Vísir - 13.07.1974, Side 6

Vísir - 13.07.1974, Side 6
6 Vísir. Laugardagur 13. júli 1974. vism Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: Fréttastjóri: Kitstjórnarfuiltrúi: Fréttastj. erl. frétta: Aiiglýsingastjóri: Auglýsingar: Afgreiðsla: Ritstjórn: Askriftargjald 600 kr. Reykjaprent hf. Sveinn R. Eyjólfsson Jónas Kristjánsson Jón Birgir Pétursson Ilaukur llelgason Björn Bjarnason Skúli G. Jóhannesson llverfisgötu 32. Simar 11660 86611 Ilverfisgötu 32. Simi 86611 Siðumúla 14. Simi 86611. 7 linur á mánuði innanlands. t lausasölu 35 kr. eintakið. Blaðaprent hf. Þjóðin er em heild Hringvegurinn verður formlega opnaður til umferðar nú um helgina. Sú athöfn er eins og aðrar á þessu hátiðarári til þess fallin að minna okkur á það, að þjóðin er ein heild. Hringvegurinn sannar okkur auk þess bókstaflega, að landið er ein heild. Með þvi stórvirki, sem lagning vegarins hefur verið, er okkur i fyrsta sinn i ellefu alda sögu byggðar á íslandi gert kleift að komast landveg umhverfis landið á venjulegum farar- tækjum nútimans. Hringurinn breytir viðhorfi okkar til landsins. Nú sem fyrr er þjóðarnauðsyn að búa þannig að þeim, sem i strjálbýlinu búa, að byggð geti haldizt sem viðast um landið, Slikt er ekki siður nauðsyn fyrir þéttbýlið en þá, sem búa i dreifðum byggðum landsins. Þetta er og verður eitt brýnasta verkefni islenzkra stjórnmála. Nútima- tækni gerir okkur betur kleift að sinna þessari skyldu. Nútimakröfur valda þvi þó einnig, að æ fleiri laðast til þéttbýlis. í tilefni af nýafstöðnum alþingiskosningum hafa margir velt þvi fyrir sér, hvort ekki sé timi til þess kominn að laga kjördæmaskipun landsins að nýjum aðstæðum. Sú skipan, sem nú rikir, hefur verið óbreytt i 15 ár, eða frá þvi á árinu 1959. Þegar stjórnarskránni var breytt þá, hafði kjördæmaskipunin verið óbreytt i 17 ár eða frá 1942. Reglur þær, sem mæla fyrir um, hvernig kosið skuli til Alþingis, þjóna tvenns konar megin- tilgangi. 1 fyrsta lagi hljóta þær að miða að þvi, að Alþingi verði starfhæft að kosningum loknum. í öðru lagi eiga þær að tryggja sem jöfnust áhrif allra kjósenda á val þingmanna. Miðað við óvissuna, sem rikti i störfum Alþingis og tið stjórnarskipti á árunum 1942 til 1959, getur enginn mótmælt þvi, að núverandi kjördæmaskipun hafi fram á siðustu ár tryggt festu i stjórnmálunum. í tólf ár af þeim fimmtán, sem hún hefur gilt, hafa sömu stjórnmálaflokkar farið með völd i landinu. Það er fyrst nú, sem alvarleg óvissa rikir um það, hvort Alþingi verður starfhæft og unnt reynist að mynda meiri- hlutastjórn. Þessi þróun byrjaði strax á siðasta kjörtimabili. Hún á ef til vill rætur að rekja til þess, að kjördæmaskipunin leyfir ekki lengur, að þjóðarviljinn endurspeglist i þingmannafjölda einstakra flokka. Staðreyndin er sú, að strjálbýlið hefur hlut- fallslega miklu fleiri þingmenn en þéttbýlið. Með rökum má segja, að þetta misrétti sé sanngjarnt. Enginn getur neitað þvi, að menn i þéttbýli eigi auðveldara með að koma málum sinum fram en þeir, sem i strjálbýli búa. Þetta eðlilega misrétti má þó ekki ganga úr hömlu