Vísir - 24.10.1973, Síða 4
4
Visir. Miðvikudagur 24. október 1973.
EYFELLS-HJÓNIN
SÝNA í FLÓRÍDA
Hjónin Kristin og Jóhann Eyfells opnuðu sameiginlega
sýningu á verKum sinum i Florida um siðustu helgi.
Bæði hafa þau hjón sýnt viða i Evrópu og Bandaríkjunum, en
þau kynntust þar við nám 1949. Undanfarin ár hafa þau ýmist
dvalizt hér á landi eða i Bandrikjunum. Þau luku bæði námi frá
háskólanum i Florida, Jóhann I húsagerðarlist og Kristin i sál-
fræði.
A sýningu þeirra i Florida núna eru margs konar höggmyndir,
bæði úr járni, steinsteypu og öðrum efnum.
Myndirnar, sem felldar eru saman hér að ofan, sýna þau
hjónin, Jóhann og Kristínu við sitt hvorn sýningargripinn.
Það má kannski rif ja það upp hér, að þau áttu bæði verk á úr-
valssýningu bandariskra listamanna á Olympiusýningunni I
Munchen i fyrra.
Orðsending til
hluthafa
Verzlunar-
banka Islands
Athygli hluthafa er vakin á samþykkt
aðalfundar bankans hinn 9. april s.l. um
aukningu á hlutafé svo og bréfi til
hluthafa þar að lútandi dags. i júni 1973.
Þeim hluthöfum, sem ekki hafa sent hluta
fjárloforð, er bent, á að forkaupsréttur
þeirra fellur niður 1. nóv. 1973.'
Allar nánari upplýsingar um hlutafjár-
aukninguna veitir Steinn V. Magnússon i
aðalskrifstofu bankans, Bankastræti 5,
simi 22190, innanhússimi 46.
Verzlunarbanki íslands h.f.
Járnsmiðir —
Aðstoðarmenn
Getum bætt við nokkrum járnsmiðum og
aðstoðarmönnum við skipasmiðar.
Mikil næturvinna framundan.
Stálvik hf. Simi 51900.
HEIMSHORNIÐ________________________________________________________________________
mmmmmmmmmmmmmmmmm^^mmmmmmmmmmmmmmmmi^^^mm^m^^mmmmmm^mi^^^m^^^m^mmmm^^^^^mmmmmmm^^mmmmmmmmm^mmmmmmmi^mimmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Johnny Carson
— hæstlaunaða sjónvarpsstjarna
veraldar — hefur komið á fót nýju
kvikmyndafélagi i samvinnu við
Paramount. Hefur fyrirtækið
hlotið nafnið Carson — Para-
mount Production og mun það
vinna að gerð bæði sjónvarps og
biómynda.
Leonard Bernstein
vinnur um þessar mundir að nýj-
um söngleik ásamt Alan Jay
Lerner. Nafnið er kannski dulitið
pólitiskt, nefnilega „1600
Pennsylvania Avenue,” en það
skal tekið fram, að söguþráðurinn
snýst ekki um Nixon og Water-
gate.
Ginger Rogers
er hin sprækasta þrátt fyrir að
hún sé nú orðin 62ja ára. Þessi
gamla dansandi kvikmyndaleik-
kona sló i gegn, þegar hún fyrir
skömmu síðar kom fram og
skemmti gestum klúbbsins La
Bussola i Viareggio á ftaliu. Hún
skemmti sér sjálf svo afbragðs
vel, að hún ákvað að gera frekari
samninga við næturklúbba. En nú
er dansfélagi hennar ekki lengur
Fred Astaire.
Peter Ford
— sonur Glenn gamla Ford —
verður leikstjóri sjónvarpsmynda
flokksins „Ný ævintýr Perry
Mason”, en nú á að fara að taká
til við gerð Perry Mason-þátt-
anna að nýju og hefur Monte
nokkur Markham verið valinn i
titilhlutverkið i stað Raymonds
Burr. Hin nýja sjónvarpshetja er
19 árum yngri en Burr var, þegar
hann skildi við hlutverkið, og han
er að minnsta kosti 50 kilóum létt-
ari.
Doris Day
og Rock Hudson hafa ekki leikið
saman i kvikmynd siðan þau á ár-
inu 1959 léku i myndinni „Með
lausa skrúfu.” Núna ætla þau að
rifja upp gömul kynni og taka
saman höndum um gerð nýrrar
kvikmyndar — þar sem þau verða
að sjálfsögðu i aðalhlutverkun-
um.
Marilyn Monroe
er langt frá þvi aö vera gleymd.
Bókin, sem Norman Miller hefur
skrifað um hina liðnu leikkonu og
heitir einfaldlega „Marilyn” hef-
ur selzt i risastóru upplagi
siðustu vikurnar þrátt fyrir hinar
harkalegu móttökur blaðanna. Og
þá er að geta bókar Normans
Rostens, sem á að heita „Mari-
lyn, An Untold Story.” Sú bók er
fyrir löngu uppseld, þó að enn sú
hún ókomin á markaðinn.
Seint koma sumir
— en koma þó...
ftalska lögreglan hefur fundið
aftur safn griskrar myntar, en
safn það hefur verið metið á 150
milljónir króna.
Myntsafninu var rænt af safni i
Egela á Sikiley i ársbyrjun og
voru ræningjarnir vopnaðir
byssum. Skutu þeir yfir höfuð
safnvarðanna, þegar þeir hirtu
peningana.
Sérfræðingar telja,að þetta
myntsafn frá Hellas hinu forna sé
það bezta, sem til er i heimi.
MARIA SCHNEIDER
þekkt fyrir leik sinn i kvik-
myndinni „Siðasti tangó i
Paris”, hefur loksins fengið
hlutverk i nýrri mynd. Hún á að
leika þar á móti Richard Burton.