Vísir - 24.10.1973, Page 8
8
Vísir. Miðvikudagur 24. október 1973.
Visir. Miðvikudagur 24. október 1973.
9
Ennþá tapaij
C. Palace!
Enn tapar Crystal Palace
i 2. deildinni ensku og virðist
fátt geta komið i veg fyrir,
að liðið verði meðal þeirra,
sem falla niður i 3. deild
næsta vor.
tirslit i ensku leikjunum i gærkvöldi
urðu þessi:
2. deild
Aston Villa — C. Palace 2-1
BristolC. — Swindon 1-0
Carlisle — Middlesbro 1-1
Nottm. For. — Hull 0-0
3. deild
Shrewsbury — Tranmere 1-3
4. deild
Barnsley — Doncaster 2-0
Newport — Northampton 3-1
Rotherham — Bradford 2-1
Scunthorpe — Gillingham 1-1
Swansea — Crewe 2-0
1 deildabikarnum tókst Luton loks að
slá Grimsby út —- sigraði 2-0 i þriðja
leik liðanna i gærkvöldi. Þá var einn
leikur i Texaco-bikarnum. Norwich
vann skozka liðið Motherwell 2-0.
Evrópukeppni
Fyrri leikirnir i 2. umferð
hinna ýmsu Evrópumóta i
knattspyrnu verða leiknir i
kvöld — og verða þá mörg
stórlið i baráttunni.
Evrópumeistararnir Ajax, sem sátu
yfir i 1. umferðinni, leika i kvöld við
CSK Sofia — liðið, sem þeir slógu út i 2.
umferð i fyrra. Sennilega endurtekur
sagan sig, þó svo Johan Cruyff leiki
ekki lengur meö Ajax.
Mestur spenningur er i sambandi við
leik þýzku liðanna, Bayern Munchen
frá Vestur-Þýzkalandi, og Dynamo,
Dresden, Austur-Þýzkalandi, i keppni
meistaraliða. Liverpool leikur gegn
Rauðu stjörnunni i Júgóslaviu i sömu
keppni.
Mótherjar IBV i Evrópukeppni
bikarhafa, Borussia Mönchenglad-
bach, fá nú erfiðan keppinaut, Glas-
gow Rangers, og i UEFA-keppninni fá
mótherjar IBK, Edinborgarliðið
Hibernian, enn erfiðari mótherja,
Leeds Utd. — efsta lið 1. deildar á Eng-
landi. Meiðsli eru þó talsverð hjá
leikmönnum Leeds.
Fœr metin
ekki stað-
fest
Danski hjólreiða-
maðurinn Niels Fredborg
reyndi á laugardaginn að
setja nýtt heimsmet i eins
kilómeters hjólreiðum i
Mexikó-borg úr kyrrstöðu —
en tókst ekki. Einum tuttug-
asta úr sekúndu munaði.
Þetta var í annað skipti á stuttum
tima, sem Fredborg mistókst heims-
metstilraun i Mexikó — áður i kiló-
meters hjólreiðum með „fljúgandi
viðbragði”. Tilraunir hans hafa kostað
um átta þúsund dollara — en fjár-
sterkir aðilar standa að baki Danans.
Nields Fredborg hjólaði vegalengd-
ina á laugardag á einni minútu, 4.66
sekúndum. Heimsmet Italans Giani
Sartori frá 1967 er 1:04.61 min. Þá
hjólaði Fredborg einnig 200 og 500
metra — og var innan við heimsmetin
á báðum vegalengdum, en hafði ekki
áður beðið um opinbera timatöku, svo
þeir timar verða ekki staðfestir sem
heimsmet.
Muhameö Ali, fyrrum heimsmeistari i þungavigt í hnefaleikum, lætur þarna höggin dynja á hollenzka
meistarann Kudi Lubbers f 11. lotu þeirra f Djakarta á laugardag. Ali vann yfirburöasigur eins og viö
höfum sagt frá hcr i opnunni.
Keppni úliendiiiganna
mikil hjá Standard!
