Vísir - 14.11.1973, Side 2
2
Visir. Miðvikudagur 14. nóvember 1973.
vtentsm:
Hafið þér gefið blóð?
Arni Stefánsson, póstmaður: —
Já, það hef ég gert, en nú er ég
kominn á þann aldur, að ég fer að
hætta að vera aflögufær með blóð.
bað hefur þrisvar sinnum verið
hóað i mig, og ég hef farið i öll
skiptin i blóðbankann og gefið
þar.
Arni (íunnarsson, fréttamaður:
— Já, og það oftar en tvisvar
sinnum. íig hef alltaf gefið blóð
að eigin frumkvæði og er alltal' lil
iaðgefa blóð, ef hóað verður sér-
staklega i mig frá Blóðbank-
anum.
Villijálmur llendriksson, sim-
virkjanemi: — Nei, það hef ég
aldrei gert. Ég hef bara aldrei
fundið hvöt til að gera það, en fer
sjálfsagt i blóðgjöf ef það verður
hóað i mig. En ég hef ekki hug-
mynd um, i hvaða blóðflokki ég
er.
Sigurður Þorsteinsson, verka
inaður:. — Nei, og ekki hefur
verið farið fram á það við mig. Ég
man nú ekki, i hvaða blóðflokki
ég er. Annars er ég varla fær um
að gefa blóð eins og er, þvi ég hef
verið sjúklingur undanfarið.
Viöar Guðbjartsson, nemi: —
Nei, ég hef ekki tima til þess, en
myndi gera það, ef ég hefði tima.
Ég veit ekki I hvaöa blóðflokki ég
er.
Siguröur Magnússon, forstjóri: —
Já, ég hef gefið blóð oftar en einu
sinni. Alltaf hef ég farið sjálfur i
blóðbankann og gefið. Núna er
svo langt siðan ég gaf blóð
seinast, að ég ætla við fyrsta
tækifæri að fara upp i blóðbanka
og gefa blóð. Ég tel það borgara-
lega skyldu hvers og eins að gefa
blóð, þegar á þarf að halda.
LESENDUR
HAFA
ORÐIÐ
HRINGIÐ í
SÍMA 86611
KL13-15
Vísitölulán eða erlend
Ilerbert hringdi:
,,Ég var að lesa frétt á baksiðu
VIsis i gær um visitölubréf rikis-
sjóðs. Þið segið, að fróðir menn
hafi bent á, að rikissjóður hafi
hag af þvi, að taka þessi vísitölu-
tryggðu lán, sem borið hafa
hingað til allt að 25% ársvexti.
Þessu er ég ekki sammála. Að
minu viti væri mun hagstæðara
fyrir hið opinbera að taka erlent
lán á eðlilegum vöxtum til nauð-
synlegra framkvæmda, svo sem
vegagerðar. Siðan væri lánið
greitt niður á löngum tima og án
visitölubóta. Að visu þyrfti þá að
taka áhættuna af gengisfellingu
krónunnar á lánstimanum, en
varla gæti hún orðið svo mikil, að
hún vægi upp á móti gengis-
bótunum, eins háar og þær hafa
reynzt vera.
Ekki væri vitlaust, að fróður
maður bæri saman þessa tvo
möguleika, visitölulán og erlent
lán. Til dæmis mætti taka lán-
tökuna i Keflavikurveginn og svo
þau visitölubréf sem gefin hafa
verið út”.
Skrípaleikur
„Enn einu sinni upplýkur
leikhús atvinnustétta og atvinnu-
rekenda tjaldinu, leiksviðið er
landið allt, leiktjöid annast eins
og áður dagblöðin, förðun og
lýsingu annars útvarpiö og sjón-
varpið.
Sögusvið: Samningar tveggja
ára gamlir eru að renna sitt
siðasta, undirbúningur nýrra
samninga nægur og góður af
beggja hálfu, enda báðir aðilar
með starfandi tækni- og hagrann-
sóknadeildir, sem skrá hverja
minnstu hreyfingu i efnahagslifi
þjóðarinnar, er varðar hagsmuni
aðila, sinna i hvorri fylkingunni,
þannig að engum, hvorki
óbreyttum áhorfanda né áheyr-
anda blandast hugur um, að hér
liggi allt ljóst fyrir. Margar
nefndir hafa verið skipaðar á
timabilinu, margar ráðstefnur
verið haldnar til þess að
samræpia, margir kallaðir, en
fáir útvaldir koma fram i sjón- og
útvarpi og skýra frá horfum sam-
taka sinna, og alvaran er mikil,
enda hlýtur ábyrgðin að vera það
lika, ef marka má upptöku og
förðun i sjónvarpinu. Þolandinn
úr annarri hvorri fylkingunni eða
bara áhorfandinn og áheyrandinn
stara á þá útvöldu, sumir með
vandlætingarsvip, aðrir með
ákveðni, en alltof margir ruglaðir
á skýringum þeirra „útvöldu”
eins og svo oft áður, 10-20-30-40 ár
afturi timann. Atvinnureksturinn
þolir ekki svo miklar kröfur sem
fram eru bornar. Þeir lægst
launuðu geta ekki lifað á þeim
kjörum, sem þeir hafa búið við,
lægstu laun mega ekki vera lægri
en 35 þúsund á mánuði, miðað við
7 klst. og 20 min. vinnudag. Kaup-
kröfur yfir 40% að jafnaði, sem
gilda fyrir atvinnureksturinn um
Bmilljarða króna útgjöld, og ekki
séð fyrir, þegar svo visitalan
verkar eftir á. Og þaö eru fleiri
sem eiga um sárt að binda, t.d.
