Tíminn - 23.01.1966, Blaðsíða 3
SUNNUDAGUR 23. janúar W6G
3
TÍMINN
f SPEGLITÍMANS
Israel bannaði, að myndin
Goldfinger kæmi inn I landið,
þegar það vitnaðist að Gert
Frobe, sem lék aðalþrjótinn í
myndinni, hafði verið nazisti
á sínum yngri árum. Það var
ekki fyrr en Frobe hafði
fært sönnur á það, að hann
hefði ekki framið neinn glæp,
að kvikmyndin komst inn í
landið.
★
Birgitte Bardot er í bardaga
hamnum einu sinni enn og í
þetta sinn hefur hún stefnt
enska tímaritinu Men's Jour-
nal. Og ástæðan? Jú, tímaritið
hafði spurt lesendur sína: Hvað
er BB? og lesendur máttu velja
úr þremur svörum a) Benzín-
tegund b)Nýjasti tízkudansinn,
Cy Nautnalyf? Meiri hlutinn af
lesendum valdi svar c).
í samkvæmi nokkru reyndi
gamanleikarinn frægi, Charlie
Chaplin hæfni sína sem söngv-
ari. Maria Callas, sem var með
al gestanna, klappaði honum
hrifin lof í lófa og sagði:
— Þetta var stórkostlegt.
Ég veit, að þér getið sungið,
en ég þekkti ekki lagið, en
mér fannst ég þó kannast eitt-
hvað við það,
— Ég reyndi að herma eftir
yður, þegar þér syngið Norma
aríuna yðar, svaraði Chaplin.
★
Elísabet drottning fær nú
nýja mynd af sér á brezkt frí
merki í stað þeirrar, sem nú
er, en hún er fimmtán ára
gömul. Hluti af kostnaðinum
við þessa breytingu rennur til
drottningarinnar, sem fær
heiðurinn af því að taka mynd
ina.
¥
Ursula Andress var neydd
til þess að tyggja eina tylft
af piparmyntutöflum áður en
Georg Peppard samþykkti að
kyssa hana í ástarsenu, sem
verið var að mynda. Ástæðan
til þessa var að Ursula hafði
borðað hvítlauk í hádeginu.
★
Hótelgestirnir á hóteluim við
Montagu Square hafa farið til
Scotland Vard og farið fram á
það að fá lögregluvörð til þess
að þeir hafi næturfrið. Þannig
er mál með vexti, að bítillinn
Ringo Starr flutti inn á eitt
hótelið og eftir það var ekki
stundlegur friður fyrir táning-
um aðallega stúlkum, sem
stóðu fyrir neðan gluggann
hans og hrópuðu og skrifuðu
ýmsan ósóma á húsveggina.
☆
Hinn heimsfrægi hljómsveit-
arstjóri og tónskáld Leonard
Bernstein (West Side Story)
ræðir hér við fjögur ung tón-
skáld, sem hlutu 5000 dollaia
í verðlaun i alþjóðlegri tón-
listarkeppni, sem nýlega var
háð í Carnegie Hall í New
York. Þau eru talið frá hægri
Sylvia Caduff, Sviss, Walter
Gillessen, Þýzkalandi, Juan
Pablo, Chile, og Alain Lohard,
Frakklandi.
Nú er ég að komast á afa-
aldurinn og finnst það alltaf
skemmtilegra og skemmtilegra
að leika á móti börnum, sagði
Frank Sinatra á fimmtugasta
afmælisdaginn sinn og hvarf
með nýjustu vinkonunni, hinni
nftján ára gömlu Mia Farrow.
★
Auðugur bandarískur kaup-
sýslumaður hefur nýlega líf
tryggt sig fyrir 10 milljónir
dollara, að því er starfsmenn
tryggingarfélags eins í Houston
segja. Kaupsýslumaður þessi er
aðeins 33 ára gamall, og er
þetta hæsta líftrygging, sem
gerð hefur verið á einum
manni, og yfir 90 líítryggingafé
lög tóku að sér að tryggja
hann eftir að hafa hugsað mál
ið f 6 vikur.