eins og nú er orðið. Ýmsar aðferðir eru til þess fállnar að draga úr misréttinu. Heppilegast væri, ef unnt reyndist i eitt skipti fyrir öll að móta reglur, sem tryggðu, að eðlilegt hlutfall héldist milli fulltrúa einstakra kjördæma eftir fólksfjölda þeirra á hverjum tima. Ójöfnuðurinn yrði ekki eins mikill, ef dreifing þingsæta miðaðist við það, að landið væri eitt kjördæmi. Einmenningskjördæmi mundu þó bezt gera öllum jafn hátt undir höfði. Hvað sem öðru liður er þjóðin ein heild. Þess minnumst við oftar á þessu sumri en endranær. Þær hátiðir, sem nú eru haldnar eiga að sameina okkur en ekki sundra. —BB Myndin er tekin 16. mai s.l., þegar Antonio da I Palma Carlos, forsætisráðherra bráðabirgða- Spinola, forseti Portúgals, skipaði Adelino da | stjórnar landsins. Sú stjórn er nú fallin. Bandalag hersins og kommúnista í Portúgal ,,Ég held, aö atburðirnir I Chile endurtaki sig ekki hér i Portúgal, mér finnst það mjög óliklegt. Auðvitað finnast einnig aftur- haldsseggir og fasistar meðal okkar, sem dreymir um alls- herjarverkfall að dæmi Chilebúa. En þaö er ekki unnt að bera saman herinn i Portúgal og herinn I Chile. Þar stjórna aftur- haldssamir herforingjar hernum. Herinn okkar framkvæmdi byltinguna 25. april. Ég held, að um þessar mundir geti enginn stöðvað þróunina i lýðræðisátt i landi okkar”. Þannig komst Alvaro Cunhal, formaður kommúnistaflokks Portúgal og ráðherra án ráðu- neytis i stjórn landsins, að orði i viðtali, sem Der Spiegel átti við hann nýlega. Eftir að stjórnmála- flokkar fengu leyfi til að starfa aftur i Portúgal, þegarhálfrarald- ar einræðisstjórn hafði verið velt úr sessi, hljóp mikið lif i stjórn- málabaráttuna. Nú er talið, að um 80 flokkar og flokksbrot séu starfandi i landinu. Sá flokkur, sem virðist bezt skipulagður, er kommúnistaflokkurinn. Frá þvi i byrjun þessarar viku hefur verið stjórnarkreppa i Portúgal. A þriðjudaginn sagði Adelino da Palma Carlos, for- sætisráðherra, af sér ásamt fimm frjálslyndum og miðflokkamönn- um i rikisstjórninni. Þessi afsögn leiddi til þess, að á fimmtudag leysti Antonio da Spinola, forseti, stjórnina upp og búizt er við, að hann skipi nýja stjórn i dag undir forsæti herforingja. Talið er lik- legast, að Spinola velji Mario Firmino Miguel, sem var varnar- málaráðherra i fyrri stjórn og kemur úr hernum. Hann var einn af upphafsmönnum byltingar- innar. Afsögn Palma Carlos átti sér nokkurn aðdraganda. Hann kvartaði undan þvi, að vald for- sætisráðherrans væri ekki nægi- lega afgerandi og án þess væri ekki unnt að halda svo sundur- leitri stjórn saman. En i stjórn- inni sátu fulltrúar hersins og stærstu stjórnmálaflokkanna eða hreyfinganna — borgaralegra, sósialista og kommúnista. Voru vinstri menn i meirihluta. Palma Carlos hafði einnig margsinnis hvatt til þess, að Spinola efndi til forsetakosninga, svo að forsetinn hefði vald beint frá þjóðinni. Að- eins á þann veg gæti hann öðlazt þann áhrifamátt sem nauðsyn- legur væri á þessum umbrotatim- um. Upp úr sauð innan rikis- stjórnarinnar, þegar komm- unistarnir i stjórninni gagnrýndu meðráðherra