Tíminn - 07.04.1966, Page 12
ÍÞRÓTTiR
Landsliðiö í körfu-
knattleik utan í dag
— tekur þátt í Polar Cup um páskana.
Polar Cup keppnin, sú þriðja í
röðinni, hefst í Kaupm*nnahöfn
á föstndaginn langa og lýkur á
páskadag. Mótið er jafnframt
Norðurlandameistaramót í Körfu-
knattleik og senda Norðurlöndin
öll fimm, lið til keppninnar. fs-
lenzka liðið nnm fara utan á skír-
dag og koma heim aftur á 2. páska
dag.
Polar Cup keppnin hófst í Stokk-
hólmi árið 1962 í tilefni af 10
ára afmáeli sænska körfuknattleiks
samhandsins. Gáfu Svíar vegleg-
an hikar úr saenskum kristal, sem
farandgrip, er keppa skal um eftir
sérstakri stigatöflu. Finnar hafa
sigrað glæsilega á þeim tveim
Polar Cup mótum, sem haldin hafa
verið Svíar hafa hlotið annað sæti
íslendingar þriðja og Danir
fjórðá, en Norðmenn hafa ekki
sent lið í keppnina fyrr en nú
Ekki hefur ennþá borizt leik-
skrá fyrir Polar Cup og því ekki
vitað hvemig liðin verða skipuð
Það er þó óhætt að bera liðin
saman, miðað við fyrri getu á
þessum mótum
N orðurlandameistararnir Finn-
ar, hafa verið £ sérflokki á þess-
um mótum Þeir hafa leikið körfu-
FLUGNÁM
Framhald af bls. 9.
eru almennt strangari en ger-
tet víðast hvar erléndis.
i, —Þið hafið ekki þurft að
synja nokkrum um skólavist
vegna þrengsla?
— Nei, sem betur fer. Við
höfum vélar og reynum að
koma þessu haganlega fyrir svo
að allir sem vilja geti stund-
að nám, setjum upp töflu, sem
sýnir tímana og hvenær hver
á að hafa þessa og þessa, vél.
Að vísu eru hér gífurlegar ann
ir oft á sumrin og vélarnar
stoppa ekki fyrr en liðið er á
nóttina. , ...
— Hvað hafið þið marga
kennara við skólann?
— Við höfum þrjá flugkenn-
ara, og svo em margir sem
kenna það bóklega, siglinga-
fræði, veðurfræði, flugumferð-
arstjórn og þar fram eftir göt-
unum.
Og í sama bili kemur inn
Þorsteinn Jónsson flugkennari
ásamt Skúla Ósbarssyni nem-
anda á blindflugsnámskeiði.
Þeir eru að fara í smáflugtúr
yfir bæinn og bjóða okkur með.
Það er heiðskírt og yndislegt
veður og gaman að svífa um
loftin blá. Skúli stýrir flugvél-
inni og fyrir glugganum er
blátt tjald, svo að hann sér
ekkert út, en hann er fullkom-
lega öruggur, enda með þaul-
æfðan og góðan flugmann sér
við hlíð. Skúli er 19 ára og er
staðráðinn í því að gera flugið
að .sinni atvinnugrein. Það
liggur við að ég öfundi hann
að geta, alla æfina svifið um
vindanna sali, svo að ég leyfi
mér nú að vera ofurlítið skáld
leg. Þegar vélin lendir, tökum
við Guðjón ljósmyndari saman
pjönkur okkar, þökkum hjónun-
um fyrir góð ogf'greið svör og
þeim Þorsteini og Skúla fyrir
flugferðina. Þegar bíllinn brun
ar burtu með okkur, sé ég að
lítil flugvél er enn á ný að
faefja sig á loft.
gþe.
knattleik síðan árið 1938 Qg hafa
iangmesta keppnisreynslu þessara
liða. Finnar náðu góðum árangri
á Olympíuleikjunum í Tokyo og
á Evrópumeistaramótinu í Rúss-
landi sl sumar hlutu þeir 12 sæti
eftir að hafa verið óheppnir og tap
að leikjum með nokkurra stiga
mun.
