Vísir - 24.10.1973, Qupperneq 16
visir
Miðvikudagur 24. október 1973.
FJÓRTÁN
í AFTANÁ-
KEYRSLUM
— ó stuttum
vegarkafla
Fjórtán uröu þeir, bflarnir, semt
lentu i árekstrum á kafla á Miklu-
brautinni í gær, á aðeins einum
klukkutima.
Fyrsti áreksturinn varð um,
klukkan 17.20 Þá höfðu nokkrir
bílar stöðvað við gatnamót Háa-
leitisbrautar og Miklubrautar,
vegna þess að sjúkrablll var við
þau gatnamót meö blikkandi l]ós.
Bíll kom aövifandi austur Miklu-
brautina, lenti aftan á einum sem
stóð kyrr, og kastaði honum á|
aðra tvo bila.
Bllstjóri bilsins viðurkenndi
fyrir lögreglunni, að hann hefði
ekið á talsveröum hraöa.
Meðan veriö var að rannsaka
þennan árekstur, hlóöst upp bila-
röð fyrir aftan, á hægri akrein
Miklubrautarinnar. Og það skipti
engum togum, aö tiu bHar i viöbót
fóru hver aftan á annan i röðinni,
sem myndaöist.
Röðin teygðist sffellt lengra að
Kringlumýrarbrautinni, og
árekstrarnir urðu meö talsveröu
millibili. Það stóðst á endum, að
röðin var komin að Kringlu-
mýrarbraut, og þá um leið
árekstrasúpan, þegar fór að
rýmkast um blla og menn hinum
megin.
Allir voru bilarnir með fullum
ljósum. A þeim tima sem þessir
árekstrar urðu, er langmest
umferð farartækja á götum
borgarinnar.
Þrir slösuðust í þessum
árekstrum, svo flytja varð á
slysadeild.
—ÓH
Fyrsta stereo-útsendingin
reynd hér í síðustu vikul
— Frumstœð tilraun útvarps- og sjónvarpsstöðvar varnarliðsmanna við
útsendingu ó hljóðfœraleik islenzkrar hljómsveitar
Fyrsta stereo-útsendingin hér
á landi átti sér staö aðfaranótt
siðasta laugardags. Það voru
útvarp og sjónvarp varnar-
liðsins, sem stóðu að þeirri út-
sendingu sameiginlega, en það
sem sent var út I stereo var
hljóöfæraleikur Islenzkrar
hljómsveitar.
„Þetta átti sér allt saman
mjög stuttan aðdraganda”,
sagði Pétur Kristjánsson,
söngvari hljómsveitarinnar
Pelikan, I viðtali við VIsi. „Við
höfðum verið að spila fyrir
dansi i „Top Of The Rock”, sem
er klúbbur fyrir varnarliðs-
menn. Þegar viö vorum um það
bil að ljúka leik okkar þar,
komu til okkar tveir hressir
strákar og stungu upp á þvl, að
við kæmum með þeim upp I
sjónvarp til að spila þar nokkur
lög. En þá stóð einmitt yfir hin
umtalaða maraþon-dagskrá”.
„Viö slógum til, þó þreyttir
værum”, hélt Pétur áfram frá-
sögn sinni. „Strákarnir i sjón-
varpsstöðinni tóku okkur opnum
örmum og hljóðfærin okkar
voru komin upp klukkan að
verða hálf þrjú um nóttina.
Þegar svo kom aö þvi að stilla
upp hljóönemanum fékk
einhver þá snjöllu hugmynd að
gera tilraun með stereo-út-
sendingu. Sú hugmynd var
gripin á lofti og náð i annan
hljóðnema inn i sali útvarps-
stöðvarinnar, sem er undir
sama þaki og sjónvarpiö. Siðan
voru hljóönemarnir settir niöur
sinn til hvorrar handar viö
hljómsveitina og hlustendum
tilkynnt, að ef þeir vildu njóta
hljómlistarflutnings okkar til
fulls, yrðu þeir að hafa
samtimis i gangi útvarp sitt og
sjónvarp. Þannig næðu þeir
fram þessari fyrstu tvíviddar-
útsendingu”.
