Vísir - 27.10.1973, Page 6
6
Vlsir. Laugardagur 27. október 1873
VÍSIR
Ctgefandi:-Reykjapi;Bnt hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
> Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611
Afgrei&sla: Hverfisgötu 32. Slmi 86611.
Ritstjórn: Slftumúla 14. Slmi 86611 (7,lfnur)
Áskriftargjald kr. 360 á mánuöi innanlands
i iausasölu kn 22:00 eintakiö.
Blaftaprent hf.
Ósigur Araba
' Sovétmenn hótuðu að senda hersveitir til
Mið-Austurlanda, og bandariski herinn var tilbú-
inn til bardaga. Risaveldin skóku brandana, þótt
þau hefðu fyrir örskammri stundu staðið saman
að þvi að fá vopnahléi framgengt.
Þau ganga væntanlega ekki lengra, enda yrði
næsta skrefið beint fram af brún hengiflugsins.
Friðargæzlusveitir á vegum Sameinuðu þjóðanna
munu sennilega taka sér stöðu milli herjanna og
reyna að hafa hemil á striðsmönnunum.
Þvi getum við nú helzt reiknað með vopnahléi,
liklega i nokkuð svipuðum dúr og eftir sex daga
striðið 1967. Búast má við, að róstusamt verði og
misjafnlega fari um virðinguna fyrir vopnahlés-
samningum, en þó sitji mestmegnis við það
sama um stöðu herja fyrst um sinn. Á þeim
grundvelli, hvað hin striðandi riki hafa unnið eða
misst á öllu saman, verður siðan reynt að fá þau
til varanlegri samninga um frið. Þvi skiptir
mestu, hverju striðið hefur breytt i viðhorfum og
valdahlutföllum rikja Mið-Austurlanda.
Arabar hófu þetta strið. Fyrir þeim vakti að
endurheimta sem mest af þeim svæðum, sem
þeir misstu i hendur ísraelsmanna i sex daga
striðinu. Þeir hugðust ná þvi takmarki með
óvæntri árás. Nú sést, svo að ekki fer milli mála,
að ávinningur Araba er enginn.
Egyptar halda að visu enn allnokkru landsvæði
á Sinai-skaga sem ísraelsmenn réðu fyrir striðið.
En á móti kemur, að Israelsmenn hafa náð
töluverðu svæði vestan Súezskurðar, i Egypta-
landi sjálfu, og fréttum ber nokkuð saman um, að
herir Egypta á Sinaiskaga séu illa komnir, svo að
ósigur hefði sennilega blasað við, ef lengur hefði
verið barizt. Á móti kemur ennfremur það, að
ísraelsmenn hafa hernumið talsvert landsvæði i
Sýrlandi, sem þeir réðu ekki fyrir striðið. Að öllu
samanlögðu geta Arabar ekki stært sig af neinum
landvinningum i þessu striði, og mundu það vafa-
laust teljast hagkvæm skipti fyrir þá, ef stokkað
yrði upp og hver fengi aftur það, sem hann hafði
fyrir striðið.
Arabar hafa tapað meira. Þrátt fyrir harð-
neskjulegt viðhorf Israelsmanna á undanförnum
árum voru þó rökstuddar vonir um, að þeir fengj-
ust til að skila Aröbum aftur talsverðum hluta af
herteknu svæðunum, ef friðarsamningar fengj-
ust. Þær vonir eru nú næstum horfnar.
Israelsmenn munu i allri framtið geta haldið þvi
fram, með augljósari rökum en áður, að þeim sé
nauðsynlegt að halda þessu landi, Sinaiskaga og
Golanhæðum sem eins konar „höggdeyfi” fyrir
sitt litla land gegn hugsanlegum árásum Araba.
Þar sem sá Arabaleiðtogi hefur enn ekki fundizt,
sem þyrði að semja við ísraelsmenn á þeim
grundvelli, að þeir haldi herteknu svæðunum,
virðast friðarsamningar vera fjarlægari en áður.
Það er að visu rétt, að ísraelsmenn höfðu miklu
auðveldari sigur i sex daga striðinu en i þessu
striði. Það kom ekki á óvart, þar sem Sovétmenn
höfðu hervætt Arabarikin á timabilinu og Arabar
áttu fyrsta leik i þessu striði, en Israelsmenn i
hinu fyrra. Israelsmenn vissu, að Arabarikin
voru öflugri en áður, og þurfti ekki strið til að
sanna þeim það. Þetta eru þvi engar sárabætur
fyrir Araba. Þeir hafa beðið algeran ósigur.
— HH
Öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna sam-
þykkti eins og kunnugt
er af fréttum að senda
friðargæzlusveitir til
Austurlanda nær, en i
þeim sveitum verður
enginn dáti frá Banda-
rikjunum, Sovétrikjun-
um, Kina, Stóra-Bretlandi
eða Frakklandi.
