Tíminn - 25.02.1966, Blaðsíða 11

Tíminn - 25.02.1966, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 25. febrúar 19G6 TÍMINN ARABIU LAWRENCE ANTHONY NUTTING f gai,» „reytt honum til þess, sem hann áleit sjálfum sér mjög hættulegt. Hann óttaðist sjálfur valdagræðgina og var ekki enn laus við hana. Það sýna ferðir hans til Parísar, Kairó og Transjórdaníu. Hann vissi af þessu manna bezt vann að því að öðrum yrði ógjörlegt að kveðja hann til valdamikilla starfa. Erfiðleikar hans voru því meiri, þar eð hann gat aldrei talað um þá við aðra. Ef hann hefði lifað nú á dögum er óvíst að hann hefði leitað til sálfræðings. Hann reyndi þvi að lækna sig sjálfur með því að ganga í flugherinn, þar sem hann bjóst við að geta fundið félagsskap eins og hann fann með Aröbum á styrjaldarárunum, félag við Þá ein- földu og eðlilegu. Þar myndi hann finna öryggi og hann myndi gleyma martröð sjálfslygi og ábyrgðar styrjaldarár- anna. í fyrstu varð hann fyrir vonbrigðum. í stað þess að finna þá einföldu og eðlilegu, fann hann ruslaralýð, og liðsfor- ingja, sem hann gat ekki virt. Hann gat ekki horfið það- an, hann var horfinn Aröbum fyrir fullt og allt. Þegar hann var látinn fara vissi hann að hann yrði að komast aftur í flugherinn til þess að læknast að fullu. Hann naut þess að þjást líkamlega og andlega. Ruddaskapurinn og áreynslan veittu honum nautn. „Það er fátt sem róar meir, en það að vera skipað af fíflum“. Hann skrifaði Curtis, „að sjálfskvalalostinn væri ástæðan fyrir þvi að hann væri í hernum og sjálfsauðmýkingin væri ástæðan að því að hann kysi að vera óbreyttur hermaður. Hvaða ályktanir á að draga að sögulokum? Tókst lækn- ingin, eða var hann niðurbrotinn, þegar hann hvarf úr hern- um? Það er vafasamt að lækningin hafi gert honum fært að starfa og taka sér ábyrgðarstöðu. Han vildi sjálfur að menn héldu að hann myndi koma aftur. Hin barnalegu látalæti hans um að honum hefði verið boðin ráðherrastaða, land- stjórastaða og aðrar ábyrgðarmiklar stöður voru sprottnar af þessari löngun. En ótti hans við að yfirgefa „klaustrið" og taka til starfa og sannfæring hans um að lífinu væri lokið benda ekki til neins áhuga á starfi og ábyrgð. Eins var sú gáfa hans, sem veiklaðist ekki, eða beint var í öruggari farveg, vald hans yfir öðrum og forystuhæfi- leikar hans. Hann óttaðist mjög þessa hæfileika en nú nýttust þeir til aðstoðar og leiðbeiningar fyrir vini hans gamla og nýja. Hann skildi erfiðleika þeirra og sýndi þeim samúð sem jókst við eigin raunir. Hann leiðbeindi þeim til þeirra átta, sem bezt hæfðu eðli þeirra og þörfum. Þeir eru ekki fáir, sem þakka honum skilning, hvatningu og leiðsögn á þeirri leið, sem hann villtist á sjálfur. Fáir hafa komizt betur að orði um þetta en Gertrude Bell: „Hann tendraði eld í köldum herbergjum“. Endir. C The New Amerlean Llbrarv UNDIR 43 Hann lá undir rhododendronrunn unnum. — Er einhver hér, sem á hann? Hún leit á Vonnie. — Sýnilega ekki. Fenella á enga dragt eða kjóla með svona hnöppum og Myra segist ekki eiga hann heldur. — Þú verður að sýna Vachell lögreglufulltrúa hnappinn, sagði Joss. Fenella varð áköf. — Kannski stendur hann í eim hverju sambandi við hina leyndar dómsfullu konu, sem sást í garð inum, kvöldið, sem Felix frændi var myrtur. — Og á hinn bóginm er alls ekki víst að svo sé, greip Joss fram i. En það er sjálfsagt, að lögreglufulltrúanum sé sagt frá því. — Sko, Rhoda tók hnapp- inn upp úr veskinu sínu. Er hann ekki snotur? Vonnie hélt niðri í sér andan- um. Enginn — nema hún og Rhoda höfðu séð dragtina. — Ef manni geðjast að svona skrauthnöppum, þá er hann fal- legur, sagði Fenella kæruleysis- lega. Persónulega finnst mér ekkert til um svona. Ég vil ein- föld föt og óbrotin . .Svo leit hún andartak á Vonnie og glennti upp augun. Andartak virt ist hún ætla að segja eitthvað, svo sneri hún sér að Ralph og