Finnska liðið verður skipað há-
vöxnum, sterklegum og ungum
leikmönnum Þekktastir verða
hræðurnir Karl og Marti Liimo
ásamt Jormo Pilkevara. Marti Lii-
mo 22 ára 198 sm og ákaflega
þreklega vaxinn, var valinn í úr-
valslið Evrópu, sem sigraði Real
Madrid á afmælismóti TS Wisla
í Póllandi sl sumar Hinar gömlu
kempur Seppo Kuusela og Timo
Lampen eru báðir komnir yfir þrí
tugt og óvíst hvort þeir verða með
að þessu sinni.
Telja má víst, að Finnar sigri
á þessu móti, en ef til vill ekki
með jafn miklum yfirburðum og
síðast
Svíar hafa haidið öðru sæti á
Pólar Cupnum, en voru næstum
búnir að tapa fyrir íslendingum
í Helsinki 1964 Það hafa orðið
miklar framfarir í körfuknattleik
í Sviþjóð undanfarið Svíar hafa
sent efniiega körfuknattleiks-
menn til Bandaríkjanna í skóla
þar, svo sem Hans Alhertsson 200
sm og Kjell Rannelid 201 sm, enn
fremur hafa þeir fengið bandaríska
þjálfara og haldið uppi sérstökum
æfingabúðum
Svíar hlutu 16. og síðasta sætið
á Evrópumeistaramótinu, en þeir
töpuðu mörgum leikjum með litl-
um mun.
Sænska meistaraliðið Alvik lék
KR-inga grátt í Evrópubikarnum
í haust og verður fróðlegt að sjá
hvort Örjan Svidén fær leikið jafn
fyrirhafnarlaust í gegnum lands-
liðsvörnina, eins og hann lék í
gegnum vörn KR í haust.
Danir töpuðu fyrir íslendingum
með einu stigi í Helsinki og munu
ákveðnir í að hefna harma sinna
á heimaleikvelli, enda hafa þeir
ákveðið að leiknum við fslendinga
verði sjónvarpað.
Við höfum leikið fjóra lands-
leiki við Dani, tapað tveim, sem
leiknir voru í Danmörku, en unn-
ið tvo á hlutlausum velli.
Bezti leikmaður Dana, Arne Pet
ersen frá Gladsaxe, hefur verið
við nám í Bandaríkjunum og leik-
ið körfuknattleik með háskólaliði. |
Hann er nýlega kominn heim ogí
mun styrkja danska landslið-
ið mjög mikið Leikurinn milli j
Dana og íslendinga verður vænt-
anlega tvísýnasti leikur keppninn-
ar.
Körfuknattleikur breiðist nú óð-
fluga út um Danmörku og hefur
tala leikmanna og félaga er stunda
körfu margfaldazt á fáum árum.
Danir hafa vandað mjög til und
irbúnings Polar Cup mótsins og
var kostnaður kominn upp í
15000 danskar krónur fyrir nokkr-
um dögum Keppnin fer fram í
Iferlevhallen, sem er nýtt íþrótta
hús i útjaðri Kaupmannahafnar
Norðmenn senda nú lið í fyrsta
skipti á Polar Cup Norskur körfu-
knattleikur er að mestu óþekkt
stærð, hins vegar er þó vitað að
körfuknattleikur á vaxandi vin-
sældum að fagna þar í landi og
hefur íþróttin verið kennd í skól-
um um árabil
Norsk körfuknattleikslið hafa
leikið talsvert við sænsk lið á und
TÍMINN
ÍÞRÓTTIR
FIMMTUDAGUR 7. aprfl 1966
Cassius Clay á flótta!
Myndin aS ofan er frá einvígi þeirra Cassiusar Clay og Kanadamannsins
George Chuvalo í Toronto á dögunum. Og sjái menn! Heimsmeistarinn
Clay er á flótta, ekki ber á öSru. Myndin er tekin snemma í einvíginu, en
þá gekk Chuvalo bezt. Annars er Clay frægur fyrir aS dansa í kringum
mótherja sina, áSur en hann lætur til skarar skríSa, og kannski sýnir
myndin aS ofan þátt í þeim dansi.
