Vísir - 14.09.1974, Page 7

Vísir - 14.09.1974, Page 7
Vísir. Laugardagur 14. september 1974. 7 .TIL ÞESS AÐ FÓLKIÐ GETI LIFAÐ MANNSÆMANDI LÍFI" — stofnun þar sem vœri að finna öil hjálpartœki, hœgt vœri að fá þau keypt, leigð eða lánuð og þar sem jafnvel vœru framkvœmdar hugmyndir fólks ,,Það sem við erum að hugsa um eru tæki, sem hjálpa fötluðu fólki að lifa lífinu. Við erum ein- ungis að hugsa um þetta til þess að fólkið geti lifað mannsæmandi lífi." Þetta sögðu þeir meðal ann- ars, þeir Eggert Asgeirsson hjá Rauða krossinum og Theódór Jónsson hjá Sjálfsbjörg, þegar við ræddum við þá og forvitnuð- umst um þá merkilegu starf- semi, sem fyrirhuguð er i húsi Rauða krossins við Nóatún 21. Þar hefur verið rætt um aö koma af stað fyrirtæki, sem sæi um útlán, leigu og sölu og annað varðandi ýmis hjálpar- og sjúkratæki. Það sem helzt vakir A myndunum er aðeins litill hluti þeirra tækja, sem hægt er að fá. Hér er hæð setu salernis aukin um 13 cm framan til og 15,5 cm baka til. Þetta má auð- veldlega fjarlægja, og auðvell er að hreinsa þetta. Hér er sérstakt statif sem hjálp- ar fólki að drekka, og er fram- leitt fyrir piastglös sérstaklega. Þetta er sérstaklega framleidd- ur diskur á statifi. Maturinn er settur i rönd yzt á disknum. Við- komandi tekur sfðan munnfylli og snýr disknum áfram. fyrir þeim I þessu sambandi er að koma á fót viðtækri lána- starfsemi fyrir allt landið. Það ættu þvi allir kost á þvi að verða sér úti um tækin. — En er þá ekki erfitt fyrir fólk úti á landi að afla sér upp- lýsinga um það sem til er, sjá það og velja rétt? Theódór svarar þvi til, að eitt af þvi fyrsta sem þyrfti að gera, væri að prenta bækling, þar sem gefnar væru allar upplýsingar um það, sem væri til, og dreifa honum siðan um allt land. Þá gæti einnig erindreki farið um landið og kynnt það sem á markaðnum er, þvi kynningin skiptir mjög miklu máli. Þaö væri t.d. mjög gott, ef opinberar stofnanir, sjúkrahús o.fl. ættu kost á leiðbeiningum i þessum efnum. Að vlsu er alls ekki vitaö, hversu mikil þörfin er fyrir þessi tæki, en hún er sannarlega nokkur. A veturna myndast til dæmis löng biðröö eftir hjálpar- tækjum hjá Sjálfsbjörg. Þeir sem þurfa á tækjunum að halda hafa sumir hverjir dottið á skiö- um og þurfa þau aðeins stutta stund. Um jólin er líka sérstak- lega mikiö um aö fólk leiti eftir svona tækjum. Þá vilja menn reyna að taka ættingja sina heim. Nokkuð hefur verið um hjálpartækin úti á landi, en ekki nógu mikið. En það má geta þess, að þessi tæki gætu komið i veg fyrir sjúkrahúsvist margra aðila. Þó að hægt sé að fá hjálpar- tæki og sjúkratæki nú, þá eru þau flutt inn eftir pöntun, segja þeir Eggert og Theódór okkur. Það þarf stundum að bíða i allt aö einn, tvo eða þrjá mánuði eft- ir að fá þau. A þessu þarf að ráða bót, þvi að það hlýtur að skipta miklu máli að bæklað fólk, sem þarf á aðstoð að halda, geti sem mest hjálpað sér sjálft og komizt sem mest út i lifið. Völ er á ýmsum tækjum, miklu fleiri en nokkurn tima hafa fengizt hér. Til dæmis er hægt að fá ýmiss konar fatnað, skyrtur sem ekki eru með töl- um, buxur, sem eru með renni- lásum á báöum skálmum, alveg upp og niður. Tæki fást einnig til þess að aðstoða við aö klæða sig. Hér hefur verið hægt að fá tæki til þess að aðstoða fólk