Vísir - 24.09.1973, Page 8

Vísir - 24.09.1973, Page 8
8 Vísir. Mánudagur 24. september 1973 Höfum fyrirtiggjandi flestar gerðir Shure segul hausa (Cartridge) og Shure nóla, hringlaga og sporöskulaga. — Gœði Shure vara þarf ekki.að kynna ó íslandi. Þau þekkja allir Skipholti 19 gengið fró Nóatúni S: 23800 Klappastíg 26 S: 19800 Akureyri Sími 21630 EftiryÖarvali! Opiö daglega frá kl. 8 til 19/ en auk þess möguleiki á afgreiöslu á kvöidin og um helgar. Gangstéttarhel lur Sexkantaðar hellur Garðhellur ilitaúrvali Brotsteinar og hellur i litum eftir vali. Helluval sf. Hafnarbraut 15, Köpavogi. cTyienningarmál Ólafur Jónsson skrifar um bókmenntir: LÍFIÐ ER í VIL Pétur Gunnarsson: SPLUKNUNÝR DAG- UR Heimskringla 11973. 100 bl. Fyrsta auðkenni þess- ara fyrstu ljóða Péturs Gunnarssonar er hin mikla mælska, frisklegi bragur sem á þeim er. Og sumpart má i bók- inni, að mér finnst, lesa drög skáldlegrar ævi- sögu, frásögn af för ungs manns áleiðis til skáld- skapar, og sumpart einskonar skáldlega stefnuskrá, likast til sprottna af þeirri reynslu sem bókin lýsir í heilu lagi. Það má svo sem vera að þessi lestrarháttur starfi að einhverju leyti af efnisskipan bókarinnar. En ljóðunum er raðað i timaröð, skipað saman i sjö þætti sem ársettir eru 1969,1970, 1971. Siðati þátturinn, frá tveimur seinni ár- unum, nemur nær þvi helmingi textans. Allténd þann þátt er eðli- legt að lesa sem samfleyttan ljóöaflokk, en reyndar hefur bók- in einkar samfellt svipmót i heilu liki. Það er lýst þeim áfanga það- an sem ungur maður er að byrja skáldskap. 1 fyrsta þætti bókarinnar stend- ur skáldið uppi, dálitið eins og barn, gagnvart heiminum og lif- inu, miklum lykilorðum að hug- myndaheim þessarar bókar. Fyrsta ljóðið i bókinni er bara fallegur texti, sinum látlausu einföldu orðum: af jarðarinnar hálfu byrja allir dagar fallega þolimóð snýst hún og snýst með trén og höfin og vötnin eyðimerkurnar og eldfjöllin okkur tv.ö og ykkur hin og öll dýrin Frumhvöt þessara ljóða sýnist að sé beinlinis undrun, aðdáun skáldsins andspænis „lifinu”, oft eins og honum nægi að nefna það á nafn, hinar einföldustu myndir þess: blóm, dýr, börn, tré, og svo auðvitað ástina, pilt og stúlku, i einskonar runustil sem einatt gæðist þokka af þvi hvað hann er einfaldur. Úr þessum sporum mætti mætavel hugsa sér innhverfing ljóðs, einbeitning þess að fágun máls og tilfinn- inga: það yrði sjálfsagt ekki óefnilegur skáldskapur. En i þess- ari bók liggur leið skáldsins út á meðal manna og á vit hins stóra heims. í „ferðamyndum” annars og sjötta þáttar er einatt verið að lýsa steingerðu landslagi stór- borgar, öndverðu lifskröfu ljóð- anna: eitt af öðru uppljúkast húsin útúr þeim stigur fólk úti nýjan dag sem hefur aldrei verið áður sem kemur aldrei aftur það ætlar að gangsetja daginn kveikir sér i slgarettu og gengur hratt upp og niður strætin borgin er lifsform rammi utanum lif fólksins svo það lendi ekki á villigötum það er verið að fara með það I vinnuna andardráttur þess blandinn reyk lekur af rúðunum flóttaleg andlit og tómir svipir hvað fólk er ljótt og vonlaust og úhamingjusamt í samanburði við auglýsingar borgin er steinn langa vegu er maðurinn kominn útúr myrkri og kulda til að enda i þessum uppdiktuðu steinum sem spretta ekki eins og gorkúiur heldur eins og sprengjur i jarð- holdinu VÍSIH Auglýsingadeild Hverfisgötu 32. KZ STÁLREKKAR Hin fullkomna og hagkvæma lausn ó geymsluvandamáli yðar. Hleðsluþungi eftir þörfum hvers og eins. KZ stálrekkar í notkunn í vörugeymslu okkar að Sundagörðum 4, Rvik. Sjón er sögu ríkari. EGGERT KRISTJÁNSSON & CO.’HF. Sundagörðum 4 - Sími 85300 MEÐANEKKERT GERÐIST Guðný Jónsdóttir frá Galtafelli: BERNSKUDAGAR Helgafell 1973. 120 bls. Fyrir nokkrum árum kom út stutt skáldsaga, Brynhildur, eftír Guðnýju Jónsdóttur. Þá var höfund- urinn níræð að aldri. En á 95 ára afmæli hennar í ár kom út þessi litla bók, minningar Guðnýjar frá bersnkudögum sínum fyrir nærfellt heilii öld. Það má svo sem vera að vit- neskja lesandans um hinn háa aldur höfundarins geri bók henn- ar'enn geðfelldlegri en ella þætti. Svo mikið er vist, áð hér er frá engum tiðindum sagt, þetta- er saga þar sem nánast gerist ekki neitt. Höfundurinn litur úr hárri elli aftur til sællar bernskutiðar, lands og þjóðar eins og þau voru þá, en verða aldrei meir. Sem betur fer mundi margur segja. En það land þar sem Guðný Jóns- dóttir ólst upp, það er „hið hómerska Island” sem Halldór Laxness nefnir svo, fyrir fram- farir og nútima, traffik og konkúrrensi. Með sinu látlausa móti er bók hennar til vitnis um það hve skammar eru vegalengd- ir aftur á bak og áfram i timanum hér hjá okkur, að minnsta kosti enn sem komið er. Þokka sinn fá frásagnir Guðnýjar af upprifjun þessarar horfnu tiðar, einfaldlega og látlaust stilaðar en stundum litkaðar hóflegri viðkvæmni — samkynja hugblæ og svo glöggt birtist á mynd Einars Jónssonar af gamla bænum i Galtafelli sem fylgir bókinni litprentuð. Guðný Jónsdóttir óx upp á efna- mannsheimili eftir hætti fyrri aldar i skjóli góðra foreldra, hópi mannvænlegra systkina. Að minnsta kosti tveir bræður henn- ar urðu þjóðkunnir menn hvor á sinu sviði islenzkrar menningar, Einar myndhöggvari og Bjarni

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.