Vísir - 24.09.1973, Blaðsíða 24
VISIR
Mánudagur 24. september 1973
Skólar lokaðir
„Skólar eru að minnsta kosti
lokaðir fram að hádegi, og þeir
verða ekki opnaðir nema hægt
verði að treysta á þann bata, sem
virðist vera á veörinu”, sagði
skólafulitrúi borgarinnar I viötali
við blaðiö I morgun.
„Við tókum þessa akvoröun
strax I nótt, en við höfum ekki
metið þetta enn til fulls, hvað við-
kemur kennslu eftir hádegi I dag.
Okkur vantar ráðleggingar fyrst
frá þeim, sem meira vit hafa á,
svo sem lögreglu og veðurstofu.
Þetta gildir um barna- og gagn-
fræðaskóla á Reykjavlkursvæö-
inu, en mér sýnist almennt sem
skólar séu lokaöir i dag, jafnvel
framhaldsskólar. Ég ók um borg-
ina áðan og sá þá hvergi skóla
starfandi.
Skólar verða ekki opnaðir, ef
veður rýkur upp eða ef umferð
reynist ekki hættulaus.”
Skólar eru einnig lokaðir i allri
Stór-Reykjavik, Hafnarfirði,
Kópavogi, Garðahreppi, Sel-
tjarnarnesi, Mosfellssveit og á
Suðurnesjum.
—EA
Smábátar sukku
í Reykjavík og
Hafnarfirði
— rafstrengur yfir
Elliðaárvog slitnaði
Mjög mikið annrlki var i
Keykjavikurhöfn I nótt vegna
veðursins. Nokkrir smábátar
sukku, og erfiðlega gekk að halda
öðrum ofansjávar.
Hafnsögumaður, sem við töluö-
um við, sagði, aö bátaeigendur
hefðu verið kallaðir út til aö
bjarga bátum sinum. Þrátt fyrir
þaö voru nokkrir, sem fóru i kaf.
Ekki var búið að telja, hvað þeir
voru margir i morgun.
Hafnsögumaðurinn sagðist ekki
muna verra veður en þetta við
höfnina.
I Hafnarfjarðarhöfn sukku
eihnig nokkrir smábátar. Eigend-
ur þeirra unnu við það i morgun
aö ná þeim upp.
Rafstrengurinn, sem undanfar-
ið hefur verið unnið að að leggja i
Elliðaárvogi, slitnaði I nótt. Hann
lá frá Kleppi upp að Aburðar-
verksmiðju i Gufunesi. Búið var
að leggja fyrsta áfanga hans þeg-
ar hann slitnaði.
—ÓH
Vestmanna-
eyjabátar
skemmdust
i Kópavogi
Tveir trébátar frá Vestmanna-
eyjum stórskemmdust við
bryggju I Kópavogi í nótt. Þeír
lágu upp viö suðurhlið bryggjunn-
ar á Kársnesi. Mjög mikill sjó-
gangur var þar. Bátarnir nerust
upp viö bryggjuna. Talið er, að
bönd i þeim séu mjög illa farin.
Lunningin á öðrum þeirra er
farin öðrum megin. Þriöji bátur-
inn, sem var við höfnina i Kópa-
vogi, losnaði þaöan frá i gær-
kvöldi. Hann rak út, en eftir tals-
verða erfiöleika tókst að ná hon-
um aftur að bryggju.
Kópavogsbúar fengu ekki siöur
að kenna á óveðrinu i nótt en aðr-
ir. Þakplötur starfsmannahúss
Kópavogshælisins fóru af húsinu
öðrum megin. Húsið er blokk,
talsvert stór.