Pelikan léku siðan I sjón-
varpssal fram til klukkan sjö
um morguninn, en hlustendur
urðu að greiða fyrir hverja
minútu. Þannig aö ef eitthvert
lát varð á kaupunum gerði
hljómsveitin hlé á leik sinum.
En eins og fram hefur komið i
fréttum, var þessi marabon-
dagskrá liöur i fjársöfnun
liknarfélaga ýmiss konar á
vellinum.
Stereo-útvarp mun eiga
nokkuð langt i land hérlendis og
ótrúlegt, að islenzka rikisút-
varpið fari hina frumstæöu leiö
Keflavikurstöðvarinnar.
Allt útlit er fyrir, að
Færeyingar ætli að verða á
undan okkur meö stereo-út-
varpsútsendingar. —ÞJM
A þessum kafla Miklubrautarinn-
ar náðu 14 bilar aö skemmast
meira eöa minna I
aftanákeyrslum I gærdag. Fýrstu
árekstrarnir urðu uppi á brún-
inni, þar sem jeppinn er, og sá
siðasti hjá bilnum sem er næstur.
Hlutföllin i myndinni skekkjast
aðeins, þvi myndin er tekin með
aðdráttarlinsu. Ljósm: Bragi.
Viðtöl við foringja flokkanna:
„MISSKIININGUR AÐ ÞETTA
VÆRU ÚRSIITAKOSTIR"
segir Ragnar Arnalds — uppkastið tilbúið í nœstu viku
A «n m niifinlnmiin fnnrlí m Ali/S Q/S fforo Hinc llOffor vrM Kneum I o rtf'ni'i n rt nm hi
,,A saineiginlegum fundi
utanrikismála- og landhelgis-
nefndar I gær töldu fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins, Matthlas
A. Mathiesen og ég, eðlilega þá
málsmeðferð, sem forsætisráð-
herra lagöi þar til. Þaö var aö
fela utanrlkisráðherra að vinna
að samkomulagsuppkasti á
grundvelli viðræðna forsætis-
ráðherra tslands og Bretlands,”
segir Geir Hallgrimsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, i
viðtali við Visi. „Þetta sam-
komulagsuppkast yrði slðan
lagt fyrir Alþingi með þings-
ályktunartillögu til endanlegrar
ákvörðunar, væntanlega um
miðja næstu viku.”
Þórarinn Þórarinsson (F),
formaöur utanrikismálanefnd-
ar, taldi einnig, að búast mætti
við að samningsuppkastið lægi
fyrir um miðja næstu viku. Það
yrði þá lagt fyrir þingflokkana.
Fariö yröi að eftir diplómatisk-
um leiðum við gerð uppkastsins,
sem þýddi i praxis, að utanrik-
isráðherra hefði mest meö
málið aö gera. Hins vegar yrði
fullt samráð haft við dóms- og
s jávarútvegsráðuney ti.
„Rikisstjórnin hefur i sam-
ráði við stjórnarflokkana
ákveðiö að vinna aö samkomu-
lagsuppkasti i samræmi við þær
niöurstöður, sem fengust I við-
ræöunum i London. 1 samnings-
uppkastinu á i fyrsta lagi að
taka tillit til þeirra tillagna, sem
ólafur Jóhannesson lagði fram,
aö þvi leyti sem þær voru frá-
brugðnar tillögum Heaths,”
segir Ragnar Arnalds,
formaöur Alþýöubandalagsins,
I viðtali viö Visi. „I öðru lagi
þarf að fá á hreint ýmis atriði,
sem ekki koma nógu skýrt
fram, þar á meðal það, sem viö
Alþýðubandalagsmenn höfum
lagtmeistaáherzlu á, að ljóst sé,
aö Islendingar úrskurði, hvort
um brot sé að ræða og hafi
framkvæmd um meöferð slikra
mála. Alþýðubandalagið
samþykkti að undirbúa þetta
uppkast með þeim fyrirvara og i
trausti þess, að unnið yrði að
þesum lagfæringum. Þegar
málið liggur ljósar fyrir, mun
rikisstjórnin taka ákvörðun.