★
Yul Brynner þáði með þökk
um, þegar honum var boðið að
gerast heiðursfélagi í ’heims-
sambandi sköllóttra karlmanna.
Sean Connery (007) var einn-
ig talinn koma til greina sem
heiðursfélagi (!) en hann svar-
aði ekki boðinu.
★
Leikarinn Tony Curtis var
fyrstu verðlaui í auglýsingaget-
raun nokkurri, sem efnt var
til í Bandaríkjunum fyrir
skemmstu, og fékk konan sem
vann fyrstu verðlaunin hann
sem fylgdarmann í heila viku.
Hún var samt ekkert yfir sig
ftrifin og það kom í ljós, að
hún hefði miklu heldur viljað
fá önnur verðlaun, sem voru
uppþvottavél!
lenzka vísu með vindmyllu og „Vetrar-hátíðar-dansleiksins“.
túlipönum. Og á myndinni eru sem haldinn er árlega og hagn-
Arthur (5 ára) og Leslie (8) aðurinn rennur til góðgerðar-
í litfögrum klæðum í tilefni starfsemi.
Þessi skemmtilega mynd er
tekin frá skautasvellinu í
„Rockefeller Center“ í New
York, sem er skreytt á liol-
★
Dómari nokkkur í Kentucky
notar ýmsar aðferðir til þess
að hegna þeim unglingum sem
verða valdir að umferðaslysum.
Síðasta hugmynd hans er sú,
að hann lætur þá skrifa minn
ingargrein um sjálfa sig og hef
ur komið í Ijós að það er að-
ferð, sem dugar vel.
★
Bibi Anderson, sænska leik-
konan fræga er vel vernduð
í nýjustu kvikmynd sinni, sem
hún leikur í í Bandaríkjunum.
Myndin nefnist Duel at Dia-
★
blo og í einu atriði hennar
reyna fjórir karlmenn að rífa
utan af henni fötin, en þetta
gerist nú í Villta vestrinu, svo
hetjan í myndinni bjargar auð-
vitað á síðustu stundu.
★
David Niven á nú að fara
að leika aðalhlutverkið í kvik-
mynd og eru hvorki fleiri né
færri en 15 rithöfundar, sem
lagt hafa hönd á verkið. Nafn
myndarinnar er langt eftir
því, því myndin heitir: Afsak-
ið, herra minn, en er auga
*
mitt ef til vill fyrir olnboga
yðar?
★
Sænskfædda kvikmyndadísin
Ann Margret fékk Súra eplið
1965, sem blaðamenn í Holly-
wood veita kvikmyndaleikara
þeim, sem þeim finnst ósam-
vinnuþýðastur. Þessu svaraði
Ann Margaret til, að stafaði af
því, að hún vilji vernda einka-
líf sitt og reyna að komast hjá
því að ræða um þá karlmenn,
sem bjóða henni út.
★
Nú hefur þriðji bítillinn
gengið í hjónaband. Er það gít-
arspilarinn George Harrison og
er nú Paul McCarthey sá eini
sem ókvæntur er um þessar
mundir, en þó er búizt við,
að hann gangi einnig í iijóna
band á næstunni, því hann hef
ur átt góða vinkonu í langan
tíma og er það leikkona að
nafni Jane Asher Eiginkona
George er einnig leikkona og
nafn hennar er Patti Boyd. Þvi
miður hefur okkur ekki borizt
mynd af hjónunum svo við
verðum að láta okkur nægja
mynd af George.
¥
Sænsku leikararnir Ingrid
Bergman og Max von Sydow
hafa verið valin til þess að
leika í rússneskri kvikmynd
um leiðangur ítala til Norður
pólsins 1928. Aðrir þekktir leik
arar, sem leika eiga í mynd
inni eru ítalirnir frægu Mar
cello Mastroianni og Vittorio
Gassmann.