Tíminn - 23.01.1966, Blaðsíða 1
Gerizt áskrifendur að
nmanum
Hringið í síma 12323
Auglýsing ■ rtmanum
kemur daglege fyru augu
80—100 búsurd lesenda.
18. tbl. — Sunnudagur 23. janúar 1966 — 50. árg.
LEITAD
NYRÐRA
KT, Reykjavik, laugardag.
Leitinni að Flugsýnarvél
inni, sem hvarf s. 1. þriðju
dagskvöld var haldið áfram
í dag samkvæmt áætlun. Nú
er næstum eingöngu leitað
í flugvélum, en landflokkar
hafðir til taks á öllum svæð
um. Eitthvað mun hafa verið
leitað á landi á Norðurlandi
en það er eingöngu á þeim
svæðuim, sem mjög erfitt er
að leita úr flugvél.
Svæðið, sem leitað er á
í dag eru Mývatnsöræfi ag
Miðnorðurland til sjávar
milli Skjálfandaflóa og
Hrútafjarðar og Arnarvatns
heiði, Tvidægra og Holta
vörðuheiði um Borgarfjörð
og Mýrar til Reykjavíkur.
Ágætt veður hefur verið
á leitarsvæðunum í dag og
voru nokkrar af hinum fjórt
án leitarflugvélum búnar að
fara yfir sín svæði á hádegi
og voru í þann veginn að
hefja leit að nýju.
Bátanefndin leitar álits útgerðarmanna
Hugsanlegt að
opna landhelgi?
Þetta eru tvö þeirra teppa ,sem sýnd voru í auglýsingu bandaríska
blaSsins.
Eru „íslenzkar" drauga-
vörur seldur í New York ?
FB-Reykjavík, laugardag.
í auglýsingu í einu af New York
blöðunum nú fyrir skömmu birt-
ist geysistór auglýsing um ullar-
mottur, sem kallaðar eru íslenzk-
ar. Við höfum leitað upplýsinga
um þessar mottur hjá ýmsum að-
ilum hérlendis, en enginn virðist
kannast við þær, og telja þeir,
sem bezt þekkja til þessara mála,
að hér geti alLs ekki verið um ís-
lenzka framleiðslu að ræða.
Yfirskrift auglýsingarinnar er
á þá leið, að hin þekkta verzlun
Macy’s hafi keypt upp allar birgð-
ir Fifth Avenue húsbúnaðarfyrir-
tækis, og verði motturnar seldar
í Macy’s-búðum framvegis. Eftir
myndunum að dæma, sem fylgja
auglýsingunni er hér um að ræða
hinar svokölluðu Rya-mottur. Önn
ur tegundin er kölluð íslenzkt ten-
ingamunstur og íslenzkt tígla-
munstur, og kosta þær í búðunum
vestra 80 dollara stærðin 1,85x270
og 150 dollara stærðin 2.70x3.60.
Hin tegundin er aftur á móti nefnd
Víkingssjávarmunstur og Víkings-
sólskinsmunstur. Kosta þær 100
dollara og 180 dollara sömu stærð
ir og áður eru nefndar.
Ef rétt er, að þessar mottur ~lu
ekki framleiddar hér á landi, er
varla hægt að draga aðra ályktun
af nöfnum þeirra en þá, að ís-
lenzkar vörur séu að verða jafn
„fínar“ í augum Bandaríkjamanna
og vörur frá öðrum Norðurlönd-
um hafa verið taldar undanfarin
ár. Þar hefur ler.„l verið nóg, að
segja vörurnar skandinavískar, þá
hafa þær gengið í fólk eins og
heita. lummur.
Má segja, að motturnar séu eins
konar draugavarningur, og gangi
nú ljósum logum í einu stærsta
verzlunarhúsi heims;ns.
SJ—Reykjavík, laugardag.
Eins og kunnugt er af blaðaskrif
um eru útgerðarmenn í Reykjavík
og víðar mjög óánægðir með verð
á bolfiski. Stjórnskipuð nefnd hef
ur að undanförnu kannað rekstrar
grundvöll báta af stærðinni 45—
120 tonn og er einn nefndarmanna
Jón Skaptason, alþingismaður.
Rlaðið spurðist fyrir um hjá hon
um hvernig störfum nefndarinnar
væri háttað og hvenær mætti bú
ast við niðurstöðum hennar.
