Tíminn - 22.01.1966, Blaðsíða 14
TÍMINN________________________ LAUGARDAGUR
STUTTAR FRÉTTIR
SE-Þingeyri, fimmtudag.
Undanfarið hefur verið hér frost
en snjólaust í byggC og sama sem
enginn snjór í fjöllum. Breiðadals
heiði var opnuð fyrir skömmu,
en það skóf í traðirnar aftur.
Það er von Vestfirðinga að heið
in verði rudd sem fyrst. Sam-
kvæmt frásögn skíðamanna, sem
voru þarna á sunnudaginn, var
mjög lítill snjór á heiðinni og því
ætti að vera létt verk að ryðja veg
inn. Gemlufjallsheiði er aftur á
móti fær.
Tveir bátar eru gerðir héðan út
á línu og þriðji báturinn, Framnes,
fór í fyrsta róðurinn í dag með
net. Afli hefur verið sæmilegur
og gæftir góðar.
HZ-Reykjavík, föstudag.
Mjög harður árekstur varð á
Laufásveginum í dag rétt fyrir
klukkan fjögur. Tveir bílar, Voiks-
wagenbíll úr Kópavogi og vörubíll
úr Reykjavík, lentu saman af
miklu afli rétt fyrir vestan Bar-
ónsstíg og skemmdust báðir bíl-
arnir mikið. Tveir piltar úr Volks-
wagenbílnum voru fluttir á slysa-
varðstofuna nokkuð slasaðir.
Volkswagenbíllinn kom austan
götuna og vörubíllinn á móti og
rákust þeir hvor á annan. Volks
wageninn kastaðist eina átta metra
aftur á bak. Tveir piltar í Volks-
LEITIN
Framhald af bls. 1.
svipuðum slóðum um svipað
leyti, væru beðnir að tilkynna
um það. Sagði flugumferðar-
stjóri í kvöld, að tilkynning þessi
hefði þegar borið nokkurn árang
ur.
Leitin í dag var mjög umfangs-
mikil, en þátt í henni tóku 16
fiugvélar, nokkrir bátar og fjöldi
manna. Sagðist Arnór ekki
treysta sér til þess að nefna
nokkra tölu í sambandi við fjölda
leitarmanna. Þá má nefna, að
ekki reyndist unnt að njóta hjálp
ar allra þeirra, sem buðust til
þess að taka þátt í leitinni, sök-
Um erfiðleika á flutningum.
Á morgun verður reynt að
'eita m allt norðanvert landið
frá Eiðum um Mývatn til sjávar
í S'kjálfandaflóa og allt vestur í
Hrútafjörð. Verða 3 flugv. látnar
leita á hálendinu austan Eyja-
fjarðar, en sex vélar vestan fjarð
arins. Ein flugvél verður látin
leita á hálendinu milli Skaga-
fjarðar og Húnaflóa. Allar þessar
vélar verða svo látnar leita á
Arnarvatnsheiði og Tvídægru á
leið sinni suður til Reykjavíkur.
Alls imunu taka þátt í leitinni 14
flugvélar. Fyrst uim sinn verða
leitarflokkar á landi ekki látnir
leita á þessu svæði, en um allt
áðurnefnt svæði verða flokkar til
taks ef flugvélarnar yrðu varar
við eitthvað.
f dag varð vart viS olíubrák á
Norðfjarðarflóa og var tekið sýn
isíhorn af henni og var ekki búið
að rannsaka það í kvöld. Töldu
kunnugir, að hér væri um að
ræða úrgang úr síldarverksmiðj-
wagenbílnum meiddust, annar er
talinn vera handleggsbrotinn og
hinn hlaut höfuðhögg. Vörubíll-
inn er nokkuð skemmdur, m. a.
munu fjaðraklemmurnar hafa bil
að, því að önnur framfjöðrin datt
undan. Volkswagenbíllinn er mjög
mikið skemmdur og vart talinn
þess virði að gert verði við hann.
HZ-Reykjavík, föstudag.
Slökkviliðið í Reykjavík var
kvatt út tvisvar í dag. í fyrra skipt
ið að Höfðatúni 2, þar sem spreng
ing hafði orðið í kyndiklefa hjá
Trésmíðaverkstæðinu Sögin. Starfs
maður einn var að huga að kynd-
ingu, þegar sprenging varð í katl-
inum og við það brenndist maður-
inn nokkuð á höndum og í andliti.
Eldurinn læsti sig upp um rennu
á næstu hæð og mikill eldur mynd
aðist. Slökkviliðinu tókst fljótlega
að slökkva eldinn og urðu skemmd
ir litlar.
Seinna útkallið kom um þrjú
leytið, en þá hafði kviknað í bíl-
skúr í Kópavoginum og brann
ýmislegt dót, sem í honum var.