Viökomandi fagráðuneyti, utan-
rikis-, dóms- og sjávarútvegs-
ráðuneytin, munu i samstarfi
vinna að uppkastinu. Þaö er al-
rangt’,’ segir Ragnar, ,,að
Alþýðubandalagið hafi nú
breytt afstöðu. Við lögöum
áherzlu á, aö viö gætum ekki
fallizt á tillögur Breta og bent-
um á nokkur atriði, sem þyrftu
lagfæringar við.”
Ragnar segir, að það hafi
veriö vegna misskilnings”, að
Alþýöubandalagiö hélt þvi fram
i fyrstu, að samningsdrögin i
London væru „úrslitakostir”
Breta. Hann vildi ekki greina
nánar frá, af hverju sá mis-
skilningur hefði stafað, en
sagði: „Við töldum upphaflega,
að um úrslitakosti væri að ræða
og töldum málið komið i hnút.
Siöar hefur verið upplýst, að
ekki sé um úrslitakosti að
ræða.”
— HH
STROMPUR
EVDfD
15 MILLJÓNIR?
— Hafnfirðingar reyna að leysa ólyktarvanda
sinn með 70 metra háum reykháf
70 metra hár plast-strompur á
væntanlega eftir aö tróna yfir
Hafnfirðingum i framtíðinni.
Lýsi og Mjöl h.f. I Hafnarfirði,
getur átt von á þvi, aö fyrir
tækinu verði iokað, hafi þvi ekki
tekizt að leysa „f.ýlu-vandamál”
sín fyrir næstu loönuvertið.
1 fyrravor setti bæjarstjórn
Hafnarfjarðar fyrirtækinu að
byggja stromp eða fá sér annan
útbúnað, sem eyddi ólykt, sem
hingað til hefur verið látin
ganga yfir bæjarbúa i
Firðinum, og valdið mikilli
óánægju og óþægindum, svo
ekki sé meira sagt.
1 sumar og haust hafa staöið
yfir talsverðar rannsóknir þar
suður frá og viröist mönnum nú,
að helzt sé aö byggja háan
stromp, eigi að losna við fýluna.
Auglýst voru útboð, en aðeins
eitt fyrirtæki sinnti þvi. Var það
brezkt fyrirtæki, sem hefur
boðizt til aö reisa I Hafnarfirði
70 metra háan stromp úr plast-
efni („glass-fieber ”).
Strompurinn við Klett i Reykja-
vik, er einmitt 70 metra hár.
Sérfræöingar telja, að varla tjói
annað en hafa reykháfinn
a.m.k. 70metra háan, eigi hann
aö losa heilt bæjarfélag við
ólykt, beina bræðslupestinni út i
himingeiminn.
Bretarnir sem vilja byggja
plast-strompinn fyrir Hafn-
firöinga, ætla að flytja hann til
landsins og setja hann saman
hér. Sagði Kolbeinn Jónsson,
framkvæmdastjóri Lýsis og
Mjöls h.f. við Visi I morgun, að
áætlað innkaupsverö stromps-
ins væri kringum 10 milljónir
króna. „Viö eigum eftir að hafa
tal af ráðuneytinu hér, varðandi
tolla og önnur gjöld af reyk-
háfnum”, sagöi Kolbeinn, „við
getum vist búizt við 30% tolli af
honum og söluskatti að auki, og
þannig gæti verðiö farið i 15-20
milljónir. Þaö er allt of dýrt
fyrir okkur. Viö ráöum ekki við
þaö. Nú I vikunni erum við að
kanna þessi peningamál, en
vonandi verður hægt að taka
ákvörðun um máliö i vikunni”.
Sem fyrr segir getur Lýsi og
Mjöl h.f. ekki tekið við loönu til
bræðslu i vetur, hafi verk-
smiðjan ekki leyst fýluvanda-
málið.
—GG