Danir hræddir?
Eins og áður hefur verið
skýrt frá, kcmur til greina, að
ísland hljóti sæti Túnis í loka-
keppni HM í handknattleik,
en ekkert hefur verið ákveðið
endanlega um þetta og verður
líklega ekki gert á næstunni
íslenzkir handknattleiks-
menn ættu ekki að vera of
bjartsýnir á það að komast fyr
irhafnarlaust í lokakeppnina,
því uppi eru raddir um það,
að varpa beri hlutkesti um það
hvaða þjóð fái hið auða sæti
Löndin, sem koma til greina,
eru auk íslands, Holland,
Spánn, Austurríki og Finn-
land
Það eru einkum Danir, sem
eru hrifnir af þeirri hugmynd
að láta hlutkesti ráða, en þeir
eru einmitt í riðlinum, sem
Túnis átti að vera í Lét Freds
lund Petersen, formaður
danska handknattleikssam-
handsins svo ummælt í blaða
viðtali nýlega að það væri ekki
nema sanngjarnt, að hlutkesti
yrði látið ráða Er greinilegt,
að Danir eru hræddir við að
fá ísland í riðilinn með sér,
en auðvitað væri betra fyrir
þá að fá hin löndin
anförnum árum og staðið sig vel.
Lið Olóarháskóla lék við Kaup-
mannahafnarháskóla í Árósum í
vetur og sigruðu Norðmenn í þeim
leik
íslenzka landsliðið er þannig
skipað:
Birgir Örn Birgis, Einar Bolla-
son, Agnar Friðriksson, Hólm-
steinn Sigurðsson, Hallgrímur
Gunnarson, Kolbeinn Pálsson, Ó1
afur Thorlacius, Gunnar Gunnars
son, Þorsteinn Hallgrímson, Ein-
ar Matthíasson, Kristinn Stefáns-
son.
Meðalaldur liðins er tæplega
22 ár, meðalhæð 188,2 sm og sam
eiginlegur landsleikjafjöldi er 89
að viðbættum 16 unglingalandsl.
Aðeins einn nýliði er í liðinu
að þessu sinni, Hallgrímur Gunn-
arsson, 17 ára Ármenningur, em
vakið hefur athygli fyrir góðan
leik í vetur
Þetta landslið okkar hefur lang
mesta leikreynslu af þeim lands-
liðum, er við höfum áður sent á
Polar Cup Sjö af leikmönnunum
voru með í hinni erfiðu, en lær-
dómsríku Bandaríkjaför í fyrra
Liðið hefur æft undir hand-
leiðslu landsliðsþjálfarans Helga
Jóhannssonar
í fararstjórn verða Bogi Þor-
steinsson formaður KKÍ, Gunnar
Petersen féhirðir KKÍ og Jón Ey
steinsson form. landsliðsnefndar.
Guðjón Magnússon körfuknatt-
leiksdómari mun einig fara utan
með liðinu og dæma leiki á Polar
Cup Guðjón er fyrsti íslendingur
inn, sem dæmt hefur miliiríkja
leiki í körfuknattleik, en hann
dæmdi á Polar Cup í Helsinki
1964
Skíðalands-
mótið
GS-ísafirði, miðvikudag.
Úrslitin á skíðalandsmótinu á
ísafirði í dag:
Meistaraflokkur 20 ára og eldri
Stökik: 1. Svanbergur Þórðarson,
Ólafsfirði, 221.8 stig, 2. Sveinn
Sveinsson 220.5, 3. Björn Þór Ó1
afsson, Ólafsfirði 209.6, 4. Þórhall
ur Sveinsson, Siglufirði 208 stig,
5. Birgir Guðjónssom, Siglufirði
195.5 stig, 6. Haukur Sigurðsson,
ísafirði, 193,4 stig.