Liðið tapaði á sunnudag, en Ásgeir Sigurvinsson lék ekki með
„Rora og Sigurvinsson —
tveir, sem munu bæta og
styrkja ástand Standard",
segir belgiska íþróttablaðið
Les Sport í fimm dálka
fyrirsögn núna á mánu-
daginn. Lið Ásgeirs Sigur-
vinssonar, hins unga Vest-
mannaeyings, hafði degin-
um áður leikið á heimavelli
gegn RWDM og tapað með
0-2. 18 þúsund áhorfendur
sáu leikinn, en Ásgeir lék
ekki í liði Standard Liege.
Félagið hefur sex útlend-
inga í sínum röðum — en
má aðeins nota þrjá þeirra .
Samkeppnin er því afar
hörð meðal þessara sex er-
lendu leikmanna og eins og
stendur eru júgóslavneskir
landsliðsmenn hjá Stand-
ard, sem eru í liðinu.
t greininni i Les Sport er viðtal
við þjálfara Standard sem segir
meðal annars. ,,Ég reikna einnig
með að nota Asgeir Sigurvinsson,
þvi i bikarkeppninni eru ekki tak-
mörk á þvi hvað lið má nota
marga útlendinga. Rora og Sigur-
vinsson munu styrkja liðið”.
Af þessu sést, að Asgeir, þó
ungur sé, væri fastur maður i liði
Standard, einu kunnastá knatt-
spyrnuliði Evrópu, ef takmörk
væru ekki á þátttöku erlendra
leikmanna hjá belgiskum liðum.
Albert Guðmundssyni, for-
manni KSt, barst nýlega bréf frá
Asgeiri, sem skrifað var 10. októ-
ber. Albert gaf okkur góðfúslega
leyfi til að birta kafla úr þvi, og
þar segir Asgeir meðal annars:
„Það er allt það bezta að frétta
af mér — meiðslin, sem háðu mér
framan af, eru nú að mestu leyti
úr sögunni. Þó fæ ég einstaka
sinnum verki i hnéð — sérstak-
lega eftir erfiðar æfingar. Stand-
ard er i fyrsta sæti i 1. deildinni og
ég hef leikið tvivegis með aðal-
liðinu i 1. deildinni og tvivegis
verið varamaður. Við erum hér
sex útlendingar hjá Standard og
þar af eru þrir júgóslavneskir
landsliðsmenn — mjög snjallir.
Tveir þeirra léku áður með
frönskum liðum. Mig hefði ekki
órað fyrir, að æfingar yrðu svo
erfiðar, sem raunin er á hér.
Ég fór nýlega i keppnisför til
Vestur-Þýzkalands og lék með
sem tengiliður gegn Nurnberg.
Við unnum leikinn 3-2. Þá kom lið
frá Marseille hingað og ég lék
gegn þvi. Þann leik unnum við
einnig 2-1. 1 liði Frakka var
sænskur leikmaður, Roger
Magnusson, og var hann bezti
maður þess.
Þeir leikmenn, sem ekki
komast i aðalliðið, leika venju-
lega i varaliðinu sömu keppnis-
daga og aðalliðið. Þar hef ég
leikið sex sinnum — og hef skorað
i öllum leikjunum nema einum”.
Fyrirsögnin hér að neðan er úr
Les Sport á mánudag.
Falla leikir
itala niður?
Ekki vitað í morgun hvort HM-leikurinn
við Itali verður háður í kvöld
Verður leikurinn í heims-
meistarakeppninni við
italíu i kvöld eða verður
ítalska liðið strikað út úr
keppninni,og fyrri leikir
þess í riðiinum gerðir
ógildir? — Þetta voru stóru
spurningarnar í morgun —
en þegar við höfðum sam-
band við íslenzka landsliðs-
hópinn í Róm í morgun
gátu fararstjórarnir ekki
leyst úr þessum spurning-
um. — Þeir gátu ekki svar-
að þvi með nokkurri vissu
hvort júgóslavnesku dóm-
ararnir yrðu komnir i tæka
tíð. Þeir voru farnir að
heiman — með járnbraut-
arlest — vegna verkfalls
flugumferðarstjóra á
italíu.
Júgóslavnesku dómararnir
Juric og Kristic eiga að dæma
leik Italiu—Islands — það var
ákveðið fyrir mörgum mánuðum.
Hins vegar eru Italir algjör
„börn” i alþjóðaviðskiptum á
handknattleikssviðinu, og höfðu
ekki gert neinar ráðstafanir til
þess, að dómararnir mættu
til leiks. Það var fyrsta verk Is
lendinganna að ganga i það mál,
þegar þeir komu til Rómaborgar
a mánudag — og óvist með öllu
hvort það ber árangur.
