Tíminn - 25.02.1966, Side 3
FÖSTUDAGUR 25. febrúar 1966
TÍMINN
(SPEGLITÍMANS
*'..................
l
Eins og skýrt hefur verið frá
hér á síðunni kom skopleikar-
inn frægi Danny Kay til Lund-
úna ekki alls fyrir löngu til
þess að stjórna hljómleikum
Fílharmoníuhljómsveitar borg-
arinnar. Allur ágóðinn rann til
★
Brezka veðurstofan lætur
ekki leiðinlega veðurfræðinga
eða þuli flytja veðurfréttirnar
í sjónvarpinu, heldur hafa þeir
til þessa unga og fallega stúlku,
Anne Aldred, og les hún veður-
fréttirnar í viðeigandi klæðn-
aði, og er nú hægt að sjá það
á klæðnaði hennar, þegar hún
birtist í sjónvarpinu, hvernig
verðinu er háttað. Þegar hvasst
er og kalt les hún veðurfrétt-
irnar klædd minkapels og þeg-
ar er frost og stormur kem-
ur hún í kuldaskóm og með
eyrnahlífar, í göngudragt ef
veðrið leyfir og þegar það er
sumar og sól klæðist hún bik-
ini. Fatnað þennan láta helztu
tízkuverzlanir Lundúna í té.
★
Innan skamms verða Oscars-
verðlaunin veitt í 38. skipti.
Hér á myndunum sjást þær
fimm leikkonur, sem sagðar eru
líklegar til þess að hreppa verð
launin að þessu sinni. Þær eru'
Efri röð frá vinstri. Elizabeth
Hartman, fyrir leik sinn í kvik
myndinni „A Patch of Blue“
og Simone Signoret fyrir leik
sinn í kvikmyndinni ,,Ship of
Fools“. Neðri röð frá vinstri:
Julie Andrews fyrir leik sinn
í kvikmyndinni „The Sound
of Music“, Julie Ohristie fyrir
leik sinn í myndinni „Darling"
og Samantha'Eggar fyrir leik
sinn í kvikmyndinni „Bottom
from left“.
góðgerðarstarfsemi og meðal
gesta sem viðstaddir voru
hljómleikana var Márgret prins
essa. Hér á myndinni sést
stjórnandinn ásamt konu sinni
ræða við Margretu.
★
Silfurpeningur til minningar
um The Beatles verður nú á
boðstólum innan skamms í
Bretlandi, Bandaríkjunum og
víða í Evrópu. Öðrum megin
á peningnum verður greypt
mynd af þeim fjórmenningun-
um en hinum megin verða
nöfn þeirra, með þeirra eigin
hendi og setningin The Beatles
1965—1966. Er búizt við, að
þessir peningar seljist vel.
Það hefur verið fremur hljótt
um furstahjónin í Monaco að
undanförnu. Þó komust þau í
heimsfréttirnar nú fyrir
skömmu, þegar þau brugðu sér
til Parísar til þess að opna nýtt
dagheimili þar. Var fjöldi
manns viðstaddur og er mynd-
in hér að ofan tekin af þeim
hjónum við það tækifæri.
Kaþólskur prestur að nafni
Jerome Toner, skrifaði írska
tímaritinu Irish Spotlight fyr-
ir skömmu. í bréfi sínu til
blaðsins stakk hann upp á því,
að prestar fengju tækifæri til
þess að losa sig við hinar dökku
gamalsdags hempur sínar. —
Við eigum að vera prestar gleð-
innar og ljóssins, og hvers
vegna ættum við að klæðast
svo dökku? spyr pfesturinn. —
Jafnvel lítil börn verða hrædd,
þegar stór og svartur skuggi
beygir sig yfir vagninn þeirra.
Heimsmeistarinn í þungavigt,
Cassius Clay ætlar nú að reyna
að komast hjá því að vera kall-
aður í herinn vegna trúar sinn-
ar, en hann er eins og kunn-
ugt er Múhameðstrúar.
— Ég er Múhameðstrúar, seg
ir Cassius og við förum ekki
í stríð, nema það sé stríð, sem
Allah sjálfur hefur lýst yfir.
Það er talið mjög sennilegt
að heimsmeistarinn verði send
ur til Vietnam. Dagblaðið Daily
News, sem hafði viðtal við
Cassius fyrir skemmstu skrif-
aði, að Cassius hefði lýst því
yfir að hann hefði séð fjöl-
marga hvíta menn brenna til-
kynningar þær, sem þeir fengu
og kölluðu þá í herinn.
Um Vietnam sagði Cassius:
— Ég veit ekkert um Vietnam.
Ég hef aldrei verið þar. Hvar
er það? Er það í námunda við
Kína? Kannski fer ég þangað,
þegar stríðinu er lokið. Ég get
ekki fárið þangúð, þegar allir
skjóta á alla. Ég veit ekkert
um pólitík.
Upprunalega handritið að
skjölum þeim, sem ógiltu hjóna
band Napoleons Bonaparte og
Josephine de Beauharnais fund
ust í Alexandriu fyrir nokkru.