1 morgun mátti sjá torfur liggja
úti á Hafnarfjarðarveginum i
Kópavogi. Voru þetta torfur, sem
vinnuflokkar lögðu fyrir viku sið-
an. En veðurofsinn hefur náð að
rifa þær upp og feykja þeim út á
götuna. —óH
Mest tjón í Breiðholti — stillansar hrundu, bílar fuku á
hvolf og þakplötur lógu eins og hróviði út um allt
Sex tommu planki fauk
yfir 8 hœða blokk
Breiðholtið er liklega það
hverfi, sem verst hefur farið út
úr óveörinu i nótt. Þakplötur
fuku eins og hráviði út um allt
hverfið. Stillansar hrundu utan
af húsum, og bilar fuku hver á
annan. Nokkrir fuku einnig á
hvolf.
Hjálparsveitir skáta og Slysa-
varnafélagsins voru kallaðar út
i gærkvöldi, ásamt Flugbjörg-
unarsveitinni og slökkviliöinu. I
alla nótt hafa þessir aðilar unnið
ásamt lögreglunni við að bjarga
bilum og húsum undan stór-
skemmdum. Það var ekki fyrr
en klukkan hálf tiu i morgun,
sem þessir aðilar hættu störf-
um, en eftir voru lögregla og
slökkvilið.
tbúi i blokk við Vesturbergið
tjáði blaðinu i morgun að sér
hefði ekki orðiö um sel, þegar
hann sá sex tommu planka
fljúga yfir húsið, sem hann býr
i. Hann býr á sjöundu hæð
Hann sagðist hafa fjarlægt
börn sin úr þeim herbergjum,
sem sneru til suðurs, að veðr-
inu.
Nokkrir vinnuskúrar rúlluðu
af stað i Breiðholtinu. Vinnu-
skúrar, sem fóru af stað við
Vesturbergið, ultu yfir götuna
og lentu á einbýlishúsum þeim
megin.
Margir bilar urðu fyrir
skemmdum af völdum plötu-
foks. Lögreglan i Arbæjarhverfi
fékk margar hringingar i nótt
sem tilkynntu um slikt, og það
hélt áfram i morgun.
Sendiferðabill fannst á hvolfi
á Bæjarhálsinum i morgun.
Hann var með öll ljós logandi,
en ökumaðurinn hvergi sjáan-
legur. Fleiri bilar munu hafa
fokið um koll i nótt i Breiðholt-
inu, en ekki bar eins mikið á þvi
annars staðar i bænum.
Einnig bar mikið á þvi, að bil-
ar fykju til hliðar og lentu á öör-
um bilum.
Mikið af mönnum voru á ferli
i nótt að reyna að bjarga frá
skemmdum. Vegna veðurofsans
reyndist það þó erfitt. Þegar fór
að lægja i morgun, tókst þó að
smala saman meginhlutanum
af þeim bárujárnsplötum, sem
lágu eins og hráviði út um allt.
Sjónarvottar sögðu, að svæðið
milli Breiðholts efra og neðra
hefði allt verið þakið bárujárns-
plötum.
Mikið var um gluggarúðu-
brot, þegar plötur fuku fram af
þökum og brutu glugga i leið-
inni.
Starfsmenn frá borginni fóru
af stað i nótt og hafa unnið
stanzlaustásamt trésmiðum við
að negla fyrir glugga.
Maður sem fór úr Breiðholt-
inu i morgun, rakst á vinnuskúr
frá Rafveitunni á leið sinni. Lá
skúrinn á hvolfi utan i ljósa-
staur. Ef staurinn hefði ekki
stöðvað hann, hefði hann liklega
lent á timburhúsum, sem þar
voru fyrir neðan.
Einn af bröggum Flugfélags lslands á Reykjavikurflugvelli stóðst ekki veöurofsann I nótt enda kominn
lil ára sinna. Mcðal þess, sem inni i bragganum var, var jeppabifreið, sem skemmdist nokkuð-
GIFURLEGT TJON A AKRANESI
Gifurlegt tjón varð á Akranesi I
veöurofsanum sem geisaði i nótt.
Björgunarsveitir, slökkvilið og
lögregla var allt að störfum I nótt
og rétt á meðan lægði öðru hverju
á milli hviða, var unnið við að
hreinsa járnplötur og annað, sem
haföi fokiö.
