Vísir - 24.09.1973, Side 16

Vísir - 24.09.1973, Side 16
16 Geir R. Andersen: NJÓSNIR Á ÍSLANDI Skortur á aðhaldi og eftirliti Allir, sem fylgzt hafa meö gangi heimsmála gegnum árin vita, aö njósnir hvers konar hafa veriö og eru enn mikilvægur þátt- ur I framgangi mála, bæöi aö þvi er varöar aukna þekkingu og út- breiðslu hennar, I heimi verzlun- ar og viöskipta og svo iönaöar — en þó allra mest i heimi stjórnmálanna, einkum hvaö varöar hervarnir og áætianir ein- stakra landa og þjóöabandalaga. I siöari heimsstyrjöldinni valt framvinda mála og endanleg úrslit stórum á njósnum og gagn- njósnum beggja striösaðila, og gekk brezka leyniþjónustan hvað ötulast fram i aö halda uppi vel skipulögðu njósnakerfi i vel-flest- um löndum, óvinveittum sem vin- veittum, og hélt raunar I alla þá þræöi, sem til þurfti til þess að sameina eitt allsherjar njósna- kerfi, sem notaö var sameigin- lega af „Bandamönnum” i siö- ustu styrjöld. Eftir striöiö þróaö- ist þessi grein athafna beinlinis upp i þaö að veröa ein af viöa- mestu og útgjaldahæstu stofnun- um hvers þess lands, sem ein- hvers mátti sin á viðskipta- eöa hernaðarsviöinu. Timi „kalda striösins” varð þannig eitt mesta blómaskeiö njósnanna og byggð- ist raunverulega að miklu leyti á þeim. Og enn sér ekki fyrir endann á þessu blómaskeiði njósna, þótt timabil „kalda striðsins” sé talið liöiö. Njósnir halda áfram, og öfl- ug njósnakerfi, sem eru á „diplo- matamáli” oft kölluð „upplýs- ingadeildir” eru starfandi innan velflestra landa til vaxtar og við- gangs þeirri stefnu, sem hvert einstakt land fyrir sig fylgir hverju sinni. Þaö voru þvi i sjálfu sér engar stórfréttir i sl. viku, þegar tilkynnt var um, að hérlendis hefðu, af tilviljun fundizt rifrildi úr njósnakerfi, eflaust einu af mörgum, sem hér eru enn við lýði. t þetta sinn sinn var taliö, að um rússnesk tæki væri að ræða, og er þá i annaö sinn á skömmum tima, að rússneska sendiráðiö er bendlað við njósnir hérlendis. Aö- ur höfðu bein samskipti rúss- neskra sendiráðsmanna við is- lenzkan aðila oröið til þess að beina athygli manna að þeirri staðreynd að Island væri ekki frekar en önnur lönd, afskipt varðandi þessa umfangsmiklu alþjóða starfsemi. Samkvæmt upplýsingum Landsimans er bannað að flytja hvers konar sendi- eða móttöku- tæki til landsins, nema með hans vitneskju, en þar sem erlend sendiráö eru undanþegin öllu opinberu eftirliti, að þvi e'r varðar flutning á varningi til og frá land- ínu, þarf ekki að efa, að tæki þau, er áður eru nefnd , eru eftir- litslaust flutt inn og endurnýjuð af erlendum sendiráðum, hvenær sem þurfa þykir. Nú má til sanns vegar færa, að þeim erlendu rikjum, em hafa sendiráðhér á landi, finnist land- ið nógu afskekkt, og starfsfólk þeirra búa viö nógu einhæf skil- yrði, til þess að réttlæta þá nauð- syn að útbúa sendiráö sin þeim tækjum, sem gerir þeim kleift að hafa umsvifalaust samband við aðalstöðvar lands sins, hvenær sem mikið þykir liggja við, þar sem komið hefur fyrir, að Island hefur orðið sambandslaust við umheiminn af og til vegna óvið- ráöanlegra orsaka, enda má fullvist telja, aö flest stærri sendi- ráð erlend hafi hér fullkomna sendi- og móttökustöð innan sins umráðasvæðis. Það réttlætir þó ekki þærathafnir, sem alls staðar eru talin lögbrot, að halda uppi njósnastarfsemi innan erlends rikis, og sem leiðir oftast til brott- reksturs á viökomandi starfsfólki erlendu, og viðhlitandi hegningar til handa þegnum eigin lands ef upp kemst. Þvi er það, að i flestum löndum þykir sjálfsagt að hafa ákveðið en „diplómatiskt” aðhald með starfsfólki erlendra sendiráða, einkum vegna þeirrar staðreynd- ar, sem áður er nefnd, að erlend sendiráö eru undanþegin eftirliti á öðrum sviðum, svo sem vegna innflutnings