- Ef ekki verður af leik
Italiu—íslanó . verður framkoma
Itala kærð til Alþjóðahandknatt-
leikssambandsins — og getur nið-
urstaðan þar varla orðið önnur,
en að það dæmi ftali úr keppninni
— fyrri leikir Itala við Islendinga
og Frakka verða þá strikaðir út.
Aðeins tsland og Frakkland
keppa þá um efsta sætið i riðlin-
um, sem gefur rétt i úrslitakeppni
Heimsmeistarakeppninnar, sem
verður i Austur-Þýzkalandi um
mánaðamótin febrúar—marz
næstkomandi. Þar standa Frakk-
ar betur að vigi, þvi þeir sigruðu
sem kunnugt er með þriggja
marka mun i Metz á sunnudag —
en það er munur, sem vel á að
vera hægt að vinna upp hér
heima.
Geir Hallsteinsson á að leika
gegn Italiu og einnig Frakklandi
hérheima eins ógvið skýrðum frá
i blaðinu i gær. Hann lenti i
erfiðleikum vegna verkfallsins á
Italiu — en vonir stóðu þó til að
hann mætti til leiks ef leikið
verður i kvöld við Itali.
Ferðaáætlun islenzka liðsins er
alveg komin úr skorðum vegna
hins óvænta ástands, sem skapazt
hefur á Italiu — og klaufaskaps
Itala. Leikmennirnir höfðu reikn-
að með að koma heim i dag — nú
verða þeir sennilega að taka lest
til Frakklands, og reyna þar að
ná flugvél til Luxemborgar.
Sex á NM!
Sex íslendingar munu
keppa á Norðurlanda-
meistaramótinu i bad-
minton, sem verður háð
i Helsinki dagana 17. og
18. nóvember næstkom-
andi.
Keppendurnir eru Haraldur
Kornelius'kon, Steinar Petersen,
Sigurður Haraldsson, Garðar
Adolfsson, Óskar Guðmundsson
og Friðleifur Stefánsson. Allir
nema Garðar taka þátt i ein-
liðaleik i mótinu — og þrjú pör
verða i tviliðaleiknum.
Þeir Karl Maack, formaður
Badmintonsambands Islands, og
Magnús Eliasson* gjaldkeri þess,
munu fara með hópnum út sem
fararstjórar auk þess, sem þeir
sitja þing Badmintonsambands
Norðurlanda, sem verður háð á
sama tima.
Landskeppni verður við Finna
16. nóvember i Helsinki — daginn
fyrir Norðurlandamótið. Verða
þar háðir fjórir einliðaleikir og
þrir tviliðaleikir.
Rora et Sigurvinsson: deux fortifiants
pour améliorer l’état du Standard
Dave McKay til Derby!
Dave McKay, eitt stærsta
nafniö í enskri knattspyrnu
síðustu tvo áratugina, var í
gær ráðinn framkvæmda-
stjóri Derby County í stað
Brian Clough, sem sagði
starfi sínu lausu fyrra
mánudag vegna ágreinings
við st jórna rforma nn
Derby, Longson.
Siðustu mánuði hefur Dave
McKay verið framkvæmdastjóri
Nottingham Forest, sem leikur i
2. deild, en samkomulag náðist
milli Forest og Derby um að Dave
skipti um starf. Hann verður nú
einn tekjuhæsti framkvæmda-
stjórinn i enskri knattspyrnu —
árslaun hans nema 20 þúsund
sterlingspundum og geta hækkað
i 40 ef góður árangur næst.
Dave McKay var mjög kunnur
leikmaður hjá Tottenham —
fyrirliðiL liðsins um tima, meðal
annars þegar það sigraði i bikar-
keppninni 1967. Hann var oft
valinn i skozka landsliðið, en
Tottenham keypti hann frá
Hearts fyrir smápening — 30
þúsund pund.
I lok leikferils sins réðst
McKay til Brian Clough hjá
Derby — var þar fyrirliðið með
frábærum árangri, þvi Derby
komst strax i 1. deild undir stjórn
þessara manna. Derby gerði
þarna reyfarakaup — fékk
McKay fyrir fimm þúsund
sterlingspund.
