Vísir - 14.11.1973, Blaðsíða 6
6
\Tsir. Miövikudagur 14. nóvember 1973.
VÍSIR
Útgefandi:-Heykjapr#nt hf.
Framkvemdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
y Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Slmar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 32. Slmi 86611,
Ritstjórn: Slöumúla 14. Slmi 86611 (7(Ifnur)
Askriftargjald kr. 360 á mánuöi innanlands
I lausasölu kr. 22:00 eintakiö.
Blaöaprent hf.
Unnt að sinna öðru
Við getum nú farið að sinna öðrum alvarlegum
vandamálum, er landhelgismálið hefur verið
saitað til tveggja ára. Alþingi hefur þegar stað-
fest hinn hálfa ósigur okkar i málinu, og raun-
hæfri útfærslu landhelginnar hefur verið frestað i
tvö ár.
Að þeim tima liðnum verður hafréttarráð-
stefna Sameinuðu þjóðanna búin að rétta okkur
200 milna auðlindalögsögu á silfurbakka. Það er
meira en fjórföld landhelgi á við þá, sem Bretar
hafa nú meinað okkur. Og væntanlega verður þá
auðveldara að framkvæma nýju landhelgina en
okkur hefur reynzt það nú.
Innan um eymd og ömurleika bráðabirgða-
samkomulagsins við Breta er eitt gagnlegt atriði.
Það er friðurinn, sem jafnan er góður, jafnvel
þegar hann er fenginn með hálfum ósigri.
Þennan frið getum við nú notað til að sinna
öðrum vandamálum, sem hafa fengið að magn-
ast með sjálfvirkum hætti meðan landhelgin var
forgangsmálið.
Áratugum saman bjuggum við að 10-12% verð-
bólgu á ári að meðaltali. Þetta var föst regla allt
frá heimsstyrjöldinni siðari og til loka við-
reisnarstjórnarinnar. öllum þótti þessi bólga hin
skelfilegasta, en enginn fékk við hana ráðið.
Nú hefur það hins vegar gerzt allra siðustu
árin, að verðbólgan hefur rokið upp i um það bil
20% á ári. Hin fyrri ár eru hreint stöðugleika-
timabil i samanburði við þessi ósköp. Til þessa
hefur tvöföldun á útflutningsverði margra helztu
sjávarafurða okkar hindrað, að verðbólgan
kollsigli þjóðarskútuna, en sú verðhækkun kann
skyndilega að stöðvast.
Góðærið og útflutningsverðlagið hafa stuðlað
að þvi, að allar hendur hefðu nóg að starfa. Við
slikar kringumstæður eiga opinberir aðilar að
draga saman seglin, spara fé og fresta fram-
kvæmdum til mögru áranna, þegar atvinnuleysi
vill aftur gera vart við sig.
En i stað þessa hefur rikið tekið af fullum krafti
þátt i kapphlaupinu um starfsmenn og fram-
kvæmdir. Þessi mistök eru veigamesta ástæða
þess, að verðbólgan er nú tvöfalt hraðari en við
eigum að venjast.
Þessi útþensla rikisbáknsins kemur lika fram i
þvi, að skattheimta er orðin óhóflegri en nokkru
sinni áður, á þessari öld. Rikið hyggst á næsta
ári taka til sin sem svarar 30% af þjóðarfram-
leiðslunni og eru þó ekki nema nokkur ár siðan
hlutur rikisins var innan við 20%.
Ef friðurinn i landhelgismálinu væri notaður til
að fást af alvöru við þessi vandamál, má ná
ágætum árangri. Eina aðgerðin, sem dugar, er að
vinna kerfisbundið að þvi að minnka sneið rikis-
ins af köku þjóðarinnar aftur niður i 20% á
nokkrum árum, eða að minnsta kosti á meðan
allar hendur hafa nóg að starfa.
En til þessa þarf að skera niður fjárlögin, jafn-
vel framkvæmdir, sem i sjálfu sér eru þarfar, en
þjóðin hefur ekki efni á að sinni. Niðurskurður
fjárlaganna verður að nema einum til tveimur
milljörðum króna, ef gagn á að vera að. Sparn-
aðinn af þessu má sumpart nota til að lækka
skattana og sumpart til geymslu til mögru
áranna. Þetta er án efa virkasta leiðin til að ná
verðbólgunni aftur niður i venjulegt horf.
—JK
(iolda Meir fékk þvi áorkaö, aö haldiö var I skyndi þing helztu leiötoga jafnaöarmannaflokka um heim
allan og Ieitaði til þeirra eftir stuöningi meö viöleitni Israels til aö ná friði.
