Vísir - 11.03.1974, Blaðsíða 11
Visir. Mánudagur 11. marz 1974
Visir. Mánudagur 11. marz 1974.
Ágúst varð sjötti
Tvö heimsmet sett á EM í frjálsum íþróttum í Gautaborg
ÍR-ingurinn ungi,
Ágúst Ásgeirsson, brá
sér frá Lundúnum, þar
sem hann stundar nám,
til Gautaborgar um
helgina og keppti á
Evrópumeistaramót-
inu þar i frjálsum
iþróttum. Ágúst varð
sjötti i 1500 m hlaupinu
á mótinu — hljóp á
3:55.2 min. og stórbætti
árangur sinn á
vegalengdinni. Meira
að segja er þessi timi
hans innanhúss betri en
hann á bezt úti.
Ágúst keppti einnig i 3000 m
hlaupinu, en komst þar ekki i
úrslit. Náði þó sinum bezta
tima, 8:44.2 min.
Frábær árangur náðist i
mörgum greinum á mótinu, tvö
heimsmet sett, og önnur jöfnuð,
auk bezta árangurs, sem náðst
hefur i Evrópu.
Óvæntast var á laugardag,
þegar Pólverjinn Michael
Joachimowski sigraði i
þristökki og setti heimsmet inn-
anhúss, stökk 17.03 metra.
Helena Fibingerova, Tékkósló-
vakiu, setti heimsmet i kúlu-
varpi kvenna — varpaði 20.75
metra, sem er 20 sm betra en
heimsmetið Lögregluþjónn frá
Peterbro, Geoffrey Capes, Eng-
landi, vann óvænt i kúluvarpi og
náði bezta árangri innanhúss i
Evrópu, 20,95 metra. Annar
varð Heinz Rithenburg, Austur-
Þýzkalandi, með 20,87 metra,
svo litlu munaði.
1 1500 metra hlaupi kvenna
var sett „óopinbert heimsmet”.
— Tonka Petrova, Búlgariu,
hljóp á 4:11,0 min. og var rétt á
undan Karin Krebs, Austur-
Þýzkalandi, sem hljóp á 4:11.33
min.
1 1500 metra hlaupi karla sigr-
aði Henry Szordykowski, Pól-
landi, á 3:41.78 min. Thonips
Wessinghage, Vestur-
Þýzkalandi, varð annar á
3:42.02 min. Þriðji V. Staszak,
Póllandi, á 3:43.48 min. Fjórði
Petre Lupan, Rúmeniu, 3:44.67
min.
Frederik Hagberg, Sviþjóð,
varð fimmti á 3:47.00 min. en
hann hefur hlaupið vel innan við
3.40 min. utanhúss, og Ágúst
Asgeirsson kom svo i sjötta sæti
á 3:55.2 min. sem er hans lang-
bezti árangur.
Olympiumeistarinn frægi,
Valery Borzov, sigraði i 60
metra hlaupinu á 6.58 sek. og
sannaði með þvi, að hann er að
ná sér vel á strik aftur. Hinn
Olympiumeistarinn i sprett-
hlaupunum, Renate Stecher,
Austur-Þýzkalandi, lenti hins
vegar i mikilli keppni i 60 m
hlaupi kvenna og sigraði á ein-
um hundraðasta úr sekúndu.
Hún hljóp á 7.16 sek. en Andrea
Lynch. Bretlandi, hljóp á 7.17
sek. Irena Szewibska, Póllandi,
hljóp á 7.20 sek. og Mona-Lisa
Pursiainen, Finnlandi, á 7.24
sek. Það voru mikil vonbrigði
fyrir Finna, að hún skyldi ekki
verða i verðlaunasæti i keppn-
inni.
Fram-stúlkur meist-
arar nú í vikunni?
Þrir leikir fóru fram i
1. deild kvenna i hand-
knattleik um helgina.
Valur sigraði Ármann
10:8, Fram sigraði FH
18:11 og KR og Vikingur
gerðu jafntefli 11:11.
Búizt var við jöfnum leik á milli
Valsog Ármanns og fór svo. Leik-
urinn var lengst af jafn og það var
ekki fyrr en undir lokin að Vals-
stúlkunum tókst að tryggja sér
sigur.
