Vísir - 13.09.1973, Blaðsíða 13

Vísir - 13.09.1973, Blaðsíða 13
Vísir. Fimmtudagur 13. september 1973 u □AG | Q KVÖLD | Q □AG | AÐ ÞYÐA EINA MYND — þýðandinn horfir á hverja mynd a.m.k. fjórum sinnum „Það er afar misjafnt, hvað langan tima það tekur að þýða eina mynd fyrir sjónvarpið,” sagði Kristmann Eiðsson I viðtali við blaðið I gær. Hann sagði okkur, að það gæti tekið allt upp i 2 daga. Þetta fer þannig fram, að fyrst er myndin skoðuð og þýðandinn fær hand- rit, það getur jafnvel verið handrit leikstjórans með lýsing- um á senum og svipbrigðum. Þá fylgir einnig segulbands- spóla, sem hlustar er á, þegar heim er komið. Byrjað er á að gera handritið rétt, ef þess þarf. Stundum er talið á segulbandinu svo óskýrt, að það verður að marghlusta á það. Eftir þetta hefst fyrst sjálf þýðingin, og er hún vélrituð upp á sérstök textarúllublöð á þar til gerða vél niðri i sjónvarpi. Þetta gera þó ekki þýðendurnir sjálfir. Siðan er myndin skoðuð tvisvar enn og textarnir sam- ræmdir myndinni sjálfri. Ekki má þetta vera of langt mál, þvi að sumir lesa hægt eins og t.d. sumt gamalt fólk Eins getur verið, að nú komi i ljós eitthvað, sem þýðandinn hefur ekki komið auga á fyrr og mætti Hérna sjáum við Kristmann Eiðsson stjórna hinni svokölluðu textavél. . betur fara. Er það þá lagað. Prófarkalesarinn er auðvitað lika búinn að fara yfir textann, til þess að vita, hvort eitthvað sé að. Slðast er svo þýðandinn viðstaddur útsendingu myndarinnar Hann sendir út textann með þvi að ýta á hnapp, sem er tengdur svo- kallaðri textavél. Þannig ræður hann, hversu lengi textinn er á skerminum hverju sinni. -EVI. Útvarpið í kvöld kl. 22,35: „Manstu eftir þessu' ,ii BALLOÐUR ,,Ég mun tala um ballöður og rapsódiur, en ballöður voru samdar við sagnakvæði og var upphaflega dansað eftir þeim, en það féll nú fljótlega niður, sagði Guðmundur Jónsson pianóleikari, sem sér um þáttinn „Manstu eftir þessu.” Meðal þess.sern við fáum að heyra, eru fantasiur um Greensleeves eftir Vaugham Williams, og eins gerir Guð- mundur ráð fyrir að taka eitthvað af frönskum ballöðum, t.d. ballöðu um Parisarkonur eftir 15. aldar skáld, sem Debussy samdi lag við. Ballöðu eftir Chopin fáum við að heyra og rapsódiu eftirBrahms i anda þjóðlaga. Sennilega verða svo 1- 2 verk i viðbót flutt. -EVI. 13 *☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★.' * ** C7 — * QLl :í: m Tu * *2* ^ * spa Spáin gildir fyrir föstudaginn 14. september. Hrúturinn, 21. marz-20. april. Þú þarft að gera þær ráðstafanir, að þú verðir ekki svikinn að einhverju leyti um greiðslu fyrir eitthvað, sem þú hefur tekið að þér. Nautið, 21. april-21. mai. Ef til vill áttarðu þig • ekki fyllilega á einhverjum breytingum, sem orðið hafa á i kringum þig og snerta þig að verulegu leyti. Tviburarnir, 22. mai-21. júni. Það litur út fyrir, að þú sért að ljúka einhverjum mikilvægum áfanga og að þú megir vera fyllilega ánægður með hvernig þér hefur tekizt. Krabbinn,22. júni-23. júli. Þótt þú getir ef til vill ekki látið þróun málanna i kringum þig afskipta- lausa, er vissara fyrir þig að fara hægt i sak- irnar. I,jónið,24. júli-23. ágúst. Það er ekki óliklegt, að einhverjar breytingar séu fram undan, sem geta haft áhrif á þig og starf þitt, bæði beinlinis og óbeinlinis. Mcyjan,24. ágúst-23. sept. Það litur út fyrir, að þú eigir skemmtilegan dag i vændum, jafnvel svo, að hann verði þér minnisstæður lengi af þeim sökum. Vogin, 24. sept.-23. okt. Þú ættir ékki að fara að öllum þeim ráðum, sem þér kunna að verða gefin i dag, nema að vandlega athuguðu máli og öllum aðstæðum. I)rekinn,24. okt.-22. nóv. Þú ættir þegar að hefja undirbúning að einhverju, sem þú helur tekið að þér, það er ekki vist, að frestur til að ljúka þvi verði langur. Bogmaðurinn,23. nóv. -21. des. Vertu fljótur að gripa gott tækifæri, en sannfærðu þig samt um það áður, að það sé eins gott og það litur út íyrir að vera. Steingeitin, 22. des.