Vísir - 27.10.1973, Blaðsíða 5

Vísir - 27.10.1973, Blaðsíða 5
Vísir. Laugardagur 27. október 1973 5 ERLEND MYNDSJÁ Umsjón Guðmundur Pétursson P-®fw§i ■ ■ ■ • ■ : ■ : Vopna- hlé og farnir heim Þeir eru léttstigari þessir en fyrir 19 dögum. Enda eru þeir núna á leiðinni heim, en voru á leið á vigvöllinn fyrir byssukjaftana fyrir þrem vikum. Fórnardýr flóða Enn er alltóvlst um, hver margir i raun og veru hafa drukknað i fióð- unum miklu á Suður-Spáni. Um siðustu heigi höfðu fundizt lik 12S. Um miðja viku gizkuðu menn á, að dánartalan væri um tvö hundruð. En undir vikulokin eru menn farnir að halda, að það séu nær 500, sem týnt hafa iifinu i þessum hamförum. Þúsundir manna eru taldir hafa misst heimili sin, sem skolazt hafa burt I rigningarvatninu, en það eru óvenjumikiar úrkomur, sem vaidið hafa flóðunum. Á myndinni hérna fyrir neðan sést hvar haidin var minningarathöfn I Puerto Lumbrera I héraðinu Murcia yfir nokkrum hinna látnu. FIB-MÁLIÐ Upp er risið mál i Sviþjóð, sem sprottið er af skrifum blaðsins „Folket i Bild” um að leyniþjónusta sé I Sviþjóð, sem í SVÍÞJÓÐ sé i nánum tengslum við CIA, ley niþjónustuna i Banda- rikjunum og lcy niþjónustu NATO. (Jerð hefur verið húsleit á rit- stjórnarskrifstofum FIB og þrir hlaðameun hnepplir i varðhald. I l'yrslu þvertóku yfirvöld fyrir tilveru leyniþjónustunnar, sem var tilefni skrifanna, en siðan viðurkenndu þau, að hún væri starfandi. LÁTTU GANGA LJÓÐA SKRÁ Sigurgeir Þorvaldsson sendi þættinum ágættbréf, sem ég þakka fyrir. Sigurgeir hefur eins og mörgum er kunnugt gefið út tvær ljóðabækur og er með þá þriðju i handriti, en úr þvi er fýrsta vísan i þætt- inum. Hún lýsir vorinu 1973. Vorið hefur verið kalt. varla neinn það gleður. Ennþá reynist úti svalt algjört skitaveður. 1 bókinni hans, Hrærigrautur, er þessi visa aftur á móti, og kveður þar við annan tón. íslands bliða árdagssól yijar hliðum grænum, fjöllin iskrýðir fögrum kjói, feldi prýðir vænum. Þannig er Sigurgeiri aftur á móti innan- brjósts, þegar veturinn nálgast. Haustið liður hægt og þétt, harður biður vetur. Innan tiðar undur létt að mér kviða setur. Úr bókinn Hryðjuverk og hringhendur sendir hann eftirfarandi visur. Sú fyrsta er ort eftir heimsókn á elliheimili: Öllum hrakar, ellin þver illa þjakar suma hér. Ef þeir mjaka áfram sér, i þeim braka mikið fer. Næsta visa ber yfirskriftina Ófýsileg endalok. Endurgoldið enginn fær allt, sem foldu lýtur. Endar holdið oftast nær eins og mold og skitur. Siöustu visuna, sem ég birti að þessu sinni eftir Sigurgeir, tileinkar hann konu sinni: Elsku hjartans yndið mitt, ekki kvarta máttu. Góða, bjarta geðið þitt, gjarnan skarta láttu. Og þá eru það botnarnir, og eru þeir fremur ófriðlegir, en i þeim var að finna fjórar tegundir striðs. Nú skal efla óðarsmíð og andans stefnu halda. Þeir, sem holdsins heyja strið heimsku sinnar gjalda. Bj.Þ Ýmsum þó að ógni strið og æsing stjórnarvalda. L.J. Bragnar horskir heyja strið við heimskuna jökulkalda. I.Þ. Arabanna ógnar strið ýmsa kann að gjalda Sigurgeir Þorvaldsson Yrki þvi i erg og griö, öllu mun ég tjalda Sigurgeir Þorvaldsson. Kossum rcflarósin blið rckk skal vcfnað gjalda. G.Ag Snati sendi þættinum visur, sem hann kallar Um daginn og veginn. Er þar komið viða við. Ég get ekki birt bréfið i heild.en um útkomu bókar segir þar. Frá útgefendum berast boð um bókakost i hrönnum, er það mikil andleg stoð öllum læsum mönnum. Meðal bóka ein þó er eflaust hæst á blaði. Kaunir sinar rekja hér Ragnheiöur og Daði. Af himnum ofan heimildir höfundarnir fengu. Aður löngu upphafnir andar milli gengu. Iiygg ég reyni hjörtun á að heyra sögu slika. Þar mun Kamban þokaö frá og Þorstcini vist lika. Sagnfræðingur sérhver má sannlega verða feginn. Inn á band nú allt má fá hjá öndunum hinum megin. Ég þakka Snata fyrir hans innlegg i þáttinn. Fyrir utan næsta fyrripart verður ekki kveðið meira að sinni Bjarni Guðna ennþá er illindum að valda. Ben. Av

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.