Einkum var mikið af einangrun-
arplasti í bílskúrnum, sem notað-
ur var jafnframt sem geymsla.
Talið er að börn hafi verið með
eld að leika sér í bílskúrnum.
Ríkisstjórn Frakklands hefur ný
lega sæmt Albert Guðmundsson
orðunni „Ordre du Mérite“. Al-
bert Guðmundsson, sem verið hef-
ur ræðismaður Frakka frá 1964,
var um árabil forseti Alliance
Francaise og hefur ötullega stuðl-
að að auknum vináttutengslum
milli Frakklands og íslands.
Fréttatilkynning frá franska
sendiráðinu í Reykjavík.
RÚSTIR
Framnald af bls. 1.
sagði Þórhallur, að ef satt væri,
þá væri það skemmtilegur fundur
í sambandi við Vínlandsferð Ei-
ríks Gnúpssonar, sem var Garða
biskup, og sumir hafi gizkað á,
að þarna hafi verið einhver ný-
lenda. En þetta yrði auðvitað að
segjast allt með varnagla, þar
til vitað væri, hversu ekta þessi
fundur væri.
Samkvæmt íslenzkum heimild-
um fór Eiríkur Gnúpsson til Vín
lands árið 1121, en samkvæmt Vín
landskortinu 1117—1118.
Helge Ingstad, norski fornleifa
fræðingurinn, sem grafið hefur
upp norrænu rústimar á norður-
enda Nýfundnalands, L'anse aux
Meadows, segir NTB, að ekki sé
hægt að segja mikið um málið,
fyrr en nánari upplýsingar liggi
fyrir. Aftur á móti telji hann
sennilegt, að norrænir menn hafi
farið í aðrar ferðir til Norð
urAmerílcu fyrir tíma Kólumbusar
en til Vínlands, — en
þær ferðir voru farnar um árið
1000. Ingstad vildi því ekki dæma
um, án frekari upplýsinga, hvort
hér væri um rústir norrænna
lanna að ræða eða ekki.
Ingstad sagði, að Ungavaskag
inn væri nokkuð langt fyrir norð
an Nýfundaland. Væri þar nokkur
skógur, einkum meðfram Ungava
flóanum. Hann kvað það ekki ó-
sennilegt, að norrænir menn
hefðu athugað þennan stað, en
kvaðst þó telja sennilegra, að þeir
hefðu haldið áfram suður á bóg
inn.
Ungava-skagðinn er fyrir norðan
skóglínuna svonefndu, se mmiðast
við þorpið Nain á austurströnd
Kanada.
SKELFING
Framhald af bls. 1.
meti fyrir milljónir peseta er
ræktað, en sem enginn má nú
koma nálægt nema bandarísku
hermennirnir.
Engir hafa verið fluttir á brott
og bandarísku hermennimir virð
ast mjög rólegir. En meðal íbú-
anna hefur hræðslan breiðzt út.
— Við erum eyðilögð, sagði
einn af smábændunum frá þessu
svæði, sem er fátækustu héruð
Spánar, þegar honum var sagt,
að hann mætti ekki hreyfa við
uppskemnni. — Þetta er ein
bezta uppskeran, sem við höfum
fengið, sagði hann.
— Við enim hrædd, sagði ann
ar smábóndi. — Við heyrum, að
við megum ekki snerta á uppsker
unni. Ilvað ætla þeir að gera við
hana. Hvað Þýðir allt þetta? Eig-
um við að deyja?
Aðrir tóku þessu með heim-
spekilegri ró.
— Þetta er ekki til þess að gera
veður út af, sagði einn. Sprengjan
hefur þegar spmngið. Við sáum
það öll sömun. Það kviknaði í flug
vélunum. Skömmu síðar heyrðist
óskaplegur hávaði. Það hlýtur að
hafa verið sprengjan.
Bandaríslcu flugmennimir leita
einnig að braki flugvélanna. Hing
að til er stærsta brotið sem þeir
hafa fundið, hluti af flugstjóra-
klefa annarrar flugvélarinnar og
brot úr bol vélarinnar.
Sjö manns misstu lífið í á-
rekstrinum, sem varð til þess,
að mörg tonn af flugbenzíni dreifð
ust yfir svæðið. Fjórir af áhöfn
annarar flugvélarinnar björguð-
ust í fallhlíf. Þeir lentu í Miðjarð
arhafinu og var bjargað um borð
í fiskibáta.
TOGARINN
Framhald af bls. 1.
komu öllum vélum í gang
og mun það auðvelda mjög
björgunina, þar sem aðal-
vél togarans getur strax
tekið við, þegar skipið fer
að losna eftir að Óðinn hef
ur kippt í. Það liggur enn
í sömu skorðum í fjörunni
og þegar það strandaði, með
stefnið beint up á land og
hallast ekki enda hefur
veðrið verið eins og bezt
hefur verið á kosið, vindur
á norðaustan, en ekki mik-
ill.
