Vísir - 22.09.1973, Qupperneq 16
| í DAG
Vlsir. Laugardagur 22. september 1973
1 í KVÖLD | | í DAG | 1 KVÖLD | | í DAG |
Og Cicero fer aft leggja iag sitt vih tigna konu, sem hann
þjónaAi óftur fyrr. James Mason og Danielle Darrieux I
hlutverkum sfnum í myndinni „Five Fingers”.
Sjónvarpið í kvöld kl. 21.30:
Og yfirvöldin
fer að gruna,
að ekki sé aílt
með felldu!
Laugardagsmynd sjón-
varpsins á að gerast í
heimsstyrjöldinni siðari.
Segir hún frá Cicero,
einkaþjóni brezka sendi-
herrans i Tyrklandi og er
hann i miklu uppáhaldi
hjá húsbónda sínum.
Þjónninn kemst yfir leyni-
skjöl bandamanna og selur þau
þýzkum sendimanni. Einnig
rifjar hann upp kunningsskap
sinn viö tigna konu, sem hann
þjónaði áður fyrr. Brátt tekur
brezka valdhafa að gruna, að
ekki sé allt með felldu í sendi-
ráðinu i Ankara, og senda gagn-
njósnara á vettvang.
James Mason, sem fer með
aðalhlutverkið i þessari tvltugu
biómynd, var fæddur i Yorks-
hire árið 1909. Hann hóf nám i
arkitektúr árið 1931, en fór einn-
ig að þreifa fyrir sér á leiklist-
arsviöinu það sama ár — og þaö
var ekki að sökum aö spyrja,
hann var áður en langt um leið
eftirsóttur leikari, og 1935
bauðst honum fyrsta kvik-
myndahlutverkið. Er þaö vist
ekki ofmælt að segja, að James
Mason hafi veriö einhver vin-
sælasti leikari fjórða áratugar-
ins i Engl. Það, sem kvenfólki
þótti svo hrifandi við leikarann,
var hans dökka yfirbragð,
leiftrandi augnaráð og áhrifa-
mikil röddin. Hann lék lika
einna helzt hlutverk athafna-
samra glæpamanna og þá
gjarnan vanheilla á geðsmun-
um.
Margir vilja telja túlkun hans
á Brútusi i „Júliusi Cæsar’.’einn
allra mesta sigur hans. James
Mason skrifaði jafnframt fjöl-
mörg kvikmyndahandrit, og ár-
ið 1956 fór hann einnig að fást
viö að stjórna upptöku þeirra
mynda, sem hann lék i.
í mynd sjónvarpsins, „Njósn-
arinn Cicero”, fara þau Dani-
elle Darrieux og Michael Renn-
ie jafnframt með stór hlutverk.
— ÞJM.
Opnar sýningu
Hjörleifur Sigurðsson
listmálari opnaði i gær
sýningu i Hamragörð-
um. Hjörleifur sýnir að
þessu sinni eingöngu
vatnslitamyndir, 21 tals-
ins.
Sýning hans er opin
til 30. september. Mynd-
in hér til hliðar sýnir
Hjörleif hjá einni mynd
sinni á sýningunni. Sýn-
ingin verður opin frá kl.
16 til 22 alla daga.
SJÓNVARP •
18.00 Enska knattspyrnan
18.50 Hlé
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Söngelska fjölskyldan
Bandariskur gamanmynda-
flokkur. Þýðandi Guðrún
Jörundsdóttir.
20.50 Stiflan Bandarisk
fræðslumynd um áhrif
stiflugerðar á umhverfið.
Greint er frá framkvæmd-
um við stifluna miklu við
V'iktoriufossa i Afriku og
breytingum þeim, sem urðu
á lifinu ofan stiflunnar, þeg-
ar þar myndaðist stöðuvatn.
Einnig er gerður saman-
burður á stiflugerð manna
og uppistöðum, sem bjórar
byggja við bústaði sina.
Þýðandi og þulur Öskar
Ingimarsson.