Eftir tveggja ára dvöl hjá
Derby réðist McKay til Swindon
og varð þar fljótt framkvæmda-
stjóri — auk þess sem hann lék
með Swindon framan af. Hann
var aldrei ánægður þar og var
fljótur til, þegar Nottingham
Forest — þá i sárum, fallið niður
úr 1. deild, bauð honum fram-
kvæmdastjórastöðu. En dvölin
þar varð ekki löng — frá þvi i vor
— og nú tekur Dave McKay við
einu litrikasta félagi Englands,
sem skipað er mörgum frábærum
leikmönnum.
Vitaspyrna réð úrslitum i
úrslitaleiknum i norsku bik-
arkeppninni á sunnudag.
Strömgodset vann þá Rosen-
borg 1-0 og á myndinni hér að
ncðan sendir Steinar Petter-
sen knöttinn i mark Rosen-
borg úr vitinu. Ullevallvöll-
urinn i Osló litur vel út þó
vetur sé að ganga i garð.
Vinna strákarnir
upp írska markið?
Síðari leikur íslands og Írlands í UEFA-keppninni annað kvöld
Þá er að koma að stór-
leiknum hjá unglinga-
landsliðinu i knattspyrnu í
UEFA-keppninni. Siðari
leikur Islands og irlands
verðurannað kvöld á Mela-
vellinum og hefst kl. 19.30.
Leikið verður i fl ðljósum.
lrar unnu sem kunnugt er fyrri
leikinn, sem nýlega var háður i
Dublin, með eins marks mun 4-3,
og þurfa islenzku piltarnir þvi að
vinna með eins marks mun annað
kvöld til að komast áfram i
keppninni — ef mörkin verða ekki
fleiri en þau sjö, sem skoruð voru
i Dublin — reyndar einu færri til
að tryggja stöðuna.
Þetta ætti að vera möguleiki, þó
svo irska liðið sé skipað sterkum
leikmönnum — meðal annars er
möguleiki á þvi, að Liam Brady,
sem leikið hefur i aðalliðið
Arsenal i haust, verði með i
leiknum annað kvöld. Hann lék
ekki i fyrri leiknum. I gærkvöldi
var æfing hjá islenzka liðinu og þá
tók Bjarnleifur þessa mynd af
æfingunni. Eftir æfinguna voru
eftirtaldir leikmenn valdir.
1) Ólafur Magnússon, Val
2) Guðmundur Hallsteinsson,
Fram
3) Janus Guðlaugsson, F H.
4) Guðjón Hilmarsson, K R.
5) Árni Valgeirsson, Þrótti
6) Guðjón Þórðarson, 1 A.
7) Gunnlaugur Þór Kristfinnsson,
Viking
8) Guðmundur Arason, Viking
9) Hannes Lárusson, Val
10) Óskar Tómasson, Viking
11) Kristinn Björnsson, Val
12) Arni Sveinsson, I A.
13) Ragnar Gislason, Viking
14) Jóhannes V. Bjarnason, Þrótti
15) Hálfdán Orlygsson, K R.
16) Theódór Sigurðsson, F H.
17) Viðar Eliasson, I B V.
Milljón hjó ÍBK
en mestar tekjur af einum leik á Akureyri
Aðsókn að leikjum 1. deildar i
knaltspyrnu' var heldur betri I
sumar en árið áður — meðaltal
1050 á leik gegn 914 árið 1972.
Mestu munaði þar jöfn og góð
aðsókn á leiki Keflvikinga. 1
Keflavik var meðaltalið hæst
1624 áhorfendur á leik að jafnaði,
en Akureyringar komu skammt á
eftir með 1376 áhorfendur á leik.
Hjá Vestmannaeyingum i Njarð-
vik var meðaltalið 962 — á Akra-
nesi 906, en lakast i Reykjavik.
Þar var meðaltalið 884 á 28 leiki.
Keflvikingar höfðu mestan
hagnað af keppninni — eina
milljón 826krónur. Þá kom Valur
með 676.123 krónur og Vest-
mannaeyingar voru i 3ja sæti með
638.155 krónur. Neðst var Breiða-
blik með 497.706 krónur.
