Vísir - 24.10.1973, Page 1
VISIR
63. árg. — Miövikudagur 24. oktáber 1973. — 245.tbi.
GERÐU TILRAUN MEÐ
ÚTVARP í STEREÓ BAKSÍÐA
Hvernig skyldu þeir taka i
tilboðiö? — Dayan varnar-
málaráöherra skimar yfir
vigiinuna til Egypta.
Nýtt
vopnohlé
í morgun
Rólegt ó
vígstöðvunum síðan
Nýtt vopnahlé gekk í gildi
um kl. 5 i morgun miiii
israelsmanna og Araba að
tillögu Moshe Dayans,
varnarmáiaráöherra
israels. Sameinuðu þjóð-
irnar hafa kaliaö aftur út
friöargæzlusveitirnar, sem
kvaddar höföu verið brott,
þegar ófriðurinn brauzt út
fyrir 18 dögum. í morgun og
framundir hádegiö virtist
rólegt á vígstöðvunum likt og
báðir aðilar hefðu virt
vopnahléö að þessu sinni.
Yfirmenn israelska hersins
höfðu gefið hersveitum I
Sinai fyrirmæii um að stöðva
skothriðina. Frá Egyptum
hefur ekki heyrzt, hvort þeir
hafi samþykkt vopnahléð,
en fréttir frá Tel Aviv
hermdu, að fulltrúi S.þ. hefði
þó fært Dayan þau tiðindi I
nótt.
Sjábls.5
o
Verða ítalir
dœmdir úr
HM-
keppninni?
Ef leikur italiu og islands I
riðlakeppni heimsmeistara-
keppninnar fer ekki fram i
kvöid, liggur ekkert annað
fyrir en kæra ttali til
Alþjóðasambandsins vegna
fyrirhyggjuleysis þeirra I
sambandi við dómara
leiksins. Niöurstaða þeirrar
kæru geti ek'ti orðið nema á
einn veg — ítalska liðið
dæmt úr keppninni, og fyrri
leikir þess gegn islandi og
Frakkiandi strikaðir úr.
Sjá iþróttir i opnu.
FLÓÍR ÓT ÓR CYJASJÓÐI
„Afgangur" verður af gjafafénu vegna gossins
— Verður skip keypt fyrir umframféð?
Það verður „af-
gangur” af gjafafénu
vegna Vestmannaeyja.
„Upplýsingar liggja
fyrir um, að til greiðslu
kostnaðar vegna
náttúruhamfaranna i
Eyjum og til fullra bóta
til Vestmannaeyinga
samkvæmt reglu-
gerðinni um Viðlagasjóð
og lögunum um neyðar-
ráðstafanir vegna jarð-
eldanna á Heimaey
þurfi ekki að fullu að
nota það fé, sem borizt
hefur til Vestmanna-
eyjasöfnunarinnar frá
rikisstjórnum Norður-
landanna og fleiri
aðilum og Viðlagasjóður
hefur veitt móttöku.
Erhér á nokkur mismunur.”
Svo segir i greinargerð sex
þingmann Suðurlandskjördæmis
fyrirlfrumvarpi er þeirflytja um
byggingu skips til Vestmanna-
eyjaferöa.
Ekki kemur fram, hversu mik-
ill „afgangurinn” yrði, enda erfitt
aö leggjafram „harðar” tölur um
það að svo stöddu. En hér er átt
við, að gjafaféð og það sem
Afgreiösiustúlka hampar þeirri vöru, sem kaupmenn eru
tilneyddir að bjóöa að afioknu kartöflusumrinu 1973, öðrum
flokki (Ljósm. VIs. BG)
RÆKTUÐUM
BARA 2.
FLOKKS
KARTÖFLUR
í SUMAR
„Svo til öll kartöfluuppskeran
hér sunnanlands fer I 2. flokk
Sökum óhagstæðs tiðarfars
i sumar hefur útkoman orðið sú
aðdómi matsmanna, sem settir
eru, að ekki hefur verið unnt að
setja nema örlitið i 1. flokk”.
Þetta sagði Jóhann Jónasson
hjá Grænmetisverzlun land-
búnaðarins i viðtali viö Visi i
morgun, en neytendur hafa
áreiðanlega rekið sig á það, að
erfitteraðfá 1. flokk kartaflna i
verzlunum núna.
Jóhann sagði, að svo virtist
sem eitthvaö væri betra
norðanlands, og þar hefur verið
hægt að fá 1. flokk að undan-
förnu, en hins vegar hefur verið
mjög litið um það hér. Hann
sagði, að óhætt væri að segja
þetta helmingi verra en í
fyrra.
Verðmismunur á 1. og 2.
flokk er ca. 20%. 1. flokkur
kostar 26,60 út úr búð og 2.
flokkur kostar 21.40 út úr búð.
