Tíminn - 17.04.1966, Síða 6
18_________________________TIMINN__________ SUNNUDAGUR 17. apríl 196«
3LAÐAMAÐUR TÍMANS RÆÐIR VIÐ ÁSKEL EINARSSON
Þegar komið er til Húsavíkur,
blasir við ferðamanninum hrein-
legur bær. Það má í rauninni telja
furðulegt, hve hreinlegur hann er,
því þama hefur þróazt útgerð og
fiskvínnsla, en þau óhreinindi,
sem ððrum slíkum stöðum virðast
fylgja, blasa ekki við á Húsavík.
Er inn í bæinn kemur, verður
aHs staðar fyrir uppbygging.
Þama er risinn nýr barna- og
gagnfræðaskóli, þarna er nýtt
sjúkrahús í byggingu og félags-
heimili. Þarna era nýjar og glæsi
legar verbúðir og fiskiðjuver í
byggingu og alls staðar eru ný
íbúðarhús að rísa, eða nýlega
fullbyggð.
Húsavík er sérstæð um marga
hluti. Þar hefur úrgerð þróazt í
skjóli Fiskiðjusamlagsins og þar
era þjónustufyrirtæki fyrir stór
an hluta Þingeyjarsýslu og þar er
eitt elzta kaupfélag landsins. Þessi
þjónustufyrirtæki hafa skapað þá
aðstöðu, að bænum vegnar vel,
þótt fiá^^ngur þregðist af og til.
Blaðamanni Tímans gafst fyrir
skenunstu tækifæri til að hi*ta
að máli bæjarstjórann á Húsavik,
Áskel Einarsson, og spjalla við
liann nokkra stund. Áskell var í
skrifstofu sinni, er blaðamann bar
að garði og var bersýnilega í önn
við að stjórna málefnum bæjar
ins. Hann var í þann veginn að
fara á einhvem mikilvægan fund
um bæjarmálefni, og síðan átti
hann að mæta á öðrum fundi og
þá um önnur málefni varðandi bæ
inn, Hann „þarf að vera^ með
nefið ofan í öllu” eins og Áskell
komst sjálf ur að orði.
Það liðu nokkrar klukkustundir
áður en Áskell hafði lausa stund.
Þá vfldi hann gjaraan ræða um
alla heima og geima, en efst í
huga blaðamauns var að forvitn-
ast um málefni Ilúsavíkur.
Það kom í ljós, að mikil fólks-
fjölgun hefur orðið á Húsavík á
undanföraum áram. Segja má, að
Ilúsavík sé bær unga fólksins, því
að 40 af hundraði íbúa þar, era
undir 16 ára aldri. Það var því
ekki úr vegi að spyrjast fyrir um
atvinnumöguleika fyrir hið unga
fólk, sem er að hefja lífsstarfið.
— Atvinnuástandið er gott hér,
nema helzt um vetrarmánuðina.
Undanfarna tvo vetur hefur ótíð
og hafís í fyrra staðið útgerðinni
fyrir þrifum. En það er ekki nóg
að atvinnumöguleikar séu góðir.
Upþbygging á félagslegum svið-
um virðist þurfa að fylgja eða
koma á undan veralegri íbúa-
aukningu. í landi, þar sem at-
vinna er nóg, spyr fólkið ekki
fyrst og fremst um atvinnuskil-
yrði, heldur um húsnæðismál og
félagsleg atriði, svo sem aðstöðu
til skólagðngu, og heilbrigðismál,
o.þ.h.“
— Hvemig er þeim málum hátt
ag á Htisavík?
— Á þessum sviðum hefur þró
unin orðið mjög ör á síðustu ár-
um. Ekki alls fyrir löngu var lok
ið við stórt og veglegt barnaskóla
hús í bænum, og tók það við af
gömlum skóla, sem var orðinn of
lítill. í hinu nýja skólahúsi er
starfræktur bama- og gagnfræða
skóli. Það þykir sýnt, að á næstu
árum verði byggingin orðin of h't-
il fyrir báða skólana, svo ráðizt
verður í undirbúningsfram-
Húsavik. Hin nýja Fiskiðjusamlagsbygging og kirkjan i baksýn.
víkurtúni og verður framkvæmd-
um haldið áfram á þessu ári.
Stefnum við að því að ljúka við
malarvöll á næsta árL Með tím-
Áskell Einarsson, bæjarstjóri Húsavíkur
kvæmdir við byggingu nýs gagn
fræðaskóla á þessu ári. Þess má
geta, að í skólanum er stór og
vandaður íþróttasalur, þar sem
áhugamenn hafa aðstöðu til
íþróttaiðkana sér að kostnaðar-
lausu. Sama er að segja um þá
aðstöðu, sem bærinn veitir í skóla
húsinu og barnadagheimilinu fyr-
ir félagsstörf og tómstundaiðju.