Leikur KR og Vikings var einn-
ig jafn en honum lauk með jafn-
tefli 11:11. Þar með komust Vik-
ingsstúlkurnar enn betur af
hættusvæðinu, en þær hafa nú
hlotið 3 stig. Þór á Akureyri hefur
ekkert stig hlotið til þessa og er i
mikilli fallhættu.
Fram átti ekki í neinum
erfiðleikum með FH og sigraði
18:11. Fram á nú mesta mögu-
leika á að sigra i deildinni, hefur
enn ekki tapað leik, og ef liðið
sigrar Ármann á miðvikudags-
kvöldið, er meistaratitillinn i
húsi.
Kertaluktir
Bæði til að standa á borði og hengja upp.
Tilvalin tækifærisgjöf og afmælisgjöf fyrir
unga fólkið. Margir litir. Verð aðeins 395
kr. og 595 kr. Hjá okkur eruð þið alltaf vel-
komin.
Skólavörftustig 8 og Laugavegi 11
(Smiftjustigsmegin)
^^mmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mt^
Staðan er nú þannig
i deildinni:
Fram
Valur
Ármann
FH
KR
Vikingur
Þór
9 9 0 0 132-79 18
10 8 0 2 141:107 16
10 5 2 3 113-109 12
10 4 2 4 131-129 10
8 3 1 4 93-97 7
9117 81-109 3
9009 77-136 0
MFREIÐA
EIGEÍIDUR!
AukiS ÖRYGGI, SPARNAÐ og ÁNÆGJU
í keyrslu yðar, moð því að lóla okkur
annast slillingarnar ó bifreiðinni.
Framkvæmum véla-, hjóla- og Ijósaslillingar
ósaml tilheyrandi viðgerðum.
Ný og fullkomin slillitæki.
O. Engilberts/on h/f
Stilli- og Auðbrekku 51
vélaverkstæði Kópavogi, sími 43140
!Íf ;
Sigurvegarar Stjörnunnar I 3. deild. Formaftur félagsins, Yngvi Guðmundsson, er Iengst til vinstri.
Ljósmynd Bjarnleifur.
„Ætlum okkur ekkí að vera neítt
Íó-jó ó milli 2. og 3. deildar"
- segir formaður Stjörnunnar úr Garðahreppi, sem sigraði í 3. deildinni í handknattleik í gœr
Um svipað leyti og
rúmenska landsliðið i hand-
knattleik var að fagna sigri i
Heimsmeistarakeppninni i
Austur Berlin með miklum
kossum og faðmlögum, var
annað lið að fagna engu
siður i íþróttahúsinu i
Hafnarfirði.
Það voru leikmenn Stjörnunnar úr
Garðahreppi, sem i gær urðu sigur-
vegarar í 3. deildarkeppninni i hand-
knattleik með þvi aösigra i siðari úr-
slitaleiknum við Þrótt frá Neskaup-
stað.
Menn föðmuðust og kysstust og
blómvöndur var dreginn fram og
færður þjálfaranum, sem er enginn
annar en Viðar Simonarson leikmaður
með FH og landsliðinu.
Stjprnan sigraði i fyrri leiknum, sem
fram fór á föstudaginn, með 18 mörk-
um gegn 13. Var það mikill baráttu-
leikur eins og siðari leikurinn, sem
lauk með sigri Stjörnunnar 24:20, eftir
að staðan í hálfleik hafði verið 13:11.
Austfjarða-Þróttur tefldi fram
harðsnúnu liði með sjálfan bæjarstjór-
ann i broddi fylkingar. Það er Logi
Kristjánsson, fyrrum markvörður
með Haukum og landsliðinu, sem að
þessu sinni hafði markið fyrir framan
sig. Hann kunni að stýra boltanum
þangað, þvi hann skoraði hvorki meira
né minna en 9 mörk i siðari leiknum —
sum þeirra mjög glæsileg.
Leikurinn var annars heldur stór-
karlalega leikinn og fátt um fina
drætti, en þó brá fyrir sæmilegum
köflum, aðallega hjá Stjörnunni. Aust-
firðingarnir kunnu sýnilega ekki við
sig i svona stóru húsi, þvi vörnin
þjappaðist öll saman á miðjuna og
spilið var þröngt.
Lið Stjörnunnar getur trúlega orðið
gott þegar fram liða stundir og var
formaður félagsins, hinn gamalkunni
gllmukappi Ingvi Guðmundsson,
sannfærður um það, þegar við töluðum
við hann eftir leikinn.
