Vísir - 14.11.1973, Page 4
.4’
Visir. Miövikudagur 14. nóvember 1973.
Afgreiðslustúlka
Okkur vantar góða afgreiðslustúlku.
Uppl. á Nýju Sendibilastöðinni
Skeifan 8, kí. 1-2 i dag og á morgun.
Félag vefnaðarvöru-
kaupmanna
Félag vefnaðarvörukaupmanna; heldur
almennan félagsfund að Marargötu 2
fiínmtudaginn 15. nóv.
kl. 10 fyrir hádegi.
Fundarefni: Lokunartimi verzlana i
desember.
Stjórnin.
kona á pianó fyrir mig, hún lék
lagstúf eftir Chopin, og þá
fannst mér skyndilega að liða
myndi yfir mig”.
Karin þessi Harms heldur þvi
fram, að hún eigi orðræður við
Chopin. Hún hefur beint eftir
honum, að hann, Chopin, liti á
hana sem sinn bezta nemanda.
,,Ég einbeiti mér að þér”,
segir Chopin við þennan ,,nem-
anda” sinn, ,,ég er ævinlega hjá
þér, hugsa ekki um annað en
þig”-
Og talsverð virðist sú um-
hyggja vera, þvi Karin gamla
hóf tónleikahald þegar hún var
áttræð, lék þá aðeins Chopin-lög
og útsetningar, lék tónverkin
beint af fingrum fram, enda
hefur hún aldrei lært að spila
nótur.
Hún álitur að einhvern tima
fyrir löngu hafi hún lifað sem
frægur tónsnillingur á einhverri
fjarlægri stjörnu i fjarlægri
vetrarbraut. Hún hafi hins veg-
ar I þeirri tilveru, horfið frá
köllun sinni, hún hafi farið huldu
höföi fyrir aðdáendum sinum og
dáið úr fátækt.
Tilvist hennar hér á jörðinni
sé eins konar afplánun, þegar
hún siðar meir, og kannski
bráðum, fari yfir i annað lif, þá
muni hún lifa hátt og lifa kátt i
þvi sem hún kallar „tilveru i
tónheimi”. Og i téðum tónheimi
munu lifa og hrærast margir
tónsnillingar og sumir hverjir
frægir menn héðan af jörðu.
Karin Harms skrifar
meistara sinn, Friðrik Chopin
fyrir þessum upplýsingum.
En það er ekki einvörðungu
tónlistin, sem Karin uppsker
gegnum samband sitt við „ann-
an heim”. Hún stendur i nánu
sambandi við látna ættingja
sina, og fær oft fréttir af þeim.
Og hún segir það ekki tómt
orðagjálfur i Friðrik Chopin, að
hann segist vakta hana daginn
langan.
„Einu sinni var ég á ferð i
strætó. Skyndilega, og nokkru
áður en ég átti að fara úr
vagninum, fékk ég ómótstæði-
lega löngun til að fara út úr
vagninum. Ég gerði það og
skipti um vagn. önnur kona,
öldruð, settist þá i það sæti, sem
ég hafði áður. Strætisvagninn
lenti svo i árekstri, og konan
sem settist i sætið, þar sem ég
var áður, kramdist til bana”.
Friðrik Chopin hefur að sögn
Karinar Harms ekki annað er-
indi við jarðarbúa en að láta
Karin Harms leika verk sin.
Hann var sjálfur á kreiki hér
meðal dauðlegra á árunum
1810—1849 — og hann hefur
stundað það mjög i seinni tiö, að
veita fyrrnefndri Karin ýmsar
upplýsingar.
Sem dæmi má nefna, að Karin
trúir ekki, hún veitað til er ann-
að lif, og sumar manneskjur
komast i samband við það lif.
Og hún veit lika, að þegar kem-
ur fram yfir árið 2000, þá mun
þessi hæfileiki, miðilshæfi-
leikinn, verða næsta tiður meðal
mannanna og þá verða talinn til
eölislægra eiginleika.
— GG.
Chopin spilar
gegnum
konu
Það er ekki aðeins
Ragnheiður, dóttir
Brynjólfs biskups, sem
sögð er leita sambands
við jarðarbúa gegnum
lifandi manneskju. Sá
mikli meistari tón-
menntanna, Friðrik
Chopin, útsetur tón-
verk sin og leikur þau
gegnum miðil. i Það
segir a.m.k. miðillinn
sjálfur, dönsk kona
sem heitir Karin
Harms og er 82 ára
gömul.
Hún segir, að þegar hún hafi
verið fimm ára gömul, hafi
Chopin fyrst spilað i gegnum
hana.
„Ég bjó þá hjá foreldrum
minum við Vesturbrú i Kaup-
mannahöfn. Ung kona bjó i
sama húsi og var dátt með okk-
ur. Eitt sinn spilaði þessi unga
Ég vil ekki skemma
nýju úlpuna meó
endurskinsmerki"
Það er útbreiddur misskilningur að endurskinsmerki
skemmi góð föt. Endurskinsmerki eyðileggja ekki
nokkra flík.
Endurskinsmerki má láta hanga úr vasa eða kraga,
það má sauma þau í frakkann eða úlpuna -
eða þá strauja endurskinsborða á trefilinn,
húfuna, hanskana ....
hvar sem er, hvernig sem er.
Það má eyðileggja nýja úlpu með því að bera
ekki endurskinsmerki í skammdeginu.
Kaupið endurskinsmerki í mjólkurbúöinni,
strax í dag!
UMFERÐARRÁÐ