hjúkrunar- heimila. Þessi upphæð gæti numið hátt á annað hundrað milljónum miðað við núverandi heildarupphæð út- svara. „I þessu sambandi vil ég minna á varnaöarorð Gisla Sigur- björnss. forstj. Elliheimilisins Grundar og einnig það, að vanda- mál sjúkra og aldraðra fer sivaxandi”, sagði Albert. „Crbætur þser, sem nú er unnið að, eru í engu samræmi við aukningu þarfa fyrir slikt húsnæöi. Vandamálið snertir ekki aðeins hina öldruðu, það snertir alla i þjóðfélaginu,” sagði Albert enn- fremur. „Þau eru ófá heimilin hér I borginni, þar sem gamalt fólk dvelst hjá ættingjum sinum, án þess að til þess sé nokkur aðstaða.Kannskienginnmöguleiki að veita hinu aldraða fólki næga hjúkrun og umhiröu. Ég tel þvi, að i þessum efnum verðum við að gera stórátak hið allra fyrsta,” sagði Albert Guðmundsson að lokum. -óG HAMINGJU- SAMLEGT HUNDALÍF „Tiu fyrstu dagarnir i lifi hvers hvolps ráða sennilega mestu um framtið hans. A þessu timabili riður mest á, að nógur hiti og góð loftræsting sé i stofunni og hann njóti ástar bliðlyndrar móður.” „Um það bil tfu tímum eftir að tikin hefur gotið, á að lyfta henni varlega upp og fylgja henni út i garð... Fyrsta sólarhringinn á að gefa tikinni fljótandi fæðu á fjögurra tima fresti: Hrátt egg og sykurvatn hrært út i volgri mjólk, ffnmalaðan barnakornmat og mjólk, (það má líka mæla með kjötsúpu), nóg af fersku vatni, bætið síðan við þetta léttari, auðmeltari fæðu, eins og til dæmis fiski og kjúklingum á öðrum degi og upp frá þvi nógu af hráu kjöti og kjarnafæðu, sem skilur ekki eftir mikinn úr- gang...” Þetta eru nokkur hinna fjöl- mörgu heilræða um meðferð á hundum f bók Mark Watsons, sem vill gefa íslendingum dýra- spítala. Bókin er komin út i Islenzkri þýðingu og nefnist „Hundurinn minn”. — llll

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.