á varningi og vistum til eigin þarfa. Það væru t.d. ekki óeðlileg af- skipti viðkomandi lands að koma i veg fyrir, að starfsmaður er- lends sendiráðs gæti, i skjóli „diplómatiskra” réttinda sendi- ráðs þess, er hann starfar við, flutt inn ákveðna vörutegund, svo sem matvæli, og selt einstökum aðila, og þannig komið af stað viðskiptum, sem brytu i bága við landslög. — A fleiri sviðum mætti auðveldlega notfæra sér frjáls- ræði það, sem samkomulag er um til handa erlendum sendiráðum um allan heim. En til þess að fyrirbyggja slik og þvilik óæskileg viðskipti og samskipti, er haldið uppi svoköll- uðu „takmörkuðu eftirliti” með sendiráðum erlendra rikja i hverju landi. Ekki skal hér farið út i þá sálma að tiunda þau verksvið, sem erlend sendiráð hérlendis hafa með höndum. Það væri hins vegar ekki úr vegi, að viðkom- andi opinberir aðilar, islenzkir, gerðu fólki nokkra grein fyrir þvi, á hvern hátt fylgzt er með starf- semi hir.na erlendu sendiráða, og hvort, eða hvernig islenzka rikið getur komið í veg fyrir ólöglega eða óæskilega starfsemi þeirra, þegar grunur er um slikt. Margar þjóðir hafa verið iðnar við að halda úti njósnum i öðrum löndum um hvaðeina, sem ekki annars er falt fyrir peninga, eða ekki fæst eftir venjulegum opin- berum samskiptum, og eru sum- ar þjóðir þar viðtækari en aörar, eftir fréttum að dæma, en slikar njósnir eru gjarnan fréttaskýrðar glögglega i blöðum og timaritum, þá er upp kemst. Umfangsmestu njósnirnar eru þó enn sem fyrr stundaðar af stórveldunum, og er þar um að ræða bæði sérhæft fólk frá þessum rikjum, sem ferðast sjálft i þessum erindum, og svo aðstoðarfólk ýmislegt, sem stað- sett er i viðkomandi landi, sem njósna skal i, og sem gengur þeirra erinda að safna upplýsing- um, fyrir þá aðila, sem njósna á fyrir. Það hefur oft borið á góma manna á meðal, að Island ,vegna legu sinnar milli Evrópu og Ameriku, væri hinn ákjósanleg- asti staður, sem aðsetur fyrir ýmsa þá aðila, sem þurfa að skiptast á og senda leynilegar upplýsingar milli þessara tveggja heimsálfa. Hinu hefur ekki eins verið haldið á lofti, hve slik að- staða hlýtur að vera hagkvæm hér, vegna hins tiltölulega litla eftirlits, sem fólk býr við hér, og frjálsræðis, sem erlendir ferðamenn njóta, er hingað koma. Hér tiðkast t.d. ekki, eins og viða erlendis, að ferðafólk þurfi við innritun á hótel, að sýna vega- bréf sin. Stimplun vegabréfa við komu til landsins er látin nægja. Ekki eru hótel hér heldur skylduð til að senda lögregluyfirvöldum skýrslur hvern dag um skráða næturgesti, sem koma erlendis frá. Þetta er viðtekin regla i flest- um löndum Evrópu, a.m.k. Söluskattur Dráttarvextir falla á söluskatt fyrir ágústmánuð 197:5, hafi hann ekki verið greiddur i siðasta lagi 25. þ.m. Dráttarvextir eru 1.5% fyrir hvern byrjaðan mánuð frá gjalddaga, sem var 15. sept. s.l., og verða innheimtir frá og með 2(». þ.m. Fjármálaráðuneytið, 20. sept. 1973 Auglýsing um álestur ökumœla Athygli hlutaðeigandi bifreiðaeigenda er hér með vakin á þvi, að álestur ökumæla fyrir 3. ársfjórðung 1973 fer frain hjá Bifreiðaeftirliti rikisins dagana 20. september til 10. október. Sé ökumælisskyld bifreið ekki i ökufæru ástandi ber eiganda hennar að tilkynna það til Bifreiðaeftirlits rikisins eða skrif- stofu tollstjóra. Komi eigandi eða umráðamaður ökumælisskyldrar bifreiðar ekki með hana til álesturs eða fullnægi framan- greindri tilkynningarskyldu fyrir 11. október næstkomandi, verður þungaskatt- ur áætlaður lögum samkvæmt og frekari viðurlögum beitt. Tollstjórinn i Reykjavik, 20. september 1973. 