Vísir - 11.03.1974, Blaðsíða 12
mamammnmmnBmnugHnixrmBMHR
^ J # MfP
<%. ^ÍL # .^^Jgpf lUPi
Lf ? ^
1. : ■ -;. v
£mm.W
Vísir. Mánudagur 11. marz 1974.
*ki. - - "■ ■ -' :##if sg|i§gg
:V-'.
**& siy&t^y-f
.;<^feSaraSjS2í
Tíu Newcastle-leikmenn hetjur!
Þaö varö allt snarvit-
laust á St. James Park í
Newcastle á laugardag#
þegar heimaliðið lék við
Nottm. Forest úr 2. deild í
6. umferð bikarsins.
Þegar dómari leiksins
dæmdi vítaspyrnu á
heimaliðiðá 56. min., sem
George Lyall skoraði úr
og kom Forest í 3-1, og
rak síðan einn leikmanna
Newcastle, Pat Howard,
af leikvelli fyrir að mót-
mæla vítaspyrnudómn-
um, streymdu þúsundir
áhorfenda niður á völlinn
— fyrst heimamenn,sem
ætluðu að „drepa" dóm-
arann, og síðan fylgdu
fylgismenn Forest á
eftir.
A augnabliki logaði leikvöll-
urinn i slagsmálum fylgis-
manna liðanna — og sama átti
sér stað á áhorfendapöllunum.
Lögreglan var fljót til og varði
dómarann og hann lét leikmenn
vikja af velli ,,á öruggari stað”.
Siðan tók það lögreglumennina
10 min. að hreinsa völlinn. Þá
hófst leikurinn að nýju og
staðan var sannarlega ljót hjá
hinu fræga bikarliði, Newcastle,
— leikmenn einum færri og For-
est hafði tvö mörk yfir. En hinir
10 Newcastle-leikmenn urðu
hetjur áhorfenda og sigruðu i
leiknum með 4-3. 21 áhorfandi
er á sjúkrahúsi nú vegna
meiðsla — á annað hundrað
Jenný
Skolavorðustig,
vill segja fra
Það er vel gert sem við gerum sjálfar
'&á&
r.'rWfi
H'*.’-.^■Þcu.ylKtev.ijan. ti
Hannyrðavörur frá Jenný prýða heimilið
HATTA- OG HANNYRÐAVERZLUNIN
Jenný
meiddust minna og fengu að
fara heim eftir að læknar höfðu
gert að sárum þeirra.
Stórliðin úr 1. deild komust i
gegn i 6. umferðinni. Liverpool
vann i Bristol án þess að lita
nokkru sinni út sem lið i 2. sæti i
1. deild — Burnley sigraði
Wrexham, liðið frá litlu námu-
borginni i Norður-Wales, á
heimavelli sinum — og i leikn-
um i Lundúnum milli 1. deildar-
liðanna QPR og Leicester
„fæddist ný stjarna” — Joe
Waters, tvitugur Iri, var valinn
i Leicester-liðið rétt áður en
leikurinn hófst vegna meiðsla
Alan Birchenall og hann skoraði
bæði mörk Leicester, sem sigr-
aði 2-0, i sinum fyrsta stórleik.
En hverfum aftur til St.
James’Park. Þar kom Nottm.
Forest vissulega á óvart framan
af. Ian Bowyer skoraði fyrir
Forest eftir aðeins 90 sek. — en
David Craig jafnaði fyrir New-
castle á 26. min. Rétt fyrir hlé
kom Liam O’Kane Forest i 2-1.
Svo kom suðupunkturinn á 56.
min. þegar dómarinn dæmdi
viti á Newcastle. Lyall skoraði
og allt varð vitlaust um tima —
en dómarinn var nokkuð fljótur
að jafna metin, þegar leikurinn
hófst að nýju — dæmdi viti á
Forest. Terry McDermott skor-
aði og staðan varð 2-3 og útlitið
þrátt fyrir vitaspyrnuna ekki
gott hjá Newcastle, sem lék með
10 mönnum. En það var einsog
„rythminn” i leik Forest hefði
horfið i látunum — og John
Tudor jafnaði fyrir Newcastle,
r
þegar 20 min. voru til leiksloka.
Og áfram buldu sóknarloturnar
miskunnarlaust á vörn Nottm.
Forest — og vörnin gaf eftir
minútu fyrir leikslok.
Miðvörður og fyrirliði New-
castle Bobby Moncur skoraði þá
sigurmarkið. Newcastle— þetta
fræga bikarlið — er þvi enn einu
sinni komið i undanúrslit, sem
fara fram 30. marz. Ahorfendur
voru 54.500.
