Vísir - 14.11.1973, Blaðsíða 13
Visir. Miðvikudagur 14. nóvember 1973.
Sjónvarp kl. 21.25: A VÍt ÓttanS:
Óþokkakona eða
dýrlingur
Dolores del Rio fer með eitt
aðalhlutverkið í sjónvarpsmyndinni
í kvöld
Dolores del Ilio var ein falleg-
asta kona kvikmyndanna á sin-
um tima. Annaðhvort var hún i
hlutverki óþokkakonu eða dýrl-
ings og lék yfirleitt „erlendu
stúlkuna". t kvikmyndafcrli
hennar hefur gengið á ýmsu, en
hún er þekkt enn I dag.
Vinsælust var hún þó á árunum
um 1930.
Hún fæddist i Durango i Mexi-
kó árið 1905 og ólst upp i einkar
þægilegu umhverfi, faðir
hennar var bankastjóri. Þegar
hún var 16 ára, giftist hún
auðugum manni að nafni Jaime
del Rio, og lifði samkvæmt þvi,
þar til gesti bar aö garði.
Það voru kvikmynda-
framleiðandinn Edwin Carewe
og kona hans. Carewe vildi fá
Dolores i kvikmyndir og fékk
hana til þess að taka að sér litiö
hlutverk i Joanna árið 1925.
Carewe gerði við hana sér-
samning, og Dolores lék aftur i
kvikmynd árið 1926. Það var
kvikmyndin High Steppers, þar
sem Mary Astor lék eitt aðal-
hlutverkið.
Siðan lánaði Carewe Dolores
yfir til Universal, þar sem hún
lék i einni kvikmynd, og þvi
næst yfir til Fox i kvikmyndina
What Price Glory. Sú kvikmynd
varð önnur vinsælasta og bezta
mynd ársins 1927.
Dolores del Rio leikur eitt
aðalhlutverkið i kvikmynd sjón-
varpsins i kvöld. Það er myndin
Journey into Fear eða Á vit ótt-
ans. Sú mynd var gerð árið 1942.
Eftir að sú kvikmynd var gerð,
hvarf Dolores aftur til Mexikó
og lék i kvikmyndum þar. Hún
átti þó eftir að fara til Banda-
rikjanna aftur.
A vit óttans er njósnamynd,
byggð á sögu eftir Eric Ambler.
Aðalsöguhetjan i myndinni er
umboðsmaður bandariskra
vopnaframleiðenda, sem ferð-
ast til Tyrklands i viðskipta-
erindum. Útsendarar nasista
komast á snoðir um ferðir hans,
og þá versnar i þvi.
Dolores del Rio er þrigift. Hún
skildi við fyrsta mann sinn árið
1931, eftir að hann hafði
yfirgefið hana. Stuttu siðar lézt
hann i Þýzkalandi.
Dolores hefur leikið i mjög
mörgum kvikmyndum, en
blómaskeið hennar var á árun-
um um 1930 eins og l'yrr segir.
Eftir að hafa leikið i kvikmynd-
inni Á vit óttans hélt hún til
Mexikó, þar sem hún lék i
mörgum kvikmyndum. Meðal
annars lék hún i einni kvikmynd
á ltaliu.
Árið 1956 hélt hún aftur til
Bandarikjanna, en dvaldi þar
stutt og hélt heim aftur. 1960
fékk hún tilboð frá Hollywood,
sem hún þáði. Hún tók að sér
„móður" hlutverk i F'laming
Star og lék þar með Elvis
Presley sem inóðir hans. 1964
lék hún i Cheyenne Autumn, þar
sem hún lék Indiána. Báðar
þessar kvikmyndir vöktu tals-
verða athygli.
Dolores var ein af hinum
fjöldamörgu stjörnum, sem
komu fram i kvikmyndinni The
Phynx árið 1970, en það var
siðasta hlutverk hennar.
— EA
Ilolores del Rio viö upphaf leikferils slns I Hollywood.........árið 1937.....og árið 1961 I Flaming Star.
í DAG | í KVÖLP | í DAG
Sjónvarp kl. 20.30: Líf og fjör í lœknadeild:
Nœr prófi — því miður!
Að duga eða drepast heitir
þáttur sá, sem sýndur veröur I
sjónvarpinu f kvöld, en það er
einn þátturinn úr hinum fjöruga
gamanmyndaflokki Lif og fjör i
læknadeiid.
Að sjálfsögðu er lif i tuskun-
um nú sem endranær hjá þeim
félögum i læknadeildinni, en
samt virðist ætla að versna i
þvi.
