Vísir - 24.10.1973, Blaðsíða 13

Vísir - 24.10.1973, Blaðsíða 13
Visir. Miðvikudagur 24. október 1973. 13 | .1 PAG | í KVÖLD | í DAG ♦ ☆★☆★☆★☆★**************T!f***'**********'!:r*'i:r***Í|‘ Sjónvarp kl. 21,35: Mannaveiðar OG ENN HITNAR í KOLUNUM... Mannaveiðar eru á dagskrá . sjónvarpsins i kvöld. Sýndur verður 13. þáttur, sem nefnist Eitt sinn skal hver deyja. 112. þætti var sagt frá þvi, að þremenningarnir hafa komið sér fyrir i næturklúbbi og dylj- ast þar sem starfsfólk. Lutzig er i tygjum við söngkonu hússins, og einhvern veginn kemst Gratz á snoðir um verustað þeirra. Söngkonan, sem er á förum til Bordeaux, kemst að sann- leikanum um þremenningana. Jimmy og Vincent ákveða að fylgja henni eftir, en Nina fer til fundar við Gratz, sem býður henni vernd sina og ekur henni til Bordeaux. t þættinum i kvöld eru þeir tveir eftir, Jimmy og Vincent, en þeir fá að halda til Bordeaux I fylgd með söngkonunni i dular- gervi. Vincent býr sig sem undirleikari söngkonunnar, en Jimmy læzt verða fábjáni, sem fylgir undirleikaranum eftir, hvert sem hann fer. Söngkonan tekur að sér að syngja i nýjum næturklúbbi i Bordeaux, en þeir Jimmy og Vincent reyna að komast i sam- band við foringja andspyrnu- hreyfingarinnar á staðnum. Jimmy reynir að hringja i hann með dulmáli, en á meðan hann er að þvi, kemur þjönustu- stúlka á hótelinu að honum. Svo virðist sem hún sé i andspyrnu- hreyfingunni, og hún botnar það svar, sem hann fær. Þeir Vincent og Jimmy taka hana á eintal. Vincent er tortrygginn, en Jimmy telur hana vera á þeirra bandi. Hún lofar að hafa samband við for- ingja andspyrnuhreyfingarinn- ar i Bordeaux. En stuttu siðar ráðast með- limir hreyfingarinnar á þjónustustúlkuna , og Vincent, sem telur hana um leið svikara, vill ráða hana af dögum. Um svipað leyti fer Lutzig að gruna ýmislegt um þá félaga, og það fer að hitna i kolunum. — EA. Sjónvarp kl. 20,55: KRUNKAÐ Á SKJÁINN HEFUR GÖNGU SÍNA Magnús Bjarnfreðsson er um sjónarma ður þáttarins Krunkað á skjáinn.... Nýr þáttur hefur göngu sina i sjónvarp- inu i kvöld. Það er þátt- urinn Krunkað á skjá- inn. Umsjónarmaður þessa þáttar er Magnús Bjarnfreðsson, en upp- töku stjórnar Sigurður Sverrir Pálsson. Þáttur þessi verður á dagskrá annan hvern miðvikudag i vet- ur, og verða tekin til meðferðar ýmis mál, sem snerta heimilis- lifið, og einnig verða i honum viðtöl i gamni og alvöru og myndagetraun fyrir fjölskyld- una. Þátturinn hefst klukkan 20.55 og stendur yfir til klukkan 21.35. — EA. ....og Sigurður Sverrir Pálsson stjórnar upptöku. Útvarp, kl. 19,00: Bein lína Utanríkisróðherra verður fyrir svörum Kínar ÁPllSÍS’snn Bein lina er á dagskrá klukk- , .fr AgUSlSSon> an 19.00 og stendur yfir i 45 utannkisraðherra og minútur. varaformaður Fram- ~EA- sóknarflokksins, svar- ar spurningum út- varpshlustenda i þætt- inum Bein lina i kvöld. Það eru enn fréttamennirnir Arni Gunnarsson og Einar Karl Haraldsson, sem hafa umsjón með þættinum, og liklega hafa þeir nóg að gera við að svara i simann. Það má segja, að Einar Ágústsson standi i eldlinunni þessa dagana, og þær eru án efa margar spurningarnar, sem hlustendum liggur á hjarta og óska eftir að fá svör við, einmitt hjá honum. UTVARP 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Siðdegissagan: „Við landamærin” eftir Terjc S t i g e n . 15.00 Miödegistónleikar: íslenzk tónlist. 19.00 Veðurspá. Bein lina: Einar Ágústsson utanrikis- ráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins svar- ar spurningum hlustenda. Umsjónarmenn: Árni Gunnarsson og Einar Karl Haraldsson. 19.45 Til umhugsunar. Þáttur um áfengismál. 20.00 „Litið næturljóð” eftir Mozart. 20.20 Sumarvaka. 21.30 Útvarpssagan: „Heimur i fingurbjörg” eftir Magnús Jóhannsson frá Hafnarnesi. Jakob S. Jónsson les (4). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. i sveita þins andlitis. Hjörtur Páls- son les úr minningablöðum Gunnars Benediktssonar. (2). 