BSRB og félag háskólamenntaðra
manna. Þeir eru með kröfur við
hæfi, enda t.d. fatakostnaður
orðinn gifurlegur, klæðskera-
saumuð föt komin i um 20 þúsund
kr. Fyrir um það bil 30 árum voru
flibbaverkamenn með svipuð
laun og eyrarkarlar, en höfðu þó
öruggari atvinnu. Enginn efast
um að inna þarf af hendi ýmiss
konar skrifstofustörf, en hvers
vegna þurfa þeir, sem hana
stunda, endilega að hafa betri
vinnuskilyrði, betra kaup, styttri
vinnutima? Við erum máske
komin of nálægt bræðraþelinu i
okkur sjálfum. Nú, verðugur er
verkamaðurinn launa sinna, og
ekki eiga þeir i vandræðum með
skilningsleysið við samninga-
boröið BSRB menn, þvi þeir, sem
semja jú fyrir hönd þess
opinbera, hafa þar lika hagsmuna
að gæta, svona likt og þegar þing-
menn komust að sæmilegri niður-
stöðu um laun sin.
En áfram að efninu. Það hlýtur
að vera merkilegra að semja
núna en oft áður, það vantar orðið
þúsundir til þess að semja um
húsum, vélum, skipum og ýmsum
hlutum þvi viðkomandi, sem ekki
nýtist. Það má slá dæminu upp á
marga vegu. Ég veit ekki til þess,
að athugun hafi nokkurn tima
verið gerð á fullnýtanlegum
möguleikum tækja atvinnu-
veganna, frekar en að gerð sé
grein fyrir vinnuaflsskortinum og
hvort hann muni vara um ófyrir-
sjáanlega framtið, eða hvort at-
vinnuleysi sé á næsta leiti. Það
ætti að vera auðvelt verk okkur
Islendingum i dag með alla
tæknina og fræðingana, að
viðbættum fljótvirkum tölvum.
sem fljótar en augað nemur
koma með úteikning á flóknustu
dæmum, NB ef þær eru rétt
mataðar.
Það er undarlegt, hvernig þetta
kerfi er, sem við búum við.
Núverandi rikisstjórn taldi og
kaup og kjör fyrir, iönaðurinn
þyrfti að auka við sig starfsfólki
um allt að 30% til þess að nýta
vélar og hús, tugir báta liggja
vegna manneklu, byggingar-
iðnaðurinn er eins og uppboðs-
markaður, smiðjur og ýmis
þjónustuiðnaður dinglar með
50-60% af nýtanlegum mögu-
leikum, og svo mætti lengi telja.
En merkilegt er það nú samt, að
forystumenn i ýmsum
umræddum greinum forðast eins
og heitan eldinn að láta sann-
leikann koma i ljós, þ.e. að þá
vanti starfsfólk. Liklega finnst
þeim það hnekkir, og siðan er
bara auglýst dag eftir dag og
mánuð eftir mánuð eftir starfs-
fólki. Þá er ekki notuð tæknin,
hagstjórnartækin og könnun á
getu fyrirtækja með tilliti til
húsakosts, véla og annarra hluta.
Það skyldi þó ekki vera feimnis-
mál okkar Islendinga, hvað við
eigum marga milljarða bundna i
telur lifsnauðsyn á þvi, að hafa
visitöluna virka, auðvitað til þess
að jafna tekjur eða tryggja það,
að enginn verði útundan og þá
sérstaklega ekki láglaunafólk.
Hefur kerfið ekki virkað? Hafa
ekki allir fengið sitt? Það skyldi
þó ekki vera, að þeir sem voru
tekjuhærri, hafi borið meira úr
býtum á þeim samningum, sem
nú eru á enda? Það er annars
furðulegt, að stærsti atvinnu-
rekandinn og sá aðili, sem veldur
hvað mestu um uppboð á vinnu-
aflsmarkaðnum, rikið og með
rikisstjórnina sem fjáraflaaðila,
sláandi peninga út um allan heim,
horfir hluttekningarlitlum augum
á siharðnandi átök atvinnuveg-
anna til þess að laða með
einhverjum ráðum til sin vinnu-
afl, vinnuafl, sem ekki er fyrir
hendi.
