Vísir - 09.03.1974, Qupperneq 5
I
Visir. Laugardagur 9. marz 1974. 5
Þótt langt sé siðan Nói sigldi
örkinni i strand á fjallinu Ararat i
Tyrklandi, er strandið þó alltaf
öðru hverju i fréttunum.
NÝIR
Hér sjáum við dr. John Mont-
gomery, sem hefur ritað bók um
strandið og leitar nú að flakinu,
halda á siðustu hjálpargögnum
sinum.
Það eru myndir teknar úr
gervitungli. Eins og sagt hefur
verið frá hér i blaðinu, telja ýms-
ir, að gervitunglamyndirnar sýni
flakið.
Fræðimannastyrkir
Atlantshafsbandalagsins
Atlantshafsbandalagið (NATO) mun að
venju veita nokkra styrki til fræðirann-
sókna i aðildarrikjum bandalagsins á
háskólaárinu 1974-1975, og koma háskóla-
menntaðir menn aðallega til greina.
Markmiðið með styrkveitingunum er að
stuðla að námi og rannsóknum á ellefu til-
greindum sviðum, sem snerta hagsmuni
aðildarþjóða bandalagsins i rikum mæli,
enda sé stefnt að útgáfu niðurstöðu rann-
sóknanna, sem fara skulu fram i einu eða
fleiri aðildarrikjum.
Upphæð hvers styrks er 23.000 belgiskir
frankar á mánuði, um 2-4 mánaða skeið
að jafnaði, eða jafnvirði þeirrar f járhæðar
i gjaldeyri annars aðildarrikis, auk ferða-
kostnaðar.
Utanrikisráðuneytið veitir allar nánari
upplýsingar og lætur i té umsóknareyðu-
blöð, en umsóknir skulu berast ráðuneyt-
inu i siðast lagi 1. april 1974.
Utanrikisráðuneytinu,
Reykjavik, 6. mars 1974,
Hve lengi viltu
bíða
eftir f réttunum?
Mhu fá þær heim til þín samdægurs? Eóa viltu bíða til
næsta morguns? VtSÍR flytur fréttir dagsins í dag!
SIÐIR
Nýir siðir koma með nýjum
mönnum má segja um þessar
myndir. Sú efri var tekin af stúd-
entaóeirðum i Berkeley-háskóla i
Kaliforniu, en þær voru þá helzta
iðja stúdenta, eða sú sem mest
bar á. Neðri myndin er tekin i
Ohio-háskóla fyrir nokkkrum
dögum og sýnir stúdent iðka
helzta tómstundagaman stúdent-
anna þar um þessar mundir:
hlaupa nakinn um háskólalóðina.
1 fréttum frá UPI-fréttastofunni
segir, að slik hlaup njóti vaxandi
vinsælda.
Burtu með Heath
A meðan þeir Edward Heath,
þáv. forsætisráðherra Breta, og
Jeremy Thorpe, formaður Frjáis-
lynda flokksins, þinguðu um
stjórnarmyndun á sunnudaginn,
safnaðist þetta fólk saman við
Downing stræti. Þvi var greini-
lega ekki annt um, að Heath tæk-
ist að fá Thorpe til samstarfs við
sig.
WILSON
VILL
VERA
HEIMA
Harold Wilson ætlar ekki að
setjast að i Downing stræti 10, bú-
stað brezka forsætisráðherrans.
Hann tilkynnti i gær, að hann ætl-
aði að búa áfram I húsi sinu. Wil-
son keypti það, þegar hann hætti
aö vera forsætisráðherra 1970.
Húsiö er nálægt bækistöðvum
Verkamannaflokksins i London,
og það tekur Wilson aðeins tvær
minútur að aka til skrifstofu sinn-
ar i Downing stræti, þar sem
þcssi mynd var tekin.
Leitin að örkinni heldur áfram