21.20 Akio Sasaki Japanskur
orgelleikari leikur þrjú vin-
sæl lög á rafmagnsorgel i
sjónvarpssal.
21.30 Njósnarinn CiceroiFive
Fingers) Bandarisk njósna-
mynd frá árinu 1952, byggð
á sögu eftir L.C. Moyzisch.
Leikstjóri Joseph L.
Mankiewicz. Aöalhlutverk
James Mason, Danielle
Darrieux og Michael
Rennie. Þýðandi Sigrún
Helgadóttir.
23.20 Dagskrárlok
i
ÓTVARP •
Laugardagur
22. september 1973
7.00 Morgunútvarp.
V'eðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(úr forustugr. dagbl),9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.45.
Morgunleikfimi kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.45. Sigurður Gunnarsson
heldur áfram að lesa
„Söguna af Tóta” eftir Berit
Brænne (10). Tilkynningar
kl. 10.25. Morgunkaffiö kl.
10.50: Þorsteinn Hannesson
og gestir hans ræða um út-
varpsdagskrána.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Óskalög sjúklinga.
Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
14.30 Á íþróttavellinum. Jón
Asgeirsson segir frá.
15.00 Vikan sem var.
Umsjónarmaður: Páll
Heiðar Jónsson.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. Tiu á
toppnum. örn Petersen sér
um dægurlagaþátt.
17.20 t umferöinni. Þáttur i
umsjá Jóns B. Gunnlaugs-
sonar.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 A haustsýningu. Talað
við listmálara.
19.35 Rússneskt kvöld.a. Arni
Bergmann blaðamaður
spjallar um land og þjóð. b.
Rússland i söng. c.
„Planka”, smásaga eftir
V'il Lipatoff i þýðingu Arna
Bergmanns.
21.05 Hljómplöturabb.
Guðmundur Jónsson bregð-
ur plötum á fóninn.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Eyja-
pistill.
22.35 Danslög.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Útvarp í kvöld kl. 19.30:
A HAUSTSÝNINGU
MYNDLISTARMANNA
MEÐ HLJÓDNEMANN
Þegar lokið hafði verið
við að setja upp listaverk
55 íslenzkra myndlistar-
manna í Kjarvalsstöðum,
fór Gylfi Gíslason út-
varpsmaður með hljóð-
nemann á staðinn og
ræddi við nokkra listmál-
aranna.
Viðtölin, sem voru hljóðrituð i
gærdag, má svo heyra i út-
varpsþætti Gylfa i kvöld, en sá
þáttur nefnist einfaldlega ,,A
haustsýningu”.
Það eru ekki færri en 116 verk
á þessari haustsýningu Félags
islenzkra myndlistarmanna,
sem sýningarnefnd hafði úr
samtals 321 mynd að velja. Sýn-
ingarnefnd er skipuð niu mönn-
um, en formaður nefndarinnar
er Leifur Breiðfjörð.
Þrjátiu félagsmenn eiga
myndir á sýningunni og tuttugu
og fimm utanfélagsmenn. Er
það athyglisvert, að nitján utan-
félagsmannanna eru nú að sýna
i fyrsta sinn, en það er einmitt
megintil'gangur sýningar þess-
arar að draga fram i dagsljósið
óþekkta listamenn.
Þess má geta, að siðasta
haustsýning Félags islenzkra
myndlistarmanna var haldin i
Norræna húsinu i september
1971, en félagið hafði sýnt viöa,
eftir að Listamannaskálinn leiö
undir lok.
Haustsýningin mun standa i
eina viku, en henni lýkur sunnu-
daginn 30. september. Sýningin
verður opnuð almenningi klukk-
an sex i dag, en siðan standa op-
in alla daga frá klukkan fjögur
til tiu.
— ÞJM.
Nokkrir myndlistarmannanna. sem unnu aö uppsetningu þeirra 116 verka, sem veröa til sýnis á haust-
sýningunni. Myndina tók Ijósmyndari Visis, Bragi, aö Kjarvalsstöðum seint í gærdag.