Aðistaða fyrir félagslíf hefoir
ekki verið eins og bezt væri á kos
ið hér á Húsavík. Hefur þar kom
ið til skortur á hentugri félags-
aðstöðu. Nú höfum við hins veg-
ar ráðizt í byggingu glæsilegs fé-
lagsheimilis, sem á að geta Ml-
nægt kröfunum. Þar verður stór
salur fyrir almennar skemmtan-
ir og annar fyrir kvikmyndasýn-
ingar og leikstarfsemi. Þá verða
á efri hæð litill salur fyrir smærri
samkomur ásamt herbergjum fyr-
ir félagsstarf. Hótel verður svo
reist í sambyggingu við félags-
heimilið. Það, sem hamlað hefur
framkvæmdum að talsverðu leyti,
eru stórfelld vanskil félagsheim-
ilasjóðs, en reynt hefur verið að
halda áfram framkvæmdum eftir
megni.
Úr þvi, að ég er farinn að tala
um félagsmálin, vil ég geta þess,
að á síðasta ári var hafin bygg-
ing mikils íþróttaleikvangs á Húsa
anum á að koma þarna grasvöll-
ur og sérvellir f. handknattleik.
Þá verður á þessu ári unnið að
nýjum bamaleikvelli fyrir norður
bæinn. Hér er og nýlega byggð
sundlaug, sem nýtir heitt vatn,
sem kemur upp undan Húsavík-
urhöfða. Nú er áformað að byggja
yfir laugina á næstu árum.
— Hvað vilitu segja mér um
heilbrigðismálin ?
— Á síðasta ári var gerð fok-
heJd ný sjúkrahússbygging, fyrir
30-60 sjúklinga á Húsavík. Fram
kvæmdum er nú haldð áfram og
búizt er við, að sjúkrahúsið verði
tekið í notkun 1968 eða 1969. Að
byggingunni standa auk bæjarins
SuðurjÞingeyjarsýsla og Keldu-
neshreppur í N-Þing. Þegar bygg
ingu sjúkrahússins lýkur, verður
það mikill og merkur áfangi í
heilbrigðismálum héraðsins, sem
býr að því um langa framtíð. Ný-
lega er lokið endurbótum á lækn-
ingastofum og læknisbústað. Ný
sjúkrabifreið hefur verið fengin
hingað fyrir tilstilli Rauða Kross
Húsavíkur með ríflegum styrk frá
Húsavíkurbæ.
— Þú sagðir mér áðan, að Hús-
víkingar byggðu afkomu sína að
mjög miklu leyti á útgerð. Hvað
telur þú markverðast í útgerðar-
málum hér?
— Þegar minnzt er á útgerð,
kemur mér fyrst í hug Fiskiðju-
samlagið, þar sem það helzt í hend
ur við útgerðina. Hin reisulega
bygging Fiskiðjusamlags Húsavík-
ur er eitt af því fyrsta, sem fyrir
augu ber, þegar komið er af hafi.
Fyrirtæki þetta er sameign bæjar-
ins, kaupfélagsins og annarra
smærri hluthafa. Það var reist með
almennu átaki hér á áranum kring
um 1950, og er almennt talið, að
Fiskiðjusamlagið sé í fremstu röð
frystihúsa um hagkvæman rekstur.
Fyrirtækið hefur bætt mjög hag
útgerðarinnar hér. Það hefur þrátt
fyrir minnkandi afla greitt fisk-
verðsuppbætur fram yfir ákveðið
fiskverð. Það ákvæði er og í lög-
um fyrirtækisins, að skylt er að
greiða uppbót á innlegg, ef tekju-
afgangur verður. Óhætt er að full-
yrða, að þetta er einsdæmi á land-
inu, en það 'hefur gert það að verk
um, að við höfum komizt hjá
þeirri ógæfu, að sitja uppi með
mörg frystihús, sem kepptu um
fiskmagn, sem raunar væri ekki
til skiptanna.
Fiskiðjusamlagið hefur i vaxandi
mæli tekið upp fjftlbreyttari nýt-
ingu fiskafurða, að því er varðar
frystingu og glímir nú við ýmis
ný verkefni í sambandi við fryst
inguna. Athugun fer nú fram á
vegum samlagsins á því, hvort ekki
sé hægt að auka verðmæti afurða
úr beinum og úrgangi með ný-
tízkulegri nýtingaraðferðum. Þá
mun Fiskiðjusamlagið eflaust taka
til athugunar á næstu árum, hvort
ekki sé hægt að heilfrysta hluta
aflans, t.d. kola og flatfisk, þíða
síðan upp og fulivinna á þeim
tíma, sem enginn afli berst að
landi. Fyrir þessu er reynsla er-
lendis og er ekki vafa undirorpið,
að þetta yrði veruleg atvinnubót
í bænum.
Um útgerðina má annars segja,
að héðan eru gerðir út fjórir §tór-
ir bátar til síldveiða og útgerðar
annars staðar. Hlutdeild þeirra í
atvinnuuppbyggingunni heima fyr
ir er því aðallega bundin við síld-
ina. Héðan róa átta þilfarsbátar
allt árið og leggja upp afla sinn
uyggmg ii-isKio|usamiags nusaviKur n. r.