ísrael í liðsbón
tryggja sér stuðning jafnaðar-
manna um heim allan. t eðli sínu
var það krókur á móti bragði
Araba, sem höfðu gripið til
örþrifaráða til þess að reyna að
einangra Israel frá öörum þjóð-
Brandt kanslari V-Þýzkalands er sagöur hafa lagt rlka áherzlu á
stuöning Þýzkalands viö málstaö Israels, þótt utanrikisráðherra hans
hafi fylkt sér aö baki ööruvísi yfirlýsinggr Efnahagsbandalagsins á
dögunum.
hefði lagt henni á herðar. Þetta
var haft eftir Barndt.
Eina málið, sem tekið var fyrir
á þessu aukaþingi, var striðið i
Austurlöndum nær, aðdragandi
þess og afleiðingar. Forseti
þingsins var Harold Wilson,
formaður brezka Verkamanna-
flokksins, sem nú er i stjórnar-
andstöðu.
Eins og áður sagði var boðið til
þingsins með örstuttum fyrir-
vara. Það var haldið að undirlagi
Goldu Meir, sem hafði ráðfært sig
við Brandt og Wilson.
Tilgangurinn með þinghaldinu
var þetta lifsspursmál Israels, að
um. Með þvi að beita fyrir sig oli-
unni tókst Aröbum i siðustu viku
af leiða niu Evrópulönd (Efna-
hagsbandalagsins) á sveif með
sér. Ráðherrar þessara rikja gáfu
út yfirlýsingu, þar sem mjög var
dreginn taumur Araba gegn
Israelsmönnum. Og með þvi að
útmála ísraela sem alger hand-
bendi Bandarikjanna, tókst Aröb-
um að fá öll riki Afriku, utan
sex,til þess að rifta stjórnmála-
sambandi við Israel. — Að visu
hafa EBE-löndin niu ekki
ástæðitil að ætla, að þessi undan-
látssemi þeirra við hótunum
Araba haldi þeim lengi fljótandi i
Golda Meir forsætis-
ráðherra ísraels virðist
ekki trúa of vel þvi sam-
komulagi, sem einn
hershöfðingja hennar og
annar hershöfðingi
Egypta undirrituðu i
tjaldi gæzluliða
Sameinuðu þjóðanna um
helgina. Henni þótti að
minnsta kosti nauðsyn
að ákalla jafnaðarmenn
um heim allan að veita
ísrael stuðning i leitinni
að friði.
Þessi 75 ára gamla amma var
miðdepill þings jafnaðarmanna,
sem kvatt var saman með
skyndingu i Lundúnum um
helgina og stóð aðeins einn dag.
Sátu það leiðtogar jafnaðar-
manna i 20 löndum, og voru þar á
meðal þjóðhöfðingjar átta landa,
eins og kanslararnir Willy
Brandt frá V-Þýzkalandi og
Bruno Kreisky frá Austurriki.
A þinginu var andrúmsloftið til
íinningum þruiigið, og full-
trúarnir flýttu sér að fullvissa
Meir um, að Israel hefði fullan
stuðning þeirra i friðar-
umleitunum sinum og tilraunum
til þess að tryggja framtið sina.
Eftir þvi sem mátt hefur heyra
á fulltrúunum á þinginu lagði
Brandt mikla áherzlu á, að
Þýzkaland gæti aldrei haft hlut-
lausa samvizku gagnvart Israels-
þjóð. Þar hlyti ávallt að verða
sérstakt samband á milli, vegna
þess þýzka þjóðin gæti ekki og
vildi ekki hliðra sér hjá skyldum
þeim, sem saga hennar sjálfrar
Kreisky kanslara Austurrikis og Goldu Meir ku hafa lent saman á
þinginu, enda hefur tsraelsmönnum legið þungt hugur til hans vegna
undanlátssemi hans viö skæruliða Araba.
oliu, þvi að t.d. Libýa hefur hótað
að hætta að selja þeim oliu samt.
En þessi þróun mála hefur
komið Israel i vissan vanda. —
Svo að Golda Meir snerist til
varnar.
Fréttir af þinginu hafa engar
verið látnar uppi, nema það sem
einstakir fulltrúar hafa látið
flakka i tali við kunningja. En það
er helzt á þeim að heyra, að
þingið hafi ekki gengið alveg
árekstralaust. Til dæmis hafi
þeim Meir og Kreisky, sem er af
Gyðingaættum, lent hálfvegis
saman.
Það var að likum, þvi aö
Israelsmönnum hefur legið þungt
hugur til Kreiskys kanslara fyrir
að láta undan kröfum arabiskra
skæruliöa og loka flóttamannahó-
teli Gyðinga, sem jafnan hafa átt
öruggt viðkomuhæli i Austurriki á
leið frá austantjaldsrikjum til
Israels.
En þrátt fyrir einhverjar sikar
misfellur, þá er ekki annað að
heyra en Goldu Meir hafi gengið
liðsbónin bara vel hjá flokks-
bræðrum sinum, og að tsrael
þurfi ekki að óttast vinafækkun,
að minnsta kosti ekki meðan
hagsmunir stangast ekki á.