Það er nefnilega farið að
styttast i prófin, en stúdentarnir
hafa litið annað gert en að slóra.
Þeir uppgötva nú, að aðeins
hálfur mánuður er til prófs, og
verður bilt við.
Samt sem áður setja þeir i sig
dug og ganga til prófs. Að sjálf-
sögðu gengur þeim upp og niður
i prófum sinum, en einn
stúdentanna verður ákaflega
leiður.
Sá hefur fengið 1000 pund á ári
hverju i arf eftir ömmu sina, og
þessa peninga á hann að fá, á
meðan hann er i læknanámi,
þar til ca. árið 1980, þá er arfur-
inn uppurinn.
En pilturinn nær prófi i þetta
sinn, og það likar honum miöur.
En hvað fleira skeður sjáum við
allt i kvöld klukkan 20.30.
— EA
ÚTVARP #
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Siðdegissagan: „Saga
Eldeyjar-Hjalta” eftir Guð-
mund G. Hagalin Höfundur
les (8).
15.00 Miðdegistónleikar: ts-
lenzk tónlist.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.20 Popphornið.
17.10 Útvarpssaga barnanna:
„Mamma skilur allt” eftir
Stefán Jónsson. Gisli
Halldórsson leikari les. (8).
17.30 Framburöarkennsla i
spænsku.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.30 Fréttir. 18.45 Veður-
fregnir. 18.55. Tilkynningar.
19.00 Veðurspá Bein lina.
Umsjónarmenn: Arni
Gunnarsson og Einar Karl
Haraldsson.
19.45 tbúð — veröld með sér-
inngangi: Umsjónarmenn
þáttarins eru arkitektarnir
Sigurður Harðars., Hrafn
Hallgrimss., Magnús
Skúlas.
20.00 Kvöldvaka. a.
Einsöngur. Guðrún Tómas
dóttir syngur lög viö ljóö
eftir Halldór Laxness, Ölaf-
ur Vignir Albertsson leikur
á pianó. b. Ingjaldshóll undir
Jökli. Guðjón Halldórsson
flytur erindi. c. Ljóð eftir
Guðmund Böðvarsson.
Guðrún Guðjónsdóttir
flytur. d. Svipast um á
Suöurlandi. Jón R.
Hjálmarsson skólastjóri
ræðir við Eggert Ólafsson
bónda á Þorvaldseyri. e
Kona á nærklæöum einum.
Margrét Jónsdóttir flytur
hrakningasögu eftir
Bergþóru Pálsdóttur frá
Veturhúsum. f. Kórsöngur.
Þjóðleikhúskórinn syngur
lög eftir Jón Laxdal,
Hallgrimur Helgason stj.
21.30 Útvarpssagan: „Dverg-
urinn” eftir Pár Lagerkvist.
i þýðingu Málfriðar Einars-
dóttur. Hjörtur Pálsson les
22.00 Fréttir.
22.14 Veðurfregnir. Fram-
haldsleikritiö: „Snæbjörn
galti” eftir Gunnar Bene-
diktsson Annar þáttur
endurfluttur. Leikstjóri:
Klemenz Jónsson.
22.45 Nútimatónlist. Þorkell
Sigurbjörnsson heldur
áfram að kynna tónlist, sem
flutt var á alþjóðlegri hátiö
nútimatónskálda i Reykja-
vik i vor.
23.30 Fréttir i stuttu máli.
SJÓNVARP •
18.00 Kötturinn Felix. Tvær
stuttar teiknimyndir. Þýö-
andi Jóhanna Jóhannsdótt-
ir.
18.15 Skippi. Ástralskur
'r*
m
m
w
Spáin gildir fyrir fimmtudaginn 15. nóvember
Hrúturinn, 21. marz—20. april. Gættu þin vel I
umferðinni, einkum ef þú stýrir sjálfur farar-
tæki. Faröu varlega I allri umgengni viövélarog
orku, heima og heiman.
Nautið, 21. april—21. mai. Þaö litur út fyrir aö
einhver, sem þykist hafa tök á þvl, setji þér tvo
kosti og sé hvorugur góður. Dragöu það allt á
langinn.
Tvlburarnir, 22. mal—21. jan. Það veröur vafa-
Htið leitaö til þin um aöstoö. En máliö verður
sennilega viðkvæmt aö einhverju leyti, og viss-
ara að athuga sinn gang.
Krabbinn, 22. júni—23. júli. Þaö virðist allt
ganga mjög greiölega I dag, aö minnsta kosti ef
ekki er rekiö nema hóflega á eftir. Kvöldiö getur
oröiö ánægjulegt.
