Vísir - 11.03.1974, Blaðsíða 5
Vísir. Mánudagur 11. marz 1974.
5
LÖND í MORGUN UTLÖNDI MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson
Byrjuðu í námunum í nótt
Þeir voru sigrihrósandi kolanámumennirnir I Yorkshire I morgun, þegar þeir byrjuðu aftur vinnu sina
að loknu verkfalli.
Myndin hér við hliðina var tekin á fundi i einu féiagi brezkra kolanámumanna um helgina. Tilboð ríkis-
stjórnar Harolds Wilsons um allt að 30% launahækkun var samþykkt í öllum félögum.
Kolaframleiöslan hófst
hjá Bretum i morgun
eftir langa vinnudeilu,
sem hrundið hefur landinu
fram á barm efnahags-
legs hruns og öngþveitis.
Um leið hófst i dag fyrsta
vinnuvikan eðlilegrar stærðar á
nýja árinu. En kolaskorturinn
og oliueklan hafa leitt til skorts
á ýmsum nauðsynjum fram-
leiðsluiðnaðarins, og er búizt við
þvi, að hann komist þvi ekki i
eðlilegan gang fyrr en að
nokkrum vikum liðnum.
í sumum námunum hófst
vinna um miðnætti i nótt. Fyrstu
vaktirnar fara i það að ganga úr
skugga um, að tækjakostur og
öryggisútbúnaður sé nothæfur
eftir margra vikna notkunar-
leysi. t stærstu námunum getur
þetta tekið nokkra daga.
Verkfallinu lauk um leið og
hin nýja stjórn Wilsons, sem
leysti af hólmi stjórn Heaths,
sem verkfallið felldi, gerði
námumönnum tilboð um 30%
kauphækkun. Var það tilboð
samþykkt. Þýðir það allt að 3000
króna kauphækkun á viku fyrir
næturvakt i námunum.
Jopanski hermaðurinn
gaf sig loks fram
— 30 árum eftir stríðslok. Valdi afmœlisdaginn sinn til þess
Hiro Onoda liðsforingi,
sem hefur farið huldu
höfði á Lubangeyju frá
því í lok seinni heims-
styrjaldar, gafst loks
upp fyrir heryfirvöldum
á Filippseyjum i gær.
,,Ég fékk aldrei skipun um
það”, sagði Onoda, þegar
blaðamenn spurðu hann eftir á,
hvi hann hefði ekki gefið sig
fram fyrr i þessari 30 ára útlegð,
— Hann hafði ætlað sér að vera
i felum til hinztu stundar.
Onoda átti 52 ára afmæli i
gær. Hann kom snöggvast fram
snemma i gær, en hvarf strax
aftur i frumskóginn til þess að
sækja uppáhaldssverðið sitt,
sem hann langaði til að hafa
CIA og stór-
fyrirtœkin
Bandaríska leyni-
þjónustan, CIA, hefur sótt
marga af útsendurum
sinum í hóp forystumanna
Loftbelgur-
inn fundinn
Tvö skip tilkynntu i gær, að
þau hefðu séð fremur stórt
rekald, likt og stóra hvita
bauju, undan ströndum
Liberiu. Hafa vaknað vonir
um, að þar sé komin „karfan”
i loftbelg Thomasar Gatch,
sem ætlaði að verða fyrstur til
að fara yfir Atlantshafið i ioft-
belg, en hefur ekki sézt siðan
21. febr.
Siðast sást til hans i lofti um
950 milur vestur af Azor-
eyjum, en þetta rekald, sem
skipin lilkynntu um, var um
1.500 milur suðvestur af þeim
slóðum.
Fjölskylda Gatch bg Lloyds
tryggingarfélagið hafa boðið
10.000 dollara verðlaun þeim,
sem veitt gæti upplýsingar, er
nægja til að finna ævintýra-
manninn.
atvinnufyrirtækja. Þetta
kom fram í gögnum, sem
birt voru i Washington í
dag.
t gögnunum kemur fram vitnis-
burður Richard Helms, fyrrv.
yfirmanns CIA, þar sem hann
segir, að leyniþjónustan hafi haft
sérstakan áhuga á sambandi við
starfsmenn risafyrirtækja, sem
ná til alls heimsins. Gögnin eru
frá nefnd öldungadeildar
þingsins, sem bað Helms um það i
fyrra að skýra, hvers vegna
Arabalöndin hefðu ákveðið að
minnka oliuframleiðslu sina.
