Vísir - 09.03.1974, Qupperneq 3
Visir. Laugardagur 9. marz 1974.
1
„Þyrfti að vera
brennivín við
innganginn"
Baltasar sýnir núna að
Kjarvalsstöðum. Sýningu
hans lýkur á morgun/
sunnudag, en þessa helgi
verður málarinn við-
staddur og ræðir við þá,
sem vilja, um myndir
sinar.
,,Það er verst með Islendinga,
hvað þeir eru feimnir að tala.
Maður þyrfti að hafa brennivin
við innganginn, svo fólk færi að
tjá sig.
Mér finnst gaman að heyra,
hvað fólk hefur að segja um
myndirnar. Hvernig þvi finnst
þær vera — góðar eða slæmar”.
Baltasar hefur fjórum sinnum
sýnt í Reykjavik og einu sinni i
London, en hann er Spánverji
að uppruna, eins og menn vita.
,,Ég veit ekki, hvort ég er
frekar spánskur málari en
islenzkur. Ég held að hver
maður sé það sem umhverfið
gerir úr honum. Ég veit ekki”.
Það virðist þó, að Baltasar
hafi heillazt af ýmsu á íslandi
t.d. hestum, þvi hestamyndir
hans eru nokkuð áberandi.
„Hestar eru skemmtilegir.
Þeir eru hvort tveggja, farar-
tæki og vinir mannsins. Ég á
nokkra hesta sjálfur, sem ég hef
i Kópavogi.”
Kópavogsbúar virðast
reyndar hafa sterkar taugar til
þessa spánska íslendings, þvi
listasafn i Kópavogi varð fyrst
til þess islenzkra safna að kaupa
mynd af Baltasar. Safnið keypti
málverk af Thor Vilhjálmssyni
rithöfundi.
„Þessar myndir á sýningunni
hef ég allar málað á siðasta ári
— eða einu og hálfu ári.”
Samtals eru 57 myndir á
sýningunni að Kjarvalsstöðum,
og eru margar þeirra þegar
seldar.
Opið er i dag, og á morgun
verður opið frá 10-22.
—GG
Baltasar og mynd hans af Thor Vilhjálmssyni, sem Kópavogs-
kaupstaður keypti.
Alþýðublaðið í nýiar hendur
Yfirtaka Blaðs hf. á
rekstri Alþýðublaðsins
hefur farið fram sam-
kvæmt yfirlýsingum,
sem Alþýðuflokkurinn
og Alþýðublaðsútgáfan
hf. birta i Alþýðublaðinu
i gærmorgun og fara hér
á eftir:
„Gengið hefur verið frá breyt-
ingu á rekstrartilhögun Alþýðu-
blaðsins miðað við 1. marz sl.
þannig að Alþýðublaðsútgáfan
hf„ sem annazt hefur reksturinn
s.l. tvö ár, hættir, en við tekur
nýtt félag, Blað hf. Vil ég fyrir
hönd Alþýðuflokksins þakka for-
ráðamönnum og starfsfólki Al-
þýðublaðsútgáfunnar gott sam-
starf á þessu tfmabili og er þaö
jafnframt skoðun min, að það
samstarf hafi verið til góðs fyrir
Alþýðublaðið.”
Þetta eru orð Gylfa Þ.
Gislasonar, formanns Alþýðu-
flokksins. Þetta skrifar hann i
fyrradag, en þá er einnig eftir-
farandi ritað af hálfu Alþýðu-
biaðsútgáfunnar:
„Alþýðublaðsútgáfan vill nú, er
hún hættir rekstri Alþýðubiaðsins
þakka öllu starfsfólki, svo og við-
skiptavinum blaðsins og forráða-
mönnum Alþýðuflokksins gott og
ánægjulegt samstarf sl. tvö ár.
Jafnframt viljum við óska hinum
nýju rekstraraöilum, fyrirtækinu
Blaði h.f., góðs gengis og árang-
ursríks starfs við útgáfu blaösins.
Það skal tekið fram af þessu til-
efni, að allar skuldbindingar
vegna rekstrar Alþýðublaðsins
frá 1. marz 1972 til 1. marz 1974
eru hinum nýju rekstraraðilum ó-
viðkomandi og mun Alþýðublaös-
útgáfan sjáif annast allar greiösl-
ur i þvi sambandi, svo og inn-
heimta allar útistandandi skuid-
ir.”
Þetta u nd iriíta þeir Axel
Kristjánsson, formaður Al-
þbl.útgáfunnar, og Benedikt
Jóns son fra m k v æ m da s t j ór i.
Kútter Haraldur og Gamli Ford
á þjóðhátíð á Akranesi
Akurnesingar ætla að
gera sitthvað til að lífga
upp á þjóðhátíðarhöldin F
sumar.
Kiwanismenn á Akra-
nesi keyptu fyrir nokkru
gamlan ,,kútter" í Fær-
eyjum, sem er í megin-
atriðum eins og ,,Kútter
Haraldur", eitt frægasta
skip íslendinga. Á að
sigla honum frá Færeyj-
um í sumar og taka á
móti honum með pomp og
pragt á hafnargarðinum.
Er ekki að efa að hann
fær nafnið Kúttev
Haraldur.
Annan forngrip má svo sjá á
götum Akraness i sumar. Lions-
klúbburinn á Akranesi keypti
hræ af gömlum Ford bil, T-
módelinu svokallaða, sem var
langvinsælasti billinn i gamla
daga. Þessi bill er af árgerð
1918.
Verið er að koma bilnum i
ökuhæft ástand, blása ryð af
honum og gera vélina upp. Ný
dekk voru keypt undir hann er-
lendis frá, og komu þau til
landsins i gærkvöldi.
Billinn á aö vera tilbúinn fyrir
20. júni, en þá á að ferja hann
með Akraborginni eða nýju
ferjunni, ef hún verður komin.
Þegar komið verður til Akra-
ness, verður billinn gangsettur
við mika viðhöfn og ekið gegn-
um kaupstaðinn, upp á byggða-
safnið, þar sem hann og Kútter
Haraldur verða svo geymdir.
—OH
þú okkar"
Þeir voru að selja happdrættis-
miða Slysavarnafélagsins niðri
við höfn i hádeginu i gær. i skær-
gulum stökkum stöðvuðu þeir
verkamenn og sjómenn og buðu
þeim miða í landshappdrætti
Slysa varnafélagsins.
Undirtektirnar voru eins og
vænta mátti — allir kcyptu miða.
Nú um helgina ætla
slysavarnamenn að sclja miða
um allt land. Kinkunnarorð þessa
happdrættis eru: „Við þörfnumst
þin — þú okkar”. Er við þvi aö bú-
ast, að almenningur bregðist
jafuhraustlega við og fólkið við
Vesturhöfnina, þegar til þess var
leitaö.
Til að auðvelda öflun happ-
drættismiðanna gctur fólk fengið
þá senda til sin um helgina, með
þvi að hringja i sima 20300, milli
klukkan 1 og 7, laugardag og
sunnudag.
— óII/Ljósm. BG
-iiiemo
PLACE DE L'OPÉRA • PARIS
CORYSE
SALOMÉ
Snyrtifræðingur frá þessari verksmiðju
verður i verzlun okkar allan mánudaginn
11. þ.m.
Ilegnhlifabúðin,
Laugavegi 11.
r
Regnhlifabúðm, Laugavegi 11
N