Tíminn - 23.01.1966, Síða 9
-**SSS
SUNNUDAGUR 23. janúar 1966
TÍMINN
það. Litlu augun í langa óreglu
lega andlitinu athuga — bros-
andi og skimandi hvort skiln-
ingurinn sé svona nokkurn veg
inn að vakna, almennt.
Norski ræðumaðurinn, íhalds
maðurinn Lynd, sem skamma
stund var forsætisráðherra, er
mikill þingskörungur. Hann
vex mjög frá teiknimyndunum
og reynist vera ræðumaður
maður með fyrirmannlegt,
frjálst og þróttmikið mál, furðu
skír í orðaskipun. Það er ham-
inn biturleiki í fýlulegum, lít-
ið eitt skökkum munni, og
stuttri stífri efri vörinni, en
hann er stærri en ósigrar hans.
Það hlýtur að vera ánægjulegt
að hafa slíkan stjórnmálaand-
stæðing.
Sessunautur minn, Bondevik,
er frá Rogalandi — eins og
binn fíni, rólegi Trond Hegna,
sem hefur sínar eigin sjálf-
stæðu sósíaldemókratísku r-koð
anir. Bondevik tilheyrir Kristi-
lega þjóðarflokknum. Hann
teygir sig upp í loftið í skökk-
um jakkanum. Lútandi höfuð
hans virðist biðja um fyrir-
gefningu, en svo gerist það allt
í einu, að fyrirgefningin stífn-
ar í þrjósku. Það er aðeins
um að ræða fyrirgefningu með
skilyrðum. Litli munnurinn vill
helzt segja nei.
Hann talar — einnig hér
— til kjósenda sinna í Roga-
landi í setningum, sem eru
slitnar eftir áralanga notkun,
og hann gerir það af alvöru,
sem leggur eins konar sorgar-
krans um gula ræðustólinn.
Landsmaður hans, Bratteli,
ef til vill væntanlegur forsætis
ráðherra, hefur tilfinninga-
næmt andlit og tilfinningaríka
rödd . . . og augu drauma-
mannsins. Það er eitthvað ang-
urvært — óframfærið í byrj-
un hans, en smátt og smátt
fær ræðan þrótt, og ræðumað-
urinn sjálfur réttir úr sér. Orð-
in mótast frjálst, og það finnst
örugglega ekki ein verkalýðs-
samkoma, sem getur staðizt
þann eld, sem brennur að baki
þeirra. Maður, sem hefur lif-
að íhugun einverunnar. Og
heildarsjónarmið innlífgar orða
valið, sem er óvenjule.gt en
furðulega gagnort.
Jú, Norðmennirnir eru sann
arlega athyglisverðastir. Gamli
áróðursmaðurinn Röiseland,
bóndi og vinstrimaður, byrjaði
með því að horfa á hendur
sínar. Svo lítur hann á ská
upp í loftið. Fyrstu setningarn-
ar virðast koma í heiminn með
þjáningum. Því lengur sem
hann talar, þeim mun áhyggju-
fylla er andlit hans, útflúrað
af hrukkum. Það er enginn.
sem efast um, að hann tilheyr-
ir hinu þjáða mannkyni. Hver
einstakur gildisdómur — sem
alltaf hefur siðfræði-
legan grundvöll — er eins og
játning, sem ófús líkami verð-
ur, þrátt fyrir mótstöðu, að
láta af hendi.
Sunnudagsmorgun, 14. febrúar
1965.
Bylgja dökkblárra fjalls-
hryggja rís gegn himninum,
sem er svo rauður, að ekki er
hægt að hugsa sér hann rauð-
ari. Borgarljósin, sem hafa
lýst alla nóttina, eru sem stirðn
aðir hnettir. Á aðalgöttunni,
Hringbrautinni, sem er umlukt
grænum ljósum, heldur um-
ferðin áfram, hver bílljósin á
eftir öðrum. H'ir, er sem eiiífð
arvegur, sem aldrei, allan dag
inn, losnar við vespulika um
ferð
Kirkjuturn rís oddhvass sem
sýll upp í roðann. Og nú er
einnig kveikt á gulum ljósum
húsanna, blikband, seiij er
spennt umhverfis auðar flatir
háskólagarðsins. Það hefur
snjóað í nótt. Hér í morguns-
árið hefur hvítri frannkyng]-
unni veri '. slengt andstætt sjón-
hringnum í breiðar fjólubláar
strokur. Það suðar í bi'dekkj
unum á hörðum veginum, bíl
flauta glymur, — og skómmu
síðar er vetrarkyrrðin sem inni-
fenntur geimur milli jökia.
Sunnudagur, fyrir hádegi.
Merkileg borg.
Nú hefur dagurinn þrengt
sér fram, og allt hefur breytzt.
Sólin situr lágt yfir miðhæð-
unum, þakin hjúpi léttra skýja,
eins og náma fölleits eids.