1 m Tækin úr Kleifarvatni Það er þvi ekki ástæðulaust aö ætla, að við þær frjálslegu að- stæður, sem hér rikja á þessum sviðum, séu talsverð brögð að þvi að erlendir aðilar noti aðstöðu sina hér til þess að stunda njósnir eða „upplýsingastarfsemi”, og það á all-umfangsmiklum svið- um. Áðurnefnd dæmi um athafnir rússneskra starfsmanna hérlend- is og um fund hinna rússnesku tækja nú nýveriö, eru siður en svo til þess fallin að útiloka slikar bollaleggingar. En það eru ekki aðeins „upplýsingar” um hernaöar- og landvarnir, sem hér er hægt að safna fyrir erlenda að- ila. Það er einnig i atvinnumál- um, verzlun og viðskiptum, og landsmálum almennt, sem utan- aðkomandi aðilar geta hagnýtt sér upplýsingar, sem liggja á lausu. Það er viðast hvar erlendis viðtekin hefð hjá fyrirtækjum að gefa engar upplýsingar óvið- komandi aðilum um framleiðslu- hætti, magn eða tölur, nema með samkomulagi við viðkomandi op- inbera aðila, eða ráðamenn við- komandi fyrirtækja. Hér hafa fiskveiðar og fisk- vinnsla verið sú atvinnugrein, sem er uppistaða að tilveru þjóðarinnar. Smátt og smátt hafa þó aðrar greinar bætzt við og er iðnaður þar ef til vill mikilvæg- astur, ásamt þjónustu hvers kon- ar, ekki sizt við erlenda aðila. Það væri hreinn óvitaskapur.að halda, að aðrar þjóðir, sem við eigum viðskipti við og oft erum i sam- keppni við á erlendum mörkuðum leggi sig ekki fram um að ná i ýmsar upplýsingar, sem styðja að framförum i áðurnefndum at- vinnugreinum hérlendis. T.d. er ekki efamál, að vel er fylgzt með aðgerðum ,sem við notum i baráttu þeirri, sem við éigum i vegna landhelgisútfærslunnar, svo eitthvað sé til nefnt. Og ekki verður þeirri þjóð, Bretum, frýjað vits i sambandi við „upplýsingaöflun” á þeim sviðum, frekar en öðrum, svo framarlega sem hún stóð i þeirri grein á heimsstyrjaldarárunum siðari, og æ siðan. Mörgum finnst enda, að oft tali ráðamenn islenzkir einum um of opinskátt um þær fyrirætlanir, sem á döfinnu eru i sambandi við þá deilu, sem viö eigum nú i við Breta, og betra væri, að margar þeirra færu lægra, þar til framkvæmdir töluðu sjálfar. Enhvaðsem einstökum þáttum oe atburðum liður á þessu sviði, er það næsta fávislegt, að hafa ekki haldbetra eftirlit og afskipti af erlendum sendiráðum og starfsmönnum, einkum þeirra, er grafa vilja undan samskiptum okkar við vestræn lýðræðisriki — eða þeirra, er vilja skaða tilveru- rétt þjóðarinnar með yfirgangi á hugsanlegum eða sannanlegum auðlindum hennar, á eða við landið. Hvar annars staðar en á tslandi myndi það t.d. látið afskiptalaust, að erlendir visindamenn fengju leyfi hjá viðkomandi rikisstofnun til þess að ferðast um landið, einir sér, án fylgdarmanna, visinda- manna eða annarra eins og nú á sér stað, varðandi rússenska að- ila, sem ferðast um landið þvert og endilangt til ýmiss konar „at- hugana og mælinga”, að eigin sögn? Kynleg viðbrögð þeirra og svör við spurningum heimamanna, er á þá rekast viðs vegar um landið, en þó einkum i kringum fjar- skiptastöðvar þær, sem staðsett- ar eru með vissu millibili við sjávarsiðuna, gefa til kynna, að eitthvað mikilvægara liggi á bak við en einhverjar „smáskjálfta- mælingar” eins og kemur fram i einu dagblaðanna þ. 18. sept. sl. Það er þvi full ástæða til, og raunar krafa, sem almenningur á rétt á að gera til rikisvaldsins, að það upplýsi hvernig sé háttað samskiptum og eftirliti með þeim erlendu visindamönnum, og öðrum, sem uppvisir eru að þvi að „pukrast” um land og strönd á tslandi, og oftar en ekki verða uppvisir að „mistökum” og óút- skýranlegu athæfi i landinu. En ef til vill eru slik mál sem þessi ekki lengur á dagskrá, þar sem svo virðist, að uppsögn varnar- samningsins og úrsögn úr NATO hafi unnið hug allra ráöherra rikisstjórnarinnar að frátöldum fjármálaráðherra, og hafi þar með fengið „algeran forgang”, til þess að eftirleikurinn megi verða auðveldari.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.