Vísir - 09.03.1974, Blaðsíða 4
4
Vfsir. Laugardagur 9. marz 1974.
„ungimgarmr YITQ
hvoð þeir vilji n"
Leyfið þvi að þorna aðeins i
handklæðinu, áður en þið greið-
ið það. Sé hársrótin viðkvæm, er
gott að reyna barnasjampó.
Notið aldrei of heitt vatn, hafið
það alltaf volgt.
Gott er að meðhöndla hárið
með eggjarauðum öðru hverju.
Nuddið rauðunum i hárið og
rótina, setjið handklæði yfir og
biðið þannig i fimm minútur.
Skolið siðan.
Ef hárið fitnar mjög fljótt, er
ágætt ráð að leyfa sjampóinu að
vera nokkra stund i hárinu, þeg-
ar það er þvegið. bað þurrkar
hárið talsvert. Nuddið ekki
hársrótina með nöglunum, notið
frekar fingurgómana, það er
betra fyrir hárrótina.
beir, sem vilja fá fram fall-
egri blæ á hárinu, geta t.d. notað
edik og sitrónu. Sá sem er dökk-
hærður getur skolað hár sitt upp
úr 2 teskeiðum af ediki blönduðu
saman við 5 litra af vatni og not-
að það sem siðasta skolvatn.
bað gefur hárinu fallegan blæ.
í ljóst hár er ágætt að nota
sitrónu. Hárið er þá skolað upp
úr safa úr hálfri sitrónu blönd-
uðum svolitlu af vatni. Ef hárið
er mjög þurrt, þarf meira af
vatninu, þvi annars er hætt við,
að hárið fái á sig grænleitan
blæ.
bað er i lagi að fá permanett i
hárið, en liklega er bezt að gera
það i samráði við faglærðan.
bað hjálpar oft upp á þreytt og
illa farið hár. Permanett nú til
dags er yfirleitt veikt, og þvi á
það ekki að vera skaðlegt.
Rúllið hárið ekkiuppá rúllur
á hverju kvöldi, og reynið að
nota sem minnst af hárlakki. Ef
mikið þarf að nota af þvi, notið
þá lakk, sem auðvelt er að
bursta úr. Munið svo, að rétt
mataræði hefur mjög mikið að
segja hvað viðkemur fallegu
hári.
— EA
nokkur höfuð á sýningunni sem
haldin var.
Á meðfylgjandi myndum sjá-
um við greiðslur, sem hár-
greiðslufólk, sem verið hefur á
námskeiði á vegum Pivot Point,
hefur greitt. Dietmar
Plainer er forstjóri Pivot Point i
Evrópu, og námskeið var haldið
hér i Iðnskólanum á vegum
þess, og hér má sjá árangurinn.
Hárið er mikið blásið, en litið
er um túperingar og annað þvi-
likt dundur.
— EA
Það má gera ýmislegt til þess
að haida hári sinu fallegu og
þægilegu. Mikilvægust er þó góð
heilsa og heilbrigðir iifnaðarhætt
ir. Strax eftir veikindi má finna
mun á hárinu, það verður þreytt
og gljáalaust. bá er að hefja
uppbygginguna aftur, með nóg
af vitaminum og hollri fæðu.
Mjög mikilvægt er að klippa
hárið. Það vex 1 cm á mánuði og
jafnhratt á öllum manneskjum.
Hárið verður að klippa einu
sinni i mánuði eða fimmtu
hverja viku. Ef það er mjög
slitið, er hægt að leita til fag-
lærðs, sem getur brennt slitið úr
með vissri aðferð.
Réttur hárbursti er mikilvæg-
ur. Hárbursti úr ekta hár, t.d.
svinshári er beztur fyrir hárið.
Þeir kosta að visu meira, en
endast i mörg ár. Flestir greiða
sér oftar en einu sinni á dag, svo
að hann óhreinkast jafnt og hár-
ið. Burstann verður að þvo jafn-
oft og hárið og helzt oftar upp úr
sjampói.
Hárið verður að bursta vel og
vandlega kvölds og morgun. A
kvöldin er lika mikilvægt að
bursta úr spray og túperingu, ef
þvi er fyrir að fara. Mjög gott er
svo að bursta hárið öðru hverju
við opinn glugga, svo að hreint
loft geti leikið um það. Ef hárið
fitnar mikið, burstið þá ekki al-
veg við hársrótina.
Hárið má þvo eins oft og hver
vill, næstum þvi. En það verður
að gera rétt og varlega. Bezt er
að þvo hárið einu sinni i viku, og
þá að bera sjampó tvisvar i. Ef
það er þvegið oftar i viku, þá má
aðeins bera sjampóið einu sinni
i.
Notið fremur milt sjampó og
munið, að hárið verður ekkert
hreinna, þó notað sé mikið
sjampó i einu. Þurrkið hárið
varlega, þvi að blautt hár er
miklu viðkvæmara en þurrt.
HVERNIG ER BEZT AÐ
MEÐHÖNDLA HÁRIÐ?
— Frá hárgreiðslusýningu Dietmars Plainer,
austurrísks hárgreiðslumeistara
//Unglingarnir vita
mjög vel/ hvernig þeir
vilja hafa hár sitt, og þó
að foreldrarnir hafi ein-
hverjar ákveðnar skoð-
anir um klippinguna, þá
fara þeir nú samt eftir
eigin höfði".
Þetta sagði hárgreiðslumeist-
arinn og hárskerinn Dietmar
Plainer frá Austurriki meðal
annars á hárgreiðslusýningu,
sem haldin var á vegum Hár-
greiðslufélagsins að Hótel Borg
i fyrrakvöld.
Þar voru sýndar ýmsar nýjar
greiðslur, bæði herra- og dömu-
greiðslur, og einnig var sýnd
klipping á unglingspilti.
Dietmar Plainer hefur haldið
sýningar i 93 löndum, og þetta
er i annað sinn sem hann heim-
sækir Island. Hann er einn af
kunnustu og eftirsóttustu hár-
greiðslumönnum i heimi og hef-
ur greitt mörgu konunglegu
höfðinu um dagana.
Og hann er ekki lengi að fást
við hár á mönnum, að minnsta
kosti varð honum ekki skota-
skuld úr þvi að greiða og klippa