Himneskt eldfjall. Hálfbogi
borgarinnar birtist sem ævin-
týri í hvítu, raunverulegt-óraun
verulegt baksvið fyrir Shake-
speare-leikrit. Maður býzt við,
að tröllið stigi upp úr slétt-
unni þarna niður frá, ekki í
svörtu loðskinni, heldur gló-
andi rautt og með hnefa, sem
eru eins og kuldabólga.
Einu sinni sá ég í Berlín
sýningu Max Reinhardts á
Kaupmanninum í Feneyjum.
Borg með hús á hús ofan, eyja
af húsum. Það er að vissu leyti
sama myndin, sem birtist hér,
en hvítt í hvítu. Einstaka strik
grænna húsþaka gerir hið hvíta
ennþá hvítara . . . og ef mað-
ur heyrði ekki óstöðvandi suð
bifvélanna, gæti maður haldið,
að borgin væri yfirgefin. Vetr-
arborg í hvíld. Þótt húsin liggi
þétt saman, er hvert þeirra um-
lukt ósamrýmanlegum sérkenn
um.
Getur borg, sem er steypt
úr sementi og staflað upp af
hentisemi — eins og húsin
vilji ekki liggja í röð meðfram
þráðbeinu stræti, en vilji held-
ur liggja eins skakkt og mögu-
legt er — samræmst skáld-
skap? Svo er að sjá.
Síðdegis á sunnudag..
Og svo kom þýðviðrið —
skyndilega.
Svartar malbikaðar göturn-
ar fengu bláleitan lit, göturæs-
in fylltust krapi, og bifreiðarn-
ar sendu bylgjur af skít yfir
þá fáu, sem nenntu að ganga.
Vinstri buxnaskálmin mín varð
aðnjótandi lifrauðar slettu
sem jók enn á litbrigðin
Ekki er hægt — eins og tyr
ir aðeins örfáum klukkustund-
um síðan — að stytta sér leið
yfir sléttlendið til Hótel Sögu
Klakinn brestur, og hið lága
og að því er virðist rotnag-
aða gula gras sekkur til botns
í krapavötn. Förum krókinn.
sagði Böigen.
Það er gaman að labba í
þýðviðrisborginni. Þoka, sem
við og við þéttist og verður
að regni, kemur inn af hafinu.
og það er einmitt döggin, sem
fær grænu þökin til að skína.
Maður gengur umhverfis
Tjörnina, vatnið. Unglingarnir
þjóta af stað á skautum til þess
að njóta hraðans. Ef til vill
verður ísinn þakinn ójöfnum
strax á morgun. Fjöldi anda
heldur til í heitavatnsvogi i
þeim enda vatnsins, sem næst
er gamla leikhúsinu. Hundruð-
ir anda, sem synda fram og
aftur og garga og berjast hver
við aðra, þegar brauðbita er
kastað út til þeirra ...
Ég kannast við þetta frá garð
inum í Hróarskeldu. Endurnar
eru einnig hér fæddar af vin-
gjarnlegum höndum. En lit-
brigðin á hrygg og vængjum
fuglanna eru — þannig sýnist
það — skarpari hér. Það er
engu líkara en litirnir taki þátt
í átökunum um brauðið.
Vatn og hús mynda saman
fagra samræmda heild — þá
einu sem til er á þessum stað,
þar sem sementið er sífellt að
mótast. Það er mild og vin-
gjarnleg „hygge“ f litunum,
sem umkringja vatnið. Húsin
eru ekki of stór, en þau standa
hærra af því að hinn mikli
geimur spennist út yfir þau.
Það eiga að vera tré, og í
hornum og skjóli, geta þau
sannarlega náð nokkurri hæð,
en annars . . maður lítur á
birkitré með sprungna boli og
frostherjaðar greinar. Geta þau
bjargað sér til vorsins?
Það geta þau. Þegar vorið
kemur, er það kraftur gróand-
ans, sem dregur húsin þéttar
saman.
Hvergi í heiminum er grasið
eins grænt og í Færeyjum og
á íslandi.
Ég stóð eitt sinn fyrir fram-
an háskólann og fann fil sér
legs svima við sýnina. Það var
eins og hinn stóri lærdóms-
kassi, þessi eins konar Nóaörk
stigi upp úr grænu hafinu
Það eru blóm á öllum heim
ilum. Gegnum þíðviðrisþokuna
sér maður innilokaða ,'itxna =■
bak við gluggarúðurnar. Þau
glápa á eftir manni, eins og
þau haldi að maður hafi vorið
geymt í hverjum vasa.
Stytturnar eru öflugri í vetr-
arveðrinu en í hinni vingjarn-
legu sumarbirtu. Sérhverri
styttu hefur verið lyft upp á
stall. Hylling til hinna ein-
stæðu.
Fyrir framan Alþingishúsið
er það Jón Sigurðsson, sem
stendur á verði sínum og horf-
ir á aðaldyrnar. Eru það hinir
réttu, sem voga sér inn? Og
í nálægð sézt maðurinn Jón
Sigurðsson. Munnur hans er
strik, sem er skorið með hníf,
og hnífurinn er gerður að nefi.