A Ashton Gate i Bristol voru
áhorfendur 37.000 — og þa sigr-
aði Liverpool á heppnismarki,
sem skorað var á 48. min. Kevin
Keegan náði knettinum, þar
sem hann fór af Graham Colli-
er, og sendi fyrir markið. Aftur
lenti knötturinn á Bristol-leik-
manni og féll fyrir fætur John
Toshack, sem skoraði.
1 hálfleiknum sótti 2.
deildarliðið nær látlaust og
Keith Fear var nærri að skora
oftar en einu sinni. Aðeins
frábær markvarzla Ray Cle-
mence stöðvaði hann. Rétt eftir
mark Liverpool fékk Trevor
Tainton bezta tækifæri Bristol,
sem hann misnotaði — en
siðustu 20 min. leiksins hafði
Liverpool leikinn i hendi sér.
Litla 3ju deildarliðið Wrex-
ham barðist af krafti i
Burnley — sótti mun meira
framan af og Burnley var hepp-
ið að halda jöfnu i fyrri hálfleik.
Sigurmark Burnley hafði
heppnisstimpil á sér. Skot frá
Frank Casper lenti i fæti varn-
armanns Wrexham, David
Fogg, og breytti stefnu framhjá
Brian Lloyds, markverði, i
markið. Það var á 58.min. og
eftir það réð Burnley gangi
leiksins. Áhorfendur voru
36.091, sem er helmingur af
ibúafjölda Burnley — þúsundir
voru frá Wrexham.
Rétt áður en dómarinn flaut-
aði leiksbyrjun á leikvelli QPR,
Loftus Road i Lundúnum, sendi
framkvæmdastjóri Leicester
tvitugan íra, Joe Waters, inri á
völlinn vegna þess að vonlaust
reyndist, að Alan Birchenall
gæti leikið. Og hvilikur leikur
hjá hinum unga íra. Hann kom,
sá og sigraði. Áhorfendur voru
34.078 — met á Loftus Road, og
þeir voru ánægðir framan af
meðan QPR sótti mun meira.
En Leicester varðist vel — og
ekkert mark var skoraði i fyrri
hálfleik.
Á 54. min. fékk Frank
Worthington knöttinn — gaf vel
fyrir mark QPR og þar kom
Waters eins og bryndreki á
fullri ferð, náði kriettinum og
skoraði. Þegar átta min. voru til
leiksloka skoraði hann aftur.
Hann gaf knöttinn á Steve Earle
— hélt áfram á fullri ferð, fékk
knöttinn aftur og renndi honum
framhjá hinum frábæra
markverði QPR, Phil Parkes,
eins og ekkert væri auðveldara
i heiminum — og gerði það með
öllum tilburðum hins leikreynda
manns. Það i sinum fyrsta
stórleik. QPR lék oft mjög vel i
leiknum, en Peter Shilton átti
enn einn glæsileikinn i marki
Leicester.
Vitaspyrna kom
ó sigurbraut að
Leeds
Skólavörðustíg 13a - Sími 19746 - Pósthólf 58 - Reykjavfk
Vítaspyrna færði
Leeds sigur gegn
Manch. City á Elland
Iload á laugardag og
átta stiga forskot i 1.
deild að nýju i afar
grófum leik, þar sem
dómari leiksins varð
aðalleikari leiksins.
Þetta var þýðingar-
mikill sigur fyrir leik-
menn Leeds, sem
kannski kemur sjálfs-
traustinu i lag aftur
eftir ófarirnar að und-
anförnu.
Eina mark leiksins i Leeds
kom á 52. min. Billy Bremner,
fyrirliði Leeds, var þá felldur
innan vitateigs og Peter Lori-
mer skoraði úr vitaspyrnunni,
sem dæmd var. Það var
raunverulega hið eina, sem
36.578 áhorfendur gátu klappað
fyrir i leiknum, en hann varð
mikil vonbrigði, þvi þarna
áttust við þau lið, sem leika
hvað glæsilegasta knattspyrnu
enskra liða. Miðherjar City, Lee
og Law, komust litið áleiðis
gegn sterkri vörn Leeds og
Manchester-liðið virtist aldrei
hafa möguleika á að jafna.
West Ham náði enn einu
þýðingarmiklu stigi, þegar liðið
gerði jafntefli við Derby, sem er
i þriðja sæti i 1. deild, og það á
útivelli. Derby þurfti meira að
segja á viti að halda til að ná
stigi. Það var dæmd á 63.min.
þegar Kevin Hector var felldur,
og Bruce Rioch skoraði fyrsta
mark sitt þar fyrir Derby. Hinn
óviðjafnanlegi fyrirliði West
Ham, Billy Bonds, jafnaði tiu
min. siðar með frábærum
skalla.
Úrsiit urðu annars þessi i 1.
deild.