Mestar tekjur af einum leik i 1.
deildarkeppninni voru á Akur-
eyri, þegar Keflvfkingar komu i
heimsókn. Sá leikur gaf 312.300
krónur. Tekjuhæsti leikurinn i
Keflavik var milli IBK og Fram
242.850 krónur. Nánar siöar.
Geir með
22 mörk!
Geir Hallsteinsson hefur,
staðið sig mjög vel hjá
Frisch Auf Göppingen —
eftir fjóra leiki i 1. deildinni(
1 Suður-Þýzkalandi var
hann markhæstur hjá félag-
inu með 22 mörk — og ekk-
ert þeirra var þó skorað úr.
vitaköstum.
I tveimur siðustu leikjunum, sem við
höfum haft fréttir af, var Geir marka-
hæstur hjá Göppingen. Helgina 6. 7.
okt. lék Göppingen við TV Neuhausen
á útivelli og sigraði með 19-12 — eftir 7-
2 i hálfleik. Geir skoraði sjö mörk i
leiknum — næstur hjá Göppingen var
Don með þrjú mörk og Bucher skoraði
einnig þrjú mörk — öll úr vitum.
I næsta leik, helgina 13.-14. október,
sigraði GöppingenTV Grossvallstadt á
heimavelli meö 21-18 éftir að hafa
komizt i 9-2 i byrjun og 11-7 i hálfleik.
Geir var einnig markhæstur leik-
manna Göppingen i þeim leik með
fimm mörk — Patzer skoraði fjögur,
Buch og Don þrjú hvor.
Hér á eftir fer listi yfir markahæstu
leikmenninga i suður-þýzku 1. deild-
inni. Tölurnar fyrir aftan eru vitaköst,
sem leikmenn hafa skorað úr.
J. Hahn (SG Leutershausen) 27/2
H. Wehnert (SG Dietzenbach) 26/2
T. Turkaly (TSV Butzbach) 23 6
G. Hallsteinsson (FA Göppingen) 22
M. Múller (TSV Rintheim) 20/5
K. Reusch (TV Neuhausen) 17/9
H. Spengler (TV Húttenberg) 15/2
M. Hádrich (SG Leutershausen) 14
W. Osada (SG Leutershausen) 14/9
A. Böckling (TV GroRwallstadt) 13
P. KuR (TV GroBwallstadt) 13/4
P. Bucher (FA Göppingen) 13/7
F. Bechler (TSV Rintheim) 10
P. Epple (FA Göppingen) 10/2
A. Kotlas (TV Húttenberg) 10/2
Staðan
Eftir fyrstu Icikina i
suður-þýzku 1. deildinni i
handboítanum er lið Geirs
Ilallsteinssonar, Göpping-
en, i efsta sæti ásamt tveim-
ur öðrum félögum með sex
stig.
Göppingen hefur tapað einum leik og
einnig TSV Butzbach —.en hins vegar
hefur TSV Rintheim ekki tapað leik —
unnið alla leiki sína, þrjá að tölu.
Staðan i riðlinum 17. október var
þannig:
3 3 0 0 56:45
4 3 0 1 77:65
4 3 0 1 62:62
3 2 1 0 47:39
4 2 0 2 76:62
3 111 37:46
3 1 0 2 50:49
4 0 0 4 60:80
4 0 0 4 47:67
TSV Rintheim
Fé Göppingen
TSV Butzbach
TV Húttenberg
SG Leutershausen
TSV Milbertshofen
TV GroBwallstadt
SG Dietzenbach
TV Neuhauson
Sá 37 ára
rotaði
Ilinn 37 ára heimsmeistari i fjaður-
vigt, Braziliumaðurinn Eder Jofre,
varði titil sinn i Salvudor i Brazillu á
sunnudag gcgn Viccnte Saldivar frá
Mexikó — miklu yngri kcppinaut.
Keppni þeirra átti að vera 15 lotur —
en stóð ekki nema i tæpar fjórar, þvi
þá hafði Jofre slegið mótherja sinn
niður — rothögg. Fyrir keppnina hafði
hann sagt, að þetta yrði sinn siðasti
leikur — en skipti um skoðun eftir að
hafa leikið sér að Mexikananum. Jofre
vann heimsmeistaratitilinn fyrr á
þessu ári, þegar hann sigraði Jose
Legra á Spáni.