Tíminn - 22.01.1966, Side 5

Tíminn - 22.01.1966, Side 5
LAUGARDAGUUR 22. janúar 1966' Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benedtktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Aug- lýsingastj.: Steingrímur Gíslason. Ritstj.skrifstofur í Eddu- húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur, Bankastræti 7. Af- greiðslusími 12323. Auglýsingasími 19523. Aðrar skrifstofur,' sími 18300. Áskriftargjald kr. 95.00 á mán. innanlands — í lausasölu kr. 5.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. Unga fólkið til átaka og forustu Úrdráttar- og vantrúarstefna sú, sem nú ríkir 1 ís- lemikuin stjómarherbúðum er fyrst og fremst lítilsvirð- ing og ótrú á dugnaði og framtaki ungu kynslóðarinn- ar í landinu. Henni er vantreyst til þess að byggja upp og efla íslenzka atvinnuvegi og hafa forystu í átökunum við vandamálin. Gagnger stefnubreyting í þessum efn- um er eitt hið nauðsynlegasta nú í íslenzkum stjórnmál- um, Eysteinn Jónsson, formaður Framsóknarflokksins, ræddi einmitt um þetta meðal annars í áramótagrein sinni hér í blaðinu og sagði: „Þýðingarmikill liður í framkvæmd þessarar stefnu væri sá að bjóða út unga fólkinu í landinu, bæði í einka- rekstri, félagsrekstri og opinberri þjónustu, til þess að glíma við ný verkefni eftir nýjum leiðum. Unga fólkið er líklegra en aðrir til þess að geta rifið sig út úr þvarg- inu um nýjan skatt hér og nýjan skatt þar, losað sig úr hringekju nýrra álaga og lánsfjárhafta og gripið í þess stað á kjarnanum, losað sig við verðbólgusvimann, sem heltekur allt í stjórnarherbúðunum, brotið í blað og byggt frá grunni. Valið heppileg verkefni og fylgt þeim eftir og séð um að þau verði ekki úti vegna þess að eitt reki sig á annars horn í framkvæmdinni. Það yrði ennfremur einn þáttur hinnar nýju stefnu að kveða niður vantrú þá á framtaki fslendinga sjálfra óg oftrú á forsjá erlendra aðila sem nú er ástundað að rótfesta með þjóðinni. Hefja harða sókn gegn úrtölu- mönnum okkar tíma, sem halda þeirri kenningu að ungu kynslóðinni, að íslendingar þurfi í vaxandi mæli að hlíta forsjá annarra í sínu eigin landi til þess að vel fari. Kveðja ætti til úrvalslið vísindamanna, tækni- manna og framkvæmdamanna til þess að leggja með þekkingu sinni á gæðum lands- og sjávar og nýtízku vinnuaðferðum grundvöllinn að framíarasókn lands- manna sjálfra í samvinnu við kjörna fulltrúa þjóðar- innar“. Hneykslun íhaldsins íhaldið virðist eiga sér eina hneykslunarhellu um þess- ar mundir, og var henni skotið undir forsætisráðherrann í síðasta Reykjavíkurbréfi. Þar hneykslast hann eftir nótum á því, að andstæðingar borgarstjórnaríhaldsins skuh um þessar mundir herða gagnrýni sína á íhalds- ósjórninni í borginni. Þessir menn líta á höfuðborgina sem svo sjálfsagt íhaldsóðal eftir 40 ára stjórn, að þeir telja það goðgá, ef aðrir dirfast að ræða um borgarmál, hvað þá að stjórn borgarinnar skuli gagnrýnd og þeir knúnir til ábyrgðar vegna verka sinna fyrir kjósendum. Þeir líta á yfirráð sín sem svo sjálfsagðan hlut, að kosn- ingar séu aðeins til málamynda og hafi þann tilgang ein- an að endurnýja traustsyfirlýsingu á húsbændum íhalds- óðalsins Þetta sjálfsöryggi sama fiokks í stiórn borgar- innar áratugum saman er undirrót mestu meinsemdanna í stjórn borgarinnar, og fyrsta skrefið til bættrar stjórn- ar er það að veita íhaldinu meira aðhald svo að það hætti að líta á höfuðborgina sem erfðaóðal sitt. ___TÍMINN________________________________ f -■ ■ —— ............. ... James Reston: Johnson forseti heldur enn öllum dyrum opnum I Víetnam Hann vill komast hjá að velja á milli öfganna. RUSK ÞRIÐJI boðskapur Johnsons forseta til þingsins bar vott um yfirvegaða ákvörðun um að velja ekki milli öfga eða yztu marka. Hann kaus þá leið, að velja ekki um byssur eða smjör hér heima fyrir eða milli sprengjuárása og undanhalds í Vietnam. Eins og á stendur er sennilega rétt hjá honum að halda öllum möguleikum opn um. Yfir standa að frumkvæði for setans mikilvægar aðgerðir i Víetnam, bæði í hernaði og stjórnmálasamskiptum. Komm únistar taka sér mjög rúman tíma til ákvarðana þegar þann ig stendur á, jafnvel þó að full eining ríki meðal þeirra, en ljóst liggur fyrir, að þeir eru hvergi nærri á eitt sáttir að þessu sinni. í samræmi við þetta ætlar forsetinn