Samkvæmt upplýsingum þaðan
hafa Napoleon og Josephine
sjálf undirritað skjölin ásamt
13 vitnum, sem flestir voru ætt-
ingjar Napoleons. Prófessor
nokkur í sögu við háskólann
í Alexandriu segist hafa rann-
sakað skjölin vandlega og kom-
izt að þeirri niðurstöðu, að þau
séu ekta.
Margrét Danaprinsessa er nú
á ferðalagi í Vesturheimi og
eins og svo margt kóngafó'k
hefur hún gaman af fornminj
um. Hér hefur hún „horfið aft
ur í aldirnar" og skoðar gaml-
ar Indíánarústir í Mexico.
Það er vfst sérlega erfitt að
vera vinur Birgitte Bardot, að
minnsta kosti hefur hún orsak-
að það að tveir ungir menn,
Jacques Charrier og Sami Frey
fengu taugaáfall. Charrier fékk
raunar taugaáfall tvisvar sinn-
um — fyrst, þegar þau hitt-
ust fyrst og seinna eftir að
þau voru gift. Sögur herma,
að ekkert útlit sé til þess að
núverandi förunautur hennar
Bob Zaguri fái taugaáfall og
þykir það vel af sér vikið.
Á VÍÐAVANGI
862 milljónir.
Vísir þykist himin hönduin
hafa tekið, þar sem er grein
Jóhanns Hafstein um gróðann
af erlendri álbræðslu í sam-
bandi við Bérfellsvirkjun. Dreg
ur Vísir vizkuna úr grein
Jóhanns saman í eftirfarandi
kjarna og feitletrar á forsíðu
í gær:
„Eftir að tilboð í Búrfells-
virkjun hafa nú borizt og áætl
anir gerðar, sem byggjast að
verulegu leyti á föstum tilboð
um, og miðað við nokkurn
flutning framkvæmda frá sið
ara stigi á fyrra stig, kemur
í ljós, að virkjun með ál-
bræðslu er enn þá hagkvæmari
en fyrri áætlanir sýna. -Sé mun
ur á rekstrargjöldum virkjan
anna frá ári til árs lagður á
6% vöxtu, safnast í sjóð, ef
virkjað er með álbræðslu, scin
væri orðinn árið 1976 kr. 392,7
millj. samkvæmt nýjustu nið
urstöðum í stað 319 millj. kr.
samkvæmt eldri áætlunum.
Þessi sjóður yrði árið 1985
alls 862 millj. kr. Er það í
tölum talið hagurinn af því að
virkja með rafmagnssölu til
álbræðslu".
Jóhanni og Vísi finnst auð-
vitað mikið til 862 millj. koma,
og víst er það nokkur pening
ur. En ýmsir mundu spyrja,
hvers virði verða 862 miUj. eft
ir aldarfjórðung? Ef verðlags
þróunin og verðbólgan hafa
sama hátt á næsta aldarfjórð
ung og undir viðreisnarstjóm
síðustu sjö árin, verður það
satt að segja ekki mikið fram
kvæmdafé.
Ef lagðar væru inn
200 milljónir.
En fyrst álmenn telja það
slíkan feikiauð að eiga 862
milljónir eftir tvo áratugi,
mætti ef til vill finna til þess
auðveldari ráð en færa allar
þær fórnir, sem til þess þarf
að koma hér upp erlendri ál-
bræðslu. Til dæmis mætti nú
leggja inn á 6% vöxtu 250 millj
ónir, og yrðu þær þá orðnar
862 eftir 20 ár líka.
Löngun álmanna til þess að
villa um fyrir þjóðinni ál-
bræðslu í vil er svo mikil, að
þeir víla ekki fyrir sér að
telja 20 ára vexti af fé, sem
ísjendingar kynnu að leggja á
vexti, lika tekjur af álbræðsl
unni!!
En er nú alveg víst að þess
ar 862 millj. séu öruggur hagn
aður? Að vísu segir Vísir, að
tilboðin í virkjunina séu að
„verulegu leyti föst“. En hvað
verður, ef byggingarkostnaður
fer svo sem 10—20% fram úr
áætlun? Annað eins hefur nú
komið fyrir, jafnvel hjá AI-
menna byggingafélaginu, eða
ætli álmenn hafi hafnargerðina
í Þorlákshöfn til sannindamerk
is um öryggi tilboða þessa að-
ila? Og ef við þetta bættist,
að gera yrði ísvarnarmann-
virki við virkjunina fyrir 200
millj. sem sérfræðingar telja
nauðsynlegt, en nú má alls
ekki reikna með í stofnkostn
aði? Og færi nú einnig svo, að
við vrðum að framleiða raf-
magn með olíu handa álbræðsl
unni með fimmföldum fram-
leiðslukostnaði á við það, sem
hún greiðir? Gæti ekki verið,
Vísir sæll, að eitthvað færi að
saxast á þennan ágóða?
Borgar sig að setja íslenzka
kramna.í, n ,4