Meistarakeppni, 17—19 ára,
stökk: Aðeins einn keppandi var,
Sigurjón Erlendsson, Siglufirði og
fékk hann 206.5 stig.
Fleiri úrslit lágu ekki fyrir í
kvöld útreiknuð. Á morgun verð
ur keppt í stórsvigi og boðgöngu.
Fá vinnu-
tap greitt
Fyrir forgöngu Knattspymusam
bands íslands, hefur ÍSÍ nú gert
þær breytingar á áhugamanna-
reglum sínum, að eftirleiðis er
heimilað að greiða íþróttamönn-
um fyrir vinnutap. Tillaga um að
greiða knattspymumönnum fyrir
vinnutap kom fram á ársþingi
KSÍ fyrir tveimur árum og var það
upphafið að því, að ÍSÍ tók málið
til endurskoðunar, en oft áð-
ur hefur málið verið rætt. ÍSÍ hef-
ur sent blöðunum eftirfar-
andi fréttatilkynningu um þetta
,og fer hún hér á eftir:
„Sambandsráð íþróttasamhands
fslands kom saman til fundar laug
ardaginn 2. apríl s.l. í fundarsal
ÍSÍ í íþróttamiðstöðmni í Reykja-
vík.
Fundurinn hófst kl. 2 e.h. og
var settur af forseta íþróttasam-
bandsins Gísla Halldórssyni, sem
síðan stjómaði fundi.
Helztu gjörðir fundarins voru
þessar:
Fluttar vora skýrsiur fram-
kvæmdarstjómar ÍSÍ og sérsam-
bandanna. Samþykkt var skiptmg
á helmingi skattekna ÍSÍ mili
sórsambandanna svo og skipting
á útbreiðslustyrk ÍSÍ kr. 360.000,-
tfl þeirra einnig var samþykkt
skipting á ken n nlustyrkjum tfl
sambandsaðila ÍSf.
Þá var samþykkt sú^ breyting á
áhugamannareglum ÍSÍ að heimilt
er að greiða fþróttamanni vissa
fjárhæð á dag (kr 333.92) vpgna
tapaðra vinnulauna vegna þáttökn
í mflliríkjakeppni, eða keppni um
Norðurlanda-, Evrópu-, eða heims
meistaratitil. Þó má eigi greiða
töpuð vinnulaun vegna æfinga tfl
undirbúnings slíkum mótum.
Einnig voru heimiluð laun til
dómara í alþjóðakeppnum og dval-
areyrir til fþróttamanna þegar
þeir dveljast á erlendri grund í
samræmi við reglur þar um, sem
alþjóðasambönd hafa sett.
, Samþykkt var að íþróttaþing
Iþróttasambands fslands, sem
halda á í sept. 1966 verði á ísa-
firði í tflefni 100 ára afmælis
kaupstaðarins. 1
Þá var kosin nefnd til athugunar
á sjónvarpi og íþróttum. Að lok-
um var samþykkt að breyta móta-
og keppendareglum ÍSÍ á þann
veg, að framkvæmdastjóm ÍSÍ
hefði heimfld tíl að veita eriend-
um xþróttamönnum þátttöku í
íþróttamótum ef fyrir liggja með-
mæli viðkomandi sórsambands.
Rætt var um ýmis önnur mál,
nn þau, sem getið er hé>r að fram
£ >g lauk fundi á laugardagskvöld.
Sambandsráðsfundurinn var
mjög vel sóttur og voru þar mætt-
ir fulltrúar frá öllum kjördæmum
og sérsamböndum ÍSÍ auk fram-
kvæmdastjórnarinnar".
Aðatfundur Fram
Aðalfundm- Kuattspyrnufélags-
ins Fram verður haldinn í félags-
heimilinu miðvikudaginn 13. apríl
og hefst klukkan 20.30 Venjuleg
aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Aðalfundur Hand-
!<nattleiksd. FH
Aðalfundur Handknattleiksdeild-
ar FH vcrður haldinn mánudag-
inn 18. apríl. Venjuleg aðalfund-
arstörf.