— Eitt versta verkefni okkar
var að fá haldgóðar upplýsingar
frá oliufyrirtækjunum um verð og
framtiðarhorfur, sagði Helms við
öldungadeildarþingmennina.
með sér til minja. Það afhenti
hann formlega Joes Rancudo
hershöfðingja til merkis um
uppgjöf sina.
Rróðir hans, Toshiro (62 ára),
hafði hitt hann áður. — „Mér
þykir fyrir þvi, hvað ég hef
valdið ykkur kviða lengi”, sagði
Hiro — „Þú stóðst þig vel”,
sagði bróðir hans.
Hiro hafði verið skilinn eftir
á eyjunni af herdeild sinni i
striðinu til þess að njósna um
bandariska óvinaherinn.
Strax i morgun, þegar aðeins nokkrar klukkustundir voru liðnar, frá
stjórnarmyndun Goldu Meir, hélt Abba Eban, utanrikisráöherra, til
Washington. Þar ætlar liann að ræða um friðargerð við Sýrlendinga.
Fríður fyrsta verk
efni Goldu
Ríkisstjórn Israels undir
forystu Goldu Meirs var í
gær vottaö traust í
Knesset, þjóðþingi ísraels.
Stjórnin hlaut stuöning 62
þingmanna af 120,46 voru á
móti og 9 sátu hjá. Mun
stjórnin nú hef jast handa
um gerð friðarsamninga
viö Arabaríkin.
I ræöu sinni í Knesset í
gær sagði Golda Meir, að
ísraelsmenn væru reiðu-
búnir til að semja frið við
arabísku nágrannaríkin, ef
þeir fengju landamæri,
sem unnt yrði að verja.
Meir sagði, að hún hefði veitt
Henry Kissinger umboð til aö
skýra Sýrlendingum frá þvi, að
innan tveggja vikna myndu
tsraelsmenn leggja fram ýtar-
lega áætlun um aðskilnað
herjanna á Golan-hæðum.
Forsætisráðherrann hafnaði
hugmyndum um sérstakt riki
Palestinumanna á vesturbakka
árinnar Jórdan. Hún sagði, að
samningur milli Jórdaniu og
Israels yrði að byggjast á þvi að
það yrðu aðeins tvö sjálfstæð riki
á svæðinu.
1 stjórnarsáttmála þessarar
nýju samsteypustjórnar Meir
kemur fram, að flokkur hennar
hefur orðið að láta af ýmsum
stefnumálum sinum til aö þókn
ast Þjóðlega trúræknisflokknum.
I sáttmálanum segir m.a, að efnt
skuli til nýrra kosninga, ef friðar-
samningur við Jórdaniu hefur i
för með sér eitthvert afsai á
landi.
í umræðunum i Knesset i gær
réðst Menahem Begin, leiðtogi
hægri fylkingarinnar Likud,
harðlega á Goldu Meir. Sagði
hann, aö hún hefði vanvirt
forsætisráðherraembættið með
hringlandahætti sinum við
stjórnarmynduna.
Stjórnarkreppa hefur verið i
Israel siðan um áramót. Allan
timann hefur Golda Meir reynt
stjórnarmyndun. Það var ekki
fyrr en fregnir bárust af
vigbúnaði Sýrlendinga við
landamæri Israeis á Golan-
hæðunum i siðustu viku, að Moshe
Dayan og Þjóðlegi trúræknis-
flokkurinn gengu til samstarfs við
Meir. Ekkert gerðist á Golan-
hæðum um helgina.
STORU FLOKKARNIR VINNA I BELGIU
Þegar um 90% atkvæöa
úr belgísku þingkosn-
ingunum i gær höföu verið
talin, benti allt til þess, aö
tveir stærstu stjórnmála-
flokkar landsins fengju
sameiginlegan meirihluta
til stjórnarmyndunar.
Þessir flokkar eru Kristilegir
sósialistar, sem unnu mest á i
kosningunum, og Sósialistar. En
þeir sátu i rikisstjórninni, sem
sprakk i byrjun þessa árs, ásamt
Frjálslyndum. sem mynda þriðja
stærsta flokkinn.
Talið er liklegt, að Leo Tinde-
mans úr Kristilega sósialista-
flokknum verði næsti forsætisráð-
herra Belgiu.
Væntanlegir stjórnarflokkar ná
til alls landsins og sameina bæði
Flæmingja og Vallóna innan
sinna vébanda. Tungumála-
deilan i Belgiu og ólik sjónarmið
um dreifingu atvinnufyrirtækja
og stjórnarstofnana um landið
settu mestan svip á kosningabar-
áttuna. Svo virðist sem fram-
gangur öfgaflokka tungumála-
hópanna hafi stöðvazt i kosning-
ununt aö þessu sinni.