Ljónið,24. júli—23. ágúSt. Einhver kunningi þinn
leikur þig dálitiö grátt, en aö öllum likindum án
þess aö gera sér grein fyrir þvi, a.m.k. ekki i bili.
13
* ** _ *
I m ranm m m on * .* *
*
«•
★
«■
★
*
«-
♦
«-
*
S-
*
«-
★
s-
★
«-
X-
«-
★
«-
*
«■
*
«-
★
«■
*
«-
★
«-
★
«■
«-
★
«■
*
«-
★
«■
★
«
★
«■
★
«-
★
«■
★
«■
X-
«■
X-
«
★
«-
«■
★
«•
★
«-
★
«-
★
«■
★
«•
★
«■
X-
«■
★
«■
★
«■
★
«•
«■
«•
X-
«-
★
«
★
«•
X-
«-
★
«■
X-
«-
,*.....l' rrl
rÁ
u
Meyjan,24. ágúst—23. sept. Þaö kemur á daginn
aö einhverjar þær áætlanir eöa útreikningar,
sem þú hefur sætt gagnrýni fyrir að undanförnu,
standast að mestu leyti.
Vogin, 24. sept,—23. okt. Nú færöu aö öllum
Hkmdum aðstöðu til að koma þvi I framkvæmd
sem lengi hefur veriö áhugamál þitt. Eöa aö
gamall draumur rætist.
Drekinn,24. okt.—22. nóv. Þú hyggur þig lausan
viö einhvern löst eöa neikvæöan ávana, en það
getur komið á daginn aö þaö sé slöur en svo og
þú veröir enn aö gæta þin.
Bogmaðurinn, 23. nóv,—21. des. Geröu þér sem
Ijósasta grein fyrir þeim verkefnum sem biöa
þin, og hvernig þú eigir aö leysa þau sem bezt af
hendi á sem skemmstum tlma.
Steingeitin, 22. des —20. jan. Bréf, skeyti eöa
sendimaöur færir þér mikilvægar og jákvæöar
fréttir, sem snerta þig þó ekki nema óbeinlfnis
en eru þér þó gleöiefni.
Vatnsberinn, 21. jan,—19. febr. Þér verður ef til
vill faliö viöfangsefni, sem á vel við þig og þú
ættir aö geta leyst þannig af hendi að þér veröi
þaö álitsauki.
Fiskarnir, 20. febr.—20. marz. Geröu þér nána
grein fyrir þvi sem aörir ætlast til af þér.
Athugaðu siöan að hve miklu leyti það er æski-
legt að þú takir tillit til þess.
myndaflokkur fyrir börn og
unglinga. Klara kemur.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.40 Gluggar. Brezkur
fræðsluþáttur með blönduðu
efni við hæfi barna og
unglinga. Þýðandi og þulur
Gylfi Gröndal.
19.05 Hlé
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Lif og fjör I læknadeild.
Brezkur
gamanmyndaflokkur. Aö
duga eða drepast. Þýðandi
Jón Thor Haraldsson.
20.55 Nýjasta tækni og visindi.
Orka sólar virkjuð. Tilbúin
hús. Hús úr frauðplasti.
öryggi barna i bilum. Fall-
hlifarstökk.
Umsjónarmaður örnólfur
Thorlacius.
21.25 Á vit óttans. (Journey
into Fear) Bandarisk
njósnamynd frá árinu 1942,
byggð á sögu eftir Eric
Ambler. Leikstjóri Norman
Foster. Aðalhlutverk
Joseph Cotton, Dolores del
Rio og Ruth Warrock. Þýö-
andi Jón O. Edwald. Aðal-
söguhetjan er um-
boösmaður bandariskra
vopnaframleiðenda, sem
ferðast til Tyrklands i viðr
skiptaerindum. Útsendarar
þýzkra Nasista komast á
snoðir um ferðir hans, og
leigumoröingi er settur
honum til höfuðs. En Tyrkir
gera sitt bezta til aö bjarga
lifi hans.
22.45 Jóga til heilsubótar.
Bandariskur myndaflokkur
með kennslu i jógaæfingum.
Þýðandi og þulur Jón O. Ed-
wald.
23.10 Dagskrárlok
hafid þér
hugíeítt
hve mikilvægt er ad stóllinn, sem þér
sitjid á allan daginn, sé sá beíti, sem
sem völ er á, þ.e.a.s.
HARTMAM
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
Hverfisgötu 33
Sfmi 20560 - Pósthólf 377
★☆★☆★☆★☆★☆★☆★■