Vísir - 27.10.1973, Blaðsíða 9
9
Vísir. Laugardagur 27. október 1973
Hér er Frank Zappa aö leik. Hann stendur hér frammi fyrir 16
þúsund áheyrendum i stórum skemmtigaröi viö upphag mikilla
hátiðahaida. Þar voru Frank Zappa and The Mother of
Invention og áttu aö trekkja aö. Samkvæmt upplýsingum NTB
var samanlögö þyngd hljóöfæra hljómsveitarinnar ekki undir 8
tonnum . — En hvernig hijómiist spiia svo „Mæöurnar”? Sjá fá-
ein orö um þau herlegheit:
Hans aðal-
skemmtun er
að koma
á óvart
Mothers: Over-Nite
Sensation
Siðustu tvær plötur
Frank Zappa, Waka
Javaka og Grand
Wazoo, voru leiðinleg-
ar og misheppnaðar',
hjá Zappa. Á þessum
plötum hafði hann sér
til aðstoðar um 20
manns, sem flestir
leika á blásturshljóð-
færi. Auk þess, sem
hann gerði tvær plötur
með þessu fólki, þá fór
hann lika i hljóm-
leikaferð með þvi.
En það kom fljótt á daginn, að
rekstrargrundvöllur var ekki
fyrir hendi. Kom þar tvennt til,
plötur þeirra seldust illa og von-
laust reyndist að halda uppi
svona stórri hljómsveit, enda
sagði Zappa skilið við flest þetta
fólk eftir að Evrópuferð hljóm-
sveitarinnar endaði með þvi, að
Uncle Meat varð að borga 2.000
dollara úr eigin vasa, til þess að
ferðin stæði undir sér.
Nú varð að gripa til skjótra
ráða. Zappa ákvað að nú skyldu
mæðurnar aftur fara á stjá.
Hann fékk sér til liðsinnis
nokkra góða tónlistarmenn,
bæði gamla félaga og riýja.
Zappa vissi að vinsældir hans
höfðu minkað mikið við tvær
fyrrnefndar plötur, og þar sem
Zappa er snillingur (að visu
misskilinn af sumum, en það
mun ekki óalgengt um
snillinga) þá var hann skjótur
að hrista fram úr annarri
erminni efni í eina plötu, og er
sú plata nýkomin út og heitir
„Over-Nite Sensation”. Eins og
áður sagði eru þeir, sem hann
hefur sér til liðsinnis allir góðir
hljóðfæraleikarar, auk þess sem
Zappa er góður gitarleikari, og
verður þvi ekki aö hljóðfæraleik
þeirra fundið. Zappa sér sjálfur
um mest-allar raddir, talar
bæði og syngur. t flestum text-
um plötunnar klæmist hann af
miklum krafti bæöi það og-að
lögin eru „commercial”, þó
handverk Frank Zappa sé
auðþekkt á öllum á „Over
Nite Sensatior.”eftir að verða
söluhæsta plata, sem Mothers
hafa gert til þessa. En i siðustu
viku fór platan úr 82. sæti í 57.
sæti bandaríska listans, sem er
frábært, , sérstaklega þar sem
siðustu plötur Zappa gerðu
ekki nema réttað skriða inn á
topp 200.
Þvi miður, þá kann ég ekki
fullkomiega að meta þetta
framlag Zappa, þó platan eigi
örugglega eftir að falla hinum
staðföstu aðdáendum hans vel i
geð og auka vinsældir hans
meðal annarra til muna. Þó
platan sé ágætlega gerð, þá
ganga klámbrandararnir fljótt
úr sér, og þvi verður platan
leiðigjörn. Og meðan ég hlusta á
hana, velti ég þvi fyrir mér.
Skyidi þetta vera sami Frank
Zappa, sem fékk veröídina til að
hlæja að sjálfum sér, með
plötum eins og Absaloutly Free
og We’ re Only In It For the
Money, eða skyldi það geta
verið að Frank Zappa væri að
verða þurrausinn? Nei, þvi get
ekki trúað, þvi eins og áður
sagði, þá er Frank Zappa
snillingur, og hans aðal-
skemmtun er að koma á óvart,
og það tekst honum svo sannar-
lega.
„PARDON",
SAGÐI BENITO
GAROZZO
„Þeim skýzt, þótt skýrir séu",
varð mér að orði eftir ieikinn við
Kvrópumeistarana, ítali. Enda
þótt sigur þeirra væri sannfær-
andi i tölum, þá gáfu þeir oft
höggstað á sér, sem við náðum
ekki að nýta sem skildi.
Við vorum 14 undir i hálfleik, en
það gat hæglega snúizt við, ef tvö
game, sem töpuðust, hefðu unn-
izt. Annað stóð á borðinu, en hitt
var hægt að vinna og það gerði
Garozzo. t fyrri hálfleik stilltu
ltalir upp þannig, að sinn heims-
heistarinn var i hvorum sal, Gar-
ozzo á móti Franco, en Bella-
donna á móti Vivaldi. Hjalti og
Asmundur spiluðu við Garozzo en
Jón og Páll við Belladonna.