rétti fram höndina. — Gefðu mér sígarettu. Vonnie velti fyrir sér, hvers vegna Fenella hefði horft svona rannsakandi á hana. Hún hlaut að hafa séð hnappana á dragtinni. Kannsk: hafði hún verið inni í herbergi hennar og snuðrað í fata skápnum hennar til að sjá, hvers FÖLSKU mm konar fatnað hin kanadíska frænka hennar átti. Fenella og Rhoda höfðu báðar séð hnappana — og báðar gátu orðið hættuleg ar, ef þær kusu að vera fjendur hennar. Fenella sagði ekkert. Hún hall aði sér aftur á bak í stólnum og lét færa sér ískaldan drykk og rausaði dálítið um veðrið, sem virtist ekki ætla að breytast . — Það er alveg vonlaust mál veðurfarið hér. Einstaka sinn um gengur hitabylgja yfir, svo að allir eru að kafna og svo er hvass viðri og rigning, og allir segja, að það sé þess vegna, sem enskar konur hafa fallega húð, — nei, má ég þá biðja um almennilegt veður, því að fallega húð getur maður hvort eð er keypt í hverri einustu snyrtivöruverzlun. Allir hlógu. Það var eitt af fá- um skiptum, síðan hún kom hing- að, að hlátur hafði heyrzt í hús inu, hugsaði Vonnie. Það var dá- samlegur léttir að því. En Fenella sá um að kætin stæði ekki lengi. — Joss frændi, manstu eftir því að þú málaðir myhd af Myru, þeg- ar hún var lítil? — Já, það gérði ég reyndar? Mér þætti gaman að vita, hvar hún er. — Hún hlýtur að vera einhvers staðar í vinnustofunni, sagði Fen ella — eins og hún vissi það ekki. Hafði kannski ekki hún og Ralph leitað að því og fundið það! — Ég verð að finna það. Hann brosti til Vonnie. — Þætti þér gaman að sjá, hvernig þú leizt út, þegar þú varst smástelpa? Hárið á þér var miklu ljósara, næstum gull- litað. En hárið dökknar oft með árunum. Þú hafðir fallega húð — og það hefurðu enn — og varst óttaleg vargabytta. FLAGGI MAYBURY — Á ég að fara og vita, hvort ég finn málverkið? spurði Fen- ella mjög svo greiðvikin. — Nei, ekki núna. Við skul- um ekki hreyfa við neinu. Kann- ski lögreglan vilji fá að rann- saka betur þar. — Hafa þeir ekki fjarlægt inn- siglið? spurði Ralph. — Jú. En það getur vel verið, að við myndum eyðileggja fyrir þeim einhverjar vísbendingar, ef við færum að róta þar. — Rhoda gengu þar inn og út, sagði Fenella. Gæti hún ekki eyðilagt eitthvað, þegar hún þurrkar af? — Það efast ég um, svaraði Joss áhyggjulaust og hallaði sér að sjónvarpstækinu og skrúf aði frá. — Hvað er á dagskránni í kvöld, spurði Fenella fýlulega. — Stjómmálaumræður. — Úff! Hún reis upp og tók glasið sitt. Það nenni ég ekki að horfa á! Kemur þú Ralph? — Mig langar til að fylgjast með þeim, ef frændi þinn hefur ekki á móti því. — Síður en svo! Hvað segir þú Rhoda? — Ég hef áhuga á stjórnmál- um, sagði hún. — Mér finnst stjórnmál alveg dauðans leiðinleg, lýsti Fenella yfir. Komdu Myra, við skulum koma inn í garðstofuna. Því ekki það eins og hvað ann- að hugsaði Vonnie og tók með sér appelsínusafann sinn. Fenella hlammaði sér niður í garðstól og Vonnie settist í flugga kistuna. — Sígarettu? — Nei, þakka þér fyrir. — Þú ert gestur hér. Hvað held urðu um Rhodu? — Hún er mjög iagleg og mjög dugleg. — Ó, já, því verður ekki neit- að. En allir listamenn hafa ein- hverja skuggalega konu í lffi sínu. Frændi hefur sína, þar sem Rhoda er! — Hvers vegna segirðu það? Jó auðvitað — þú meinar af því að þú heldur hann hafi þekkt hana fyrir mörgum árum og .... — Og hann var ástfanginn f henni — eða átti að mjnnsta kosti ævintýri með henni? Ég var að hugsa um — hvernig hún kom með hnappinn þarna áðan. — Ég skil ekki... — Feneila kipraði augun. — Hún vonaði, að með þessu gæti hún upplýst, hver kon an væri, sem Greta sá í garðinum um kvöldið. — Vonar þú ekki líka — að það hafist upp á henni? sagði Vonnie og varð að taka á því, sem hún átti til, svo að ekki bæri á óttanum, sem þessar umræð- um vöktu með henni. — Já, en hvernig hún gerði það. Eins og hún hefði ákveðið dramatíska afhjúpun, — eins