-20. jan. Þú verður að kunna hóf fljótfærni þinni, annars er eins vist, að þú gerir einhverja skyssu, sem jainvel getur valdið þér tjóni. Vatnsbcrinn, 21. jan.-19. febr. Það litur út fyrir, að fréttir, sem þér berast I dag, kunni að verða dálitið óhagstæðar. Þær geta þó breytzt áður en langt um liður. Fiskarnir,20. febr.-20. marz. Góður dagur, jafn- vel þótt nokkur seinagangur verði á hlutunum framan af. Það er ekki útilokað, að þú fáir skemmtilega heimsókn. .■ S-É Æ ¥ -Ú ★ ★ -ft ¥ •3 ★ -3 ★ ★ -3 ¥ -3 ¥ -3 ★ -3 -k ■3 ¥ -3 ¥ -3 ¥ -3 ¥ -3 ¥ -3 ¥ -3 ¥ -3 ¥ -3 ¥ -3 ¥ -3 ¥ -3 ¥ -3 ¥ -3 ¥ -3 ¥ -3 ¥ -3 ¥ -3 „DREKINN" Útvarpið í kvöld kl. 19,50: Leikritið Þetta er frægt og mjög merki- legt leikrit eftir rússneska höfundurinn Evgeni Schwarz”, sagði Stefán Baldursson hjá leiklistardeild útvarpsins, en út- varpið flytur I kvöld leikritið „Drekinn” eftir Schwarz. Höfundurinn skrifaði flest leikrit sin á fyrri hluta þessarar aldar. Hann skrifaði gjarnan i ævintýralegum stil. Fyrir utan „Drekann” eru einna þekktust leikritið „Keisarinn klæða- lausi”, sem styðst við ævintýri H.C. Andersen, „Nýju fötin keisarans” og „Snæ- drottningin,” sem einnig er skrifuð á sama hátt. Leikurinn gerist i ónafngreindu riki, þar sem ógurlegur dreki ógnar ibúum rikisins. Yfirmenn rikisins eru handbendi drekans. Nú kemur til sögunnar hug- djarfur riddari, sem ákveður að sigrast á drekanum. Gengur nú á ýmsu. Þrátt fyrir ævintýralega um- gjörð, og að við fáum að heyra kettii hunda og asna tala, þá er þetta undir niðri skörp ádeila á einræði. Leikstjóri er Helgi Skúlason, Róbert Arnfinnsson leikur drek- ahn og Pétur Einarsson riddar- ann. Aður var þessu leikriti útv. i april 1969. -EVI. ÚTVARP # 13.00 A frivaktinni. Margrét Guðmundsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Siðdegissagan: „Sumar- friið” eftir Cesar Mar Valdimar Lárusson les (9). 15.00 Miðdegistónleikar: Ru- dolf Serkin og Sinfóniu- hljómsveitin I Filadelfiu leika Pianókonsert nr. 4 fyr- ir vinstri hönd eftir Prokof- jeff, Eugene Ormandy stj. Filharmóniusveitin i Berlín leikur „Vorblót”, ballett- tónlist eftir Stravinsky; Herbert von Karajan stj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. 16.15 Veðurfregnir 16.20 Popphornið 17.05 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.20 Daglegt mál.Helgi J. Halldórsson cand. mag. flytur þáttinn. 19.25 Landslag og leiðir.Sverr- ir Pálsson skólastjóri á Akureyri talar um Bárðar- dal. 19.50 Leikrit: „Drekinn” eftir Evgeni Schwarz. Þýðandi: Ornólfur Arnason. (Aður útv. I april 1969). Leikstjóri: Helgi Skúlason. Persónur og leikendur: Drekinn: Róbert Arnfinnsson. Lancelot: Pétur Einarsson. Karla- magnús: Jón Aðils. Elsa: Margrét Guðmundsdóttir. Borgarstjórinn: Valur Gislason. Hinrik: Arnar Jónsson. Knötturinn: Borg- ar Garðarsson. Asninn: Valdemar Helgason. Garö- yrkjumaðurinn: Karl Guð- mundsson. Aörir leikendur: Kjartan Ragnarsson, Daniel Williamsson, Guð- mundur Magnússon, Hall- dór og Erlendur Svavars. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir. EyjapistiII. 22.35 Manstu eftir þessu?Tón- listarþáttur i umsjá Guð- mundar Jónssonar pianó- leikara. 23.25 Fréttir I stuttu máli. Dagskrárlok. Óskum eftir að taka á leigu litla ibúð eða herb. sem fyrst. Simi 86066. Halldór Jónsson hf. Árbœjarhverfi Ilúsnæði óskast fyrir tannlæknastofu. Til- boð sendist Visi merkt ,,7130”. Hðfum til sölu eftirtaldar tegundir not- aðra bifreiða á góðum kjörum: Skoda 110 R Coupé árg. 1973. Skoda 110 R Coupé árg. 1972. Skoda 110 de luxe árg. 1972. Skoda 110 de luxe árg. 1971. Skoda 100 de luxe árg. 1971. Skoda 100 de luxe árg. 1970. Skoda 100 standard árg. 1971. Skoda 100 standard árg. 1970. Skoda Combi árg. 1970. Vauxhall Viva árg. 1971. Taunus 17m árg. 1970. VW 1300 árg. 1972. VW 1302 S árg. 1971. Bifreiðarnar einnig fáanlegar með fast- eignatryggðum skuldabréfum. TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDI H.F. AUBBREKKU 44-6 S(MI 42600 KÚPAV0GI ☆ ★☆★ ; ★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★ý

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.