„Þarna höfum við fengið kjarna
með góðu liði, og við ætlum okkur ekki
að verða neitt jó-jó á milli 2. og 3.
deildar á næstu árum, heldur stefnum
við að sæti i 1. deild.
Við erum að fá mjög góða aðstöðu i
Garðahreppnum og við eigum
skemmtileg lið i öllum yngri flokkun-
um, sem koma til með að gera Stjörn-
una að stjörnu i handknattleiknum
áður en langt um liður.”
Fram - KR í körfu
t kvöid verða leiknir tveir leikir
i Bikarkeppni KKt i körfuknatt-
leik. Fara báðir leikirnir fram i
Laugardalshöllinni og hefst sá
fyrri kl. 20,00.
t fyrri leiknum eigast við KR og
Fram og mun þetta vera i fyrsta
sinn, sem þessi félög mætast með
meistaraflokka sína i körfuknatt-
leik.
Úrslitin vcrða varla nema á
einn veg. KR er nú meftal efstu
liðanna i 1. deild, en Fram hefur
góöa möguleika á að sigra i 3.
deildarkeppninni. Þó getur svo
farift aft hinir ungu leikmenn
Fram sýni KR-ingum klærnar þvi
þeir siftarnefndu hafa þurft aft
ieika tvo erfiða ieiki i 1. deildinni i
gær og fyrradag.
Siftari leiknrinn veröur milli ÍR
og tS, og ætti hann aft geta orftift
jafn og skemmtiiegur.
Brœðrabylta varð í badminton
Steinar Petersen sló Harald Kornelíusson út í einliðaleik ó KR-mótinu
Á 75 ára afmælismóti KR i
badminton, sem haldið var i
KR-heimiiinu um helgina,
skeði sá merkilegi atburður
i badmintoniþróttinni hér á
landi, að Haraldur Korne-
liusson komst ekki i úrslit i
einliðaleik karla.
Hann var sleginn út i undanúrslitum
af félaga sinum Steinari Petersen, og
er það i fyrsta sinn i fjögur ár, að
Haraldur tapar leik i undanúrslitum i
einliðaleik hér á landi.
Leikur þeirra var mjög skemmtileg-
ur og spennandi. Steinar sigraði i 1.
lotunni 15:8, Haraldur i þeirri næstu
15:12,en i oddaleiknum sigraði Steinar
17:15.
1 hinum undanúrslitaleiknum sigr-
aði Reynir Þorsteinsson KR félaga
sinn Friðleif Stefánsson KR, 15:8 og
15:8.
1 úrslitaleiknum sprengdi Reynir
Steinar með hröðum leik og sigraði
15:8 og 15:3. Hefndi Reynir þar fyrir
Óskar Guðmundsson KR, sem Steinar
sló út fyrri dag keppninnar.
1 tviliðaleiknum léku i undanúrslit-
um þeir Haldur og Steinar á móti
Herði Ragnarssyni og Jóhannesi Guð-
jónssyni, Akranesi. Þar fóru leikar
15:10 — 10:15 — 15:2 fyrir Harald og
Steinar.
t hinum undanúrslitaleiknum sigr-
uðu þeir Friðleifur og Reynir þá Hæng
Þorsteinsson og Jón Árnason 15:9 —
15:7.
Til úrslita léku þvf Reynir Þor-
steinsson og Friðleifur Stefánsson á
móti Haraldi Korneliussyni og Steinari
Petersen. Þar urðu miklar sviptingar,
en þeim Haraldi og Steinari tókst að
sigra eftir oddaleik. Breyttu þeir um
leikaðferð i siðustu lotunni, þar sem
Steinar var þá gjörsamlega búinn eftir
marga erfiða leiki og sáu þeir Reynir
og Friðleifur ekki við þvi bragði.
1 A-flokki voru háðir margir
skemmtilegir leikir. Þar léku til úr-
slita í einliðaleik þeir Þórður Björns-
son Siglufirði og Ottó Guðjónsson
TBR. Þórður sigraði 15:5 — 15:17 —
15:5. 1 tviliðaleik léku Siglfirðingarnir
Þórður Björnsson og Sigurgeir
Erlendsson til úrslita við Ottó Guð-
jónsson og Hannes Rikharðsson TBR
og sigruðu 17:14 — 15:12.
Þarna eru á ferðinni mjög skemmti-
legir ungir leikmenn, sem gaman
getur orðið að fylgjast með á unglinga-
meistaramótinu, sem fram fer um
næstu helgi.