Óðinn þarf að fara nokk
uð nálægt sandrifjunum
til þess að hægt sé að
tengja vírana milli hans og
togarans, en þó ekki hættu
lega nálægt, að því er talið
er sérstaklega, þegar tillit
er tekið til veðurs.
ÍÞRÓTTIR
Framhald af bls. 13
sinnum alls, eins og þarf um þenn-
an bikar og alla hina til að eign-
ast þá.
Eysteinn Þórðarson er sá eini,
sem unnið hefur hann þrisvar,
árin 1952, ‘53 og 1959. Handhafi
bikarsins nú er Þorbergur Ey-
steinsson.
Lengst t.h. er bikar, er Magnús
Baldvinsson gaf í fyrra og er
keppt um hann í flokki stúlkna
yngri en 16 ára, handhafi bikars-
ins er Auður Björg Sigurjónsdótt
ir.
Allir skíðamenn og konur inn-
an ÍR eru hlutgengir keppendur
á þessu móti og má búast við
harðri keppni um svo veglega
gripi, nú eins og raunar jafnan
áður. Skráning og nafnakall fer
fram í skála félagsins sunnudag-
inn 23. jan. kl. 12 á hádegi.
Skíðadeild ÍR vonast til bess
að sjá sem flest skíðafólk í
Hamragili um helgina. Skorað er
á ÍR-inga eldri og yngri að fjöl-
menna við skálann.
HUMARFLOKKUNARVÉL
Framhald af bls. 2
Aðspurður kvaðst Sigmund
vera með ýmsar hugmyndir
um fleiri vélar, m. a. kola- og flat
fisksflokkunarvélar og vélar til
þess að skelfletta humarinn, en
humarinn hefur ætíð verið slitinn
af mannahöndum. Ilann kvað ekki
ólíklegt, að hann færi að huga að
gerð slíkra véla. Það væri nauð-
synlegt að láta vélar vinna verk,
sem mannshendurnar hefðu hing-
að til unnið, ef heppilegar og
ódýrar vélar byðust.
BARNASKÓLI
Framhald af 16. siðu.
íbúðir fyrir starfsfólk, og er
þarna pláss fyrir 56 börn. í mið
álmu eru borð- og setustofur og
eldhús. Svo er skólinn sjálfur,
með þremur kennslustofum, kenn
arastofu og bókasafni, og er geng
ið þannig frá að hægt er að slá
saman tveimur kennslustofum og
fá þannig góðan sal, og er þar
sena, þannig að hægt er að halda
þarna samkomur. í kjallara eru
geymslur og slíkt og föndur og
smíðastofur, en þær koma upp
úr vegna hallans á landinu.
— Teikningin af skólanum er
þannig, að mjög auðvelt á að
vera að stækka hann án þess
að nokkuð þurfi að brjóta eða
færa úr lagi. Gert er ráð fyrir, að
hægt sé að tvöfalda heimavistar-
rýmið og bæta við tveimur kennslu
stofum á mjög auðveldan hátt.
Svo er einnig gert ráð fyrir, að
þarna komi leikfimihús við' hlið-
ina. Reiknað er með, eins og nú
er frá gengið, að sundlaug sé
undir lekifimisalnum, og er þar
einnig notaður hallinn f landinu,
svo að hún getur opnazt út á
sumrin.
Byggingafélagið Brúnás á Egils
stöðuim hefur séð um byggingu
skólans, og byggingameistarinn er
Björgvin Hrólfsson.
Þorvaldur sagði að lokum:
— Áður en skólinn var staðsett
ur og gengið var frá teikningum
að honum fórum við Reynir Vil-
hjálmsson skrúðgarðaarkitekt. aust
ur og gerðum heildarskipulag af
öllu svæðinu á Hallormsstað.
Reyndum við að gera okkur grein
fyrir, hvernig byggð ætti eftir að
vaxa í framtíðinni og staðsettum
skólann út frá því. Fyrst og fremst
mynduðum við þarna skólasvæði
með þessum skóla og húsmæðra-
skólanum og gerðum okkur grein
fyrir hvar áframhaldandi hús fyrir
báða skólana eiga að vera og
sömuleiðis byggingar skógrækt
arinnar, en fólk er stöðugt að
flytjast þarna að í sambandi við
hana.
ÖRUGGUR AKSTUR
Framhald af 16. síðu.
umræður um umferðarör-
yggismái og stofnun nýrra
félagssamtaka varðandi þau.
Að afloknum fjörugum
umræðum var samþykkt
einróma að stofna klúbbinn
„ÖRUGGUR AKSTUR” í
Reykjavík, og lög fyrir
hann. Samkvæmt þeim var
kjörin þriggja manna stjórn
og jafnmargir til vara.
