Vísir - 18.03.1974, Síða 2

Vísir - 18.03.1974, Síða 2
2 Vísir. MánudaKur 18. marz 1974 riSRSm: Egilsstaðabúar spurðir Er langt siöan þér komuö til Keykjavikur? Jóhann Kröyer, starfsmaftur Kaupfélags Héra&sbúa Egils- stö&um: — Já, það er nokkuð siðan, ég kom þangað siðast i september, en venjulega fer ég þangaö einu sinni til tvisvar á ári. Við verðum til dæmis að sækja alla okkar sérfræðilæknis- þjónustu suður. Flutningsgjald á vörum frá Reykjavik er mjög hátt. Til dæmis kostaði það mig 450 krónur að fá 1200 gramma sendingu með flugi. Guðrún Arnljótsdóttir, 10 ára nemandi, Egilsstöðum: —Nei, ég fór fyrir einu ári með pabba og mömmu og var i einn dag. Við fórum i búðir og svoleiðis. Guðmundur Porleifsson, verk- stjóri hjá Pósti og sima á Austur- landi: — Þangað fer ég eins sjaldan og ég kemst af með, og siðast fór ég þangað fyrir rúmu ári. Erindið er þá oftast i sambandi við vinnuna. l-ára Kjerúlf, húsmóðir, Egils- stöðum : —bangað fer ég ekki oft, þó bæði i fyrrasumar og árið þar áður. Þá hafði ég ekki komið til Reykjavikur i um það bil 10 ár. Aðallega fer maður til að heimsækja frændfólkið og til þess að verzla auðvitað. Aöalbjörn Björnsson, nemi að Eiðum, frá Vopnafiröi: —Ég fór siðast i haust og fer venjulega vor og haust. Þetta eru aðallega skemmtiferðir og svo kaupir maður ýmislegt eins og fatnað og iþróttavörur. Hallbjörn Jóhannsson, bóndi, Finnsstöðum i Eiöaþinghá: —Já, það er orðið langt siðan, liklega hef ég ekki komið til Reykjavikur siðan 1966. Ég vil helzt sækja þangað sem minnst. Það eru aðallega vélar og varahlutir, sem ég fæ þaðan, en þá pantar maður þá bara. Getum við nýtt hitaorku af sorpeyðingu til upp- hitunar húsa? stórhækkað að undanförnu og möguleikar Austfirðinga á varmaorku úr jörðu væru ekki taldir vera fyrir hendi. Eskfirðingar vilja kaupstaðar- réttindi Samstarf sveitar- yfir athuganir á mögu- leikum á sameiginlegri eyðingu sorps á öll- um þéttbýlisstöðum frá Seyðisfirði suður að Stöðvarfirði. Þetta kom meðal annars fram i viðtáli Visis við Jóhann Klausen, sveitarstjóra á Eskifirði. ,,Að minu áliti eru erfiðar samgöngur hér á Austurlandi, sérstaklega að vetrarlagi helzti þrándur i götu fyrir þvi, að úr þessu megi verða,” sagði Jóhann Klausen. A Eskifirði er unnið eftir bónusfyrirkomulagi eins og I mörgum öðrum frystihúsum. Bónus starfsfólks- ins fer eftir þvf, hve góö nýting fæst út úr þvi hráefni, sem unniö er. Konan á myndinni er að kanna, livort vigtin á pökkunum er rétt og einnig hvort flökin séu eins og þau eiga að vera. „Aftur á móti er ljóst, að úr sorpeyðingarvandamálum kaupstaðanna og kauptúnanna á Fiskveiðar og vinnsla sjávarafla er höfuöatvinna og undirstaða at- vinnulffs á Eskifirði. Þegar við litum inn I nýja frystihúsiö þar á dög- unum, var verið að vinna grálúðu i blokk. Þarna eru þær konurnar í frystihúsinu að snyrta og pakka flökunum, en hvað hann er að segja, maðurinn, vitum við ckki, en hláturinn, sem fylgdi orðum hans, gcrði Ijósmyndaranna liálf vandræðalegan. þessu svæði verður að bæta og tel ég ekki óliklegt, að hér yrðu minni stöðvar á hverjum stað eða sameiginlega fyrir nálæg byggð- arlög. I þvi sambandi tel ég, að nauðsynlegt sé að kanna þann möguleika gaumgæfilega, að sú hitaorka, sem myndast við eyðingu sorpsins, verði nýtt á einhvern hátt. Sagði Jóhann, að sér væri kunnugt um, að viða erlendis væri sú orka notuð til upphitunar húsa. ,,Hér á Eskifirði mætti til dæmis hugsanlega hita upp þær opinberar byggingar, sem eru i kjarna miðbæjarins. Þar er félagsheimilið þar sem skrif- stofur hreppsins eru einnig til húsa. Einnig er hér iþróttahús, skóli, læknisbústaður, hús Pósts og sima og Landsbankans,” sagði sveitarstjórinn ennfremur. Hann taldi ekkert þvi til fyrir- stöðu, að sjálf sorpeyðingin gæti staðið þar nærri, þvi hægt ætti að vera að útiloka alla mengunar- hættu þar af. Jóhann tók fram, að þessi mál væru á algjöru frumstigi, en þessi hugmynd væri vel þess virði að gaumgæfa hana. Upphitunarkostnaður húsa hefði Gatnagerðin i fyrra 8-10 milljónum ódýrari þó en ef hún hefði verið framkvœmd nú Eskfirðingar ráðgera einnig miklar gatna- og holræsa- framkvæmdir á komandi sumri. Siðastliðið sumar hófst lagning oliumalar á götur i kaupstöðum og kauptúnum á Austurlandi, og höfðu sveitarfélögin nána sam- vinnu um þær framkvæmdir. Þeirri samvinnu yrði haldið áfram, og á Eskifirði er ráðgert að ljúka við gerð allra lagna og undirbyggingu allra gatna i kauptúninu, sem ekki hefði verið lokið við i fyrrasúmar. Ráðgert er að vinna fyrir allt að 22 milljónir króna á þessu ári, ef lánsfjárfyrirgreiðsla fæst fyrir þeim hluta, sem ekki verður fjármagnaður með eigið fé. Framkvæmdir á siðasta sumri kostuðu um 17 milljónir króna, og sagði Jóhann Klausen, að nú væri séð, að ef þær framkvæmdir hefðu dregizt um eitt ár, hefðu þær kostað 8-10 milljónum króna meira. Af öðrum framkvæmdum, sem félaga á Austurlandi hefur aukizt mikið á undanförnum árum, og meðal annars standa nú Gefur það verið? Ætli það sé i Eþlópiu ekki fátt um helsi, hjá konum bæði og körlurn, fyrst keisarinn heitir frelsi. Stór hópur á Þingi er firna fús til framkvæmda cips og sjá má Þeir ætla að byggja iþróttahús fyrir alla nema M.H. Ben.Ax.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.