Vísir - 11.10.1973, Side 12
Vísir. Fimmtudagur 11. október 1973.
alþýðu
Birtir dag-
skrá Kefla-
víkursjón-
varpsins á
íslenzku.
Nýir
áskrifendur
eftir 10.
hvers
mánaðar fá
blaðið sent ókeypis til mánaðamóta.
Alþýðublaðið: Blaðið, sem tekur
framförum.
Áskriftarsíminn er 8-66-66.
Sálfrœðingurinn spyr:
Hvernig heldur þú um stýrið?
Hvernig þú heldur um stýrið, segir til um, hvort þú sért flestir eiga sér þó eina ákveðna stellingu, sem þeir nota mest.
öruggur bilstióri, og það sýnir einnig persónuleika þinn. Sálfræðingur og umferðarsérfræðingur sögðu álit sitt á
Allir bilstiórar skipta um handstöðu á stýrinu við og við. En nokkrum tegundum stellinga, sem algengastar eru.
9/EíMS
OLOF PALME
sænski forsætisráðherrann,
skýrði nýlega frá þvi i blaðavið-
tali, að hann hefði alla tiðverið
snillingur. Þegar hann var 4 ára
gat hann þá þegar talað bæði
þýzku og frönsku — auk sænsku.
CAROLINE
prinsessa af Monaco vakti ný-
verið nokkra athygli fyrir það
aö dansa margoft við sama
karlmanninn á stórdansleik..
Það fannst þó engri slúðurkerl-
ingunni ástæða til að pússa þau
saman. — Dansherrann var
nefnilega gamanleikarinn
Danny Key.
LIZA MINELLI
fær ekki tækifæri til að verja ný-
árskvöldinu næsta með ástvin-
um sinum. Hún er ekkert sér-
lega súr yfir þvi — hún hefur
nefnilega þegið tilboð frá Colo-
nie Hill-klúbbnum i Hauppauge
á Long Island. Fyrir þetta eina
kvöld á þeim stað fær hún
greiddar sem næst niu hundruð
þúsund islenzkar krónur. Þann-
ig vinnur hún sér inn á fyrsta
kvöldi ársins 1974 árstekjur ts-
lendings — og gott betur.
Miss Skandinavia
Sálfræðingurinn: — Ökuþór
þessi lætur sig umferðaröryggi
engu varða og er í raun hættu-
legur vegna tíðra óhappa, sem
hann veldur.
Umferðarsérfr.: — Slæm stelling
— ekki gott að sjá, hvernig
nokkur getur notað þessa stell-
ingu, en samt ekið beint. Þessi
bílstjóri veit ekki mikið um
akstur.
Sálfræðingurinn: — Kærulaus og
óviss. Þessi persóna er æst og
uppnæm meðal fólks og breiðir
yfir það með því að látast og
þykjast áhyggjulaus.
Umferðarsérfr.: — Kærulaus
stelling. Sýnir leti og slæmt
viðhorf til aksturs. Staðan gefur
slæma möguleika til þess að hafa
gott vald á bílnum
Sálfræðingurinn: — Praktískur
bílstjóri — hefur vald á bílnum,
en slappar af þrátt fyrir
aksturinn. Sýnir afslappaðan og
stöðugan persónuleika.
Umferðarsérfr.: — Afslöppuð
stelling — bílstjórinn hefur báðar
hendur á stýri á ágætlega örugg-
an hátt. Þessi stelling er ágæt á
löngum ferðum.
Sálfræðingurinn: — Maður
fullkomleikans— slíkir bílstjórar
eru öruggir. Þetta er þó oft
spennt og stressað fólk sem
breiðir yfir erfiðleika og reiði
með því að gera allt fullkomlega.
Umferðarsérfr.: — Langbezta
stellingin — ákveðið, þægilegt
tak, með góðu jafnvægi.
Sálfræðingurinn: — Sýndar-
mennskan uppmáluð — þessi
bílstjóri þarf að vera öðruvísi en
aðrir, sama hverjar afleið-
ingarnar kunna að verða.
Umferðarsérfr.: — önnur slæm
stelling. Þarfnast þess, að sífellt
þarf að vera að hreyfa stýrið til
að rétta bílinn af. Þessi bílstjóri
ætti frekar að aka kassabíl.
Sálfræðingurinn: — Þessi er hald-
inn minnimáttarkennd — bílstjór-
inn er óöruggur og finnst hann
vera ófullkominn. Samt ekur
hann eins og væri hann bílstjóri á
slökkvibíl. Hættulegur.
Umferðarsérfr.: — Hörmuleg
stelling — gerir erfittfyrir með að
stýra og næstum ómögulegt að
beita stýrinu snöggt og hratt.
Sálfræðingurinn: -- öörugg stell-
ing. Bílstjórinn er óviss og notar
blandað grip á stýrinu. óákveð-
inn í öllum smærri og stærri á-
kvörðunum lífs sins.
Umferðarsérfr.: — Slæm stelling,
næstum jafnslæmog sú fyrsta. Að
aka beint á þennan hátt jaðrar við
að vera ómögulegt. óhugsandi að
nokkur aki svona.
Sálfræðingurinn: — Tekur enga
áhættu — verður að hafa tök á
öllu, jafnt innan sem utan bílsins.
Ótti við mistök fær þennan til að
vilja hafa stjórn á öllu.
Umferðarsérfr.: — Ekki æskileg
stelling ekki gott að f ramkvæma
örugga stjórn bílsins með hend-
urnar svona.
Og hér höfum við mynd af
Miss Skandinavíu 1973.
Hún er frá Stokkhólmi, er
19 ára og heitir Monica
Sundin.'
Keppnin fór fram fyrir fáeinum
dögum i Helsingfors, og tóku þátt
i keppninni tiu stúlkur, tvær frá
hverju landi. tslenzku þátttak-
endurnir voru þær Nina Breið-
fjörð og Valgeröur Hjartardóttir.
Nina er tizkusýningardama og
vinnur i tizkuverzluninni Fanný,
en Valgerðurer starfandi á skrif-
stofum Loftleiða.
Og þá má geta þess hér i leið-
inni, að Helga Eldon, sem kjörin
var fulltrúi ungu kynslóðarinnar i
keppni hér heima fyrir tveim ár-
um, er nú stödd i Tokyo, þar sem
hún tekur þátt i Miss Internatio-
nal-keppninni fyrir Islands hönd.
Hún tók sem kunnugt er þátt i
Miss Young International-keppn-
inni i Tokyo i fyrra, en það er tán-
ingakeppni sömu aðila og standa
að þeirri keppni, sem Helga tekur
þátt i að þessu jýnni.