Þessir menn hlutu sæti í
stjórn: Guðni Þórðarson,
forstjóri, formaður, Þórar-
inn Hallgrímsson, kennari,
ritari. Kristmundur Sigurðs
22. janúar 1966
son, varðstjóri, meðstjórn-
andi.
í varastjórn: Þórður Elías
son, bifreiðarstjóri, Frið-
geir Ingimundarson, full-
trúi. Halldór Erlendsson,
kennari.
Fundarmenn þágu kaffi
veitingar í boði Samvinnu-
trygginga. Umræður voru
fjörugar, og Jón Rafn Guð-
mundsson, deildarstjóri Á-
hættudeildar og aðrir frá
Aðalskrifstofu Samvinnu-
irygginga svöruðu hinum
mörgu fyrirspumum, sem
fram komu.
Klúbburinn „ÖRUGGUR
AKSTUR” í Reykjavík er
sá 10. í röðinni sams konar
klúbba viðs vegar um land-
ið, sem allir hafa verið
stofnaðir siðan í haust.
ÍÞRÓTTIR
Framhald af blí 13
stjóri Knattspyrnusambands ís-
lands.
Með því að ráða sérstakan fram
kvæmdastjóra á launum, hefur
KSÍ stigið djarflegt spor. Það ger
ist nú sífellt erfiðara að inna af
hendi hin svoköihiðu félagsmála-
legu störf innan íþróttahreyfingar
innar af áhuganum einum saman.
Vegna hins langa vinnudags hafa
menn minni tíma til að sinna fé-
lagsmálum, auk þess, sem þau eru
mjög umfangsmikil og færast í
vöxt. Er ekki nokkur vafj á þvi
að önnur sérsambönd innan ÍSÍ
hefðu fulla þörf fyrir að ráða
framkvæmdastjóra á launum til
að vinna að þeim mörgu verkefn
um, sem þau þurfa að gera úr-
Iausn. Og sömu sögu er reyndar
að segja um stærri félögin, en
þessir aðilar hafa ekki efni á
því að greiða fyrir slík störf.
Hinn nýi framkvæmdastjóri KSÍ
mun ekki vinna fullan vinnudag
hjá KSÍ, en hafa fastan skrifstofu
tíma daglega á skrifstofu KSf í
Laugardal.
ERLENDAR BÆKUR
Framhahl ,f 12. síðu
arverkamaður, sölumaður og
grafari. Hann tók að stunda
ritstörf á þrítugasta tug aldar-
innar. Fer til Parísar og dvelst
þar milli 1930 og 1940. Síðan
hefur hann dvalizt í Banda-
ríkjunum. Hann er tímamóta-
maður mjög persónulegur og
fer algerlega sínar eigin götur.
Hann er mjög lítið hrifinn af
hinni opinberu filmmynd, sem
margir álíta að sé Ameríka og
er mjög andstæður þeirri fjöl-
miðlunarmenningu, sem þar
markar allt þjóðlíf. Rit hans
eru spegilmynd hans sjálfs,
tilfinninga og persónuleika.
Kynferðismál eru mikið rædd
í bókum hans, en eru fyrst og
fremst einn þátturinn í bar-
áttu hans gegn hinum púrítan-
borgaralega anda, sem markar
svo mjög allt mat manna á
list vestur þar. Hann bindur
sig ekki við neinn sérstakan
bókmenntastíl, eða skóla hann
er ýniist mjög raunsær eða
súrrealískur, en þetta skiptir
engu máli, hann er slíkur stil-
isti og galdramaður orðs-
ins, að hann á fáa sér líka.
Fyrsta bók hans, „Tropic of
Cancer“ kom út 1934, síðan
kemur „Black Spring" 1936,
og þessi bók 1939. „The Rosy
Crucifixion" er þrírit, stund-
um gefið út undir heitunum
„SexuS, Plexus og Nexus“,
hefur oft gengið erfiðlega að
koma þeim bókum út. Auk
þessara hefur hann sett saman
ferðasögur og greinar. Hann
er ágætur vatnslitamálari.
Hann býr nú í Bandaríkjun-
um, í Kalíforníu, en ferðast oft
til Evrópu, sem er hans and-
lega heimili.
um.
Innllegustu þakklr sendum viS þeim fjölmörgu fjaer og nær, sem
sýndu. okkur samúð og vlnarhug vlð andlát og jarðarför móður
okkar, fósturmóður, tengdamóður og ömmu.
Jónu Kristborgar Jónsdóttur
fri Krossi, Berufjarðarströnd.
Aðalhelður 'Helgadóttlr, Hilmar Ólafsson,
Stgrlður Helgadóttir, Heimir Gfslason,
Albert Stefánsson, Krlstján Bergsson.