Augnabrúnirnar eru stífar.
Þótt maður þekki ekki mann-
inn á bak við þetta ástríðufulla,
ákveðna andlit, getur maður
heyrt rödd hans. Hún fær
birkikjarrið til að beygja sig.
Ingólfsstyttan er staðsett á
hæsta toppi borgarinnar í þjóð-
legum, rómantískum víkinga-
stíl. Hann á að sjálfsógðu, sem
fyrsti íbúi landsins, að fá það,
sem honum ber. En það eru
pólitísku stórmennin, sem
gefa borginni orð.
Aðalumræðan í Norður.ianda
ráði á laugardag og sunnudag
snerist að mestu um vanda-
málið EFTA.
Per Hækkerup hélt, án hand-
rits, ræðu, þar sem hann gerði
nákvæmlega grein lynr skoðun
dönsku ríkisstjórnarinnar.
I>ótt hann væri með 3Í>.5
stiga hita og hefði rétt stigið
úr rekkju, voru rökin sett fram
f skýru samhengi og með ör-
uggum stíl.
Því miður fékk hið sam-
kvæma danska sjónarmið ekki
fylgi annarra, og ekki var erfitt
að sjá, að þetta myndi enda
í máttlausri málamiðlun.
Lýðræði getur ekki lifað án
málamiðlunar, en ef málamiðl-
unin leiðir til þess að allar
fastar línur þurrkast út—?
Á sunnudagkvöldið slöppuð-
um við af í leikhúsinu. Sar-
dafurstinnan var á dagskránni.
Er mögulegt að sýna
hina léttustu af öllum óperett
um — brunandi vínarvalsa
þriðja áratugs aldarinnar — á
sviði í Reykjavík? Jú, aftur
sýndi það sig, að það er eldur
undir ísnum.
Ytri búningurinn var spart-
anskur — eins og sæmir fá-
tæku lýðveldi. Hinni óhóflegu
höfuðborg Kalmans með
greifalegri prakt er pakkað inn
í sveitakaffihús með slitnu
áklæði — en söngur og tónlist
rann saman í ósjálfráðri gleði.
Hljómsveitarstjórinn — rúss-
neskur Bandaríkjamaður —
fékk vínarvalsana til að svífa
eins og þyngdarlaus snjókom,
og aðalsöngvarinn, Eríingur
Vigfússon, sem einnig er þekkt
ur hjá Konunglega leikhúsinu,
hreif okkur með sér. Hann var
kaffærður í lófaklappi.
Hinn karlsöngvarinn, Guð
mundur Guðjónsson, er smið
ur á daginn og lífsglaður Sar-
das-ástmaður á kvöldin, mennt
aður í Ítalíu.
Allar leikkonurnar eru falleg
ar. Það er eins konar Anna
Borg í þeim öllum. Eins og
Harald Nielsen, þingmaður,
sagði á innblásnu augnabliki
(tilvitnun _ í ræðu annars
manns):—íslenzku stúlkiumar
eru fallegar, og þegar þú hefur
hitt þá fallegustu, muntu kom
ast að raun um, að hún á syst-
ur, sem er enn þá fallegri.
Síðasti þáttur gerist, sem
kunnugt er í garði, og hér
fengum við svo sannarlega
garð. Ekki aðeins blágræn tré.
Grænkan lagðist á glugga og
dyr, og engið var svo skær
grænt, að kýr, sem kæmi auga
á það, myndi falla höggdofa
um koll.
Sýning, sem hæft væri að
nefna: Hóflaitst vor.
Mánudagur, 15. febrúar 1965.
Morgunn:
Borgin liggur grá og blaut,
undir skýjabakka, en fyrir ut-
an hann skín sólin niður á
keðju hvítra fjalla.
Vitaljós flugvallarins strýk-
ur ytfir aðflugsleiðina frá haf-
inu. Hver snöggi ljósglampinn
á fætur öðrum. Og þarna úti
í bakgrunninum. fjöllin óhagg
anlegu.
Maður verður smám saman
ástfanginn í þessari borg, sem
1 dag hefur losað sig við all-
an snjó. Ferskt þíðviðrið fyll-
ir stofuna ilmi, sem minnir á
liljur.
Og svo tekur borgin til
hendi! Hún brettir upp erm-
arnar — og hversdagsslagsmá)
í hversdagsvætu geta hafizt.
Um miðjan daginn:
Glampasólskin og niu gráð-
ur a Celcíus. Miður febrúar-
níu gráður! Hvítir fletir sem-
entshúsanna standa hlið við
hlið, í skinandi ljósinu.
Kvöld:
Eftir einkar erfiðar viðræð-
ur í menningarnet'udinni tókst
að tryggja stofnun menningar-
sjóðsins, sem Helveg Petersen
Framhald á bls. 12
Frá fundi Norðurlandaráðs í Reykjavík I febrúar 1965.