—EA
TVEGGJA VIKNA VERKIFNI
FYRIR ÁBURÐARFIUGVÍLINA
— Landgrœðslunni naumt skammtað á fjárlögum
„Það bendir alit til þess, að
vél landgræðslunnar verði ekki i
notkun nema i um það bil hálfan
mánuð aftur i ár, eins og var i
fyrra. Framiagið þarf aö vera
miklu meira en gert er ráð
fyrir”, sagði Sveinn Runólfsson
i Gunnarsholti, þegar við
ræddum við hann, en á fjár-
lögunum núna er gjaldfærður
stofnkostnaður til iandgræðsl-
unnar 29 milijónir.
Þessa peninga á að nota til
kaupa á áburði og fræi og
bindingarefni fyrir land-
græðsluvéiina. í fyrra var gert
ráö fyrir 25 miiijónum, svo hér
er um litla sem enga hækkun að
ræða.
„Kostnaöur við aö dreifa
hverju tonni er tiltölulega Htill”,
sagði Sveinn ennfremur. „En
það er áburðurinn og fræið, sem
var svo dýrt, þetta er allt
innflutt, og á árunum — ’72 —•
'73 nam hækkunin á þessum
efnum 35-40%. A þessu er eins
von nú”.
Fjárframlögin eru misjafn-
lega há nú sem áður. Sums
staöar erum við örlát, annars
staðar ekki. Kirkjan hlýtur
góöan skerf, hjálparsveitir
litinn o.s.frv.
—EA
FJARLOGUNUM
FLETT — sjá bls. 2 og 3
rennur til Viðlagasjóðs með
almennri skattheimtu innanlands
samkvæmt Viðlagasjóðslögunum
sé meira en talið er þurfa til
„fullra bóta til Vestmannaey
inga” samkvæmt reglugerðinni
og lögunum.
Flutningsmenn frumvarpsins
álita, að það væri „vissulega i
fullu samræmi við óskir gefenda,
aö framlög þeirra yrðu notuð til
uppbyggingar i Eyjum, þannig að
byggö mætti sem fyrst risa þar á
ný og blómgast i framtiðinni. En
telja má frumskilyrði fyrir, að
svo megi verða, að sam-
göngumálum Vestmannaeyinga
veröi komið i svo gott horf sem
frekast er kostur á, „segja
flutningsmenn. Féð, sem nota
mætti til skipskaupanna sé að
visu i bili fast i fjárfestingum Við-
lagasjóðs, einkum innfluttu hús-
unum. Það muni fljótlega skila
sér aftur, þegar Vestmannaey-
ingar þurfi ekki lengur að nota
húsin og þau verða seld og lántak-
endur endurgreiða lánin.
Þingsályktunartillagan
gengur út á áskorun á rikisstjórn-
ina að láta nú þegar byggja nýtt
skip til Vestmannaeyjaferða og
leita tilboða ismiði þess á grund-
velli tillögu stjórnskipaðrar
nefndar, sem lög var fram fyrir
tæpu ári.
Sam-
komu-
lag
öruggt
Samkomulag i landhelgisdeil-
unni við Breta cr talið öruggt,
cftir að afstaða allra flokkanna
liggur fyrir. Rikisstjórnin ákvað i
gær, að gert skyldi samningsupp-
kast á grundvelli viðræðna for-
sætisráðherranna i London.
Unnið verður eftir diplómatiskum
leiðum að því að fá fram nokkrar
„lagfæringar” á grundvellinum.
I reynd verður það utanrikis-
ráðherra, sem með viðræðum við
brezka sendiherrann, á að fá
fram þær lagfæringar, en i sam-
ráði við dómsmála- og sjávarút-
vegsráðuneytið. Er stefnt að þvi
aö fá skýrar fram aö Islendingar
hafi einir ákvörðunarvaldið um
meöferð á landhelgisbrotum.
Forsætisráðherra túlkar niður-
stööur viðræðna sinna við Heath
þannig, að íslendingar hafi það
vald. Einnig skal ganga nánar frá
samkomulagi um veiðihólf og
samningstimann.
Alþýðubandalagið hefur verið
einangrað i andstöðu við
samningsgrundvöll forsætisráð-
herranna, en flokkurinn gekkst i
gær inn á þessa meðferð málsins.
Varð þvi samkomulag allra
flokka um að byggja á samnings-
grundvelli Ólafs og Heaths.
Sendinefndir rikjanna eiga ekki
að koma við sögu, ef fer sem
horfir, heldur á að vera unnt að
ganga frá samningum á
skömmum tima með einfaldari
leiöum.
Sjá ennfremur viðtöl við
forystumenn á baksiðu.