Vísir - 11.10.1973, Blaðsíða 4
4
Vísir. Fimmtudagur 11. október 1973.
ÞAKKLÆÐNING
I
Bjóöum upp á hiö heimskunna þéttiefni fyrir sprungur,
steinþök, asfalt, málmþök, sléttsem báruð. Eitt bezta við-
loöunar- og þéttiefni, sem völ er á fyrir nýtt sem gamalt.
Þéttum húsgrunna o.fl. 7 ára ábyrgð á efni og vinnu i
verksamningaformi.
Fljót og góð þjón-
usta. Uppl. i sima
26938 kl. 9-22 alla
daga.
alcoatin£>s
þjonustan
FRIMERKI.
íslenzk og erlend
Frímerkjaalbúm
Innstungubækur
Stærsta frímerkjaverzlun
landsins
FRÍMERKJAMIÐSTÖÐIN
Skólavöröustig 21 A-Simi 21170
SoLUSTAÐIR:
HjólbarSaverkstæðift Nýbarði, Garðahreppi, simi 50606.
Skodabúöin, Kópavogi, sími 42606.
Skodaverkstæðið á Akureyri h.f. simi 12520.
^Varahlutaverzlun Gunnars Gunnarssonar, Egilsstööum, sími 1158.
Laus staða
Dósentsstaða i almennri landafræði við
jarðfræðiskor verkfræði- og raunvísinda-
deildar Háskóla íslands er laus til um-
sóknar. Kennslugreinar eru aðallega
svæða- og menningarlandafræði.
Umsóknarfrestur er til 10. nóvember
n.k.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna.
Umsækjendur um dósentsstöðu þessa
skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega
skýrslu um visindastörf þau, er þeir hafa
unnið, ritsmiðar og rannsóknir, svo og
námsferil sinn og störf.
Menntamálaráðuneytið,
10. október 1973.
í MORGUN UTLÖNDI MORGUN ÚTLÖND í MORGUN U1
Skerst Jórdanía
í leikinn?
Hussein, Jórdaníukon-
ungur, kallaði út allt vara-
lið Jórdaníu til vígstöðu við
hin 400 kílómetra löngu
landamæri Jórdaníu og
israels i gær. Enn sem
komið er hefur hann þó
ekki leitt þjóð sína út í
styrjöld Egypta og Sýr-
lendinga við israel.
Þær fréttir bárust siðan i gær-
kvöldi, að sendiherra Jórdaniu i
Kairó, Abdul Moneim Rifai, hefði
farið til Kairó með sérstakri
flugvél, flytjandi skilaboð frá
Hussein konungi til Anwar
Sadats, Egyptalandsforseta. —
Aður hafði Hussein konungur rætt
viö Ashraf Marwan, sendimann
Sadats, sem kominn var til
Amman.
Gold Meir, forsætisráðherra,
rifjaði i gær upp, að ísrael
varaði Jórdaniu við þvi á sinum
tima að blanda sér i sex daga
striðið, en Hussein konungur lét
þá viðvörun sem vind um eyrun
þjóta. Afleiðingin varð sú, að
hann glataði hálfu konungdæmi
sinu og það betri helmingnum.
,,Ég vona, að hann sé nægilega
skynsamur og ábyrgur til að
minnast þess,” sagði Golda
Meir,
Sýrlandi og Egyptalandi hefur
með degi hverjum borizt liðsauki
og hergögn frá öðrum Arabarikj-
um. Munaði þó mest um allan
flugher traks, sem gekk i lið með
þeim á þriðjudag. Auk þess hafa
18.000 fótgönguliðar og um 100
skriðdrekar traks skotið upp koll-
inum á vigstöðvum Sýrlendinga i
bardögunum i Gólanhæðum. — Ef
allur her Iraks tæki þátt i bardög-
unum, mundu Israelsmenn hafa
þar 100.000 fleiri andstæðinga að
ídjást við.
Leonid Brezhnev, leiðtogi
kommúnistafl.okks Sovétrikj-
anna, er sagður hafa sent orð
hinum Arabarikjunum um að
,,láta ekki Egypta ogSýrlendinga
eina um að berjast við ísrael.
Hjálpið þeim með öllum ráðum.
— Hann hefur i útvarpsræðum
hvatt Arabarikin til að standa
sameinuð i striðinu gegn tsrael.
Sovétrikin hafa byrjað
flutninga flugleiðis á her-
gögnum til Arabarikjanna,
einkum Egyptalands. Einkum
eru það flugskeyti, sem send eru,
að þvi er fréttir herma.
Israel hefur haldið þvi fram, að
óvinir þeirra nytu aðstoðar
bandamanna, sem ekki voru til-
greindir frekar, en þar var
greinilega átt við ýmsa vopna-
seljendur Araba.
Franskt flutningaskip, fermt
sprengjum, flugskeytum og
öðrum vopnum, lagði af stað til
Tripoli i Libyu i gær, þrátt fyrir
mótmæli tsraels gegn slikri
aðstoð Frakka við óvini þeirra. —
Flest hergögnin voru þó talin
heyra til þeim 110 Mirage-þotum,
sem Frakkar láta Libýu i té.
Nokkrir skriðdrekar voru þó i
farminum, og er sagt, að þeir fari
til Saudi Arabiu. — En bæði þessi
riki senda Egyptum og Sýr-
lendingum hergögn.
En aðalhættan, sem Israel er
talin stafa af stuðningi hinna
Arabarikjanna, mundi verða sú,
að Jórdania hæfi aðgerðir á
þriðju vigstöðvunum.
Agnewsektaður
fyrir skattsvik
Fölleitur og með titr-
andi hendi lagði Spiro
Agnew fyrir alrikisrétt-
inn i Maryland i gær
yfirlýsingu sina þess
efnis, að hann mundi
ekki færa fram vörn
gegn ákærunni um
skattsvik.
,,Ég tek það sem
játningu”, sagði dómar-
inn og kvað samstundis
upp dóm sinn — 10.000
dollara sekt og 3 ára
skilorðsbundið fangelsi.
Cox Richardsson, dómsmála-
ráðherra, hafði sjálfur beðið
Walter Hoffman, dömara, um að
hlífa Agnew við fangelsisdómi.
Sagði hann, að afsögn Agnews og
yfirlýsingin um að hann mundi
ekki bera af sér sakir, væri næg
refsing.
Spiro Agnew hafði fyrr i gær
sagt af sér embætti i bréfi til
Nixons forseta, þar sem hann
sagðist ekki sjá sér annað fært,
þar eð hann gæti ekki fært fram
vörn fyrir máli sinu.
NTB-fréttastofan hefur það
eftir fulltrúum dómsmálaráðu-
neytisins, að vissa sé fyrir þvi, að
Agnew hafi þegar 100.00 dollara
I mútur, þegar hann var rikis-
stjóri Maryland.
Agnew er annar varaforseti
Bandarikjanna, sem orðið hefur að
segja af sér. Hinn var John Calhoun,
sem sagði af sér i des. 1832 i stjórnartið
Andrew Jackson.
Fangarnir
nefndir
glœpamenn
Utanrikisráðuneyti israels
mótmælti liarðlega i gær þvi, að
Egyptar hafa kallað israelska
striðsfanga „striðsglæpamenn”.
Sagði i yfirlýsingunni, að Israel
liti mjög alvarlegum augum á
þessa „auvirðilegu tilraun til þess
að sniðganga reglur um rétt
striðsfanga og meðferð þeirra.”