Verulegar skemmdir urðu á
þaki Sementsverksmiðjunnar að
sögn lögreglunnar á Akranesi.
Einnig fór talsvert mikið af járn-
plötum af húsum Haralds
Böðvarssonar og sömuleiðis ibúð-
arhúsum.
Járnplötur þær, sem voru á
fleygiferð undan vindinum, ollu
þvi að rúður brotnuðu I mörgum
húsum, en þó urðu litlar slikar
skemmdir, miðað við allt það,
sem fauk og var á fleygiferð.
Sjúkrabill þeirra Skagamanna
skemmdist mikið. Hann stóð úti
eins og alltaf, og lagðist þakið
niður og framrúður brotnuðu.
Hann er þvi ekki ökufær eins og
stendur.
Þak fauk af bilskúr, gömul
hlaða fauk aiveg um koll og bilar
skemmdust viða. Mikil barátta
var við höfnina við að halda. bát-
um kyrrum, og sagði lögreglan,
aö vindur hefði að minnsta kosti
farið 117 vindstig. Er ekki munað
eftir öðru eins á Akranesi.
I morgun var farið að lægja
verulega, og var unnið af kappi
við aö tina saman járnplötur og
annað lauslegt, svo ekki ylli það
frekara tjóni. —EA
veðrinu i nótt:
Engin alvarleg slys ó mönnum
ALLAR BJÖRGUNAR
SVEITIR A VAKT
— margir á slysavarðstofuna
Ekki var I morgun vitað til, aö
manntjón eða alvarlegir áverk-
ar hafi hlotizt vegna óvcöursins
i nótt, en allmikið var um, að
fólk kæmi á slysavarðstofuna
meö minniháttar áverka, sem
rekja mátti til veðursins. AUar
björgunarsveitir i Reykjavik og
á Suöurnesjum voru á vakt i
nótt og fylgzt var með bátum á
sjó. t morgun var talið, að allir
bátar væru komnir I höfn eða á
leið til hafnar.
Blaöið hafði samband við
slysadeild Borgarspitalans i
morgun og fékk þær upplýsing-
ar, að miklu meira hafi verið að
gera þar I nótt en venjulega að-
faranótt mánudags. Var nokkuð
um það, að fólk, sem var á ferli
úti I nótt, kæmi á slysadeildina
með minniháttar áverka, sem
áttu rætur að rekja til óveðurs-
ins. Engin alvarleg meiðsli var
vitaö um vegna þessa. Þá hafði
blaöiö samband viö Hannes
Hafstein hjá Slysavarnafélagi
tslands, og sagði hann, aö strax
i gærkvöldi heföi verið byrjaö að
kalla björgunarsveitarmenn til
starfa. Voru allar björgunar-
sveitir I Reykjavik og á Suður-
nesjum kallaðar út i nótt, og
unnu þær i samráði viö lögregl-
una á hverjum stað. Ekki var
vitað um nein alvarleg slys, en
björgunarsveitirnar fylgdust
m.a. með bátum I höfnum. Var
hópur á vakt yið Grandagarð i
nótt, en enginn bátur mun hafa
slitnað upp i Reykjavikur-
höfn. Nokkrir bátar slitnuðu frá
bryggju á Suðurnesjum. Fylgzt
var með öllum bátum á sjó, þar
sem óveðrið geisaði, I nótt i
gegnum talstöðvar, en ekki var
vitað annað i morgun en allir
bátar væru komnir eöa á leiö til
hafnar.
—ÞS
Þeir sem voru svo óheppnir að vera með hús I smiöum og slegið upp
fyrir veggjum, sváfu ekkiallir mikið i nótt. Mótauppsláttur hrundi vfða
um borgina og olli sums staðar spjöllum á nærliggjandi byggingum.
Þarna er verið aðnegla fyrir glugga i Siðumúlanum, sem brotnaö hafði
þegar timbur fauk á hann.