Coventry—Stoke 2-0
Derby—West Ham 1-1
Everton—Birmingham 4-1
Leeds—Manch. City 1-0
N orwich—Chelsea 2-2
Wolves—Ipswich 3-1
2. deild
Bolton—WBA 1-1
Cardiff—Preston 2-0
C. Palace—Sunderland 3-0
Fulham—Carlisle 0-2
Huil City—Luton 1-3
Middlesbro—Millvall 2-1
Notts Co.—Sheff.Wed. 1-5
Swindon—Portsmouth 1-2
Orient—Oxford 1-1
marki Alan Sunderland á 25.
min. og Peter White, sem lék
sinn fyrsta leik i aðalliði Úlf-
anna, kom liðinu i 2-0 á 60. min.
Clive Woods skoraði eina mark
Ipswich á 74,min„ en þegar fjór-
ar min. voru eftir skoraði
Derek Dougan 3ja mark úlf-
anna.
Þá kom að þvi að Stoke tap-
aði. Tommy Hutchison náði
forustu fyrir Coventry á 49. min.
eftir góðan undirbúning Willy
Carr og Brian Alderson — og á
75. min. gulltryggði David Cross
sigurinn, þegar hann náði knett-
inum, sem spyrnt var aftur til
markvarðar Stoke, John Farm-
er, en Cross komst á milli.
Bob Latchford, dýrasti leik-
maður Englands, var sin-
um gömlu félögum og þá
einkum bróður sinum Dave
erfiður á laugardag, þegar
Everton sigraði Birmingham
4-1. öll mörkin voru skoruð
i siðari hálfleik og Bob skor-
aði • tvö af mörkum Everton
— og átti mestan heiður af þvi
þriðja. Mick Lyons skoraði
fyrsta markið fyrir Everton
á 46. min. og á 65. min. skoraði
Bob fyrra mark sitt hjá bróður
sinum I Birmingham-markinu.
Bob Hatton minnkaði muninn i
2-1, en á 73. min. skoraði Bob
aftur — og rétt fyrir leikslok lék
hann i gegn — átti skot i þverslá
og þaðan hrökk knötturinn fyrir
fætur Lyons, sem renndi honum
i markið.
Chelsea byrjaði með látum i
Norwich — eftir 30 sek. var
Peter Houseman búinn aö skora
fyrir Lundúnaliðið eftir fyrir-
gjöf Charlie Cooke. Á 50. min.
komstChelsea i 2-0, þegar Steve
Kember skoraði „ódýrt” mark.
Þá vaknaði Norwich-liðiö.
David Stringer skoraöi á 59.
min. og rétt I lokin jafnaði Ted
McDougall meö góðum skalla.
Úlfarnir náðu forustu með
Staðan er nú þannig I 1. deild.
Leeds 33 20 12 1 56-21 52
Liverpool 31 18 8 5 39-23 44
Derby 33 12 13 8 42-33 37
qpr' , 31 11 13 7 49-41 35
Everton 32 13 9 10 39-34 35
Ipswich 32 13 9 10 51-48 35
Leicester 31 11 12 8 40-31 34
Burnley 30 11 10 9 36-35 32
Newcastle 30 12 7 11 40-33 31
Coventry 34 12 7 15 35-43 31
Manch. C. 30 11 8 11 30-28 30
Sheff.Utd 31 10 10 11 38-37 30
Wolves 32 10 10 12 38-42 30
Tottenham 31 10 10 11 35-42 30
Stoke 31 8 13 10 39-35 29
West Ham 33 9 11 13 42-49 29
Arsenal 32 10 9 13 34-41 29
Southampton .32 9 11 12 38-50 29
Chelsea 32 9 10 13 47-48 28
Birmingh. 31 7 9 15 34-53 23
Manch.Utd. 30 6 9 15 25-38 21
Norwich 32 4 12 16 27-49 20
2. deild
Middlesbro 32 20 10 2 48-23 50
Luton 32 16 9 7 47-37 41
Orient 32 13 13 6 47-32 39
WBA 32 13 12 7 41-31 38
Blackpool 32 13 11 8 43-30 37
Carlisle 31 14 8 9 46-35 36
Nott. For. 31 11 13 7 43-29 35
Hull 33 9 15 9 34-37 33
Notts.C. 34 12 9 13 48-53 33
Sunderland 32 12 8 12 41-33 32
Bolton 32 12 8 12 37-33 32
Fulham 31 12 8 11 29-29 32
Portsmouth 32 11 9 12 35-51 31
Millwall 33 10 10 13 40-42 30
Bristol C. 32 11 8 13 37-41 30
Cardiff 33 9 11 13 38-44 29
Aston Villa 30 8 12 10 29-30 28
Preston 33 8 12 13 34-47 27
Oxford 32 7 : 12 13 30-40 26
Sheff. Wed. 33 8 9 16 39-48 25
C. Palace 32 7 : 10 15 31-44 24
Swindon 34 5 9 20 30-58 19