Þaft var grundvöllur samkomu
lagsins, aft ekkert þessara fimm
fastameftlima öryggisráftsins
sendi mann. Meft því skyldi
leystur hnúturinn, sem upp kom,
þegar Sovétrikin höfftu vift orft aft
senda herlift til þess aft sjá svo
um, „aft Israelsmenn virtu
vopnahléið”, og Bandarikin
kvöddu her sinn til vopna til þess
aft vera til taks fyrir vini sina i
tsrael.
Hvaðan þéssar friftargæzlu-
sveitir eiga að koma, var ekki
ákveftift nánar en svo, aft þær
eiga aft koma frá einhverju
aftildarriki Sameinuðu þjóðanna.
Hitt var þó ákveðift, aft þær
skyldu lúta vilja og fyrirmælum
öryggisráftsins.
Þó voru strax sendir hópar
friftargæzlumanna, eftir aft báftir
aftilar lýstu þvi yfir, að þeir
mundu verfta vift áskorun
öryggisráftsins um aft gera hlé á
bardögunum. Það voru hermenn
frá Argentinu, Noregi og Austur-
riki.
Nokkrum rikjum hafa borizt
fyrirspurnir um, hvernig þau
mundu taka málaleitan eins og
þeirri, aft senda eftirlitsmenn á
ófriftarsvæftift. Þar á meftal eru
Friftargæzlusvcitir Kanada, Póllands (horfir I sjónaukann) og
Indónesiu höfftu nær horfift aftur frá störfum í Vietnam vcgna vanskila
á greiðslum upp i kostnað.
Friðargœzlan
með Aröbum
og fsrael
Sviþjóft og Finnland. Ekkert
hefur frétzt um, hvernig þau hafa
tekift þessari hugmynd.
En heyra má á framkvæmda-
stjórn S.þ., aft þarna er um aft
ræfta ekki svo litinn herstyrk, sem
kemur til meft aö þurfa vift vopna-
hléseftiriitift. Nefndar eru tölur
eins og 6000 menn.
Nú vill svo vel til, aft frá fyrri
tift er vift lýfti útkvaftningarkerfi,
sem Sameinuftu þjóftirnar geta
gripift til. Nokkur aðildarriki hafa
ávallt tiltæka flokka hermanna,
sem S.þ. geta kallaft út til varft-
stöftu. En þaft getur tekift nokkra
daga aft koma þeim fyrir.
Kostnafturinn af sliku manna-
haldi er þó ekkert smáræfti. Þaft
er talaft um fleiri hundruft
milljóna króna til þess aft standa
straum af herlifti á borft vift 6.000
manna friftargæzlusveit. Þó er
ekki þar i reiknaftur launakostn
afturinn, enda er hann ekki
mikift atrifti. Rikift, sem útvegar
hermanninn, greiftir honum mála
hans, enda heffti þaö hvort sem er
haft hann á launum. En þaft er
ferftakostnaftur og uppihald, sem
er aftalkostnaftarhitin. Þetta er
þó smáræfti miftaft vift strifts-
rekstur aðila málsins.
En kostnaftinum verftur skipt á
milli hinna ýmsu aftildarrikja
Sameinuöu þjóftanna. Þetta atrifti
bar á góma, þegar tillagan um
friöargæzluna var rædd, og þá
hélt Jakob Malik, fastafulltrúi
Sovétrikjanna, þvi fram, aft i
raun réttri ætti árásaraftili strifts-
ins aft bera kostnaftinn, miklu
frekar en Sameinuðu þjóftirnar.
Þessi hugmynd nær þó auftvitaft
aldrei fram aft ganga, jafnmikift
og menn greinir á um, hvor hafi
átt upptökin.
Kostnaftarhliðin er nokkuft, sem
menn vilja ekki setja fyrir sig,
þegar um er aft ræfta að reyna aft
halda friðinn og spara manns-
lifin. Hún kann þó vel aft vera þaft,
sem friftargæzlan öll veltur á.
Eftir aft samift var um vopnahlé í
Víetnam og fengin voru riki til
llllllllllll
Umsjón
Guðmundur
Pétursson
þess aft senda þangað herlift til
eftirlits með þvi, aft vopnahlés-
skilmálarnir væru virtir, þá hafði
kostnaðurinn nær kippt fótunum
undan þvi eftirliti. Sameinuftu
þjóftirnar lentu i vanskilum með
greiftslur til aft standa straum af
uppihaldskostnaftinum, og
munafti vist ekki svo ýkja miklu,
aft þaft yrfti gert aft frágangssök
og að eftirlitsþjóðirnar gengju
frá. Af þvi varft þó ekki.
Efnahagur Sameinuftu þjóft-
anna býftur heldur ekki upp á
slikt mannahald, og hlýtur þetta
aft leifta af sér auknar álögur fyrir
aftildarrikin. En sennilega setur
enginn þaft fyrir sig, ef þaft gæti
leitt til þess, aft vopnahléift yrfti
virt.
Hermafturinn getur kannski snúift aftur heim, en þótt friftargæzlu-
sveitir komi á vettvang, getur hann ekki verift viss um aft eiga langa
hvlld framundan. Fyrir sex daga strfftiö rak Nasser Egyptalands-
forseti friftargæzlusveitir S.Þ. heim.