bæði þeim og sjálfum sér rúman tíma til umhugsunar og athafna. SENNILEGA er að mun mik ilvægara í bráð, hvað forsetinn lét ógert og ósagt í sambandi við stríðið, en hitt, hvað hann gerði og sagði. Hann setti loft árásahléinu á Norður—Víet- nam engin ákveðin tímatak möfk. Hann lýSti ekki yfir, hvað hann ætlaðist fyrir ef kommúnistar drægu á langinn að svara friðarboðum hans eða höfnuðu þeim jafnvel beinlín is. Hann aftók ekki að eiga við ræður við Þjóðlegu frelsisfylk inguna (Viet Cong) um friðar samninga: „Friðarumleitunum okkar eru engin ákveðin takmörk sett“, sagði forsetinn. „Við munum setjast að hvaða samn ingaborði sem er, við mun um ræða hvaða uppáslungur, sem vera skal, — fjögur atriði fjórtán eða fjörutíu atriði — og við munum líta á viðhorf hvaða hóps sem er. Við vinnum að vopnahléi núna strax- eða þegar samn ingaviðræður eru hafnar. Við munum svara í sömu mynt, ef aðrir draga úr ofbeldisað- gerðum sinum, og við munum hverfa á brott með her okk- ar undir eins og Suður-Viet- nömum er tryggður réttur til að ákveða sjálfir og móta framtíð sína.“ Þarna var greinilega verið að ganga til móts við þá, sem hafa hvað fastast haldið fram, að forsetinn yrði að fást til að ræða við hinn pólitíska arm Viet Cong, eða Þjóðlegu frelsis fylkinguna. Jafnframt þessu hné allur meginhluti ræðunnar í þá átt að skuldbinda Banda ríkjamenn enn ákveðnar en áð ur til að halda áfram veru sinni í Víetnam „unz árásum léttir“ FORSETINN valdi ekki milli viðhorfa Dean Rusks utanríkis ráðherra og Georges Balls að- stoðarutanríkisráðherra til Víet nam-málsins Hann helgaði sér viðhorf beggja iafnt. í augum Rusks er vandinn í Vietnam hliðstæður erfiðleik unum í Mansjúríu og Miinchen á sinni tíð. Að hans dómi er málið jafn brýnt og mikilvægt fyrir öryggi Bandaríkjanna og átökin um Berlín, Kóreu eða ; Kúbu: Forsetinií fjallaði um . þetta eins og öryggi- bandarískú 1 þjóðarinnar væri ekki eitt í húfi, heldur heiður hennar sem þjóðar. Að áliti Balls veltur meira á aðferðum en nokkru öðru. Hann vill forðast ógnir af öllu tagi, draga úr ofbeldisaðgerð um eins og framast er unnt og gæða möguleika til samkomu- lagsumleitana sem allra imest um sveigjanleika. Forsetinn virðist einnig tileinka sér þetta viðhorf? ENGIN tilviljun réði um þessa afstöðu forsetans. Honum var meira í mun að gefa komm únistum kost á að velja en að velja sjálfur. Ræðan gaf rétta og skýra mynd af afstöðu hans sjálfs. Hann lítur ekki á skoð anir þeirra Rusks og Balls sem andstæður, heldur trúir hann þeim báðum. Afleiðingin varð auðvitað, að Ball allir gátu tekið undir ræðu for setans að einhverju leyti, en enginn þeirra, sem aðhyllast öfgafyllsta afstöðu gagnvart á- tökunum í Vietnam, var þó með öllu ánægður. Þeir, sem vilja að forsetinn láti umsvifa laust hefja loftárásirnar á Norð ur-Vietnam að nýju, eru ó- ánægðir engu síður en hinir, sem vilja að hann láti Suður Vietnama sjálfa um að bera hita og þunga baráttunnar. Forsetinn hefir oft og ein- att sætt gagnrýni meðal sendi sveita erlendra ríkja hér í Washington. Nú virðast þar flestir á eitt sáttir um, að þetta hafi verið öfgalaus, vel hugsuð og skynsamleg ræða, sem auki á möguleika til samn ingaumleitana og opni nýjar leiðir til viðræðna við komm únista, þar á meðal Þjóðlegu frelsisfylkinguna. SÉRSTAKA áherzlu lagði forsetinn á bætt og aukin verzl unarviðskipti við Sovétríkin og Austur-Evrópu, hraðari og á- hrifameiri baráttu en áður gegn offjölgun fólks, nýtingu auðlinda landbúnaðarins f Bandaríkjunum til aukningar á matvælaframleiðslu heimsins og afvopnun og eftirlit með henni. Allt gladdi þetta þá, sem vilja að valdhafarnir í Washington berjist fyrst og fremst fyrir friði og jákvæð um aðgerðum yfirleitt. Víst er auðvelt að komast þannig að orði um ræðu for- setans, að hún hafi um alla skapaða hluti fjallað, en ekki kveðið á um neitt. Hitt er þó sannara, að þar var í raun og veru tekin afstaða gégn ær ið mörgu. Ræðan stuðlaði ekki að því að auka spennu í al- þjóðamálum eða þyngja á of beldisaðgerðum, en fól í þess stað í sér tilboð um að létta á þessu hvoru tveggja og sýni lega var það markmiðið. Stund um er stjórn í því fólgin að velja ekki, og forsetinn hefir bersýnilega litið svo á, að þann ig stæði einmitt á nú.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.