Framkvæmdabrjálæði það,
sem nú riður húsum á Islandi,
hefur á sér yfirbragð gullgrafara-
mennsku, ráðizt er i fólksfrekar
og dýrar framkvæmdir um land
allt, án tillits till kringumstæðna,
t. d. hvort fólk sé fyrir hendi eða
hvort annar árstimi sé hentugri
en hinn til framkvæmdanna.
Okkur gengur vel að fá lán er-
lendis til allra mögulegra hluta,
og er það kapituli út af fyrir sig,
en áleitin er sú spurning, hvort
eða hvenær kemur að þvi, að
lánararnir, hverjir svo sem þeir
eru, impri á þvi, hvort ekki fylgi
meiri hagkvæmni og að sjálf-
sögðu betri nýting fjármagnsins,
ef fengið væri vinnuafl frá þeim
löndum, sem nægt ódýrt vinnuafl
hafa, og hræddur er ég um, að
meiri spámenn en þeir, sem nú
sitja i forsæti verkalýðsins i dag,
þurfi til að hamla á þvi þvi, ef til
þess kæmi. Það er sannanlegt, að
til þess að fjármagn fengist til
Búrfellsvirkjunar, varð að reisa
einhvers konar stóriðju jafn-
framt, og nú er fróðlegt að fylgj-
ast með iðnaðar- og orkumála-
ráðherra, hvernig hann útskýrir
lánskilyrði Sigöldu.
Þar glittir i bakgrunn þeirrar
virkjunar, carbitur eða Afriku-
sandur, og þvi þá ekki svolitið af
vinnuafli lika? Var einhver að
minnast á að viðhalda sjálfstæði
þjóðarinnar? En svo maður
gleymi ekki skripaleiknum sem
er nú efst á baugi, samningunum
og kröfum þar fram bornum, væri
ekki úr vegi að virða fyrir sér
vængjahaf ASl yfir ungana sina
mörgu smáu og stóru. Smáu
ungarnir eru fjölmennastir og út-
sláttaraðilar i vinnudeilum, en
hafa alla tið borið minnst úr
býtum og gera svo enn. Stóru
ungarnir eru fámennir, en bera
alltaf mest úr býtum: dæmi:
Þegar framkvæmdir voru i al-
gleymi i Arbæ og Breiðholti fyrir
5-6 árum, flugu stóru ungarnir
með 5 þúsund krónur eftir 8
stunda vinnudag, en þeir fjöl-
mennu voru þá með 4.200 krónur
eftir 40 stunda viku, og unnu þeir
þó á sama vinnustað. Svona lagað
orkar á áhorfanda eins og þegar
fylgzt er með störfum verðlags-
nefndar, þegar verið er að þrúkka
um, hvort kjötfarskilóið eigi að
hækka um 10-15 kr. og aðrir hlutir
almennri neyzlu viðkomandi, að
sjálfsögðu til þess að halda niðri
verðbólgu og hins vegar frjáls-
legum tjáningarmáta fasteigna-
sala um verð ibúða og húsa, sem
hækka um hundruð þúsunda
mánaðarlega að sogn þeirra
sjálfra, enda virðist ólikt afkomu-
betra að reka fasteignasölu
heldur en til dæmis matvöru-
verzlun, að maður minnist á sýsl
við iðnað. Er kannski félag fast-
eignasala innan samtaka ASl?”
Asgeir Nikulásson
Uppboð
Ég býð mig til sölu, sjáið þið öll,
hvernig sólin brennur á likama minum.
Þið finnið hcr hveri og kisilgúrfjöll
og kristalstært vatn.
Komið, bjóðið I allt.
sem ykkur er falt:
Angan vorsins,
heiðrikju himinsins,
óspillta náttúru,
hreina loftið i vornæturfriðnum.
Svo verður sérstakt uppboð á söngfuglakliðnum.
Hér er orkan mikil i fossum og föllum
i fyrirtaks verksmiðjur handa ykkur öllum.
Vor menningararfur er einnig falur,
ófá handrit af margs konar gerð.
Nota bene þar er niðursett verð.
Fleira get ég eflaust upp taliö,
svo sem útsýni fagurt,
sólsetrið okkar
og ótal margt fleira.
Bjóðið þið i mig.
Ég heiti á ykkur:
Amerikana, Englendinga, Norðmenn og Dani,
Frakka og Finna, Svia og Belga.
Já, og svo læt ég i kaupbæti lyngið
á Lögbergi helga.
Ben. Ax.