sina fyrir að skipa Jose Veiga Simano, sem var menntamálaráðherra i stjórn Caetanos fyrir byltinguna, i em- bætti sendiherra Portúgals hjá Sameinuðu þjóðunum. Töldu kommúnistar þá ráðstöfun sizt til að efla virðingu Portúgala á vett- vangi Sameinuðu þjóðanna. Kommúnistarnir vöruðu einnig við hættunni af þvi, að þessi skipun yrði notuð sem for- dæmi og fleiri fylgismenn fasist- anna kæmust aftur til valda. Sósialistarnir i stjórninni tóku undir þá aðvörun. Frá þvi byltingin var gerð hefur verið mikið umrót á öllum sviðum i Portúgal. Stjórnin hefur að þvi er virðist staðiðeinhugaað öllum aðgsrðum til að halda öfgaöflum i skefjum. Kommúnistarnir i stjórninni hafa staðið gegn verk- föllum og mótmælaaðgerðum. Þeir samþykktu athugasemda- laust gagnráðstafanir stjórnar- innar gegn upplausninni. En i þeim fólst meðal annars, að her- menn voru sendir inn i pósthúsin til að sinna störfum póstmanna, sem voru i verkfalli, Kommúnistarnir hafa ekki heldur gagnrýnt þá ritskoðun, sem aftur Alvaro Cunhal, foringi kommúnistaflokks Portúgals. Hann kom til landsins úr margra ára útlegö 30. april s.l. og hefur siöan skipulagt öflugasta stjórn- málaflokk landsins. hefur verið komið á i landinu. Samkv. nýjum reglum um hana mun sjö manna nefnd herforingja hafa eftirlit með öllum frétta- miðlum. Þeir, sem hvetja til verkfalla, gagnrýna her- kvaðningu, ráðast opinberlega gegn ráðherrum eða gerast sekir um það, sem nefnt er ,,hug- myndafræðileg gagnsókn” gegn hernum, geta sætt allt að tveggja milljón króna sekt og sex mánaða útgáfubanni. Rikisstjórn Palma Carlos var friðsamlegrar þróunnar í lýðrœðisótt llllllllllll umsjón BB Mario Firmino Miguel, herforingi og fyrrverandi varnarmálaráð- herra bráðabirgðastjórnarinnar. Talinn líklegur forsætisráðherra. brá'ðabirgðastjórn i þeim skilningi, að hún átti að sitja, á meðan samin yrði stjórnarskrá. Ráðgert var, að kosningar færu fram i apríl 1975. Við stjórnar- skiptin. nú getur þetta allt breytzt Ófriðurinn i stjórnmál- um Portúgal á ekki sizt rætur að rekja til þess, að borgaralegu flokkarnir hræðast framgang vinstri flokkanna — og ekki sizt kommúnista. Sú þróun virðist geta orðið, að herinn taki þá stefnu að verða vinstri stjórn- málaafl til mótvægis við kommúnista. Ýmis ummæli Spinola siðustu daga verða ekki skilin á annan veg. Fram til þessa hefur kommúnistaflokkurinn i Portúgal lagt sig fram um að vinna sig i álit hjá herforingjunum. Komið hefur fram, að Alvaro Cunhal, foringi kommúnistanna, verði i þeirri rikisstjórn, sem liklega verður mynduð i dag. Sömu sögu er að segja um Mario Soares, leiðtoga sósialista og utanrikis- ráðherra. Hins vegar hafa foringjar borgaraflokkanna verið tregari til að skuldbinda sig til þátttöku i nýrri rikisstjórn. Þeir virðast kjósa, að herinn verði mótvægið gegn vinstri öflunum. En hversu lengi helzt bandalag hersins og kommúnista? Þeir, sem kunna svarið við þessari spurningu, geta einnig svarað þvi, hvort þróun portúgölsku þjóðarinnar i lýðræðisátt verður friðsa.mleg eða umbrotasöm.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.