22.45 Nútimatónlist. Halldór Haraldsson kynnir. 23.15 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. «- X «- X «- X- s- X- «- X- «- X- s- X- s- X- «- X- «- X- «- X- «- X- «- X- «- X- s- X- «• X- s- X- 7«- V X «• X ri. X «- X «- X «• X «- X «-• X s- X «• 'X s- X s- X s- X «■ X s- X «• X s- X s- X «■ X s- X «■ X « X «■ X «- X «- X s- X s- X «- X s- X s- X «- X s- X s- Spáin gildir fyrir fimmtudaginn 25. okt. m IS Ql m & Hrúturinn,21. marz-20. april. Oll viðskipti, sem nema nokkrum upphæðum að ráði, geta reynzt viðsjárverð i dag. Á öðrum sviðum geturðu haft heppnina með þér. Nautið,21. april-21. mai. Það er hætt við, að ein- hver gömul fljótfærni geti komið þér i koll á óvæntan hátt og valdið einhverjum óþægindum i bili. Tviburarnir, 22. mai-21. júni. Það er ekki ólik- legt, að svo fari, að eitthvað, sem þú hefur kvið- ið, reynist ekki þess háttar, að þú þurfir að hafa áhyggjur af. Krabbinn, 22. júni-23. júli. Þú hefur við ein- hverja örðugleika að etja, sem standa i nánu sambandi við fjölskyldu þina, nána vini eða þá samstarfsmenn. Ljónið,24. júli-23. ágúst. Þó að ekki sé neinn asi á hlutunum, er greinilegt, að þú vinnur á, smátt og smátt, og lokasigurinn kann að vera skemmra undan en þú hyggur. Meyjan, 24.ágúst-23. sept. Leggðu sem mesta áherzlu á, að tryggilega sé frá öllu gengið, sem snertir atvinnuna og peningamálin, jafnvel þó um lágar upphæðir sé að ræða. Vogin,24. sept.-23. okt. Einhverjar tafir kunna að koma óþægilega við þig i dag, en munu þó ekki reynast hafa eins langvarandi afleiðingar og þú hyggur. Drekinn, 24. okt.-22. nóv. Taktu ekki neinar ákvarðanir i málum, sem snerta framtiðina fyrst og fremst, fyrr en þú hefur ihugað þær gaumgæfilega. Boginuöurinn.23. nóv.-21. des. Það virðist frem- ur létt yfir deginum, en þó getur eitthvað oröið til að valda þér óþægindum sem snöggvast, ein- hverjar tafir og vafstur. Steingeitirt, 22. des.-20. jan. Ekki er ósennilegt, að þú setjir markið að einhverju leyti of hátt, þú ættir að minnsta kosti að athuga það vel og vandlega. Vatnsberinn, 21. jan.-19. febr. Simtal eða bréf getur komið þér mjög á óvart og breytt afstöðu þinni og ákvörðunum i einhverju máli, en flanaðu samt ekki að neinu. Fiskarnir, 20. febr.-20. marz. Flest mun ganga greiðlega i dag, að minnsta kosti fram eftir. Aft- ur á móti litur út fyrir, að kvöldið geti reynzt við- sjárvert. -k <t ¥ -g -k -S -k -k -» -s -k ¥ -vt -S -g ¥ -tt ¥ -t! ★ -tl ¥ -h ★ ¥ ★ -h ¥ •tt ★ <!■ ¥ -t! ★ ¥ -t! ★ ¥ -ti ¥ -ti ★ -ti ¥ ■it ¥ -t! ★ •t! ★ •t! ¥ -tí ¥ -t! ¥ -tl ¥ -H ¥ -H ¥ -tt ¥ si ¥ -tt ¥ ¥ -tí ¥ *ft ¥ -t! ★ -t! ¥ <t ¥ •t! stjórnar Sigurður Sverrir SJONVARP 18.00 Kötturinn Felix Tvær stuttar teiknimyndir. Þýð- andi Jóhanna Jóhannsdóttir 18.15 Skippi Astralskur myndaflokkur fyrir börn og unglinga. Dýr I búri Þýð- andi Jóhanna Jóhannsdóttir 18.40 Lappar Þriðji og siðasti hluti myndarinnar um sögu og menningu Lappanna i Norður-FinnlandL Þýðandi og þulur Gylfi Gröndal. (Nordvision — Finnska sjónvarpið) 18.50 Hlé 20.00 Fréttir 20.25 Veður og auglýsingar 20.25 Lif og fjör I læknadeild Breskur gamanmynda- flokkur. Spilavitið Þýöandi Jón Thor Haraldsson. 20.55 Krunkað á skjáinn Nýr þáttur með blönduöu efni, sem verður á dagskrá annan hvern miðvikudag 1 vetur. 1 þættinum verða tekin til meðferðar ýmis mál, sem snerta heimilis- lifið, og einnig verða I honum viðtöl i gamni og alvöru og myndagetraun fyrir fjölskylduna. Umsjónarmaður er Magnús Bjarnfreðsson, en upptöku Pálsson. 21.35 Mannaveiðar Bresk framhaldsmynd 13. þáttur. Eitt sinn skal hver deyja 22.25 Jóga til hcilsubótar Bandariskur myndaflokkur með kennslu i jógaæfingum. Þýðandi Jón O. Edwald. 22.40 Dagskrárlok hafid þér hugleítt hve mikilvaegt er ad stóllinn, sem þér sitjid á allan daginn, sé sá besti. sem sem völ er á, þ.e.a.s. HARTMAM % SKRIFSTOFUVELAR H.F. - -f- isr X N# Hverfisgötu 33 Simi 20560 - Pósthólf 377

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.