Vísir - 24.10.1973, Blaðsíða 6
6
Visir. Miðvikudagur 24. október 1973.
VÍSIR
(jtgefandi:-Reykjapi;ent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgatu 32. Simar 11660 86611
Afgreiósla: Hverfisgötu 32. Simi 86611
Ritstjórn: Siöumúla 14. Simi 86611 (Tjfnur)
Áskriftargjald kr. 360 ó mónuöi innanlands
i lausasölu kr. 22.00 eintakiö.
Blaöaprent hf.
Það verður samið
Samkomulag við Breta i landhelgisdeilunni má
nú heita alveg öruggt. Lúðvik Jósepsson hefur
orðið undir i rikisstjórninni. Fremur en að slita
stjórnarsamstarfinu hefur hann kosið að beygja
sig með semingi, þrátt fyrir herskáar yfirlýsing-
ar i kjölfar samningsgrundvallar brezka og
islenzka forsætisráðherrans.
Stjórnarandstaðan hafði tekið tiltölulega vel i
samningsgrundvöllinn. ólafur forsætisráðherra
var þvi ekki upp á náð Lúðviks kominn i þessu
máli. Ljóst var, að væntanlegur samningur
mundi fá mikinn meirihluta á alþingi, þegar til
staðfestingar kæmi. Þessa stöðu hefur forsætis-
ráðherra notfært sér vel.
Utanrikisráðherra mun nú einn ganga frá sam-
komulaginu við Breta, án þess að Lúðvik komi
þar nærri. Þessi frágangur ætti ekki að þurfa að
taka langan tima. Á meðan mun friður vafalaust
haldast á miðunum. Þorskastriðinu hefur þvi
verið aflétt að sinni.
Mikilvægasta atriði samningsgrundvallarins
er, að hann er aðeins til bráðabirgða. Hann bind-
ur á engan hátt hendur Islendinga til frambúðar.
Við getum unnið ótrauðir áfram að 200 milna auð-
lindalögsögu og lýst yfir slikri landhelgi þegar á
næsta ári eins og sjálfstæðismenn hafa lagt til.
Alþjóðlega viðurkennd 200 milna auðlindalög-
saga er okkar stóra mál. öll deilan um 50 milurn-
ar hverfur i skugga þess. Við teljum okkur eiga
200 milur unnar i kjölfar hafréttarráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna. Þess vegna skiptir öllu máli i
samningnum við Breta, að við bindum ekki
hendur okkar i 200 milna málinu. Og sem betur
fer er engin slik binding i samningsgrundvelli
þeim, sem nú liggur fyrir.
Þetta tvennt er kjarni málsins, annars vegar
friðurinn á miðunum og hins vegar óskert at-
hafnafrelsi i 200 milna málinu. Ákvæðin um
aflamagn, skipastærð, friðunarsvæði og tima-
skiptingu eru allt minni háttar málamiðlunarat-
riði, léttvæg i samanburði við stóru atriðin.
Hinu er ekki að leyna, að samningsgrundvöll-
urinn gerir kleifa fíeiri en eina túlkun á þvi,
hvernig lögsagan verði framkvæmd á svæðum
þeim, sem samningurinn mun ná til. Forsætis-
ráðherra virðist telja eins konar heiðursmanna-
samkomulag nægilegt á þvi sviði. Það kann að
vera rétt metið hjá honum. Og svo getum við auð-
vitað lýst samninginn ógildan, ef Bretar rjúfa
heiðursmannasamkomulagið. Við þurfum þvi
liklega ekki að hafa verulegar áhyggjur af þessu
atriði, þótt i þvi felist nokkur áhætta.
Við getum þvi i höfuðatriðum verið ánægð með
samningsgrundvöllinn, þótt i honum felist ýmsar
eftirgjafir af okkar hálfu. Það er þó Heath, for-
sætisráðherra Bretlands, sem af siðbúnu raunsæi
hefur stigið stærsta skrefið til samkomulags. Og
við getum verið jafn ánægð með þá málsmeðferð
rikisstjórnarinnar, að Einar Ágústsson gangi frá
málinu án aðstoðar Lúðviks Jósepssonar.
— JK
Þess konar galgopa-
aðferðir, sem voru dag-
legt brauð i sex daga
striðinu 1967, eru nú jafn
gamaldags, eins og þeg-
ar eyðimerkur-
riddararnir þeystust
fram i fylkingum á ara-
bisku gæðingunum sin-
um eða fótfráum úlföld-
um.
ið, þegar hvergi bólaði ó óvina-
flugvélum. Þeir urðu að gæta að
sér.
SA-6 eldflaugin, sem skotið er á
loft af beltisknúnu farartæki,
þykir fádæma beinskeytt og
markhæfin. Hún getur hæft flug-
vél i hvað hæð sem er frá þvi rétt
ofan við jörðu og upp i 7 milna
flughæð. Hún hefur innbyggðan
radar, sem stýrir henni á flugvél-
ina, og á réttu augnabliki hleypir
hún flugskeytinu af.