Spenningurinn eykst
í körfu - KR tapaði
Nú þegar allur botninn
er dottinn úr 1. deildar-
keppninni i handknatt-
leik er spenningurinn
allur að aukast i 1. deild-
inni i körfuknattleik.
Um helgina fóru þar
fram þrir leikir, og að
þeim loknum er staðan
þannig, að þrjú lið hafa
tapaö 4 stigum og það
fjórða G stigum. Allt
getur þvi enn skeð og
verður áreiðanlega
gaman að fylgjast með
leikjum efstu liðanna
um næstu helgar.
A laugardaginn voru leiknir
tveir leikir, sem báðir voru mjög
skemmtilegir fyrir áhorfendur
en þeir voru fáir eins og oftast
áður i vetur.
KR-ingar lentu i klónum á 1S og
urðu að sætta sig við tap eftir að
hafa haft 5 stig yfir i hálfleik,
46:41.
Stúdentarnir, sem þarna léku
sinn bezta leik i langan tima,
höfðu skorað 20 stig gegn 9 um
miðjan siðari hálfleik og komust
þarmeðí 70:59. KR-ingar náðu að
saxa á forskotið og komust i 90:94
en þá bættu stúdentar við 3
stigum ‘ á lokasekúndunum og
sigruðu i leiknum 97:90.
1 hinum leiknum áttust við ÍR
og HSK. Þeir austanmenn höfðu
yfir 42:28 i hálfleik og það var
ekki fyrr en langt var liðið á
leikinn að IR-ingum tókst að
jafna.
Þegar 2 min. voru til leiksloka
var staðan 79:79 en á þessum
siðustu min. tókst ÍR-ingum að
skora 10 stig gegn 4 og sigra 89:83.
1 gærkveldi fór svo fram leikur
KR og Vals. Þá var nokkuð vel
mætt á áhorfendapallana, enda
búizt við skemmtilegum leik.
Við það var staðið. Leikurinn
var bæði harður og hraöur og
mjög vel leikinn sérstaklega i
fyrri hálfleik. KR hafði yfir 50:41 i
hálfleik og sigraöi i leiknum með
7 stiga mun 84:77.
KR, ÍR og Armann hafa nú öll
tapaö 4 stigum i mótinu og Valur
hefur tapað 6 stigum. Um næstu
helgi skýrast linurnar enn betur,
þvi þá leika m.a. IR-Armann.
Valur-lS og KR-UMFN, auk þess
sem HSK leikur við UMFS, en sá
leikur hefur mikið að segja í bar-
áttunni um fallið i 2. deild.
Staðan i 1. deildinni er nú þessi:
KR 10 8 2 898: :775 16
Ármann 9 7 2 814: :704 14
1R 9 7 2 826: :722 14
Valur 10 7 3 991: : 791 14
CiMFN 8 3 5 620: :650 6
1S 8 3 5 654: : 695 6
HSK 9 1 8 668: : 756 2
UMFS 9 0 9 575: : 777 0
Gros tókst það!
italinn ungi, Piero Gross,
varð sigurvegari i keppninni um
heimsbikarinn i alpagrcinum,
þegar hann sigraði i stórsvigi i
Vysokc Tatry i Tékkóslóvakiu á
laugardag og varð fimmti i
sviginu daginn eftir. Hann hlaut
181 stig samanlagt.
Ilinn frægi landi hans,
Gustavo Thoeni, varð annar i
keppninni með 165 stig og tókst
þvi ekki að sigra i fjórða sinn i
röð. Mann sigraði i svigi i
Tékkóslóvakiu.en hafði lokið
hámarkskeppnisfjölda i stór-
sviginu, og var þar þvi ekki
með.
Þriðji i keppninni um heims-
bikarinn varð hinn 18 ára
Austurrikismaður, II a nsi
Hinterseer, með 162 stig og
fjórði varð Roland Collombin,
Sviss, með 140 stig. Nánar
verður sagt frá keppninni á
morgun.
N
Skipholti 19 S: 23800
Klappastíg 26 S: 19800
Akureyri S: 21630
Hér eru nokkur sýnishorn af
hinum ýmsu gerftum, sem þú
getur sett upp. Þau eru allt
frá einföldustu tækjum, sem
slftar er hægt aft bæta inn i og
eignast þannig fullkomift Du-
al stereo-sett.