við aö klæöa sig i sokka t.d. Fjórar eöa fimm geröir eru til af rúmum, sem að hluta til eða öll ganga fyrir rafmagni. Svo er hægt að fá fjarstýrð tæki fyrir sjónvarp og dyrabjöllur og ýmislegt fleira, tæki sem hjálpa fólki að velja simanúmer, og fleira má upp telja. „Við byrjum á þvi sem smærra er, en við vitum, að i kjölfarið hlýtur að koma þaö, sem er dýrara og flóknara,” tók Eggert fram. ,,En við ætlum alls ekki að gera neitt, sem aðrir eru þegar byrjaðir á, og það er alls ekki meiningin að fara út I nokkra samkeppni viö einka- fyrirtæki hér. Það sem við vilj- um koma á er fyrst og fremst kynning, og viö viljum fá fólk til þess að hugsa meira um þetta. Hér hefur ekkert verið gert til þess að auðvelda fyrir fólki og hafa allt það sem völ er á á ein- um stað.” 1 þessari fyrrnefndu stofnun, sem fyrirhuguð er i hinu nýja húsnæði Rauöa krossins, segir Theódór okkur að jafnvel gæti komið til greina aö fólk kæmi með hugmyndir að einhverju tæki, sem siðan væri hægt aö vinna fyrir það á staðnum. Stofnun þessi er ekki ákveðin ennþá, en mikill áhugi er rikj- andi hjá Rauða krossinum og Sjálfsbjörg. Rauði krossinn opinbera, þannig að menn verði samferða i þessu máli, segir Eggert. ,,Og við vonum að hægt verði að hefja framkvæmdir i þessu máli innan skamms.” Það sýnir sig líka, að það eru margir sem áhuga hafa á þessu, t.d. koma ábendingar frá ýms- um um þetta. A Norðurlöndum hefur aukizt samvinna i þessum málum og til dæmis er mikið gert fyrir fatlað fólk i Danmörku. Þar eru miðstöövar viða um landið fyrir fatlað fólk, þar sem meðal ann- ars eru kynnt þau tæki, sem völ er á. A Jótlandi er til dæmis starfandi kona, sem fer heim til fólks og ráðleggur þvi i vali, auk þess sem hún starfar á einni slikri miðstöð hjálpartækja. Það hlýtur þvi að vera kapps- mál að stuðla að miðstöð hér á landi, sem myndi verða til þess, að fatlað fólk gæti hjálpað sér meira sjálft og lifað lifinu sjálf- stæðara. Það má geta þess, að f IIMIM1 i SÍ-OAIM J Umsjón: Edda Andrésdóttir fyrir nokkru komu hingaö I hóp- ferð menn frá Sviþjóö, sem allir voru með utanáliggjandi saur- poka. Þeir reyndu til dæmis aö hafa samband viö Islendinga, sem þjást af þvi sama, bæöi til þess að segja frá ýmsum nýjungum i sambandi við þetta og svo rétt til þess að hittast.... —EA býður sem fyrr segir húsnæði, og félögin eru tilbúin til þess að leggja i þetta sameiginlega. Stofnkostnaður er áætlaður 3,2 milljónir. Mjög mikilvægt er þó aö einhver aöild sé frá hinu 1 setuani, fremst i henni, er komiö fyrir innbyggöri stál- fjö,öur, sem hjálpar fólki aö standa upp án mikilla erfiö- leika. Armurinn er sérstaklega geröur fyrir simtól. Hann má setja I allar stellingar. peua tæki passar óllum rám- um. Þaö er ekki skrúfaö fast á rúmin. Náttúrulega C vítamín! í öllum appelsínum er C-vitamín, þess vegna er mikið af C-vitamín í Tropicana. í Tropicana eru aðeins notaðar ferskar appelsínur ræktaðar í Flórída. I hverju glasi (200 gr.) af Tropicana eru 400 alþjóðaeiningar af A-vitamíni, 80 mg. af C-vitamíni og ekki meira en 100 hitaeiningar. sólargeislinn frá Florida Þessir þrfr speglar eru þannig geröir, aö rúmliggjandi fólk getur séö allt sem fram fer I kringum þaö, án þess að þurfa aö hreyfa sig.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.