Ekki fannst þeim staðan i hálf-
leik nógu sannfærandi og fluttu
meistararnir sig saman i seinni
hálfleik. Fengu áhorfendur i opna
salnum þá að sjá slemmutækni
þeirra, og gekk á ýmsu.
Hér er sú fyrri. Staðan var allir
á hættu og vestur gaf.
A 9-7-6-2
V4
O D-G-3-2
+ G-9-7-4
* A
V A-D-6-5-3
* 9-8
* A-K-D-8-6
* D-10-8-5-4-3
V 10-8-7
♦ A-10-6
*10
*K-G
V K-G-9-2
♦ K-7-5-4
* 5-3-2
t lokaða salnum gengu sagnir á
þessa leið:
Vestur Norður Austur Suður
Falco Stefán Franco Karl
P 1* 1* 1 G
2* P 4 V
P •i* P r 4
P 5* P 5) ▼ 6 V
ttalirnir lyktuðu af fórninni, en
hættu við. Austur spilaði út hjarta
og Stefán fékk auðveldlega tólf
slagi.
Eftir leikinn, meðan við biðum
eftir að spilamennsku væri lokið i
opna salnum, barst þetta spil i tal
við franska stórmeistarann
Svarc. Hafði ég veika von um
það, að Belladonna og Garozzo
færu i sex grönd til þess að vernda
tigulkónginn l'yrir gegnumspili.
Þar eð laufið fellur ekki, þá fást
ekki nema 11 slagir. „Vertu ekki
að vona það”, sagði Svarc, „þeir
spila sex hjörtu lika, en hjá þeim
verður suður sagnhafi.”
Og vikjum sögunni i opna sal-
inn:
Vestur Norður
Hjalti Bellad.
P 1*
P 2*
P 4*
P 4 G
P 6V
Austur Suður
Asm. Garozzo
1 G
34
4V
5*
Ailir pass
P
P
P
P
Einfalt, ef maður, veit hvernig
á að fara að þvi. En nokkrum
spilum seinna fór allt úr sam-
bandi á báðumtoorðum. Staðan
var allir á hættu og suður gaf.
* A-9-7-4-3
V G-9-8-5-2
* K-10
* D
♦ G-10
t
ekkert
9-0-5-3
A-K-G-10-9-6-3
*
V
t
8-6-5
7- 6-4-p
A-8-2
8- 5-4
* K-D-2
V A-K-D-10
* D-G-7-4
* 7-2
1 lokaða salnum drógu hinir
ungu Italir doblið úr sliðrum og
hin ótrúlega sagnseria var
þannig:
Suður Vestur Norður Austur
1 G 2* D P
3* D 3* P
4* D 5V D
P P P
Austur spilaði út laufi, en
Stefán tók sina upplögðu 11 slagi,
850til tslands. Legan er samt svo
svivirðileg, að spili austur hjarta
i fjórum spöðum, þá tapast þeir.
En nú skulum viö athuga sagnir
heimsmeistaranna:
Suður Vestur Norður Auslur
1* 3* 3 * P
4* P 5* P
5» P 6? P
P P
Hjalti spilaði út laufaás og
siðan tigli i. tsland bætti lOOviðsig
og grædd i 14 IMP á spilinu.
„Pardon”, sagði Garozzo, en
Belladonna yppti öxlum.
Nú er lokið fjórum umferðum i
meistarakeppni Bridgefélags
Iteykjavikur og þar mpð fyrri
hluta keppninnar. Tvær úr-
slitaumferðirnar, sem eftir eru,
verða spilaðar með Baromete1
formi. Staða efstu para er nú sem
hér segir:
1. Hörður Blöndal og
Simon Simonarson....... 985
2. Guðlaugur Jóhannsson og
örn Arnþórsson ........ 959
3. Hermann Lárusson og
Sverrir Armannsson..... 954
4. Hannes Jónsson og
Oliver Kristóferss.... 941
5. Asmundur Pálsson og
Stefán Guðjohnsen...... 933
6. Jón Ásbjörnsson og
Páll Bergsson ......... 917
7. llilmar Guðmundsson og
Jakob Bjarnason ....... 917
8. Guðmundur Pétursson og
Jón lljaltason ........ 908
9. Gylli Baldursson og
Sveinn Helgason........ 907
10. llallur Simonarson og
Þórir Sigurðsson....... 899
Næsta uml'erð verður spiluð
n.k. miðvikudagskvöld i Domus
Mediea og eru keppendur beðnir
að mæta kl. 19,55.
Evrópumeistararnir i bridge 1973, italska sveitin: Frá vinstri: Vivaldi, Pedrini, De Falco, Franco og
Giorgio Belladonna.Á myndina vantar Benito Garozzo, en viö hliðina á Belladonna er varafyrirliðinn.