Annað morðtól, sem kenndi
tsraelsmönnum að nálgast Arab-
ana af meiri varúð en þeir höfðu
gert i 6 daga striðinu, er Snapper-
skeytið. Þvi er beint gegn skrið-
drekum eða öðrum vélknúnum
farartækjum á jörðu niðri, og
venjulegur byssuliði getur stjórn-
að þvi-.
Það kom tsraelsmönnum illi-
lega á óvart, þegar þeir ráku sig
á, að Sýrlendingar og Egyptar
sendu oft fótgönguliðssveitir á
undan vélafylkjum sinum með
Snapperskeyti á bakinu. Þessi
skeyti voru afar nákvæm.
Þetta hvorutveggja leiddi til
þess, að tsraelsmenn urðu að
hægja á gagnsókn sinni, jafnt i
Golanhæðum sem á Sinaiskaga,
þegar þeir vildu reka óvinina af
höndum sér. Skriðdrekasveitun-
um lærðist að æða ekki beint i
Snapperskeytahrið fótgönguliða,
sem gátu leynzt að baki næstu
sandöldu.
Bandariskar flugvélar höfðu oft
sætt árásum sovézkra flugskeyta
i Norður-Vietnam, en aldrei i svo
litilli hæð sem israelsku flug-
vélarnar yfir Sinai, þegar þær
fylgdu vélafylkjunum. Vitað er,
að Bandarikjamenn höfðu komið
fyrir i flugvélum sinum útbúnaði,
sem ruglaði radarmiðanir flug-
skeyta Rússa. En það er ekki vit-
að, hvort slikan útbúnað hefur
vantað i flugvélar, sem þeir hafa
sent tsraelsmönnum, eða hvort
Rússar hafi aftur fundið eitthvert
tæknibragð til þess að yfirstiga
þennan vandann.
En allt bar það þó að sama
brunninum. Israelsmenn urðu að
fara varlega i sakirnar.
Auðvitað hafa ísraelsmenn sin
tæknibrögð lika til að halda aftur
af óvininum. Þeir hafa banda-
riska „Spörfuglinn”, flugskeyti,
sem radarstýrt eltir uppi flugvél-
ar. Þeir hafa Gabrielflugskeyti,
sem draga 12 milur. „Sidewind-
er” heitir annað skeyti, sem leit-
ar uppi hitann frá útblæstri þot-
unnar, eða Maverick, sem stýrt
er af sjónvarpsauga að skotmarki
á jörðu.
Þessi tól grönduðu einum 800
skriðdrekum Araba og 150 flug-
vélum á fyrstu vikunni.
Svo að Arabar ráku sig fljótt á,
að þeir lika urðu að sækja fram af
gát og með varúð.
Varkárnin hefur þokað þessum
aöferðum til hliðar. Varkárnin og
tæknin. — Það er að miklu leyti
þessari auknu varkárni að kenna,
að striðið hefur dregizt á langinn.
1 stað sex daga er það orðið
sautján daga langt, þegar þetta
er skrifað, og vopnahlé aðeins i
orði, svo að það gæti dregizt enn.
Ef litið er á, hvernig fór fyrir
israelskum flugvélum fyrstu vik
una, áður en Israelsmenn höfðu
rekið sig á, má sjá, hvi þeim hef-
ur lærzt að sýna aðgát.
Þessar hraðfleygu bandarisku
orustuþotur á borð við Sky Hawk,
Phantom o.fl. urðu einar sjötiu að
bráð rússneskum flugskeytum á
fyrstu vikunni. Þá lærðist Israels-
mönnum, að þeir voru ekki eins
einráðir i lofti og þeir höfðu hald-
Þetta er einn af skotpöllum SAM-3 flugskeytanna á Vesturbakka Súez-
skurðarins. A neðri myndinni sést israelskur hermaöur virða eld-
flaugina fyrir sér, en á efri myndinni eru skriðdrekar lsraelsmanna á
leið hjá skotstöðvunum.
Aukin tœkni
*
„Zafer”-eldflaug,ein af þeim langdrægari, sem Anwar Sadat hrósaði
scr af að hafa komið þannig fyrir að Egyptar gætu skotið á hvcrt það
skotmark innan tsraels, sem þeim iéki hugur á.
—meirí aðgát
Hin nýja striðstækni,
sem fram hefur komið i
fjórða striði Araba og
ísraels, tekur af allan
vafa um, að eyðumerk-
urstrið verður ekki aft
ur háð með gamla
laginu.
Hin sigilda mynd
fjölda skriðdreka, sem
skjótast fram og aftur
yfir sandinn undir
verndarvæng flugsveit-
ar, sem flýgur i litilli
hæð yfir þeim, er nú úr-
kynjuð.
Illlllllllll
ST
Umsjón Guðmundur
Péfursson