— Nefndin hefur þegar haldið
eina tíu fundi, sagði Jón, og við
erum búnir að afla margvíslegra
upplýsinga um afkomu bátanna
og frystihúsanna og erum að reyna
að gera okkur grein fyrir hvern
ig þetta stendur og hvar skórinn
kreppir að. Við höfum skrifað öll
um útvegsmannafélögum á land
inu og verðalýðsfélögum og spurt
m. a. að því hvernig þeim litist á
að opna landhelgina að einhverju
leyti fyrir togbátum, en það hefur
komið til tals, sem eitt af úrræðum
sem gæti bætt aðstöðu þessara
skipa.
Athuganir nefndarinnar eiga að
verða ítarlegar .»amkvæmt ósk ráð
herra og er varla að vænta niður
stöðu fyrr en í marz — apríl.
Þá hefur sérstaklega skipuð
nefnd frá útvegsmönnum koniið
á okkar fund til viðræðna. í nefnd
inni eiga sæti alþingismennirnir
Birgir Finnsson, Lúðvík Jósepsson,
Matthías Bjarnason, Sigurður
Ágústsson og Jón Skaptason.
SIGLDI ÚT
YFIR TVÖ
SANDRIF
FB—Reykjavík, laugardag
Brezki togarinn Wyre
Conquerer var væntanlegur
til Reykjavíkur klukkan sex
síðdegis í dag, en hann náð
ist út á flóðinu í nótt um
klukkan fjögur. Varðskipið
Óðinn var á strandstað. og í
gær hafði verið koanið drátt
arvírum milli Óðins og tog
arans. Kippti Óðinn síðan í,
þegar háflóð var. Togarinn
var mjög laus í sandinum og
iyftist upp á flóðinu.
Þegar Óðinn hafði dregið
togarann um 60 metra spöl
slitnuðu vírarnir, en þá tóku
vélar skipsins sjálfar við
og tókst þeim að ná honum
út, þótt yfir tvö sandrif hafi
verið að fara.
Togarinn lagði síðan af
stað til Reykjavíkur fyrir
Framhald á bls. 14
9000 manns í FIB
KT-Reykjavík, laugardag.
f gær var haldinn aðalfundur I
Félags íslenzkra bifreiðaeigenda í
Tjarnarbúð og var fundarsókn |
góð. Á fundinum voru samþykkt-
ar nokkrar tillögur varðandi vega-
mál, umferðamál og starfsemi fé-
lagsins. f ræðu formanns var skýrt
frá margháttaðri þjónustu félags-
ins, sem jókst mjög á s. I. ári se i
Júlíus Bomholt skrif
ar skemmtilega
grein í Nyt fra ls-
iand um fund Norð-
urlandaráðs í Rvík.
Við birtum hana á
bls. 8—9.
Frá aðalfundi FÍB í Reykjavík.
hliða fjölgun félagsmanna um
rúm þrjú þúsund. Alls er- nú 9000
manns í samtökunum.
í ársskýrslu var nokkuð vikið
að tryggingarmálum og rætt um
hið nýja tryggingafélag, s, ?,
ar í FÍB stofnuðu á s. 1. ári. Þá
var allítarlega skýrt frá afskip'ui
félagsins af öryggismálum. Félag-
ið hafci átt aðild að umferðar-
nefnd Reykjavíkur, einnig að
nefnd til að semja lög um hægri
handarakstur íl.
Stjórn félagsins hafði samið
stefnuyfirlýsingu í öryggismálum
umferðarinnar og var rkýrt frá
henni í ársskýrslunni og síðan bor
in upp og samþykkt samhljóða á
fundinum. Það kom fram á fund-
inum, að félagið hefur skrifað
borgarráði bréf, þar sem fariö er
fram á, að Reykjavíi -..jrg komi
upp símsvara fyrir ökumenn, sem
gæfi upplýsingar um ökufæri og
ökuskilyrði. Mun mál þetta vera
í athugun hjá umferðardelld borg-
arverkfræðings.
Úr aðalstjói,; FÍB áttu að ganga
formaður og ritari, en voru báðir
endurkosnir. jtjórnina skipa nú;
Arinbjörn Kolbeinsson, formaður,
Magnús Höskuldssor ritari, og
Valdimar J. Magnússon, gjaldkeri.