og þetta væri óskaplega þýðingar- mikið, að allir væru viðstaddir þegar hún sýndi hnappinn. — Hún — Rhoda — hafði áður sýnt mér hann. — Hvað þá! Fenella greip um glasið og svolgraði stórum. Hún horfði á Vonnie, meðan hún drakk. Augnaráð hennar sannfærði Vonnie um, að Fenella vissi, að hún átti dragt með litlum mál- uðum glerhnöppum. En hún varð að tala um þetta, eins og hún hefði ekki hugmynd um, að Fen ella hafði séð hana. Eins og hún skemmti sér hálfvegis yfir þessu. — Hún sýndi mér hann sjálf sagt vegna þess, að ég á dragt með svona hnöppum. Hún hefur sjálf sagt haldið, að ég hafi týnt hon- um. En það vantar engan hnapp. — Skrítið. Ég býst við — hún beit á vör sér og starði niður í gólfið. — Býstu við hverju? — Býst við, að hún hafi fund- ið hann, þar sem hún sagði, átti ég við. — Því skyldi hún segja ósatt um það? n Fenella leit á hana full fyrirlitn ingar. — Hún gæti haft margar ástæð ur fyrir því! — Ég er seinni að hugsa, Þú verður að útskýra, hvað þú mein- ar. — Mjög áríðandi er, að hún getur hafa komizt yfir hnappinn á annan hátt og svo SAGT., að hún hafi fundið hann í garðinum. Hú» gæti meira að segja sjálf hafa sett hann þar og vonað, að einhver tæki ef tir honum. — Hvers vegna? — TiJ að flækja þér x málið, væna mín! sagði Fenella þreytu lega. Eða ef þú vilt að ég tali enn berar — til að leiða tor- tryggni frá sjálfri sér. — En þú grunar þó ekki Rhodu? — Jú, sagði Fenella hiklaust. Vonnie starði á hana. Loks var ein manneskja, sem vogaði sér að tala hreint út, hafði kjark — eða ósvífni — til að nafn- greina þá, sem hún grunaði. — Þú mátt ekki misskilja mig, sagði Fenella rólega, Ég gruna alla — meira að segja þig og Joss frænda. Hvern einasta. Það hlýtur að vera einhver. Og ef þú vilt, að ég sé alveg hreinskilin, — þá vildi ég langhelzt, að það væri Rhoda. — Þetta er hræðilegt! — Ekki eins hræðilegt og sú staðreynö ,að Felix frændi er dá- inn! ÚTVARPIÐ Föstudagur 25. febrúar. 7.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádeg isútvarp. 13.15 Lesin dagskrá nœstu viku. 13.30 Við vinnuna: Tónleik ar. 14.40 Við, sem heima sitjum. Sigríður Thoriacius les skáldsög una „Þei, hann hlustar" eftir Sumner Locke Elliot (18). 15.00 Miðdegisútvarp. 16.00 Siðdegisút varp. 17.00 Fréttir. 17.05 Stund fyrir stofutónlist. Guðmundur W. Vilhjálmsson kynnir tónverkin. 18.00 Sannar sögur frá liðnum öld um. Sverrir Hólmarsson ies sög- una um orustuna við Maldon. 18. 20 Veðurfregnir. 19.30 Fréttir. 20. Kvöldvaka. 21.30 Útvarpssagan: Dagurinn og nóttin" eftir Johan Bojer. Hjörtur Pálsson tes. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. Lestur Passíusálma (16. 22.20 íslenzkt mál. Dr. Jakob Benediktsson flyt ur þáttinn. 22.40 Næturhljómleik- ar: Sinfóniuhljómsveit íslands leiikur. Stjórnandi: Bodhan Wod- iczko. 23.25 Dagskrárlok. morgun Laugardagur 76. febrúar. 7.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegis jútvarp. 13.00 Óska- llög sjúklinga. Kristín Anna Þórarinsdóttir kynn ir lögin. 14.30 í vikulokin þátc ur undir stjórn Jónasar Jónas- sonar. 16.00 Veðurfregnir. Um- ferðamál, 16.05 Þetta vil ég heyra Jónas Þórir Þórisson bankagjald keri frá Akureyri velur sér hljómplötur. 17.00 Fréttir. Fónn inn gengur. Ragnheiður Heið- reksdóttir kynnir nýjustu dægur lögin. 17.35 Tómstundaþáttur barna og unglinga. Jón Pálsson flytur. 18.00 Útvarpssaga barn- anna: „Flóttinn“ eftir Constance Savery. Rúna Gísladóttir kennari les söguna í eigin þýðingu. 18.20 Veðurfregnir. 18.30 Söngvar i léttum tón. 19.30 Fréttir. 20.00 Nýja sinfóniuhljómsveitin i Lund únum leikur tvö stutt tónverk. 20.15 Leikrit: „Fornenskur" eftir Jóhn Galsworthy. Þýðandi: Bogi Ólafsson. Leikstjóri: Baldvin Hall dórsson. 22.00 Fréttir og veður- fregnir. Lestur Passíusálma (17). 22.20 Danslög. 24.00 Dagskrárlok. saai

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.